Morgunblaðið - 17.01.1990, Blaðsíða 17
MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 17. JANUAR 1990
17
Haukur Halldórsson myndlistarmaður afhendir Gerði Steinþórs-
dóttur, formanni KRFÍ, og Birnu Guðjónsdóttur, sem sæti á í fulltrú-
aráði félagsins, grafikmyndina.
sá minnisvarði hans sem lengst
stendur. Á plötunum eru alls 8 aríur
eða atriði úr óperum og 25 sönglög,
öll íslensk að fjórum undanskildum.
Af verkefnavalinu má ráða tvennt:
annars vegar fjölhæfni hans sem
óperusöngvara, þótt Wagner sitji
þar að sjálfsögðu í fyrirrúmi, hins
vegar ræktarsemi hans í garð
íslenskrar sönglagagerðar. Hér má
finna fyrstu upptökur af mörgum
þekktustu og bestu lögum elstu tón-
skáldakynslóðarinnar: sex lög eftir
Árna Thorsteinson (þar á meðal
upptökuna á „Vorgyðjan kemur“ frá
1907), fjögur eftir hvorn, Svein-
björn Sveinbjörnsson og Bjarna Þor-
steinsson, færri eftir aðra. Hinir
yngri höfundar komast hér að sjálf-
sögðu ekki á blað, enda er rétt um
helmingur laganna tekinn upp fyrir
1926, og þá með þeirri frumstæðu
Tækni, að sungið var í gegn um
trekt, án rafmagnaðs hljóðnema og
magnara. Þetta verður að hafa í
huga, þegar hlustað er á þessar
upptökur, og er raunar áhugavert
að heyra hversu mikið af söngstíl
og persónuleika listamannsins
kemst til skila með þessum hætti.
Yngri upptökurnar sem ársettar eru
1926 og 1929 (útgefendur hafa að
vísu fyrirvara á öllum tímaákvörð-
unum í þessu sambandi), standa
hinum framar tæknilega, en athygl-
isvert er það, sem útgefendur vekja
sérstaka athygli á, að sumar plöt-
urnar hafa varðveist í aðeins einu
viðkvæmu og stundum ekki
óskemmdu eintaki. Þeir hafa tekið
þá stefnu, sem ég tel hárrétta, að
afrita upptökurnar eins og þær
koma fyrir, án þess að reyna að
hreinsa þær af suði og brestum.
Hefði það verið gert, mundi fleira
hafa farið forgörðum. — Sérstöðu
hefur hér síðasta upptaka Péturs,
um 15 árum yngri en hinar næst-
yngstu. Þetta er „íslands lag“
Björgvins Guðmundssonar, sem
hann syngur með Þjóðhátíðarkór
Sambands íslenskra karlakóra, tekið
upp í Hljómskálagarðinum í
Reykjavík 18. júní 1944, þegar Pét-
ur var á 60. aldursári, eina upptak-
an sem gerð er hér á landi og hin
eina sem ekki hefur verið gefin út
áður. Eins og útgefendur benda á
geymist hér líka vitnisburður um
þann andblæ sem hér ríkti á fyrstu
dögum íslenska lýðveldisins.
svo mikið er víst, að svo mikilfeng-
leg bygging er ekki reist til að fara
með neitt grín.
Glötuð menning
Mayarnir voru horfnir frá þessum
stað, þegar Spánveijarnir komu.
Frumskógurinn gleypti Chichén
Itzá, og rústir þessa furðulega
mannlífs fundust ekki fyrr en á
miðri síðustu öld. Það var erfitt að
slíta sig burt, þar sem maður reik-
aði um líkt og bergnuminn, frá einu
hofi til annars, umkringdur stór-
fengleik horfinnar menningar sem
raunverulegur lykill hefur enn ekki
fundist að. Myndletur Mayanna er
enn óráðið. Brottförin var einnig
dapurleg. Afkomendur þessarar dul-
arfullu þjóðar búa nú í gluggalaus-
um hreysum úr samanfléttuðum,
mjóum stöngum með þökum úr
pálmablöðum. Fólkið sjálft er þrifa-
legt, en umhverfis bústaði þess er
yfirgengilegur sóðaskapur, þar sem
börn, svín, hænur og kalkúnar velt-
ast um í sorpi nútímans úr plasti,
pappír og skarni. Fer kannski óhjá-
kvæmilega þannig fyrir þjóð sem
glatar menningu sinni?
