Morgunblaðið - 17.01.1990, Blaðsíða 26
26
MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 17. JANÚAR 1990
Eldvamakerfí óvirkt þar
sem slgómstöðina vantar
Vistheimilið Sólborg:
„ÞETTA er sorgarsaga," sagði Níels Erlingsson húsvörður á vistheimil-
inu Sólborg á Akureyri. Nú eru liðin um þrjú ár frá því uppsetning
fullkomins eldvarnabúnaðar var boðin út, en þegar búið var að setja
kerfíð upp kom í ljós að stjórnstöðin var biluð. Stöðin var send til
framleiðenda í Englandi og síðan hefur verið unnið að því að fá hana
senda heim, en án árangurs. Þá urðu umboðsaðilar enska fyrirtækis-
ins á Islandi gjaldþrota og stuttu síðar undirverktakar á Akureyri.
Níels Erlingsson húsvörður á Sól-
borg sagði að Vari í Reykjavík hefði
tekið við umboðinu eftir að fyrrver-
andi umboðsaðilar enska fyrirtækis-
ins, sem framleiðir eldvamabúnað-
inn, urðu gjaldþrota. í tæp tvö ár
hefur verið unnið að því að fá stjórn-
stöðina heim, en þrátt fyrir tíðar
skeytasendingar og jafnvel heim-
sóknir til enska framleiðandans hefði
það engan árangur borið. „Við feng-
um síðast þær upplýsingar fyrir ára-
mót að stutt væri í að stöðin kæmi
til landsins, en ekkert bólar á henni
og við stöndum ráðþrota á meðan,“
sagði Níels. Skýringar á því hvers
vegna framleiðendur létu stjómstöð-
ina ekki af hendi sagði hann hafa
verið margar og mismunandi.
A vistheimilinu Sólborg em nú
44 á 6 íbúðadeildum, en auk þess
er þar einnig rekið skóiadagheimili.
í yngsta húsinu, sem tekið var í
notkun árið 1978, var sett upp við-
vörunarkerfi og er það eina húsið
þar sem slíkt kerfi er, en í öðrum
húsum eru einungis reykskynjarar.
Fyrir um þremur árum var ákveðið
að gera átak í brunavörnum á heimil-
inu, í kjölfar eldsvoða á Kópavogs-
hæli. Ráðist var í að kaupa fullkom-
ið eldvarnakerfi, sem m.a. gefur
slökkviliði strax tii kynna í hvaða
herbergi eldur hefur komið upp.
Eftir að kerfið hafði verið sett upp
kom í ijós biiun í stjómstöð og því
var hún send til framleiðenda í Eng-
landi til viðgerðar þar sem hún hef-
ur nú verið í tæp tvö ár. „Við vonum
svo sannarlega að stöðin kom norður
sem allra fyrst, því ástandið er óvið-
unandi á meðan kerfið er ekki virkt,“
sagði Níels.
Morgunblaðið/Úúnar Þór
Fulltrúar 17 sveitarfélaga við Eyjafjörð undirrituðu í gær, í húakynn-
um Verkmenntaskólans á Akureyri, samning um sameiginlega þátt-
töku þeirra í stjórnun og framkvæmdum við framhaldsskólana í
Eyjafírði í tilefni gildistöku nýrra laga um framhaldsskóla. Á mynd-
inni undirrita fulltrúar sveitarfélaganna samninginn.
Sveitarfélögin 17 í Eyjafirði:
Framkvæmdir við fram-
haldsskóla sameiginlegar
Mikill hagur í að vinna saman, segir bæjarstjóri Akureyrar
Morgunblaðið/Rúnar Þór
Bandalag íslenskra farfuglaheimila hefiir keypt þetta hús við Bjarma-
stíg á Akureyri og stefiit er að því að opna þar farfiiglaheimili með
50-60 rúmum í vor.
Bandalag íslenskra farfiiglaheimila:
Nýtt farfiiglaheimili
opnað við Bjarmastíg
BANDALAG íslenskra farfuglaheimila hefiir keypt húsið númer 5 við
Bjarmastíg á Akureyri og hyggst opna þar farfuglaheimili á vordög-
um. Húsið er 435 fermetrar að stærð og þar verður á milli 50 og 60
rúma heimili. Bandalag íslenskra farfuglaheimila á tvær húseignir í
Iteykjavík, eina á Höfn í Hornafírði og er húsið á Akureyri þvl fjórða
fasteign bandalagsins.
Þorsteinn Magnússon, fram-
kvæmdastjóri Bandalags íslenskra
farfuglaheimila, sagði að menn væru
bjartsýnir, eftir tvö metár í gistingu
hjá farfugiaheimilunum. Gistinætur
hefðu í fyrsta sinn í sögu félagsins
farið yfir 30 þúsund á síðasta ári
og útlitið fyrir þetta ár væri gott,
en þegar væru margar pantanir fam-
ar að berast. „Útlitið nú þegar er
síst verra en það var á sama tíma í
fyrra og við erum því full bjartsýni,"
sagði Þorsteinn.
Húsið á Bjarmastíg 5 er stórt,
alls 435 fermetrar að stærð, á tveim-
ur hæðum auk kjallara og í því eru
á milli 10 og 12 herbergi í allt. Þor-
steinn sagði að ekki væri þörf mik-
illa breytinga á húsinu, það væri
nánast eins það hefði verið byggt
með þessa starfsemi í huga. Hann
gerði ráð fyrir að í húsinu yrði gisti-
rými fyrir á milli 50 og 60 manns,
auk aðstöðu tii eldunar. Ekki er að
fullu ljóst hvenær starfsemin getur
hafist, en Þorsteinn sagði að reikna
mætti með að hún yrði komin í full-
an gang í júní næstkomandi.
