Morgunblaðið - 17.01.1990, Qupperneq 20
20
MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 17. JANÚAR 1990
\
Noregur:
Spillingarmálin í Noregi
verða æ umfangsmeiri
Ósló. Frá Rune Timberlid, fréttaritara Morgunbiaðsins.
Spillingarhneykslið í Ósló vef-
ur stöðugt upp á sig og hafa nú
13 manns verið ákærðir fyrir
Afríska þjóðarráðið:
Stefnumót-
andi fundur
Lusaka, Zambíu. Reuter.
LEIÐTOGAR Afríska þjóðar-
ráðsins (ANC) eru nú á fundi í
Lusaka í Zambíu og er umræðu-
efhið hvort taka beri upp samn-
ingaviðræður við sfjórnvöld í
Suður-Afríku. Er þetta í fyrsta
sinn í aldarfjórðung, sem leið-
togarnir hittast allir en sumir
hafa verið árum saman í fangelsi
og aðrir í útlegð.
Walter Sisulu og Govan Mbeki
var vel fagnað við komuna til
Lusaka en sú ákvörðun Suður-
Afríkustjórnar að sleppa Sisulu og
öðrum ANC-félögum úr fangelsi
hefur gefið samtökunum byr undir
báða vængi. Segjast þau nú reiðu-
búin að setjast að samningaborði
um framtíð Suður-Afríku en hafa
sett nokkur skilyrði fyrir því. Fyrst
og fremst, að Nelson Mandela verði
látin laus og er búist við, að það
verði á næstunni.
ýmis afbrot. Telur lögreglan ekki
ósennilegt, að 30 manns verði
komnir á sakamannabekkinn
innan skamms. Þar að auki er
svipað mái komið upp í Dramm-
en, öðrum stærsta bæ í Noregi,
og býst lögreglan við sams konar
tíðindum firá fleiri bæjum.
Norðmenn hafa lengi talið sig
vera öðrum heiðarlegri en nú hefur
þessi ímynd orðið fyrir alvarlegum
hnekki. Við lögreglurannsókn hefur
komið í ljós, að í 20 ár hefur það
tíðkast að smyrja ofan á verk fyrir
Óslóarborg, sem er stærsti vinnu-
veitandi í landinu, með 78.000
manns á launum. Verktakar hafa
mútað starfsmönnum, einkum
þeim, sem starfa við húsnæðis- og
viðhaldsdeildina, með dýrum bílum,
kostnaðarsömum viðgerðum á hús-
eignum þeirra, með sumarbústöð-
um og sumarleyfisferðum.
Við rannsókn málsins hefur einn-
ig komið í Ijós, að sumir starfs-
manna borgarinnar hafa valdið
henni stórtjóni með því að selja lóð-
ir á allt of lágu verði — sjálfum
sér, ættingjum sínum eða mönnum,
sem ekki eru til. Nokkrum vikum
síðar eru lóðirnar seldar aftur með
ofsagróða.
Þessi mál teygja anga sína víða
og meðal annars inn í Hvítasunnu-
söfnuðinn í Ósló. Fyrir nokkrum
árum reisti hann sér nýja og mikla
kirkju en nú hefur komið í ljós, að
einn af eftirlitsmönnum með við-
haldi borgareigna, maður sem er í
söfnuðinum, borgaði kirkjuna að
hluta með efni frá einu sjúkrahúsa
borgarinnar. Þessi sami maður
byggði sér líka sannkallað sumar-
setur og gat komið öllum kostnaðin-
um inn á fjárlög sjúkrahússins.
Af þeim, sem hafa verið ákærð-
ir, eru níu starfsmenn Óslóarborg-
ar, fjórir, sem hafa þegið mútur,
og fimm, sem hafa verið í lóða-
braski, og svo að auki fjórir verk-
takar.
Tékkóslóvakía:
Reuter
Um 6.000 söfiiuðust saman við bæinn Olomouc í Tékkóslóvakiu sl.
sunnudag til að krefjast brottflutnings sovéska herliðsins. A tös-
kunni, sem fest var á trjárenglu, stendur skrifað: „Ferðataska fyrir
heimferðina."
Viðræður um brott-
flutning Rauða hersins
Prag. Reuter.
