Morgunblaðið - 17.01.1990, Blaðsíða 19
MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 17. JANUAR 1990
19
Eddie Skoller með
tvenna tónleika
HINN þekkti danski skemmtikraftur, grínisti, háðfugl og söngvari,
Eddie Skoller, er væntanlegur til Islands og mun halda hljómleika
í Gamla biói i þessari viku, laugardaginn 20. og sunnudaginn 21.
janúar, auk þess sem hann skemmtir á Herrakvöldi Lionsklúbbsins
Njarðar 18. janúar, en á vegum hans kemur Eddie Skoller nú öðru
sinni.
Eddie Skoller er danskur en
reyndar var faðir hans rússneskur
gyðingur, en móðir hans sænsk, og
hann fæddist í Bandaríkjunum
1944, en ólst upp í Danmörku frá
6 ára aldri. Hann útskrifaðist úr
Verzlunarskólanum í Kaupmanna-
höfn með ágætiseinkunn, en leidd-
ist skrifstofuvinnan og langaði að
skemmta fólki.
Fyrir 20 árum skemmti hann í
Tivoli í Höfn, og það tókst með
síkum ágætum, að síðan hefur hann
getað helgað líf sitt þeirri köllun
að skemmta fólki.
Hljómleikarnir í Gamla bíói 20.
og 21. janúar hefjast kl. 20.30, en
miðasala daglega kl. 15—19.
(Fréttatilkynning)
Eddie Skoller skemmtir með söngvaranum Cliff Richard.
Athugasemd frá Sig-
urjóni Péturssyni
MORGUNBLAÐINU hefúr borist eftirfarandi athugasemd frá Sigur-
jóni Péturssyni, borgarfúlltrúa Alþýðubandalagsins í Reykjavík:
í leiðara Morgunblaðsins síðast-
liðinn laugardag var fjallað um
Nesjavallaveitu og landakaup borg-
arinnar að Nesjavöllum.
I leiðaranum segir meðal annars
að í tengslum við þessi kaup „gerðu
andstæðingar sjálfstæðismanna
Nýtt tímarit:
Islensk
félagsrit
ÚT ER komið nýtt tímarit,
„íslensk félagsrit". Útgefandi
er félagsvísindadeild Háskóla
íslands. Tímaritið er helgað
félagsvísindum; rannsóknar-
niðurstöðum, yfirlitsgreinum,
ritdómum og annarri fræði-
legri umræðu. Ritstjóri er Sig-
urður J. Grétarsson.
í fyrsta tölublaði fyrsta ár-
gangsins eru auk ritnefndar-
spjalls sjö greinar. Rúnar Vil-
hjálmsson ritar grein um rann-
sóknir á eðli og þýðingu sam-
hjálpar. Bjöm Bjarnason og Þó-
rólfur Þórlindsson skrifa um
auglýsingar og prófkjör. Gísli
Pálsson ritar grein um ákvarð-
anir íslenskra skipstjóra undir
heitinu: „Hugboð eða hyggju-
vit?“ Sigurður J. Grétarsson
skrifar um styrk og takmarkanir
undirstöðu róttækrar atferlis-
hyggju Skinners. Daníel Bene-
diktsson skrifar hugleiðingar um
þróun og framtíð heimildanotk-
unar á Islandi í bókmenntum og
fræðimennsku. Björn S. Stefáns-
son ritar grein er hann nefnir:
„Sami maður á fleiri en einum
•framboðslista." Að endingu er
ritdómur um bókina „Tölfræði"
eftir Jón Þorvarðarson.
harða hríð að Davíð Oddssyni borg-
arstjóra og samstarfsmönnum hans
vegna kaupa á landi að Nesjavöll-
um“.
Hér er farið heldur fijálslega með
staðreyndir og því óska ég eftir að
hið rétta komi fram í blaðinu.
Reykjavíkurborg keypti jörðina
Ölfusvatn árið 1985, eða nokkuð
fyrir síðustu borgarstjórnarkosn-
ingar, af erfingjum Sveins Bene-
diktssonar fyrir óheyrilega hátt
verð að flestra mati, eða á liðlega
160 milljónir kr. ef verð er fært til
núvirðis eftir lánskjaravísitölu.
Jörðin Ölfusvatn er að mestum
hluta fjalllendi og við söluna
tryggðu fyrri eigendur sér áfram-
haldandi not af henni með sama
hætti og verið hefur.
Þegar þetta verð er borið saman
við kaupin á jörðinni Vatnsenda,
sem liggur að borgarmörkunum og
er að verulegum hluta gott bygg-
ingarland, þá sjá allir hve fráleitt
verð þarna var greitt.
Það er rangt, sem segir í leiðar-
anum að jörðin sé í, eða liggi að,
landi Nesjavalla.
Á milli Nesjavalla og Ölfusvatns
liggur jörðin Helguvík, sem er í eigu
Ragnhildar Helgadóttur, alþingis-
manns, og systkina.
Ölfusvatn verður tæplega nytjað
í tengslum við Nesjavelli nema Hita-
veitan kaupi einnig þá jörð.
Það er einnig rangt að þessi
landakaup hafi verið í tengslum við
fyrirhugaða stækkun hitaveitunnar
á Nesjavöllum, engar áætlanir Hita-
veitu Reykjavíkur ná svo langt að
nýting Ölfusvatns komi þar inn í
myndina.
Jörðin var ekki keypt vegna þarfa
Hitaveitunnar fyrir landið heldur
miklu fremur vegna þarfa seljanda
fyrir kaupverðið.
Kaupin á Ölfusvatni voru ekki'
góð kaup, en um hitt verður ekki
deilt, þar átti sér stað góð sala.
Sigurjón Pétursson,
borgarfulltrúi.
