Morgunblaðið - 13.01.1990, Síða 16

Morgunblaðið - 13.01.1990, Síða 16
1 n 16 4 MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 13. JANUAR 1990 Gervitungli bjargað um borð í geimfeijuna Kólumbíu Houston. Reuter. ÁHÖFN bandarísku geimferj- unnar Kólumbíu tókst í gær að bjarga hinu svonefiida LDEF- gervitungli. Hefði það hrapað til jarðar í næsta mánuði ef það hefði ekki náðst um borð í ferj- una. Tunglið er á stærð við stræt- isvagn og um borð í því höfðu verið gerðar 57 mismunandi vísindatilraunir. Tannburstar geta verið gróðrarstíur sjúkdóma Florida. Frá Atla Steinarssyni, fréttaritara Morgunblaðsins. TANNBURSTAR geta verið mikl- ar gróðrarstíur fyrir bakteríur og þeir geta dreift sýklum sem valda tannskemmdum og tann- holdssjúkdómum og einnig kvefi, ■ JERÚSALEM - Shimon Peres, varaforsætisráðherra Israels, hót- aði í gær stjórnarslitum ef sam- steypustjórn Verkamannaflokksins og Likudflokksins tækist ekki að koma hreyfingu á viðræður um frið í Miðausturlöndum. Peres sagði að friðarumleitanir væru komnar í hnút og ef ekki yrði hoggið á hann kæmi að því að taka þyrfti ákvörð- un um framtíð stjórnarsamstarfs- ins. t ■ WASHINGTON - Verðfall varð á verðbréfamörkuðum í New York í gær er bandarísk stjórnvöld skýrðu frá því að verðlag hefði hækkað um 0,7% í desember. Verð- fall á mörkuðum í London og Tókíó' í gær varð enn til að þrýsta á Bandaríkjadollar og auka á fallið í Wall Street. ■ BRUSSEL - Fangi sem dæmd- ur var til dauða fyrir morð í Belgíu hefur krafist þess að dómnum verði fullnægt. Hann hefur hótað beigísk- um stjórnvöldum málshöfðun ann- aðhvort fyrir Mannréttindadóm- stólnum í Strassborg-eða dómstóli Evrópubandalagsins í Lúxemborg verði hann ekki tekinn af lífi. Dauðarefsing var aflögð í Belgíu í lok fyrri heimsstyijaldarinnar á þann hátt að konungur landsins breytir viðstöðulaust dauðadómum í lífstíðarfangelsi. inflúensu, bronkítis og maga- truflunum, samkvæmt niðurstöð- um nýlegrar rannsóknar. Dr. Richard Glass við Okla- homa-háskólann segir að fólk ætti að skipta um tannbursta á tveggja vikna frésti en meðan tannbursti sé í notkun eigi að geyma hann óvarinn í svefnherberginu því bakt- eríur þrífist best í hlýju og röku lofti eins og er oft í baðherbergjum og tannburstahylkjum. Dr. Glass segir að til að gæta ítrasta hreinlætis eigi heilbrigt fólk að skipta um tannbursta á tveggja vikna fresti en þrívegis sé það með kvef—á byijunarstigi sjúkleikans, þegar fólki fer að líða betur og þegar það hefur náð fullri heilsu á ný- Hann segir að krabbameinssjúkl- ingar eigi að skipta um tannbursta á þriggja daga fresti meðan þeir gangast undir efnalækningar. Sama gildi um ofnæmissjúklinga. Sjúklingar sem gangist undir meiri- háttar skurðaðgerð eigi að skipta um tannbursta daglega því að eftir aðgerð er sýkingarhættan mest. Þessar nýju kenningar dr. Glass vekja nokkra athygli því tann- burstaframleiðendur telja að al- mennt skipti Bandaríkjamenn ekki um tannbursta nema á níu mánaða fresti að meðaltali. Til að finna einhvern milliveg hafa blöð bent á einnota tannbursta og einnig þann möguleika að sótt- hreinsa tannburstana a.m.k. aðra hvora viku með því að skola þá upp úr sótthreinsandi vökva. Til þessa hefur nokkrum gervi- tunglum verið bjargað um borð í bandarískar geimferjur. Að þessu sinni var björgunin flóknari og vandasamari en áður þar sem