Morgunblaðið - 17.01.1990, Page 33
MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 17. JANÚAR 1990
33
Athugasemd
frá Búvöru-
deild Sam-
bandsins
í tilefni af grein Hjartar E. Þórar-
inssonar í Morgunblaðinu 12. des-
ember 1989 þar sem hann gerir
athugasemd vegna viðtals við
Gunnar Bjarnason vill Búvörudeild
Sambandsins að eftirfarandi komi
fram.
Um árabil annaðist Búvörudeild
Sambandsins kynningu og útflutn-
ing reiðhrossa í náinni samvinnu
við Gunnar Bjarnason ráðunaut.
Samstarfið var í því fólgið að Gunn-
ar annaðist margskonar leiðbein-
ingar um útflutninginn, annaðist
kynningarstarfsemi erlendis og
kom á framfæri upplýsingagreinum
um íslenska hestinn í erlend tímarit
og mætti sem fulltrúi íslands á fjöl-
marga fundi og hestamannamót
erlendis.
Eins og fram kemur í bókun
Búnaðarfélags íslands dags. 13.
maí 1965 skulu útflytjendur hrossa
greiða Gunnari Bjarnasyni ferða-
kostnað hans og annan kostnað í
sambandi við aðstoð hans við út-
flutninginn, enda starfi hann að
þessum málum í samráði við út-
flytjendur.
Gunnar hefur gefið út ættbókar-
vottorð sem fylgja hveijum útflutt-
um reiðhesti og var gjaldtakan
síðustu árin 50 þýsk mörk fyrir
hvert vottorð og skyldi upphæðinni
varið til að kosta útgáfustarf og
kynningu erlendis.
Á þessu tímabili var mun meira
kostað til í kynningar en tókst að
afla með nefndri gjaldtöku. Búvöru-
deild Sambandsins lagði verulegar
upphæðir til viðbótar í kynningar
og greiddi það sem á vantaði í kynn-
ingarferðum Gunnars Bjarnasonar
ásamt því að kosta fjölmarga aðila
sem kynntu íslenska hesta erlendis
sem fulltrúar deildarinnar. Á þess-
um árum var unnið brautryðjenda-
starf í kynningu á íslenskum reið-
hestum sem nú eru orðnir vel þekkt-
ir og eftirsóttir og fluttir út til fjöl-
margra staða í Evrópu og Ameríku.
Jafnframt er ástæða að geta þess,
að landbúnaðarráðuneytið hefur
ávallt stutt og styrkt þessa starf-
semi.
SKIPA PLOTUR - INNRETTINGAR
SKIPAPLÖTUR í LESTAR
BORÐ-SERVANT PLÖTUR
WC HÓLF MEÐ HURÐ
BAÐHERBERGISÞIUUR
LAMETT Á GÓLF - BORÐPLÖTUR
NORSK VIÐURKENND HÁGÆÐA VARA
Þ.ÞDRCRÍMSSON&CO
Ármúla 29 - Múlatorgi - s. 38640
CeádÍMtííu!
BL0MAFRJ0K0RN
HlGH-DESERT
BEE
OLLE
fresh raw granlilES
íí,;V<TTweight V, LB.-2276
ÞtE C C POLIEN COMPW’
‘í ^ISDALE, ARIZÖNA
' ‘ BEST HEALTH'”
EGGERT KRISTJÁNSSON H/F SÍMI 685300
STAÐGREIÐSLA
AF HLUNNINDUM
Ferðalög, fœði, fainaður, húsnœði, orka.
Dagpeningar til greiðslu á gistingu, fæði og fargjöldum (þó ekki milli landa) erlendis eru
staðgreiðsluskyldir fyrir ofan eftirfarandi viðmiðunarmörk:
Noregurog NewYork Annars
Svíþjóð borg staðar
Almennirdagpeningar 190SDR 180SDR 155SDR
Dagpeningar vegna
þjálfunar, náms eða
eftirlitsstarfa 120SDR 115SDR 100SDR
Dagpeningar innanlands eru staðgreiðsluskyldir fyrir ofan eftirfarandi viðmiðunarmörk:
Gisting og fœði í eínn sólarhríng 6.090kr.
Gisting í einn sólarhríng 3.010 kr.
Fœðihvem heilan dag, minnst lOklstferðalag 3.080kr.
Fœði íhálfdn dag, minnstó tfma ferðalag 1.540kr.
Almennir dagpeningar vegna ferðalaga erlendis reiknast þannig, að 50% eru vegna gistingar, 35%
vegna fæðis og 15% vegna annars kostnaðar.
Hafi gisting erlendis verið greidd frá þriðja aðila reiknast staðgreiðsla af greiddri upphæð ferðafjár
þegar 50% af fullri Ijárhæð dagpeninga hefur verið dregin frá. Auk þess er heimilt að draga fjárhæð
sem samsvarar mati á gistingu í eina nótt frá slíku ferðafé.
Fái launamaður greidda dagpeninga fyrir 30 daga eða fleiri á sama ári skulu viðmiðunarmörkin
lækka um 635 kr. fyrir hvem dag umfram 30.
FÆDl
Fæði sem launamanni (og fjölskyldu hans) er látið í té endurgjaldslaust er staðgreiðsluskylt
og skal metið þannig til tekna:
Fullt fœði fullorðins 635kr.ádag
Fullt fœði bams yngra en 12 ára 509kr.ádag
Fœðiaðhiuta 254kr.ádag
Greiði launamaður lægri fjárhæð fyrir fæði hjá launagreiðanda hans en mat ríkisskattstjóra segir til
um skal telja mismuninn til staðgreiðsluskyldratekna launamanns. Fæðispeninga í stað fulls fæðis
eða að hluta ber að telja til tekna að fullu.
FATNAÐUR
Fatnaðursem ekki telst til einkennisfdtnaðar eða nauðsynlegs hlífðarfatnaðar skal talinn tii tekna á kostnaðarverði og eru þœr tekjur sfaðgreiðsluskyldar. Ávalltskal reikna staðgreiðslu afallrí greiðslu launagreiðanda til launamanns til kaupa á fatnaði.
j HÚSNÆÐI og orka 1. . .
Endurgjaldslaus afnot af íbúðarhúsnæði sem launagreiðandi lætur launamanní í té eru
staðgreiðsluskyld og skulu þannig metin til tekna:
Fyrirársafnotreiknast2,7% af fasteignamaii húsnœðísins, þmt. bflskúrs og lóðar.
Sé endurgjald greilt að hluta skal reikna mismuninn til tekna upp að 2,7% af
gildandi fasteignamati.
Húsaleigustyrk ber að reikna að fullu til tekna.
Ef búseta í húsnæði er kvöð sem fylgir starfi launamanns er heimilt að lækka mat
húsnæðishlunninda við álagningu á næsta ári eftir staðgreiðsluár.
Orkukostnaður launamanns, greiddur af launagreiðanda, skal reiknast að fullu til tekna á
kostnaðarverði.