FULLTRÚAR 17 sveitarfélaga
við Eyjafjörð undirrituðu í gær
samning í tilefni gildistöku nýrra
laga um framhaldsskóla, annars
vegar um sameiginlega þátttöku
í stjórnun og framkvæmdum við
Menntaskólann á Akureyri,
Verkmenntaskólann á Akureyri
<jg skóladeildir á Dalvík og í
Ólafsfirði og hins vegar var und-
irritaður sarnningur er sérstak-
lega tekur til byggingar 5. og
6. áfanga Verkmenntaskólans.
„Þetta er stór stund, við erum
að stíga merkilegt skref í sam-
starfi sveitarfélaga við Eyjafjörð,
en slíkt samstarf hefur verið i
undirbúningi í allmörg ár og
hefur þegar skilað árangri m.a.
varðandi þátttöku sveitarfélag-
anna í Iðnþróunarfélagi Eyja-
fjarðar og sameiginlegt heil-
brigðiseftirlit. Nú stigum við
þriðja stóra skrefið og ég vona
að það eigi eftir að leiða af sér
fleiri skref í framtíðinni, því við
sjáum okkur mikinn hag i því að
vinna saman,“ sagði Sigfiís Jóns-
son bæjarstjóri á Akureyri við
undirritun samningsins.
Sveitarfélögin sem þátt taka í
samstarfinu eru Ólafsfjarðarbær,
Dalvíkurbær, Svarfaðardalshrepp-
ur, Árskógshreppur, Hríseyjar-
hreppur, Arnarneshreppur, Skriðu-
hreppur, Öxnadalshreppur, Glæsi-
bæjarhreppur, Akureyrarbær,
Hrafnagilshreppur, Saurbæjar-
hreppur, Öngulsstaðahreppur, Sval-
barðsstrandarhreppur, Grýtu-
bakkahreppur, Hálshreppur og
Grímseyjarhreppur.
í samningnum felst að sveitarfé-
lögin munu sameiginlega annast
þátttöku í stjórnun og framkvæmd-
um við framhaldsskólana á Akur-
eyri og skóladeildir á Dalvík og í
Olafsfirði. Héraðsnefnd Eyjafjarðar
tilnefnir þrjá fulltrúa í skólanefndir
hvors framhaldsskóla, tvo sam-
kvæmt tilnefningu bæjarstjórnar
Akureyrar og einn samkvæmt til-
nefningu annarra sveitarfélaga.
Fram kemur í samningnum að
Héraðsnefnd Eyjafjarðar og
menntamálaráðuneytið skulu gera
sérstakan samning um stofnbúnað,
nýframkvæmdir og endurbyggingu
húsnæðis MA og skóladeildanna á
Dalvík og í Ólafsfirði. í samningn-
um skal kostnaði sveitarfélaganna
skipt þannig að sveitarféiag skólans
eða skóladeildanna skal greiða 50%,
en 50% skiptast eftir íbúatölu allra
sveitarfélaganna.
Akureyrarbær verður áfram
framkvæmdaaðili við byggingu 5.
og 6. áfanga VMA og var í gær
einnig undirritaður sérstakur samn-
ingur vegna þessara áfanga. Þar
segir m.a. að Akureyrarbær stefni
að því að ljúka við þá byggingar-
áfanga sem samningurinn tekur til
eigi síðar en á árinu 1991 og að
eignarhlutur sveitarfélaganna í
þessum áföngum verði 5%, og skipt-
ist á milli þeirra í ákveðnum hlut-
föllum. Akureyrarbær mun greiða
15,41% af áætluðum hlut bæjarins
í kostnaði við að ljúka byggingar-
framkvæmdum við áfangana tvo,
auk þess stofnbúnaðar sem á vant-
ar í 5. áfanga og 15,41% af áætluð-
um stofnbúnaðarkaupum fyrir 6.
áfanga. Kostnaði annarra sveitarfé-
laga, alls 15,41%, verður skipt í
ákveðnum hlutföllum, þannig kem-’
ur mest í hlut Dalvíkurbæjar,
3,54%, en minnst í hlut Öxnadals-
hrepps, 0,16%.
Þakkir
Innilegustu þakkirtil allra þeirra fjölmörgu,
sem hafa stutt okkur meó vinnu, gjöfum og á
annan hátt sýnt okkur samhug og velvild á
síðustu vikum.
Guö blessiykkur öll.
Sigríóur Oigeirsdóttir og börn,
Áifabyggó 8, AkureyrL
Morgunblaðið/Rúnar Þðr
Börkur í nýtt húsnæði
Trésmiðjan Börkur hefur flutt
starfsemi sína í nýtt húsnæði við
Frostagötu 2a á Akureyri, en þar
er um að ræða 510 fermetra húsa-
kynni. Trésmiðjan Börkur var
stofnuð árið 1986 og eru eigendur
hennar fimm talsins, en starfs-
mennirnir eru átta. Börkur sér-
hæfir sig í framleiðslu hurða og
glugga og er eina fyrirtækið í
bænum sem það gerir. Stór hluti
framleiðslunnar er seldur utan
Akureyrar og hefur fyrirtækið tvo
útsölustaði í Reykjavík og einn í
Keflavík. Mikið hefur verið að
gera hjá Berki og afkoman verið
þokkaleg. Á myndinni eru eigend-
urnir, frá vinstri: Ingimar Karls-
son, Alexander Benediktsson,
Snorri Bergsson og Hilmar Bald-
vinsson, en á myndina vantar
Guðmund Ómar Guðmundsson.