Morgunblaðið - 13.01.1990, Síða 35
MÓRGUNBLAÐIÐ IÞROTTUt LAUGARDAGUR 13. JANÚAR 1990
HANDKNATTLEIKUR / ISLANDSMOTIÐ
Guðmundur Guðmundsson í kunnuglegri stöðu á vellinum. Guðmundur
og samheijar eru hins vegar ekki á kunnuglegum slóðum í deildinni nú.
„Heimavellirnir
vega þungt“
- segirGuðmundurGuðmundsson,
leikmaður og þjálfari Víkings
KEPPNI í 1. deild karla í handknattleik hefst á ný í dag eftir fjög-
urra vikna hlé. Leikmenn hafa samt ekki verið í fríi, heldur æft
og leikið æfingaleiki, en tvær umferðir verða að þessu sinni.
Síðan verður annað hlé þar til eftir Heimsmeistarakeppnina.
KNATTSPYRNA
Fjögurra liða mót:
Anderlecht
sigraði
Anderlecht sigraði á fjögurra
liða móti, sem fram fór á
Kanaríeyjum, vann HSV 1:0 í úr-
slitaleik í gær. Þrír fastamenn And-
erlecht voru ekki í
Frá byrjunarliðinu, en
Bjarna Arnór Guðjohnsen
Markússyni kom inná
sem vara-
iBelgiu , . ...
maður á miðjuna a
60. mínútu og fimm mínútum síðar
kom markið.
Anderlecht lék fyrst við Malmö
og vann 4:3 í vítakeppni eftir að
staðan að leiktíma loknum var 2:2.
Arnór lék ekki með, en hann verður
í banni í næsta leik í belgísku deild-
inni, gegn Waregem 21. janúar.
HSV vann Leverkusen 3:2 í
keppni um þriðja sætið.
HMITEKKO
Ritgerðasam-
keppni um ísland
og Tékkóslóvakíu
HSÍ og tékkneska handknatt-
leikssambandið hafa ákveðið að
koma á ritgerðasamkeppni fyrir
börn á aldrinum 8-15 ára hér á
landi og í Tékkóslóvakíu, í tilefni
af heimsmeistarakeppninni, sem
fram fer ytra 28. febrúar til 10.
mars nk.
Annar tékknesku blaðamann-
anna sem fylgdi landsliði Tékka
hingað til lands á dögunum, Ja-
roslav Velísek, á sæti í skipulags-
nefnd heimsmeistarakeppninnar.
Hann sagði alltaf hafa verið gott
samband „milli okkar og HSÍ, en
aldrei betra en undanfarna mánuði
eftir að undirbúningur HM komst
í fullan gang,“ sagði hann.
Nefnd ritgerðasamkeppni er hug-
mynd Velíseks. „íslensku krakkarn-
ir eiga að skrifa það sem þau vita
um Tékkóslóvakíu og öfugt. Síðan
mun sameiginleg dómnefnd velja
fjórar bestu ritgerðirnar í hvoru
landi — og höfundar þeirra fá verð-
laun. Eg er sérstaklega spenntur
fyrir því hvað íslensk börn vita um
heimaland mitt,“ sagði hann í sam-
tali við Morgunblaðið. Þeir sem
hafa áhuga á að senda ritgerðir í
samkeppnina eru beðnir að gera
það sem fyrst, til skrifstofu HSÍ í
Laugardal.
ÚRSLIT
Handknattleikur
2. deild karla:
Þór Ak. - Selfoss..:.frestað til kl. 13.00 í dag
3. deild A:
ÍBÍ-UFHÖ..................................
