Morgunblaðið - 17.01.1990, Page 25
MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 17. JANÚAR 1990
25
Metaðsókn að rokk-
sýningn í Keflavík
Metaðsókn hefur verið að rokksýningunni „Rokk, sviti og pilsaþyt-
ur“ í Glaumbergi í Keflavík. Sýnt hefiir verið átta sinnum fyrir fullu
húsi og hefjast sýningar að nýju laugardaginn 27. janúar.
Sýningin fjallar um ungan sveita-
pilt, Lúðvík Lyndal, og fyrstu ferð
hans til stórborgarinnar. Lúðvík er
saklaus piltur og lendir hann í
ýmsum ævintýrum er til borgarinn-
ar kemur, segir í fréttatilkynningu
frá_ aðstandendum sýningarinnar.
í sýningunni kemur fram fjöldi
dansara og söngvara ásamt hljóm-
sveitinni Rokkabillíband Reykjavík-
ur. Meðal söngvara sem fram koma
eru Einar Júlíusson, Anna Vil-
hjálmsdóttir, Bjarni Arason, Guð-
mundur Hermannsson, Tómas Tóm-
asson og Haraldur Helgason. Dans-
arar sem fram koma eru Jón Ólafur
Magnússon og Eydís Eyjólfsdóttir,
Jón Þór og Guðlaug, Valur Ármann
og Aðalheiður og Haraldur Magn-
ússon. Þá kemur fram dansparið
María Huldarsdóttir og Jóhannes
Bachmann, en hann leikur jafn-
framt Lúðvík Lyndal. Kynnir og
sögumaður verður Gunnlaugur
Helgason.
Innifalið í miðaverði er tvíréttuð
máltíð, sýning og dansleikur með
Rokkabillíbandinu. Miðaverð er
2.700 krónur.
FISKVERÐ Á UPPBOÐSMÖRKUÐUM
16. janúar.
FAXAMARKAÐU R hf. í Reykjavík
Hæsta Lægsta Meðal- Magn Heildar-
verð verð verð (lestir) verð (kr.)
Þorskur 78,00 77,00 77,29 12,725 983.425
Þorskur(óst) 69,00 60,00 63,62 29,110 1.852.073
Ýsa 101,00 101,00 101,00 0,744 75.144
Ýsa(óst) 106,00 60,00 87,64 8,959 785.184
Lýsa 21,00 21,00 21,00 0,059 1.239
Steinbítur 55,00 55,00 55,00 1,000 55.000
Skarkoli 85,00 85,00 85,00 0,145 12.325
Rauðmagi 69,00 65,00 66,96 0,241 16.137
Karfi 42,00 40,00 40,41 8,413 339.944
Ufsi 50,00 40,00 40,77 8,124 331.180
Langa 39,00 39,00 39,00 0,495 19.305
Lúða 470,00 280,00 298,26 0,354 105.585
Grálúða 80,00 75,00 76,19 4,052 308.681
Undirmálsfis^ur 34,00 24,00 31,24 0,145 4.530
Samtals 65,57 74,582 4.890.166
FISKMARKAÐUR hf. í Hafnarfirði
Þorskur 91,00 91,00 91,00 6,600 600.600
Þorskur(óst) 80,00 63,00 70,26 6,709 471.377 ■
Ýsa(óst) 105,00 73,00 79,69 5,817 463.541
Ýsa 111,00 111,00 111,00 0,701 77.811
Steinbítur (él.) 58,00 25,00 50,96 0,099 5.045
Steinbítur 60,00 58,00 59,00 0,098 5.782
Keila (ósl.) 24,00 24,00 24,00 0,024 576
Langa 45,00 45,00 45,00 0,160 7.200
Karfi 53,00 53,00 53,00 0,007 371
Keila 24,00 24,00 24,00 0,027 648
Ufsi 50,00 40,00 48,99 - 26,480 1.297.268
Lúða 290,00 290,00 290,00 0,023 6.670
Kinnar 70,00 70,00 70,00 0,008 560
Gellur 210,00 206,00 206,32 0,087 17.950
Skötuselur
Samtals
FISKMARKAÐUR SUÐURNESJA hf.
Þorskur (sl.) 85,00 79,00 83,87 8,659 726.262
Þorskur (ósl.línu) 74,00 58,00 71,38 6,754 482.132
Þorskur (ósl. 1 n.) 73,00 67,00 - 70,19 12,250 859.850
Ýsa (net) 76,00 76,00 76,00 0,400 30.400
Ýsa (ósl.) 110,00 75,00 85,52 4,221 360.924
Ýsa 88,00 82,00 "86,89 0,650 56.480
Rauðmagi 65,00 65-,00 65,00 0,006 390
Keila 27,50 27,50 27,50 0,106 2.915
Blálanga 59,00 59,00 59,00 1,497 88.317
Skötuselur 180,00 180,00 180,00 0,187 33.660
Skata 86,00 86,00 86,00 0,163 14.018
Langa 34,00 34,00 34,00 0,023 782
Steinbítur 55,00 15,00 33,89 0,108 3.660
Steinbítur 55,00 55,00 55,00 0,040 2.200
Ufsi 44,00 15,00 40,61 4,635 188.231
Ufsi 38,00 38,00 38,00 0,840 31.920
Ufsi 43,00 43,00 43,00 1,000 43.000
Lúða 345,00 320,00 332,34 0,079 26.255
Lúða 425,00 275,00 350,68 0,190 66.630
Keila 23,50 15,00 23,18 1,207 27.982
Karfi 40,00 39,00 39,83 25,732 1.024.797
Karfi 42,00 42,00 42,00 0,749 31.458
Blandaö 30,00 30,00 30,00 0,019 570
Undirmál 32,00 25,00 28,18 0,044 1.240
Samtals 69,00 69,559 4.104.073
Morgunblaðið/Bjöm Blöndal
Nýstúdentar lrá Fjölbrautaskóla Suðurnesja selja upp hvítu kollana í Ytri-Njarðvíkurkirkju.