VIÐRÆÐUR um brottflutning
sovéskra hermanna frá Tékkó-
slóvakíu hófúst í fyrradag í höf-
uðborg landsins, Prag. Tékk-
neska ríkisstjórnin hefúr krafist
þess að allir sovéskir hermenn
verði á brott úr landinu fyrir
árslok.
Pólland:
Vimmstaðasellur bannaðar
Varsjá. Reuter.
RÍKISSTJÓRN Póllands hefúr
ákveðið að stjórnmálaflokkum
skuli bannað að starfa á vinnu-
stöðum í ríkiseigu og innan hers
og lögreglu landsins.
Undanfarin 40 ár hafa sellur
kommúnista verið starfræktar á
hveijum einasta vinnustað í landinu
og forráðamenn fyrirtækja hafa
þurft að bera allar ákvarðanir und-
ir fulltrúa kommúnistaflokksins.
Eftir sigur Samstöðu í þingkosning-
unum í júni í fyrra tóku verkamenn
að mótmæla því að vera undir stöð-
ugu eftirliti fulltrúa yfirvalda en
kunnugir segja að þetta hafi verið
einn mikilvægasti liðurinn í alræðis-
valdi kommúnistaflokksins.
Pólska fréttastofan PAP skýrði
frá því í gær að fulltrúar flokksins
hefðu haft sig á brott af fjölmenn-
asta vinnustað landsins, stáliðjuveri
í borginni Krakow sem bera nafn
Vladímírs Leníns, leiðtoga rúss-
neskra bolsjevikka. Fram kom að
verkamenn hefðu einnig krafist
þess að nafni stálversins yrði breytt
en í síðasta mánuði var stytta af
Lenín fjarlægð eftir fjölmenn mót-
mæli verkafólks.
CTK, hin opinbera fréttastofa
Tékkóslóvakíu, skýrði frá því að
viðræðurnar væru háfnar og fylgdi
fréttinni að aðstoðarutanríkisráð-
herrar ríkjanna tveggja færu fyrir
samninganefndunum. Lubos
Dubrovsky, talsmaður tékkneska
utanríkisráðuneytisins, sagðist bú-
ast við því að viðræðurnar stæðu
yfir í þijá daga en kvað engin
ákveðin tímamörk hafa verið sett.
Um 75.000 sovéskir hermenn eru
nú í Tékkóslóvakíu en Rauði herinn
hefur verið með herstöðvar í landinu
síðan 1968 er herafli Varsjárbanda-
lagsins gerði innrás og steypti
stjóm umbótasinnans Alexanders
Dubceks. Ráðamenn í Sovétríkjun-
um fullyrtu árum saman að innrás-
in hefði verið gerð í samræmi við
ósk Tékka en talsmenn Sovétstjórn-
arinnar hafa nú viðurkennt að inn-
rásin hafi verið mistök. Segja vest-
rænir sérfræðingar líklegt að hin
nýja ríkisstjórn Tékkóslóvakíu beiti
þessari röksemd óspart í viðræðun-
um.
Nú standa yfir í Vínarborg við-
ræður 23 ríkja um niðurskurð á
sviði hins hefðbundna herafla frá
Atlantshafi til Úralfjalla. í þeim
samningsdrögum sem kynnt hafa
verið er gert ráð fyrir því að Sovét-
menn kalli um 300.000 hermenn
til síns heima. Tékkneskir embætt-
ismenn hafa sagt að krafa þeirra
um brottf lutning Rauða hersins frá
Tékkóslóvakíu sé utan ramma
Vínarviðræðnanna en vestrænir
sérfræðingar hafa sagt að líklegt
megi heita að Sovétmenn geri kröfu
um að herliðið í landinu verði ekki
undanskilið. Árið 1988 gerði
Míkhaíl S. Gorbatsjov Sovétleiðtogi
heyrinkunnugt að fækkað yrði í
herliði Sovétmanna í Austur-Evr-
ópu um 50.000 manns og sam-
kvæmt þeirri áætlun munu 5.000
hermenn halda frá Tékkóslóvakíu
fyrir lok þessa árs.
ÚTSALA - UTSALA
% dfsláHur
Alltaó
HAGKAUP
s4££t í eátttt