Morgunblaðið - 13.01.1990, Síða 27

Morgunblaðið - 13.01.1990, Síða 27
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARÐAGUR 13. JANÚAR 1990 27 «4 ", 500 : ^ ^ 50^ frá ‘ Ga"aub\ússaf °ömaS.vrt0í SS& ISSSí. CasKo CasV-0 ^saúrö'.’W'x\arnarO° CasV-o '^eUa'J'V- ---------- BYLTINGARHETJUR John Wayne var átrúnaðargoð margra Rúmena Morgunblaðið/Sverrir Andri Már Ingólfsson, framkvæmdastjóri, ávarpaði veislugesti. SKEMMTANIR Arsaftnæli Veraldar fagnað ÞRETTÁNDINN Viðskiptavinum Ferðamiðstöðv- arinnar Veraldar og Pólaris var boðið til nýársfagnaðar á Hótel ís- landi fyrir skömmu í tilefni af ársaf- mæli ferðaskrifstofunnar. Hermann Gunnarsson var veislustjóri. Matur að hætti Spánveija var á borðum, gestum var boðið upp á ýmis skemmtiatriði, dregið var í ferðahappdrætti og Andri Már Ing- ólfsson framkvæmdastjóri Veraldar ávarpaði gesti. Tríó Önnu Guðnýjar Guðmundsdóttur flutti tónlist áður en borðhald hófst og Haukur Heiðar lék á píanó meðan á því stóð. Pétur Jónasson lék spænska gítartónlist, þávar dans- og tískusýning f Iutt af félögum í Módel ’79 og dönsurum frá Dansstúdíói Sóleyjar. Sýndar voru myndir frá ýmsum þeim stöðum þar sem Veraldarfarþegar dvöldust á síðasta ári, Sigrún Hjálmtýsdóttir söng nokkur lög við unditieik Önnu Guðnýjar Guðmundsdóttur. Ómar Ragnarsson f lutti skemmtiatriði við undirleik Hauks Heiðars og hljóm- sveitarinnar Stjórnarinnar og einnig komu Hermann Gunnarsson og Helga Möller honum til aðstoðar og fengu þau gesti til að syngja með. Kormákur Baltasar og Ástrós Gunn- arsdóttir dönsuðu argentínskan tangó og síðan stigu veislugestir sjálfir dansspor á sviðinu á Hótel íslandi. Grímuball fyrir börn varpinu. ‘ „Ég reyndi að líkjast John Wayne,“ sagði Lucian Ristea, sem er 28 ára gamall og var svo lánsamur að geta tekið myndir leikarans upp á mynd- band þegar hann var við nám í háskóla hersins. „Ég spilaði vestrana aftur og aftur á mynd- bandinu, sem skröltir núna eins og dráttarvél. Mér finnst hann vera mikið hörkutól - en reglu- lega góður náungi inn við beinið, mildur og vin- gjarnlegur.“ Ristea hefur sjálfur komist í rúmenska sjón- varpið, því hann var fjórum sinn- um fulltrúi bæjar síns í -spurninga- keppni, sem sýnd var í áróðurs- s’kyni. „Ég varð nokkuð frægur. En sannast að segja var ég dálít- ill ræfill á þessum tíma. Úrslit keppninnar voru alltaf ákveðin fyr- irfram.“ Flestar spurningarnar voru um ræður, sem sjálf Dóná viskunnar, Nic- olae Ceausescu, hafði flutt. „En þegar sjónvarps- mennirnir komust að því að við viss- um ekki svörin létu þeir okkur læra þau áður en upptökur hófust. Ég held að þeir hafi vitað að stjórnarfarið var ekki eins og það átti að vera.“ Dansarar og sýningarfólk frá Dansstúdíói Sóleyjar og Módel ’79 fluttu dans- og tískusýningu á Veraldarkvöldinu. Uppselt var á afinælisfagnað Veraldar og ekki fengu allir sæti til að fylgjast með skemnitiatriðunum. Eyverjar, félag ungra Sjálfstæðismanna í Vestmannaeyjum, stóð að vanda fyrir barnagrímudansleik á þrettándanum. Eyveijar, sem fyrir skömmu héldu upp á 60 ára afmæli félagsins, hafa um áratugaskeið staðið fyrir grímudansleik á þrettándanum. Mikill ijöldi barna sótti grímudansleikinn og voru búningar þeirra margbreytilegir. Grímudansleiksins er beðið með eftirvænt- ingu af börnum í Eyjum og fjölgar grímuklædd- um börnum á ári hveiju. Að þessu sinni var fjölmenni slíkt að salurinn í Samkomuhúsinu var nánast fullur. Sjá mátti marga sniðuga búninga, allt frá litlum Rauðhettum til flug- véla. Dómnefnd var vandi á höndum að velja úr 20 bestu búningana sem fengu viðurkenn- ingu. Fyrstu verðlaun hlaut stóit og mikið aðventu- Ijós. Önnur verðlaun fékk jólasveinn sem hálfur stóð upp úr reykháf og þriðju verðlaun hlaut vekjaraklukka sem tifaði og hringdi eins og alvöru klukka. Það voru mörg ánægð andlit sem gengu heim á leið að dansleiknum loknum og nú geta börnin farið að láta hugann reika eftir hug- myndum að búningum fyrir næsta ár. Grímur Hetjur rúmensku byltingar- innar voru ekki allar af holdi og blóði. Sumar þeirra voru kvik- myndahetjur. John heitinn Wa- yne var til að mynda „Sá stóri“: tákn frelsisins og betri framtíðar í augum margra Rúmena. Hundruð rúmenskra ung- menna, sem búa við landamærin að Júgóslavíu hafa ánetjast vestrum í júgóslavneska sjón- John Wayne MorgunblaOið/Sigurgcir jonasson Búningarnir er hlutu verðlaun á grímuballinu í Eyjum. Fyrslu verðlaun hlaut aðventuljósastjaki, önnur verðlaun hlaut jólasveinn í strompi og þriðju verðlaun hlaut tifandi vekjaraklukka. /7 V/SA Samkort

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.