3. deild B:
Fylkir - Ármann b....................26:21
2. deild kvennæ
Þór - Selfoss......frestað til kl. 14.15 í dag
Skíði
Stökk af 90 m palli í Harracliov í Tékkósló-
vakíu í gær. Liður í hcimsbikarkeppninni:
stig
1. DielerThoma, V-Þýskalandi............222.5
..............(112 og 120.5 metrar)
2. Ladislav Dluhos, Tékkóslóvakíu........211
....;........(109ogll5metrar)
3. Jiri Parma, Tékkóslóvakíu...........208.5
..............(105 og 117.6 metrar)
4. Staffan Tállberg, Svíþjóð...........205.5
............(109.5 og 112 metrar)
5. Miran Tepes, Júgóslavíu.............204.5
............(109.5 og 113 metrar)
Frantisek Jez, Tékkóslóvakfu.........204.5
............(106.0 og 112.5 metraij
7. Emst Vettori, Austurríki............201.5
............(107.5 og 111 metrar)
8. Heiko Hunger, A-Þýskalandi............201
...................(108ogll0metrar)
9. Ole-Gunnar Fidjestöl, Noregi..........200
..............(106 og 111 metrar)
10. Vladimír Bretjsev, Búlgaríu........197.5
...................(103ogll4metrar)
Wemer Haim, Austuníki..............197.5
............(104.5 og 110 metrar)
Rall
Hið árlega París-Dakar rall stendur nú yfir
— en því lýkur á þriðjudaginn, 16. janúar. Í
gær var ekinn 14. hluti keppninnar, 674 kfló-
metrar frá borginni Timbuktu í Malí til Nema
í Máritaníu.
Bjöm Waldegaard, Svíþjóð, sigraði 14. hluta
keppninnar í gær, og komst við það upp í 2.
sætið. Vatanen varð ijórði cn hélt engu að
síður fyrsta sætinu. Annar í gær varð Belginn
Jacky Ickx og þriðju Phjlippe Wambergue.
Staðan er þannig í flokki bifreiða:
refsitími; klst./mín/sek:
1. Ari Vatanen, Finnlandi.........24:57.36
klst/mín/sek á eftir fyrsta maimi:
2. Bjöm Waldegaard, Svíþjóð......1:12.37
3. Philippe Wambergue, Frakklandi....l:18.21
4. Alain Ambrosino, Frakklandi...3:56.24
(Fjórir efstu aka á Peugeot)
5. Andrew Cowan, Bretl. (Mitsubishi) .4:52.21
6. Kenjiro Shinozuka, Japan (Mitsub.) 6:28.32
7. Hubert Auriol, Frakkl., (Volksw.)....7:20.45
8. Salvador Servia, Spáni (R. Rover) ...7:56.25
9. Henri Pescarolo, FVakkl. (R. Rover) 9:54.47
10. J. Jacques Ratet, Frakkl. (Toyota).10:51.43
Mútorlljól:
1. Edi Orioli, Ítalíu................70:43.29
min/sek á eftir fyrsta manni
2. Carlos Mas Samora, Spáni............58.29
3. Alessandro De Petri, Ítalíu.......2:27.27
4. Franco Picco, Ítalíu..............2:52.25
5. Thicrry Magnaldi, Fi-akklandi.....3:10.32
6. Gilles Picard, Frakklandi.........3:14.14
7. Luigi Medardo, Ítalíu.............6:09:47
8. Gaston Rahier, Belgíu.............6:39.33
9. Femando Gil Moreno, Spáni.........8:57.15
10. Gilles Charbonnier, Frakklandi.12:58.08
Knattspyma
England, 3. deild:
Chestcr - Brenlford........................1:1
4. deild:
Halifax - Colchester.......................1:1
Southend - Wrexliatn.......................2:1
Fjórir leikir verða á dagskrá í
dag, en KR og FH leika á mið-
vikudagskvöld. Morgunblaðið fékk
landsliðsmennina og þjálfarana
Guðmund Guðmundsson, Víkingi,
og Þorgils Óttar Mathiesen, FH, til
að spá í spilin.
Víkingar í óþekktri stöðu
Guðmundur og samhetjar í
Víkingi eru í áður óþekktri stöðu —
í botnbaráttu. „Ég hef aldrei lent í
öðru eins á ferlinum, en við verðum
að ráða fram úr vandanum. Leikur-
inn gegn Gróttu verður gífurlega
erfiður, en hjá okkur kemur ekkert
annað en sigur til greina," sagði
hornamaðtlrinn, sem missti af
síðustu leikjum Víkings vegna
meiðsla og munaði um minna.
