Morgunblaðið - 17.01.1990, Page 4
4
mÓrGUNBLÁðÍð MÍÐVÍílúDÁGlÆ W. jkNÚAR Í990
Hollustuvernd ríkisins:
Salmonellumengun
gieindist í kjúklingum
Salmonellumcng-un greindist í
kjúkiingum frá sláturhúsi Kletta-
kjúkiinga við árlega athugun Holl-
ustuverndar ríkisins á kjúklingum
í matvöruverslunum í desember,
og var á annað tonn kjúklinga
innkallað úr verslunum af þeim
Húsaleiga
hækkar
BORGARRÁÐ hefur samþykkt
2,5% hækkun á húsaleigu í borgar-
húsnæði frá og með 1. febrúar
næstkomandi. Jafhframt var sam-
þykkt að hækka rafinagn um 7,2%
og hita um 7,1% frá sama tíma.
Að sögn Gunnars Eydal skirfstofu-
stjóra borgarstjóra, byggir hækkunin
á hækkun byggingarvísitölu sam-
kvæmt útreikningi Hagstofu íslands
1. janúar síðastliðinn eins og kettiur
fram í bréfi húsnæðisfulltrúa borgar-
innar, er fylgir erindinu.
sökum. Að sögn Þórhalls Halldórs-
sonar, forstöðumanns Hollustu-
verndar, er ekki vitað um nein
tilfelli matareitrunar af þessum
sökum.
Að sögn Ásgeirs Eiríkssonar
kjúklingabónda að Klettum greindist
salmonellumengun í kjúklingum frá
tveimur framleiðendum sem slátrað
hafa hjá sláturhúsi Klettakjúklinga
í Árnesi í Gnúpveijahreppi, og hefði
sala á kjúklingum frá þessum fram-
leiðendura verið stöðvuð þar til úr-
bætur hafa verið gerðar á búum
þeirra. „Salmonella virðist vera orðin
landlæg hér á landi, og erfitt að eiga
við hana, en þrátt fyrir að aldrei
hafi verið viðhaft eins mikið hrein-
læti á búunum og síðastliðið ár þá
kemur þetta upp nú. Öruggustu
matvælin fyrir neytendur hvað varð-
ar salmonellumengun eru þau sem
eru soðin, steikt eða grilluð, og því
lítið að óttast fyrir neytendur í þessu
tilfelli, enda er greint frá þvi á um-
búðum kjúklinga hvernig fara skuli
með þá til þess koma í ve'g fyrir
hugsanlega sýkingu," sagði Ásgeir.
'Gæzlumenn fara um borð um skutrennuna.
Morgunblaöið/Knstján Jónsson
Veiðarfæri Norðmanna könnuð
TÖLUVERT er nú af norskum
og færeyskum loðnuskipum inn-
an landhelginnar samkvæmt
samningi íslands, Grænlands og
Noregs um nýtingu og skiptingu
loðnustofhsins. Norsku skipin
frysta mörg loðnuna um borð og
fer hún þá í fiskifóður.
Skipin veiða þá ákveðið magn,
en halda síðan inn á firði til að vinna
aflann. Þegar norsku og færeysku
skipin eru hér að veiðum, ber þeim
að fara að íslenzkum lögum og
sinnir Landhelgisgæzlan eftirliti.
Skipveijar af Ægi fóru í síðustu
viku um borð í norska skipið Atl-
antic Viking þar sem hann lá inni
á Reyðarfirði. Farið var á bát á
milli og upp í skipið um skutrennu
þess. Nót skipsins stóðst mælingar.
VEÐUR
Heimild: Veðurstofa íslands
(Byggt á veðurspá kl. 16.15 i gaer)
ÍDAGkl. 12.00:
VEÐURHORFUR í DAG, 17. JANÚAR.
YFIRLIT í GÆR: Skammt suðvestur af Reykjanesi er aðgerðalftil
970 mb lægð sem grynnist en 960 mb lægð um 400 km suður
af Ingólfshöfða hreyfist allhratt norðaustur. Yfir Grænlandi er 1010
mb hæð. Veður fer heldur kólnandi.
SPÁ: Austan og norðaustan 4-6 vindstig og él á Norður- og Aust-
urlándi en víöast þurrt á Suðvestur- og Vesturlandi.
VEÐURHORFUR NÆSTU DAGA:
HORFUR Á FIMMTUDAG: Fremur hæg breytileg átt og kalt í
veðri. Víða dálítil él, einkum þó á Norður- og Vesturlandi.
HORFUR Á FÖSTUDAG: Norðlæg átt og frost um allt land. Él á
Norður- og Norðausturlandi en annars þurrt og víða léttskýjað.
TÁKN:
Heiðskírt
Léttskýjað
Hálfskýjað
Skýjað
Alskýjað
x Norðan, 4 vindstig:
r Vindörin sýnir vind-
stefnu og fjaðrirnar
vindstyrk, heil fjöður
er 2 vindstig.
