Morgunblaðið - 17.01.1990, Síða 2
2
MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 17. JANÚAR 1990
Samningaviðræður:
Hyggjast ákveða
tímaáætlun í dag
FORYSTUMENN Alþýðusambandsins, Vinnumálasambandsins og
Vinnuveitendasambandsins áttu með sér tveggja tíma fund síðdegis í
gær, og ákváðu að hittast í nýjan leik í dag, þar sem þeir hyggjast
reyna að setja niður tímaáætlun og taka ákvarðanir um hvernig stað-
ið verði að kjarasamningunum.
Einar Oddur Kristjánsson, for-
maður VSÍ, sagði að afloknum fund-
inum f gærkveldi, að þessi nefnd, sem
gjarnan er nefnd minni nefndin, til
aðgreiningar frá samninganefndun-
um, hefði farið yfir stöðuna og í dag
myndu þeir tímasetja það hvemig
staðið yrði að samningnum. „Við
reynum að setja það niður fyrir okk-
ur hvemig við ætlum að standa að
þessu og hvenær,“ sagði Einar Odd-
ur.
í dag verður einnig haldinn mið-
stjórnarfundur hjá Alþýðusambandi
íslands, þar sem fjallað verður um
samningaviðræðumar.
Skákmótið í Wijk aan Zee:
Margeir í 6.-9. sæti
MARGEIR Pétursson gerði jaftitefli í gær við sænska stórmeistar-
ann Ulf Andersson á alþjóðlega skákmótinu í Wijk aan Zee í Hol-
landi. Margeir er nú í 6.-9. sæti eftir fjórar umferðir, með tvo vinn-
inga. Short er efstur með þrjá vinninga.
Fjórar umferðir hafa verið tefld-
ar á Hoogovens skákmótinu í borg-
inni Wijk aan Zee í Hollandi. Mar-
geir hefur gert jafntefli í öllum
sínum skákum. í fyrstu umferð var
það breski stórmeistarinn Nunn,
því næst hinn sovéski Dlugy og í
þriðju umferð hollenski stórmeist-
arinn Van der Wiel.
í 2.- 5. sæti eftir fjórar um-
ferðir eru Kortsjnoj, Dokhoian,
'Nunn og Anaud. í 6.-9. sæti eru
ásamt Margeiri, Piket, Kuijf og
Andersson. Dlugy er í 10. sæti,
Gurevich í 11. sæti og Portish í
12. sæti. Neðstir og jafnir eru Van
der Wiel og Nijboer.
Van der Sterren er í efsta sæti
í B-flokki með fullt hús eftir tvær
umferðir.
Kaup ríkisins á Fæðingarheimilinu:
Kemur ekki til greina
—segir Davíð Oddsson borgarstjóri
DAVÍÐ Oddsson borgarstjóri telur ekki koma til greina að selja
eða leigja ríkinu hluta Fæðingarheimilisins í Reykjavík, en slík
ósk barst borgaryfirvöldum í gær frá heilbrigðisráðuneytinu.
Borgarstjóri segir að leigusamningur hafi þegar verið gerður
við hóp lækna og borgaryfirvöld væru við hann bundin.
„Allur þessi málatilbúnaður af
hálfu ráðuneytisins er óneitanlega
mjög sérstakur,“ sagði Davíð
Oddsson. „í fyrsta lagi segir ráðu-
neytið að það haf i frétt að til stæði
að selja hluta Fæðingarheimilisins
í Reykjavík. Þetta er mjög skrítin
yfirlýsing, þar sem opinber um-
ræða hefur verið um málið í þijá
til fjóra mánuði. í öðru lagi er
vert að benda á að viðkomandi
húsnæði hefur ekki verið notað
undir starfsemi Fæðingarheimilis-
ins í sex ár.“
Davíð taldi það athyglisvert að
ekkert hefði heyrst frá ráðuneyt-
inu fyrr en eftir að tilkynnt hafi
verið opinberlega að gengið hafi
verið frá §amningum. „Sýnir sú
staðreynd að hér er einungis um
að ræða sýndarmennsku af hálfu
ráðuneytisins." Davíð taldi það og
merkilegt að bréf sem átti að
hafa verið póstlagt sér fyrir helgi,
hefði ekki borist fyrr en í gær inn
á borgarráðsfund. Fjölmiðlar
hefðu hins vegar verið komnir
með bréfið í hendur á laugardag
og sunnudag. „Þetta eru ekki
vinnubrögð sem sæma ráðuneyti
heldur pólitísk bellibrögð," sagði
Davíð Oddsson borgarstjóri.