Landsliðsmaðurinn taldi að sama
yrði uppi á teningnum fyrir norðan.
og í Seljaskóla. „Það býr mikið í
KA-liðimi, sem veitir Val verðuga
keppni. IR-ingar hafa komið mér á
óvart, en Stjarnan hefur búið sig
sérstaklega vel undir þessa leiki og
því á ég von á jöfnum og tvísýnum
leik.“
Hann var hins vegar ekki í nokkr-
um vafa með síðustu tvo leikina.
„ÍBV er með einn sterkasta heima-
völlinn og er að auki með góðan
mannskap —ég spái Eyjamönnum
sigri gegn HK. Þá held ég að FH
sigri KR, því Laugardalshöll er ekki
heimavöllur í orðsins fyllstú merk-
ingu og KR og Víkingur gjalda
þess. Tilfellið er að heimavellirnir
vegá mjög þungt og geta ráðið úr-
slitum."
Svipað og landsliðsfyrirliðinn
reiknaði með
Þorgils Óttar sagði stöðuna í
deildinni nú nokkuð svipaða og
hann reiknaði með í haust. „Keppn-
in hefur verið jöfn og skemmtileg,
og spennan á líklega eftir að auk-
ast,“ sagði landsliðsfyrirliðinn. FH
er efst ásamt Val, „en Stjarnan er
langt í frá út úr myndinni auk þess
sem ég tel að KR-ingar eigi eftir
að skipta sér verulega af topp-
baráttunni,‘.‘ sagði hann — en þessi
tvö lið eru jöfn í 3.-4. sæti, þrernur
Þorgils Óttar Mathiesen.
stigum á eftir toppliðunum. „Ég á
von á mjög erfiðum leik gegn KR
á miðvikudaginn,“ bætti hann við.
Hvað leiki dagsins varðar spáði
Þorgils Óttar því að viðureign
Víkings og Gróttu yrði mjög jöfn.
„Þetta verður erfitt fyrir Víking-
ana. Þeir eru mun neðar í deildinni
en ég reiknaði með, þeir hafa verið
óheppnir með meiðsli í vetur.“
Þorgils sagðist ekki telja neina
spurningu að ÍBV sigraði HK á
heimavelli í Eyjum og eins sagðist
hann reikna með að Valsmenn sigr-
uðu KA á Akureyri. „Þeir hafa spil-
að mjög vel og ef þeir halda því
áfram ættu þeir að vinna fyrir norð-
an. Þá hef ég trú á að Stjarnan
vinni í Seljaskóla. ÍR er spútniklið
vetrárins, eins og Grótta í fyrra.
Ef til vill hefur verið um ákveðið
vanmat að ræða hjá hinum liðunum,
eii því má heldur ekki gleyma að
það er mikil barátta í ÍR-ingum.“
35
foúm
FOLK
■ GUNNAR Kjartansson og Óli
Olsen, alþjóðadómarar í handknatt-
leik, verða að störfum í Noregi um
næstu helgi. Þeir bytja á því að
dæma í Lottó-keppninni; fjögurra
þjóða keppni, a.m.k. viðureign
Norðmanna og Vestur-Þjóðveija
og síðan dæma þeir leik Nord-
strand og Polisen frá Stokkhólmi
í Evrópukeppni bikarhafa í kvenna-
flokki.
■ ARNA Steinsen hefur verið
ráðinn þjálfari 1. deildariiðs KR í
knattspyrnu kvenna. Arna mun
jafnframt leika með liðinu, eins og
undanfarin ár.
■ VILHJÁLMUR Einarsson,
einn hinna vösku knattspyrnu-
bræðra í liði Víðis í Garði, hefur
ákveðið að leggja skóna á hilluna.
Þetta kemur fram í Víkurfréttum,
þar sem þess er ennfremur getið
að Vilhjálmur eigi að baki 287
leiki með Víðisliðinu.
