Morgunblaðið - 17.01.1990, Síða 7
MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 17. JANÚAR 1990
7
Öryggisncfiid prentiðnaðarins og Vinnueftirlit ríkisins:
Fræðslurit um skjávinnu gefið út
ÖRYGGISNEFND prentiðnaðarins hefur í samvinnu við Vinnueftir-
lit ríkisins gefið út fræðsluritið Tölvur, vinnan og fólkið. Ritið er
ætlað þeim er vinna við tölvuskjái og byggir á könnun á högum
skjávinnufólks í prentiðnaði auk annarra upplýsinga og ábendinga
um vinnuumhverfi.
í inngangi ritsins kemur fram,
að veturinn 1987 til 1988 hafi
farið fram könnun meðal skjá-
vinnufólks í prentiðnaði á vegum
Öryggisnefndar prentiðnaðarins.
Markmiðið var að fá innsýn í
helstu vandamál sem við væri að
etja, meðal annars í heilsufari,
aðbúnaði og vinnutíma. Niðurstöð-
urnar á síðan að nýta til endurbóta
og framfara þar sem því verður við
komið.
Könnunin náði til 123 bókagerð-
armanna á Stór-Reykjavíkursvæð-
inu og var spurt 70 spurninga. Á
þeim grundvelli var samin skýrsla
sem lögð var fram vorið 1988 og
hafa birst útdrættir úr henni í
ýmsum ritum. Ýmislegt er tengt
skjávinnu sem á erindi við fleiri
en starfsfólk í prentiðnaði og hefur
það m.a. leitttil þess að Vinnueftir-
lit ríkisins og Öryggisnefnd prent-
iðnaðarins hafa ákveðið að standa
sameiginlega að útgáfu þessa
bæklings.~
Ritið er unnið af þeim Sigríði
Stefánsdóttur réttarfélagsfræðingi
Mosfellsbær:
Nefiid falin uppstilling-
lista sjálfstæðismanna
Mosfellsbæ.
FULLTRÚARÁÐ sjálfstæðisfé-
laganna í Mosfellsbæ hefur
ákveðið að fela neíiid uppstill-
ingu á framboðslista sjálfstæðis-
manna í Mosfellsbæ fyrir sveit-
arstjórnakosningarnar í vor. Að
sögn Arnar Kjærnested, for-
manns uppstillingarneíhdar,
standa viðræður nú yfir við
væntanlega frambjóðendur og
ýmsa stuðningsmenn um niður-
röðun á listann.
Fyrir síðustu kosningar var beitt
skoðanakönnun og var mjög mikil
þátttaka sjálfstæðismanna í henni
og úrslit mjög afgerandi og ein-
dregin. Ástæður fyrir því að nú
var samþykkt að fela nefnd upp-
stillingu á listann eru eindregnar
niðurstöður í skoðanakönnuninni
fyrir síðustu kosningar, og einnig
að það fólk sem þá fékk mest
fylgi hefur gefið kost á sér aftur,
að því undanskildu að Þórdís Sig-
urðardóttir, sem sat í fjórða sæti,
dró sig í hlé af persónulegum
ástæðum.
Þeir bæjarfulltrúar Sjálfstæðis-
flokksins sem gefa kost á sér nú
eru Magnús Sigsteinsson, forseti
bæjarstjómar, Helga Richter,
Þengill Oddsson, og Hilmar Sig-
urðsson. Núverandi meirihluti er
fimm af sjö mönnum sem sitja í
bæjarstjórn Mosfellsbæjar.
J.M.G.
Undankeppni fyrir
Fegurðarsamkeppni
íslands hefst í febrúar
UNDANKEPPNI fyrir Fegurðarsamkeppni íslands hefst með
keppninni um Fegurðardrottningu Suðurlands á Hótel Örk þann
10. febrúar næstkomandi. Aðalkeppnin verður á Hótel Islandi
á annan í páskum, 16. apríl næstkomandi, og þá keppa 20 stúlk-
ur um titilinn Fegurðardrottning Islands 1990.
Gróa Ásgeirsdóttir fram-
kvæmdastjóri Fegnrðarsam-
keppninnar tjáði Morgunblaðinu
að á undanförnum árum hefðu
12-13 stúlkur tekið þátt í aðal-
keppninni, en að þessu sinni verða
þær 20. Fegurðardrottningar
landshlutanna eru þar á meðal,
en auk þeirra velur dómnefndin
ýmsar stúlkur úr nágrannasveit-
arfélögum Reykjavíkur til þátt-
töku og ef til vill stúlkur sem náð
hafa langt í undankeppninni í
Reykjavík og úti á landsbyggð-
inni.
Gróa sagði að á úrslitakvöldinu
verði fyrst valdar tíu efstu stúlk-
urnar og síðan fimm efstu úr
þeirra hópi.
Keppnin um Fegurðardrottn-
ingu Reykjavíkur fer fram á Hót-
el Borg 15. febrúar, Fegurðar-
drottningu Norðurlands í Sjallan-
um 16. febrúar, Suðurnesja í
Glaumbergi 17. febrúar, Austur-
lands í Egilsbúð 24. febrúar,
Vestfjarða 3. mars á ísafirði, en
ekki hefur enn verið ákveðið
hvenær keppnin um Fegurðar-
drottningu Vesturlands fer fram.
Dómarar frá Fegurðarsam-
keppni íslands eru í meirihluta í
dómnefndunum í öllum landshlut-
um, en að öðru leyti er allur
undirbúningur í höndum heima-
manna.
og Huldu Ólafsdóttur sjúkraþjálf-
ara hjá Vinnueftirliti ríkisins.
Annað starfsfólk Vinnueftirlitsins,
Öryggisnefnd prentiðnaðarins og
fleiri aðilar hafa einnig lagt hönd
á plóginn. Nefndina skipa þeir
Svanur Jóhannesson ritari FBM,
og er hann formaður, Örn Jóhanns-
son formaður FÍP, Steindór Hálf-
dánarson varaformaður FÍP og
Magnús Einar Sigurðsson prent-
smiður.
Forsíða fræðsluritsins
Tölvur, vinnan og fólkið.
Ríkisstjórnin:
2 milljónir
til aðstoðar
Rúmenum
RÍKISSTJÓRNIN ákvað á fúndi
sínum í gærmorgun að veita 2
miHjónir króna til hjálparstarfs
í Rúmeniu. Steingrímur Her-
mannsson forsætisráðherra seg-
ir að þetta hafi verið samþykkt
að beiðni Rauða krossins, og
yrðu þessir fjármunir teknir af
óráðstöfúðum fjármunum ríkis-
stjórnarinnar.
„Þetta var beiðni Rauða krossins
um tveggja milljóna króna gagn-
framlag ríkisins, til aðstoðar Rúm-
enum, en Rauði krossinn ætlar
einnig að hafa söfnun hér innan-
lands til aðstoðar Rúmenum,“
sagði forsætisráðherra.
Utsala sem
slær í gegn ! ^HITACHI
Nú á vetrardögum
abC bjóðum við hjá
Rönning i Kringlunni
heimilistæki á stórkostlegu
útsöluverði.
aílt að
sjonvarpstæki
myndbándstæki
25%, tökuvélar allt að 30%,
hljómtækiasamstæður «aa
15%, Örbylgjuofnar allt að 40%,
Þvottavélar allt að 10%,
kæliskánar - 25%.
i og kaffivélar allt að 10%.
RÖNNING
GÓ5 greiðslukjör -
visa og euro raðgreiðslur.
Sími 68 58 68.
KRINGLAN