/ / /
/ / / / Rigning
/ / /
* / *
/ * / * Slydda
/ * /
* * * * Snjókoma
* * *
10 Hitastig:
10 gráður á Celsius
Skúrir
*
V El
— Þoka
= Þokurnóða
’ , ’ Súld
OO Mistur
—J- Skafrenningur
j”^ Þrumuveður
VEÐUR VÍÐA UM HEIM
kl. 12:00 í gær að ísl. tíma
hiti veftur
Akureyri -i-5 skýjaft
Reykjavík_____3 úrkoma i grennd
Bergen 7 skýjað
Helsinki t3 snjókoma
Kaupmannah. 9 léttskýjað
Narssarssuaq vantar
Nuuk +12 snjókoma
Osló 4 léttskýjað
Stokkhólmur 4 rigning
Þórshöfn 6 alskýjað
Algarve 15 léttskýjað
Amsterdam 11 súld
Barcelona 10 mistur
Berlín 11 rigning
Chicago 5 þokumóða
Feneyjar 5 þokumóða
Frankfurt 7 súld
Glasgow 11 rigning
Hamborg 10 skýjað
Las Palmas 19 léttskýjað
London 12 súld
Los Angeles 8 skýjað
Lúxemborg vantar
Madríd vantar
Malaga vantar
Mallorca vantar
Montreal vantar
New York 4 hálfskýjað
Orlando 17 skýjað
París 10 skýjað
Róm 10 þokumóða
Vín 9 skýjað
Washlngton 0 mistur
Winnipeg +4 alskýjað
Skipin moka loðnu
upp við Austfírði
LOÐNUSKIPIN halda áfram að moka upp afla út af Austfjörðum,
nánar tiltekið út af Skrúð en vestan Rauða torgsins. í gær var heild-
araflinn orðinn um 165.000 tonn, en frá sunnudegi til þriðjudags
tilkynntu skipin 54 sinnum um afla. Veiðin er bezt á kvöldin og
náist þá gott kast, er fullfermi nokkuð öruggt eftir nóttina.
Grænlenzku sjómennirnir eru nú
byrjaðir að koma um borð í íslenzku
skipin samkvæmt samningi
íslenzkra útvegsmanna og græn-
lenzku heimastjórnarinnar. Einn
Grænlendingur skal vera um borð
í hveiju skipi meðan það tekur
Grænlandskvótann, sem er rúm 600
tonn. Grænlenzku sjómennirnir fara
því milli skipa eftir því sem föng
eru á.
Á sunnudag fóru eftirtalin skip
með afla til Reyðarfjarðar: Helga
II. RE 920, Fífill GK 640, Harpa
SU 620 og Sjávarborg GK 800 tonn.
Til Þórshafnar fóru Þórshamar GK
með 570 tonn, Víkurberg GK 580
og Björg Jónsdóttir ÞH 520. Til
Seyðisfjarðar fóru Erling KE með
400 tonn, Dagfari ÞH 520, Huginn
VE 590 og Bergur VE 500. Tii
Vopnafjarðar fóru Húnaröst ÁR
770 og Keflvíkingur KE 520, til
Eyja fóru Sighvatur Bjarnason VE
með 650, Kap II. VE 650, Guð-
mundur VE 900 og Sigurður RE
1.400, Sunnuberg GK fór með 650
til Grindavíkur, Grindvíkingur GK
1.000 til Færeyja, Hákon ÞH með
1.000, Súlan EA 800 og Þórður
Jónasson EA 680 til Raufarhafnar,
Gullberg VE 620 og Guðrún Þor-
kelsdóttir SU 720 til Eskifjarðar,
Svanur RE 700, Rauðsey AK 600
og Höfrungur AK 910 til Neskaup-
staðar, Albert GK 700, Beitir NK
1.200, Pétur Jónsson RE 1.100,
Bjarni Ólafsson AK 1.050 og Hilm-
ir SU 1.350 til Siglufjarðar og
Börkur NK 1.250 til Skotlands.
Á mánudag voru eftirtalin skip
með afla: Skarðsvík SH 640 til
Raufarhafnar, Jón Kjartansson SU
1.050 til Eskifjarðar, Guðmundur
Ólafur ÓF 570 til Reyðarfjarðar,
Hólmaborg SU 1.400 til Siglufjarð-
ar, Júpíter RE 1.250 löndunarstað-
ur óákveðinn, Örn KE 600 til Seyð-
isfjarðar, ísleifur VE 740 til Eyja
og Háberg GK 650 til Grindavíkur.
Á þriðjudag tilkynntu eftirtalin
skip um afla: Huginn VE 600 og
Húnaröst ÁR 780 til Færeyja, Gígja
VE 750, Harpa SU 620 og Dagfari
ÞH 520 til Reyðarfjarðar, Höfrung-
ur AK 910 til Akraness, Víkurberg
GK 580 til Þórshafnar, Fífill GK
650 og Sjávarborg GK 790 til Rauf-
arhafnar, Helga II. RE 980 til Seyð-
isfjarðar og Þórður Jónasson EA
700, Þórshamar GK 600 og Svanur
RE 680, löndunarstaður óákveðinn.
Bjarni Sæmundsson:
Loðnutalning hefst
fyrir Norðurlandi
BJARNI Sæmundsson, skip Hafrannsóknarstofnunar, hefur lokið
loðnutalningu út af Austurlandi og heldur nú til leitar útaf Norður-
landi. Loðnan er farin að grisjast og eitthvað ber á ókynþroska
loðnu eftir því sem norðar dregur.
Bjarni var við loðnutalningu við Að sögn Sveins er loðnugangan
landgrunnsbrúnina norð-austur af á eðlilegum stað, þó reyndar hafi
Langanesi í gær og að sögn Sveins
Sveinbjörnssonar fiskifræðings er
skipið á leið vestur. Loðnutalning-
unni lýkur þann 24. janúar.
Sveinn segir að loðnan sé ekki
eins þétt á þessu svæði og ekki sé
mikii von til þess að finna miklar
torfur þegar vestar dregur; þó sé
það aldrei að vita, þar sem loðnan
eigi til með að blekkja menn.
hún verið nokkuð sunnarlega miðað
við árstíma í byijun janúar. Eðli
sínu samkvæmt fari sterkasta loðn-
an og elstu árgangarnir fremstir
fyrir, en á eftir fylgi yngri loðna
og veikari. Aðspurður sagði Sveinn
að ekkert benti til þess að loðnan
myndi hrygna fyrr en venjulega,
þannig að vertíðin ætti að vara
jafn lengi og vant er.