■ VALSMENNIRNIR Baldur
Bragason og Þórður Birgir Boga-
son verða löglegir með 3. deildar
liðinu Paderborn Neuhaus í Vest-
ur-Þýskalandi á næstunni, en þeir
æfðu með liðinu í haust og halda
aftur út á mánudag að loknu jól-
afríi hér heima. Þeir koma aftur
tímanlega til að vera löglegir með
Val í fyrsta leik íslandsmótsins í
knatspyrnu.
■ LEIKMENN írska landsliðsins
í knattspyrnu fengu andvirði 3,3
millj. ísl. kr. á mann fyrir að tryggja
sér farseðilinn til HM á ítaliu.
Englendingar fengu „aðeins“ 950
þús. kr. og Skotar 1,1 millj. kr.
■ TVEIR bestu knattspyrnu-
menn Rúmeníu, þeir Gheorghe
Hagi og Marius Lacatus, sem leika
með Steaua Búkarest, fá að fara
frá Rúmeníu eftir HM á Ítalíu og
freysta gæfunnar í Vestur-Evr-
ópu. Þetta tilkynnti íþróttaráðherra
Rúmeníu, Mircea Angelescu, á
ferð sinni í Hollandi í vikunni.
Hann sagði að breytingar yrðu
gerðar í Rúmeníu á næstunni,,
þannig að atvinnumennska verði
tekin upp í knattspyrnu og körfu-
knattleik.
■ EVERTON hefur mikinn
áhuga á að fá danska landsliðs-
manninn Jan Mölby til sín, skv.
fréttum dönsku blaðanna. Kenny
Dalglish, framkvæmdastjóri Liv-
erpool, er nú að kanna boð frá
Everton. Ef hann tekur því er
næsta víst að hann vilji fá Graeme
Sharp eða Mike Newell í skiptum
fyrir Mölby. Colin Harvey, fram-
kvæmdastjóri Everton, segir að
Mölby sé rétti maðurinn á miðjuna
hjá Everton, með n-írsku lands-
liðsmönnunum Norman Whiteside
og Kevin Sheedy og Skotanum
Stuart McCall.
ÍSLANDSMÓTIÐ 1. DEILD
HEIMALEIKIR ÚTILEIKIR SAMTALS
Leikir u J T Mörk u J T Mörk Mörk Stig
VALUR 10 4 1 0 126:109 4 0 1 125:104 251:213 17
FH 10 5 0 0 140:114 3 1 1 131:116 271:230 17
KR 10 4 1 0 117:103 2 1 2 106:116 223:219 14
STJARNAN 10 4 0 1 134:106 2 2 1 100:98 234:204 14
IR 10 3 2 -0 121:104 1 0 4 105:116 226:220 10
KA 10 2 O 3 110:115 1 1 3 111:122 221:237 7
ÍBV 10 2 2 1 122:117 0 1 4 112:128 234:245 7
VÍKINGUR 10 0 1 3 88:92 1 2 3 132:149 220:241 5
GRÓTTA 10 2 O 3 102:105 0 1 4 99:124 201:229 5
HK 10 1 2 3 123:138 0 0 4 82:110 205:248 4
HANDKNATTLEIKUR
Sjö landsleikir fyrir HM
ÍSLENSKA landsliðið í hand-
knattleik mun leika sjö lands-
leiki fyrir HM-keppnina í
Tékkóslóvakíu. Leikirnir fara
allir fram hér á landi í febrú-
ar. Fimm þeirra verða leiknir
á aðeins sex dögum.
Rúmenar koma hingað til
lands og leika þrjá landsleiki
10., 11., og 12. febrúar. Svisslend-
ingar koma síðan í kjölfarið og
verða hér á landi í æfingabúðum
með íslenska liðinu. Leiknir verða
tveir landsleikir, 14. og 15. febrú-
ar og einnig verða leiknir tveir
óopinberir landsleikir gegn Sviss.
Rétt áður en landsliðið heldur
til Tékkóslóvakíu koma Hollend-
ingar til landsins og leika hér tvo
leiki - 22. og 23. febrúar. Eftir
þá leiki heldur íslenska liðið til
Tékkóslóvakíu.