Morgunblaðið - 13.01.1990, Page 21
MORGU.NBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 13. JANÚAR 1990
21
Morgunblaðið/Rúnar Þór
Pétur Einarsson flugniálastjóri, Níls Gíslasonar hönnuður hjá DNG,
og Jón Knudsen formaður Flugbjörgunarsveitar Akureyrar.
Iðnþróunarfélag Eyjafjarðar:
Keypti hlutafé fyrir 1,1 millj.
Á síðasta ár} keypti Iðnþróun-
arfélag Eyjafjarðar hlutafé í fjór-
um fyrirtækjum fyrir rúmlega 1,1
milljón ki'óna.
Fyrirtækin sem félagið keypti
hlutafé í eru Fiskeldi Eyjafjarðar
hf., Hjalteyri, 600 þúsund krónur,
Ferðaskrifstofan Nonni hf. á Akur-
eyri 300 þúsund krónur, Dettifoss
hf. Akureyri, 150 þúsund krónur og
Leðuriðjan Tera hf. á Grenivík, 80
þúsund krónur.
Iðnþróunarfélagið á nú hlutafé í
9 fyrirtækjum, að upphæð 4.479.500
krónur. Markmiðið er að selja hlut-
afé í fyrirtækjum þegar þau eru vel
komin af stað og nota það til hlutaf-
járkaupa í nýjum fyrirtækjum.
Nýtt tæki á markað frá DNG:
DNG-miðun auðveldar
að miða út neyðarsenda
DNG-miðun er nýtt tæki sem hannað hefiir verið hjá rafeindafyrirtæk-
inu DNG á Akureyri. Hönnuðurinn, Nils Gíslason hjá DNG, afhenti
Pétri Einarsyni flugmálasfjóra fyrsta tækið, og hann kom því síðan
áfram til Jóns Knudsen formanns Flugbjörgunarsveitar Akureyrai'.
DNG-miðun er handhægt miðunartæki til að miða út neyðarsenda.
Pétur Einarsson flugmálastjóri mannanna í DNG“ sem brugðust
sagði við afhendinguna að tæki sem skjótt við. Flugbjörgunarsveitin á
þetta væri ófáanlegt í heiminum og Akureyri fékk fyrsta tækið og sagði
hefði því verið leitað til „galdra- Pétur að ætlunin væri að kaupa
Hugmyndasamkeppni:
Ellefu tillögnr skoðaðar nánar
DÓMNEFND í hugmyndasamkeppni Atvinnumálanefhdar Akureyrar
hefúr valið 11 tillögur af þeim 35 sem bárust, til nánari skoðunar.
Er fresti til að skila inn hugmynd-
um í samkeppnina lauk um miðjan
desember höfðu borist 35 hugmynd-
ir í allt. Markmið með samkeppninni
var að fá fram hugmyndir sem orðið
geti grundvöllur að stofnun nýrra
fyrirtækja í bænum eða orðið þáttur
í starfsemi núverandi fyrirtækja.
Dómnefndina skipa Torfi Guð-
mundsson fyrir Atvinnumálanefnd,
Emil Thoroddssen frá Iðntækni-
stofnun og Stefán Jónsson frá Há-
skólanum á Akureyri, en auk þeirra
hafa starfsmenn nefndarinnar einnig
farið yfir hugmyndirnar. Nú hafa
11 tillögur sem álitlegastar þóttu
verið teknar til nánari skoðunar, en
reiknað er með að dómnefnd skili
áliti upp úr næstu mánaðamótum.
Verðlaun verða síðan afhent 15.
febrúar.
nokkra tugi slíkra tækja og dreifa
til f lugbjörgunarsveita víða um land.
En Péfur, fyrir hönd Flugmála-
stjórnar, var með fleira í farteskinu
til handa Flugbjörgunarsveitinni;
auk þess að afhenda þeim DNG-
miðun, var hann einnig með fjögurra
watta rafstöð og fjölrásatalstöð, sem
sveitin hafði ekki áður yf ir að ráða.
Hönnun DNG-miðunar hófst síðla
síðasta sumars, en um er að ræða
miðunartæki fyrir neyðarsenda og
er hægt að miða á þremur bylgju-
lengdum; tveimur neyðarbylgjum og
einni æfingabylgju. Tækið mun
koma að góðum notum við leit að
flugvélum sem kunna að farast, sem
og einnig verði sjóslys. Mikilvægt
er að finna slysstað sem fyrst, en
tækið stuðlar að því að leitarmenn
komist sem fyrst á slysstað, þ.e.a.s.
að neyðarsendi.