Á þremur klukkustundum ókum
við í gegnum þúsund ár - til baka
til Cancún þar sem píramítarnir eru
ferðamannahótel - skel utan um
afþreyingu nútímans. Á annan í jól-
um synti ég í Karíbahafinu. Og
pálmakrónurnar svöruðu hafgolunni
með sefandi hvísli.
Höfundur er rithöfundur og
dósent í íslenskum bókmenntum
við Háskóla íslnnds.
M HUGLEIÐSL UKENNARINN
Acharya Ananda Gaorii frá Japan
heldur fyrirlestur í Menningarmið-
stöðinni Gerðubergi, Breiðholti,
fimmtudaginn, 18. janúar kl. 20.
Fyrirlesturinn, sem er fluttur á
ensku en þýddur á íslensku, fjallar
um hugleiðslu og hvernig finna
megi leið til betra lífs. Einnig mun
Didi Ananda Gaorii halda hel-
garnámskeið í hagnýtum jógafræð-
um. Þátttakendum verða kynntar
slökunaraðferðir og hugleiðsla og
rætt verður um skilning jóga á til-
gangi andlegra æfinga. Námskeið
verður haldið 20.—21. janúar í
Leikskólanum Sælukoti, Þorra-
götu 1, Skerjafirði. Nánari upplýs-
ingar eru veittar í Kornmarkaðin-
um. Námskeið er á vegum Ananda
Marga.
■ NÝLEGA er komið út hefti af
Frelsinu, tímariti um menningu og
stjórnmál. Af efni ritsins að þessu
sinni má nefna grein eftir Ola
Björn Kárason, sem nýlokið he'fur
námi í hagfræði í Bandaríkjunum.
Guðmundur Heiðar Frímanns-
son, heimspekingur, fjallar um það
hvort telja beri fóstureyðingar
morð, Gísli Jónsson, fyrrverandi
menntaskólakennari • á Akureyri,
skrifar um frelsi og fullveldi íslend-
inga. Hannes H. Gissurarson ræð-
ir um atvinnufrelsi, umhverfisvernd
og nýtingu náttúruauðlinda og Páll
Björnsson, sagnfræðingur, skrifar
um fijálshyggju Benjamins Const-
ants. Þá fjallar ritstjóri Fi-elsisins
meðal annars um fjörbrot sósíalis-
mans og atburðina í Austur-Evr-
ópu. í ritinu er einnig að finna
nokkra ritdóma og Stefán Snæv-
arr, skáld, birtir litla sögu sem
hann nefnir Jeríkó. Ritstjóri er
Guðmundur Magnússon. Útgef-
andi er Útgáfiifélag Frelsisins hf.
■ HAUKUR Halldórsson mynd-
listarmaður færði Kvenréttindafé-
lagi íslands nýlega grafíkmynd að
gjöf. Myndin er af tveimur konum
og heitir „Styrkurinn". Formaður
félagsins, Gerður Steinþórsdóttir,
veitti myndinni viðtöku og þakkaði
listamanninum höfðinglega gjöf.
Haukur er kunnur myndlistarmaður
og hefur haldið margar sýningar
hér heima og erlendis.
STAÐGREÐSIA 1990
SKATTHLUTFALL OG
PERSÓNUAFSLÁTTUR
ÁRÐ1990
Breyting á almennu skatthlutfalli og persónuafslætti hefur ekki í för meö sér að ný
skattkort veröi gefin út til þeirra sem þegar hafa fengiö skattkort. Launagreiöanda ber
hins vegar aö nota ofangreint skatthlutfall og upphæö persónuafsláttar
viö útreikning staögreiöslu.
Veita skal launamanni persónuafslátt í samræmi við það hlutfall persónuafsláttar sem
fram kemur á skattkorti hans.
RÍKISSKATTSTJÓRI
<3 augiýsingaþjOnustan/sia