Signý Sæmundsdóttir, sópran- Peter Guth, stjórnandi Vínartónleika.
söngkona.
Þrennir Vínartónleikar
Sinfóníuhlj ómsveitarinnar
ÁRLEGIR Vínartónleikar Sinfóníuhljómsveitar íslands verða haldnir
í þessari viku. Vegna mikillar aðsóknar undanfarin ár verða þeir
haldnir þrisvar sinnum, fyrst á Selfossi, fimmtudaginn 18. janúar
kl. 20.30, því næst í Háskólabíói á föstudagskvöld, einnig klukkan
20.30 og að lokum í Háskólabíói klukkan 16.30.
Auk hljómsveitarinnar taka einsöngvararnir Signý Sæmundsdótt-
ir, sópransöngkona, og Anton Steingruber, tenór, þátt í flutningnúm
ásamt kór Langholtskirkju. Kórsljóri er Jón Stefánsson en hljóm-
sveitarsljóri Petér Guth, sem hefúr stjórnað á Vínartónleikum hér
undanfarin ár.
Hljómsveitarstjórinn, Peter Guth,
hefur valið tónleikunum yfirskrift-
ina „Ástin er himnesk" með tilvísun
til þeirra vinsælu verka, sem flutt
verða, þar sem oftar en ekki er fjall-
að um ástina. Flutt verða aríur og
þættir úr óperettunum Leðurblök-
unni, Sígaunabaróninum og Nótt í
Feneyjum eftir Jóhann Strauss,
Guidittu, Paganini og Evu eftir
Franz Lehár, Valsadraumnum eftir
Oscar Strauss og Greifynjunni
Marizu eftir Emmerich Kálmán.
Signý Sæmundsdóttir stundaði
nám í söng og fiðluleik hérlendis
og framhaldsnám í söng í Vínar-
borg og lauk þaðan prófi í fyrra-
vor. Hún hefur víða komið fram,
bæði í útlöndum og hér heima.
Árið 1987 söng hún aðalhlutverkið
í uppfærslu Þjóðleikhússins í leikrit-
inu Yermu og síðastliðið haust með
Sinfóníuhljómsveitinni í tónleika-
ferð um Vestfirði, þar sem einmitt
var flutt Vínartónlist.
Austurríkismaðurinn Anton
Steingruber hefur starfað við söng
í áratug. Hann stundaði nám í
Bruckner-tónlistarháskólanum og
hóf feril sinn með „Musica antiqua“
í Vín og hefur síðan sungið í fjöl-
mörgum óperum í Austurríki, á ít-
alíu og í Þýskalandi.
íslenskir unnendur Vínartónlist-
ar þekkja nú flstir orðið hljómsveit-
arstjórann Peter Guth. Þetta er í
Ásthildur Pétursdóttir, bæjarfulltrúi í Kópavogi:
Gef ekki kost á mér
ÁSTHILDUR Pétursdóttir bæjarfúlltrúi Sjálfstæðisflokksins í Kópavogi
helúr ákveðið að gefa ekki kost á sér til áframhaldandi setu í bæjar-
sljórn. Hefúr Ásthildur ákveðið að einbeita sér að ferðamálum og farar-
stjorn.
„Það er ekki laust við það að fólk
hafi verið að hafa samband við mig
og spyrja hvers vegna ég sé ekki
rneð í prófkjörinu," sagði Ásthildur.
„Ég er einfaldlega að hætta í bæjar-
stjórn, sátt við alla, enda staðið iengi
í þessu.“ Ásthildur hefur setið í bæj-
arstjórn sem aðalmaður síðastliðin
tvö kjörtímabil og síðan 1970 sem
varamaður.
Ásthildur hefur starfað um árabil
sem farastjóri og verið þess vegna
mikið eriendis. „Þetta tvennt gengur
illa upp saman og hef ég ákveðið að
snúa mér alfarið að ferðamálum. Ég
mun þó að sjálfsögðu starfa áfram
fyrir flokkinn og standa við bakið á
félögum mínum í Kópavogi sem við
taka,“ sagði Ásthildur.
Anton Steingruber, tenór.
þriðja sinn sem hann kemur til að
stjórna árlegum Vínartónleikum
hljómsveitarinnar auk þess sem
hann tók þátt í ferð hennar um
Vestfirði í haust. Hann hefur með
framkomu sinni og alúð i garð tón-
listarinnar heillað áheyrendur. Auk
þess að vera hljómsveitarstjóri í
Vínarborg, er hann þekktur fiðlu-
leikari og tekur gjarnan fiðluna sér
í hönd á tónleikum. Peter Guth
hefur sagt um Vínartónlistina: „Hin
tímalausa Vínartónlist, sem er
þekkt um allan heim og er alltaf
jafn aðlaðandi, er það listform, sem
hefur einna jákvæðust áhrif á
flesta. Umhyggja fyrir henni er
mér alvarleg skylda sem tónlistar-
manni frá Vín“.
Miðasala á tónleikana í Reykjavík
fer fram í Gimli við Lækjargötu á
skrifstofutíma og við innganginn
við upphaf tónleika. Á Selfossi verð-
ur miðasala við innganginn.
(Fréttatilkynning)
1. prentun AUK-dagatalsms „AF LJÓSAKRI
AI JKhf
er uppseld hjá útgefanda.
prentun v'æntanleg úr bókbandi.
Sölustaðir: Casa, Epal/Gegnum glerið, Katel, Nýhöfn, Bókabúð Steinars,
Bóksala stúdenta, Eymundsson, Mái og menning, Penninn, Veda, Hans
Petersen, Álafossbúðin, íslenskur heimilisiðnaður, Land og saga,
Rammagerðin og íslenskur markaður KeflavíkurflugveHi.