LDEF-tunglið er mun stærra en hin fyrri. Er það 11 tonn að þyngd, 10 metra langt og fimm metrar í þver- mál eða á stærð við stóran strætis- vagn. Tunglið hafði verið á lofti frá því í apríl 1984. Er það í raun fljúg- andi rannsóknarstofa. Um borð hafa verið gerð'ar ýmsar vísindatil- raunir þar sem könnuð hafa verið áhrif langvarandi geislunar utan gufuhvolfsins á margs konar hluti. Er gert ráð fyrir að upplýsingar sem úr þeim fást rriúni hafa mikla þýð- ingu við hönnun geimfara, gervi- tungla, og ekki síst geimstöðvarinn- ar Frelsis (Freedom) sem í bígerð er að smíða. Kólumbíu var skotið á loft sl. þriðjudag og er ráðgert að hún lendi 19. janúar eftir 10 daga för. Hefur ferðin gengið að óskum hingað til. Á miðvikudag kom áhö|n Kólumbíu fjarskiptahnetti fyrir ’ bandaríska sjóherinn á braut. Smávægis vatn- sleka varð vart í fyrradag um borð í geimfeijunni en áhöfninni tókst að gera við hann og hefur hann engin áhrif á leiðangurinn. Gervitunglinu bjargaö Bandarísku geimferjunni Kólumbfu var skotið á loft á þriðjudag. Helsta markmið feröarinnar er að bjarga stóru rannsóknartungli, sem falliö hefur af braut sinni vegna bilunar. ;; Aðdragandinn: Gervitunglíð: ■ Gervitunglinu var skotið á loft f apríl 1984. Farmur: Ýmis varningur ■ Áformað var að ná þvf til jarðar ári sföar. til að kanna áhrif : Þvf var frestað til haustsins 1986. langvarandi geislunar i Geimferjan Challenger sprakk í loft upp f Lengd: Tæpir 10 m janúar 1986 og öll geimferðaáætlun Breidd: 4,3 m Bandarlkjamanna fór úr skorðum. Þyngd: 11 tonn ■ Verði gervitunglinu ekki bjargað hrapar það til jarðar I febrúar Tölvustýröur krani nær gervitúnglinu Gervitunglinu kom- iö fyrir (farm- rými ferjunnar Gervitungliö miöað viö flutningabíi Gervitungl hJíimSd1 NA3A KNTN Austur-Þýskaland: Endurreisn öryggis- lögreglunnar frestað - „Stasi“ njósnar enn um óbreytta borgara Austur-Berlín, Bonn. Reuter. HANS Modrow, forsætisráð- herra Austur-Þýskalands, lét í gær undan kröfúm flokka kommúnista samstarfs- stjórn og Fall Nicolae Ceausesciís: Vildi flýja og bauð lögreglu- manni fímm milliónir dala Búkarest. Reuter. NICOLAE Ceausescu, fyrrum einvaldur Rúmeníu, bauð ungum lögreglumanni sem gætti hans fimm milljónir dala (310 milljónir ísl. kr.) í mútur fyrir að leyfa sér að flýja. Þetta hafði rúmenskt dagblað eftir Jean Moldoveanu, yfírmanni rúmensku lögreglunn- ar, á fímmtudag. Þá hefúr verið skýrt frá því að veijendur Ce- ausescu-hjónanna hafí reynt að telja þau á að bera við geðveiki í réttarhöldunum yfír þeim, en þau hafí ekki tekið slíkt í mál. Ceausescu og kona hans, Elena, voru handtekin 22. desem- ber á flótta eftir að þyrla hafði flutt þau frá miðborg Búkarest. Þau voru tekin af lífi eftir tveggja til þriggja stunda réttarhöld þrem- ur dögum síðar. Rúmenskt dagblað hefur skýrt frá því að tveir lögreglumenn hafi handtekið hjónin í kornturni, sem hópur reiðra Rúmena hafi umkringt um 150 km norðvestur af Búkarest. Hjónin hafi verið falin í skógi og flutt í skjóli næt- ur í herbúðir í Tirgoviste, sem er um 35 km frá skóginum. Þar hafi þau dvalið um nóttina í her- bergi með þremur rúmum. Jean Moldoveanu sagði að ung- ur lögreglumaður hefði verið í herberginu með Ceausescu-hjón- unum alla nóttina. Hann hefði boðið þeim mat, dökkt brauð og kjötbollur sem hjónin hefðu fúlsað við með fyrirlitningu og kallað „gijót“. Hjónin hefðu heyrt skot- hvelli fyrir utan, tekið að skjálfa af hræðslu og falið sig undir borði og einu rúmanna. „Reynið að bjarga eigin skinni. Þið væruð ekki hér ef þið hefðuð leyft fólk- inu að fá mat,“ hefði þá lögreglu- maðurinn sagt við hjónin. Moldoveanu sagði að daginn eftir hefðu hjónin verið flutt í aðrar herbúðir. Þar hefði ein- valdurinn fyrrverandi boðið lög- reglumanninum fimm milljönir dala í mútur og sagt að hann vissi um öruggan felustað í Pítesti, um 70 km vestur af Tirgoviste. Ce- ausescu hefði síðan bætt við að kæmist hann ekki þangað vildi hann fara til Voineasa, fjallaþorps sem reist var árið 1980. Skammt frá þorpinu er gríðarstórt neðan- jarðarorkuver og leynileg úraní- um-verksmiðja. Moidoveanu sagði að lögreglumaðurinn hefði ekki svarað tilboðinu en kvartað yfir Nicolae og Elena Ceausescu skömmu áður en þau voru tekin af lífí fyrir þjóðarmorð og önnur grimmdarverk. því hversu erfitt sér hefði þótt að halda lítilli íbúð sinni við vegna skorts á peningum og byggingar- vörum á valdatíma Ceausescus. Nicolae Federescu, veijandi hjónanna, sagði í viðtali við franskan sjónvarpsmann á mið- vikudag að sér hefði reynst ómögulegt að verja þau sem skyldi vegna þess hve ósamvinnuþýð þau hefðu verið. „Við veijendurnir vildum að þau bæru við geðveiki, því það var eina vörnin sem kom til greina, en þau neituðu að vinna með okkur," bætti hann við. Hann sagði að hjónin hefðu neitað að standa upp þegar dómurinn var kveðinn upp og ekki sýnt nein viðbrögð þegar þau voru dæmd til dauða. Nýju valdhafarnir í landinu halda því nú fram að 50.000 manns hafi verið tekin af lífi á valdatíma Ceausescus, eða um 40 á viku hverri. 10.000 manns hafi- fallið í byltingunni í lok desem- ber. Alls hafi því 60.000 manns látið lífið vegna harðstjórnar Ce- ausescu-hjónanna, ekki aðeins í byltingunni í desember eins og talið var í fyrstu. sljórnarandstöðunnar og hætti við áætlanir um að endurreisa öryggislögregluna fyrir kosn- ingarnar í maí nk. Fram kemur í skoðanakönnun, að langflestir Vestur-Þjóðverjar telja, að Modrow sigli undir fólsku flaggi og sé ekki sá umbótasinni, sem hann þykist vera. Samstarfsflokkar kommúnista hótuðu að segja sig úr stjórninni ef Modrow og kommúnistaflokk- urinn hættu ekki við að endurreisa öryggislögregluna, sem stóð dygg- an-vörð um stalínismann í 40 ár. Átti að skipta um nafn á henni og kalla „Stofnun til verndar stjórnarskránni" og tilgangurinn sagður vera sá að beijast gegn nýnasisma og eiturlyfjasmyglur- um. Talsmenn þriggja af fjórum samstarfsfiokkum kommúnista segja hins vegar, að nýnasisminn í AuStur-Þýskalandi sé uppfinning kommúnistaflokksins. „Þetta mál sýnir vel hvernig kommúnistaflokkurinn reynir að seðja sitt gamla valdahungur," sagði Hans-Dieter Raspe, vara- formaður Fijálslynda demókrata- flokksins. Modrow tilkynnti á þingi í gær, að frestað hefði verið fram yfir kosningar að koma á fót nýrri öryggislögreglu og viðurkenndi jafnframt, að gamla öryggislög- reglan, hin hataða „Stasi“, njósn- aði enn um óbreytta borgara. Hét hann að binda enda á það. í skoðanakönnun Wickert- stofnunarinnar vestur-þýsku kem- ur fram, að 84% Vestur-Þjóðveija telja umbótatalið í Modrow aðeins vera kænskubragð til að reyna að tryggja áframhaldandi völd kommúnista í Austur-Þýskalandi.

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.