Morgunblaðið/Árni Sæberg
Rekisteftia við farþegavagn Vestfjarðaleiðar sem verkfallsverðir
stöðvuðu á Arnarneshæð. Aður hafði vagninum verið ekið á bíl í
eigu verkfallsvarðar við Bústaðaveg. Á innfelldu myndinni er bíllinn
sem ekið var á.
Verkfallsverðir Sleipn-
is kærðir til lögreglu
VINNUVEITENDASAMBAND íslands heftir kært verkfallsverði Bif-
reiðastjórafélagsins Sleipnis til Rannsóknarlögreglu ríkisins fyrir að
steftia lífi og limum vegfarenda í hættu við verkfallsaðgerðir í gær
og fyrradag. Jafnframt fer Vinnuveitendasambandið fram á að rann-
sökuð verði framganga lögreglunnar í Hafnarfírði í þessu máli, en
hún er sökuð um að hafa liðsinnt verkfallsvörðum.
Vinnuveitendasambandið fer
þess á leit að opinber rannsókn fari
fram á atburðum sem sambandið
telur að hafi brotið gegn 176. grein
almennra hegningarlaga og fjölda
ákvæða umferðarlaga. Þess er ósk-
að að höfðað verði opinbert mál
gegn þeim sem gerst hafi sekir um
refsiverð brot.
Þá kærði Jón Sigurðsson, for-
stjóri Járnblendiverksmiðjunnar á
Grundartanga, fjóra verkfallsverði
til lögreglustjórans á Akranesi í gær
fyrir að stöðva akstur á starfsmönn-
um fyrirtækisins til vinnu.
Bílstjóri á farþegavagni Vest-
fjarðaleiðar ók í gærmorgun á
fólksbíl í eigu verkfallsvarðar. Tveir
menn voru í bílnum sem ekið var á
en hvorugan sakaði.
Verkfallsverðir lögðu bifreið sinni
fyrir framan farþegavagninn sem'
hafði verið stöðvaður á Bústaðavegi
til að taka upp farþega sem voru á
leið til vinnu í álverinu í Straumsvík.
Bílstjórinn ók vagninum á hlið
fólksbílsins og ýtti honum á undan
sér nokkra metra. Verkfallsverðim-
ir höfðu ekki ráðrúm til að forða
sér út úr bílnum.
Önnur hlið fólksbílsins dældaðist
töluvert við ákeyrsluna. Bílstjóri
rútunnar ók síðan af vettvangi en
verkfallsmenn stöðvuðu hann
skömmu síðar á Arnarneshæð með
því að aka í veg fyrir rútuna. Atvik-
ið var kært til lögreglunnar í
Reykjavík.
Sjá einnig lirétt í miðopnu.
Fundað á tveimur stöð-
um um málefni Andra I
Fundur sýslumanna og dómsmálaráðuneytis:
Lögregluslj órar ljúki fleiri
málum án dómsmeðferðar
FUNDAÐ verður um máleftii ís-
lenzka úthafsútgerðarfélagsins og
mögulegan .þorskkvóta fyrir skip
þess Andra I á tveimur stöðum í
Bandaríkjunum í dag. Embættis-
menn frá báðum þjóðunum íúnda
í Washington, en Fiskveiðiráð
Norður-Kyrrahafsins fjallar um
málið í Anchorage. Ragnar Hall-
dórsson, framkvæmdastjóri ÍSÚF
mun fylgjast með gangi mála þar.
Umtalsverð breyting hefur síðustu
ár orðið á nýtingu aflaheimilda við
vesturströnd Bandaríkjanna. Fyrir
10 árum voru fiskveiðiskip annarra
þjóða nær einráð á miðunum og tóku
um 90% aflans. Nú eru beinar veiðar
útlendinga á þessum slóðum að engu
orðnar og hlutur samvinnufyrirtækja
útlendinga og heimamanna (Joint
Venture) þar sem heimamenn sjá um
veiðar, hinir um vinnslu, hefur
minnkað mjög. Hlutur samvinnufyr-
irtækjanna féll á síðasta ári niður í
740.000 tonn úr 1,4 milljónum tonna
árið áður en hlutur heimamanna
jókst að sama skapi. Heimamenn
nýta mögulegan afla æ meir og eru
mest brögð að því undan ströndum
Alaska. I fyrra komu þar 45.000
tonn af þorski til sameiginlegrar út-
hlutunar til samvinnufyrirtækjanna.