Fjölbrautaskóli Suðurnesja:
49 nemendur brautskráðir
í Ytri-Njarðvíkurkirkju
Keflavík.
Fjölbrautaskóli Suðurnesja brautskráði 49 nemendur I lok nýlið-
innar haustannar við hátíðlega athöfn í Ytri-Njarðvíkurkirkju fyrir
jólin. Stúdentar voru 26, af 1. stigs vélstjórabraut brautskráðust 13,
2 af verknámsbraut, 7 af tveggja ára braut og einn nemandi var
brautskráður af atvinnulífsbraut sem er nýjung við skólann.
Þrír nýstúdentar hlutu verðlaun
fyrir frábæran námsárangur, þau
Ölafur Örn Jónsson og Anna Birg-
itta Geirfinnsdóttir hlutu verðlaun
á fleiru en einu sviði og Leifur
Öm Haraldsson fékk verðlaun fyrir
góðan námsárangur í ensku.
Ægir Sigurðsson skólameistari
sagði í samtali við Morgunblaðið
að nemendur í dagskóla hefðu
verið tæplega 600 i vetur og hefði
starfsemi skólans verð með hefð-
bundnum hætti, kennaraverkfallið
á síðasta skólaári hefði sett starf-
semina úr skorðum um tíma en hún
væri nú komin á rétt ról aftur.
Ægir sagði að góð aðsókn væri
að öldungadeild, en ekki væri sömu
sögu að segja um námsflokka og
tölvuskólann, þar væri erfiðara að
halda uppi starfseminni. Þetta var
27. starfsönn skólans og í 25. sinn
sem' hann brautskráir nemendur
frá því að hann var stofnaður.
BB
„Svart regn“
í Háskólabíói
HÁSKÓLABÍÓ hefiir tekið til sýn-
ingar kvikmyndina „Svart regn“.
Meðal aðalleikenda eru Michael
Douglas, Andy Garcia, Ken
Takakura og Kate Capshaw. Leik-
stjóri er Ridley Scott.
Nick er harðskeyttur rannsóknar-
lögreglumaður í morðdeild lögregl-
unnar í New York. Hann á í brasi
við rannsóknardeild lögreglunnar
sem grunar hann um að hafa tekið
fé af fíkniefnasala og ekki skilað
því til yfirvaldanna. Félagi hans í
lögreglunni, Charlie, býður honum
til hádegisverðar á ítölsku veitinga-
húsi, og þar verða þeir vitni að
morði. Þar eru Japanir að verki og
Úr myndinni „Skollaleikur" sem Sljömubíó sýnir þessa dagana.
Kvikmyndin „Skollaleik-
ur“ sýnd í Stjörnubíói
STJÖRNUBÍÓ hefur hafið sýning-
ar á nýrri bandarískri gaman-
mynd, „Skollaleikur", með Rich-
ard Pryor og Gene Wilder í aðal-
hlutverkum. Leikstjóri er Arthur
Hiller.
Dave er heyrnarlaus og Wally er
blindur en engu að síður eru þeir
eftirlýstir fyrir morð. Þeir félagar
reka blaðasölu í New York en eru
eins ólíkir og hugsast getur. Wally
er sóðakjaftur, hávær, dónalegur og
montinn. Dave er hins vegar hæglát-
ur, kurteis og hið mesta prúðmenni.
Wally er eyru Daves- og Dave er
augu Wallys. Þegar maður finnst
myrtur við blaðasöluna eru þeir
umsvifalaust grunaðir. Dave þykist
hafa séð fagra fótleggi f lýja af vett-
vangi en Wally þykist hafa fundið
sterka ilmvatnslykt. Þeir halda því í
leit að fagurleggjaðri konu sem ilmar
vel.
Athaftialíf á
fulla ferð í
Neskaupstað
Neskaupstað.
ATHAFNALÍF er nú komið !
eðlilegt horf eftir hátíðirnar
vinnsla á fiski er hafin bæði hjá
Síldarvinnslunni og Saltfangi hf
Loðnubræðslan gengur dag og
nótt og blessuð lyktin kitlar nei
Norðfirðinga. Þá eru norsku loðnu
skipin komin og liggja hér inni á
firði allt upp í 14 í einu og frysta"
loðnu um borð.
Óneitanlega er betra hljóð '
Norðfirðingum eftir að loðnan fór
að berast að landi af fullum krafti
og nú styttist óðum í að sólin far
að sjást aftur eftir að hafa ekk:
sést í byggðarlaginu í um tvo mán-
uði.
- Ágúst
Úr myndinni „Svart regn“, sem nú er sýnd í Háskólabíói.
tekst Nick með harðfylgi að hand-
taka morðingjann.
Þeir komast að óeirðum milli jap-
anskra glæpaflokkasem hyggja á
útgáfu falsaðra dollaraseðla. Inn í
þetta blandast síðan grunsemdir
yfirmanna Nicks í New york og
japönsku lögreglunnar um heiðar-
leika hans, en að lokum hefur þ<
sannleikurinn betur.
Leiðrétting
í viðtali við Indriða Karlsson loð
dýrabónda, sem birtist á forsíðu
blaðhluta um atvinnumál, blaðsíðu
25, síðastliðinn sunnudag, slæddisi
inn villa. Sagt var að á árinu 1987
hafi verið reiknað með 14-15 þús
und kr. fyrir hvert minkaskinn en
átti að vera 1.400-1.500 krónur
Morgunblaðið biðst velvirðingar ;
þessum mistökum.