DNG-miðun kom í góðar þarfir á
Akureyri fyrir skemmstu, neyðars-
endi hafði verið stolið í innbroti og
honum fleygt þannig að hann fór í
gang. Nils Gíslason frá DNG fór af
stað með nýja tækið og fann neyðar-
sendinn fljótt, en oft hefur það
reynst erfitt og kostnaðarsamt að
finna neyðarsenda.
Vélsmiðja
Tálknafjarðar
óskar eftir að ráða bifreiða- og vélaviðgerða-
mann.
Upplýsingar í síma 94-2525 og í hs. 94-2534.
ST. JÓSEFSSP.ÍTALI, LANDAKOTI
Matsveinn
óskar eftir góðu plássi á sjó, Er vanur.
Upplýsingar í síma 51964.
JWMJAi
HEILSUGÆSLUSTÖÐIN Á AKUREYRI
Laust starf
Heilsugæslustöðin á Akureyri óskar eftir að
ráða framkvæmdastjóra til þess að sjá um
daglegan rekstur stöðvarinnar.
Skriflegar umsóknir með upplýsingum um
menntun og fyrri störf sendist fyrir 10. febrú-
ar 1990 Ragnari Steinbergssyni, fram-
kvæmdastjóra eða Helga Bergs, stjórnar-
formanni, sem gefa allar nánari upplýsingar.
Heilsugæslustöðin á Akureyri,
Hafnarstræti 99,
600Akureyri,
sími 96-22311.
Aðstoðarlæknir við
barnadeild
Ársstaða aðstoðarlæknis við barnadeild St.
Jósefsspítala, Landakoti, er laus til umsókn-
ar. Staðan veitist frá 1. júní 1990. Umsóknar-
frestur er til 15. mars 1990.
Umsóknir með upplýsingum um námsferil
og fyrri störf skal senda til yfirlæknis barna-
deildar.
Reykjavík, 13.janúar1990.
St. Jósefsspítali, Landakoti.
Miklartekjur
- sölustörf símleiðis
Fyrirtæki, sem býður landsþekktar og viður-
kenndar vörur, óskar að ráða nokkra sölu-
menn til starfa. Starfið er fólgið í kynningu
og sölu símleiðis. Tekjur af starfinu geta
auðveldlega verið umtalsverðar. Reynsla af
sölustörfum er ekki nauðsynleg þar eð starfs-
menn hljóta sérstaka þjálfun á vegum fyrir-
tækisins. Lágmarksaldur er 18 ár.
Allar umsóknir verður farið með sem trúnað-
armál.
Upplýsingar í dag á milli kl. 15.00 og 18.00
í símum 626315 og 626318.
TILBOÐ - ÚTBOÐ
R!
^ Utboð - vatnsveita
Óskað er eftir tilboðum í vatnslagnaefni,
pípur, tengistykki og renniloka vegna Vatns-
veitu Kópavogs.
Útboðsgögn afhendast á skrifstofu bæjar-
verkfræðings, Fannborg 2, Kópavogi, 3.
hæð.
Tilboðsfrestur er til hádegis 29. janúar nk.
Bæjarverkfræðingur.
HÚSNÆÐIÓSKAST
Skrifstofuhúsnæði til leigu
Höfum til leigu á 2. hæð í Skeifunni 11A
200-270 fm glæsilega innréttað skrifstofu-
húsnæði. Húsnæðinu má skipta á ýmsa vegu
og leigja í hlutum. Næg bílastæði.
Upplýsingar veittar á skrifstofunni í síma
687400.
Lögmenn, Skeifunni 11a,
Sigurður Sigurjónsson hdl.
2ja-4ra herb. íbúð óskast
Hjón með tvö börn, sem búsett eru erlendis,
óska eftir 2ja-4ra herb. íbúð í Reykjavík eða
nágrenni, helst með húsgögnum, frá byrjun
febrúar til júní.
Þeir, sem hafa slíkt húsnæði í boði, eru vin-
samlega beðnir að hringja í síma 14688.
m sölu
Verslunin Ólabúð
sem er matvöruverslun á Eyrarbakka, er til
sölu.
Upplýsingar í símum 98-31393 og 98-31418.