Sjá nánar á bls.18.
Hálka:
Yegfarendur
á varðbergi
MIKIL hálka var á götum og gang-
stéttum í Reykjavík í gær, en
óhöpp hennar vegna voru fá, sem
bendir til að fólk hafi verið vel á
varðbergi.
Að sögn Guðna Arinbjarnar, lækn-
is á slysadeild Borgarspítalans, var
dagurinn rólegur á deildinni, en tveir
vegfarendur handleggsbrotnuðu eftir
að hafa runnið til í hálku í Reykjavík.
Lögreglunni í Reykjavík var ekki
kunnugt um nein teíjandi vandræði
vegna hálkunnar.
Á FUNDI sem dómsmálaráðuneytið hélt í gær með sýslumönnum
og bæjarfógetum var greint frá því að í vetur yrði lagt fram á al-
þingi frumvarp um breytingu á lögum um meðferð opinberra mála
í þá átt að veita lögreglusljórum, þar á meðal sýslumönnum og
bæjarfógetum, víðtækari heimild til að ljúka málum án dómsmeð-
ferðar að sögn Þorsteins Geirssonar ráðuneytisstjóra.
Frumvarpið mun meðal annars
taka til mála vegna ölvunaraksturs
þar sem ekki er um ítrekun að
ræða og mála vegna réttindaleysis
við akstur. Þessar breytingar sagði
Þorsteinn vera í samræmi við sjón-
armið réttarfarsnefndar sem nú
hefði í smíðum nýtt frumvarp til
laga um meðferð opinberra mála.
Þá var tilkynnt um að nýskipuð-
um héraðsdómurum, og þeim sem
fyrir voru í 6 umdæmum utan
Reykjavíkur, verði framvegis falin
dómsmeðferð allra opinberra mála,
einnig þeirra sem nú má Ijúka méð
dómsátt.
* Einnig hefur verið ákveðið að
héraðsdómurum verði framvegis
falið að kveða upp úrskurði í fóg-
eta-, skipta-, og uppboðsréttarmál-
um sem sýslumenn og bæjarfógetar
eiga aðild að sem innheimtumenn
ríkissjóðs.
Að sögn Þorsteins Geirssonar
munu starfsmenn ráðuneytisins á
næstunni heimsækja hvert og eitt
embættanna og ræða þar hvernig
standa eigi að framkvæmd þessarar
nýbreytni. Að sögn Rúnars Guð-
jónssonar sýslumanns í Mýra- og
Borgarfjarðarsýslu, formanns
Sýslumannafélagsins, var fundur-
inn með ráðuneytismönnum gagn-
legur og ýmiss konar óvissu var þar
eytt. Hann sagðist telja að hin nýja
skipan kallaði á mestar breytingar
hjá stærstu embættunum. Hann
sagði að enn væru óljós nokkur
atriði, einkum hvað varðaði verka-
skiptingu fulltrúa og héraðsdómara
en þau myndu væntanlega skýrast
á næstunni.
Gölluð mjólk í búðum
MJÓLKURSAMSALAN hefur fengið kvartanir frá neytendum
og verslunum síðustu daga vegna þess að nýmjólk og léttmjólk
með dagstimplinum 17. janúar hefúr reynst gölluð, er ófitu-
sprengd. Aðeins er um hluta af framleiðslu eins dags að ræða
og því var mjólkin ekki innkölluð, en nokkru magni hefur verið
skilað.
Að sögn Péturs Sigurðssonar,
framkvæmdastjóra tækni- og
framleíðslusviðs Mjólkursamsöl-
únnar, eru tveir fitusprengjarar
notaðir við framleiðsluna og virð-
ist annar þeirra ekki hafa verið
rétt stilltur um tíma á fimmtudag-
inn var, en tekin sýni gáfu samt
ekkert óvenjulegt til kynna.
„Framleiðslan þennan dag var
rúmlega 100.000 lítrar ogþar sem
við vissum að aðeins lítið brot
hennar var ófitusprengt, var hún
ekki innkölluð," sagði Pétur.
Ekki lá fyrir um hvað mikið
magn væri að ræða, þar sem göll-
uð mjólk er enn að berast.