Morgunblaðið - 17.01.1990, Page 35
MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 17. JANUAR 1990
35
Minning:
Thomas Heimisson
Fæddur 14. maí 1973
Dáinn 1. janúar 1990
Mig langar að minnast með ör-
fáum orðum vinar míns Thomasar
Heimissonar sem lést 1. janúar
síðastliðinn.
Hann fæddist 14. maí 1973, son-
ur Heimis Sveinssonar og Onnu
Pehrsson.
Thomas var nemandi í Egils-
staðaskóla flest sín grunnskólaár.
Ég kynntist honum þó lítið fyrr en
síðastliðinn vetur, en þá var hann
nemandi minn. Við Thomas rædd-
um oft saman um lífið og tilveruna.
Hann opnaði þá augu mín fyrir
ýmsu og kenndi mér margt sem ég
veit að á eftir að nýtast mér í mínu
starfi og annars staðar á lífsleið-
inni. Ég minnist þessara samveru-
stunda með þakklæti og hlýhug.
Far þú í friði,
friður Guðs þig blessi,
hafðu þökk fyrir allt og allt.
Gekkst þú með Guði,
Guð þér nú fylgi,
hans dýrðarhnoss þú hljóta skalt.
(V. Briem.)
Við í Egilsstaðaskóla vottum for-
eldrum Thomasar og fjölskyldum
þeirra okkar innilegustu samúð.
Guð veri með ykkur og styrki ykkur.
Marta K. Sigmarsdóttir
Thomas vinur minn Heimisson
kvaddi þennan heim á fyrsta degi
nýs árs. Hann var sonur Önnu Pehr-
son og Heimis Sveinssonar tækni-
fræðings hjá Rafmagnsveitum
ríkisins á Egilsstöðum. Mig langar
til að deila með ykkur nokkrum af
minningum mínum um Thomas.
Fyrstu minningar mínar um hann
eru um lítinn pattaralegan strák,
með bollukinnar og kringlótt augu.
Hann var einn af krökkunum í
hverfinu. Árin liðu og það verður
lengra á milli bæja. Það var ekki
fyrr en á árinu 1988 að ég kynnt-
ist Thomasi vel. Þá var hann orðinn
15 ára unglingur. Búinn að eignast
mótorhjól, sem skipaði veglegan
sess í lífi hans. Skóhljóðið var ekki
alltaf létt og oft var vindurinn í
fangið. Hann var að kljást við þann
erfiða hjalla, sem unglingsárin eru.
En það var sama hvaðan vindurinn
blés. Á góðum og miður góðum
stundum var hjartahlýja og hjálp-
semi Thomasar hin sama. Um-
hverfið kallar fram aragrúa af
minningum um þessa eiginleika
hans. Aldrei hefði mig órað fyrir
að svo hversdagslegir hlutir í minni
eigu, s.s. sjónvarpið, ryksugan og
bíllinn ættu eftir að hlýja mér í
minningu Thomasar. Hann vildi svo
gjarnan leiðbeina mér í öllu því, sem
flokkast getur undir tækni- og vél-
væðingu. Með réttu efaðist hann
stórum um kunnáttu mína á þessi
flóknu fyrirbæri.
Minningin um þennan unga vin
minn lifir og yljar mér um ókominn
tíma.
Með þessu kvæði Jóns úr Vör
vil ég votta foreldrum og systkinum
Thomasar samúð mína. Megi allt
gott styrkja þau í sorginni:
Bömin fæðast litlum systkinum sínum
eins og ljós sé kveikt,
eins og fyrstu blóm vorsins
vakni einn morgun.
Ef þau deyja,
hverfa þau til guðs,
eins og draumur,
sem aldrei gleymist.
Guðrún Jónsdóttir
t
Innilegar þakkir fyrir auðsýnda samúð og hlýhug við andlát og
jarðarför stjúpmóður minnar og systur,
UNNAR ÓSKAR ÁSMUNDSDÓTTUR.
Sérstakar þakkir til lækna, hjúkrunar- og starfsfólks hjúkrunar-
deildar Hrafnistu, Hafnarfirði.
Hulda Ásgeirsdóttir,
Jenný Ásmundsdóttir.
t
Útför móður okkar, tengdamóður, ömmu og langömmu,
INGIBJARGAR ÁRNADÓTTUR,
Víðivangi 12,
Hafnarfirði,
verður gerð frá Fríkirkjunni í Hafnarfirði, fimmtudaginn 18. janúar
kl. 13.30. Þeim sem vildu minnast hennar er vinsamlegast bent
á líknarstofnanir.
Ingvar Hallsteinsson, Edith Hallsteinsson,
Örn Hallsteinsson, Valgerður Eiríksdóttir,
Sylvía Hallsteinsdóttir, Helgi Númason,
Geir Hallsteinsson, Ingibjörg Eldon Logadóttir,
barnabörn og barnabarnabarn.
t
Innilegar þakkir fyrir samúð og hlýhug við andlát og jarðarför
elskulegrar móður minnar, tengdamóður, ömmu, langömmu og
langalangömrriu,
JÓNFRÍÐAR GÍSLADÓTTUR.
Guð blessi ykkur öll.
Árný Ingvaldsdóttir, Leifur Halldórsson,
Ólöf R. Jónsdóttir,
barnabörn, barnabarnabörn og barnabarnabarnabarn.
+
Þökkum auðsýnda samúð og vinarhug við andlát og útför föður
okkar, tengdaföður, afa og langafa,
SVANS STEINDÓRSSONAR
prentara,
Ásvallagötu 29,
Reykjavík.
Sérstakar þakkir færum við starfsfólki hjúkrunardeildar Vífilsstaða-
spítala.
Þórir Svansson, Matthildur Þórarinsdóttir,
Svanhildur Svansdóttir, Svanur Þorsteinsson,
barnabörn og barnabarnabarn.
ÚTSALAN HEFSTÍ DAG
senaum i postkrotu
»hunnél^P
SPORTBÚÐIN
Ármúla 40, símar 83555 og 83655.
Eiðistorgi 11, Seltjarnarnesi, sími 611055.
AFSLATTUR
Nýtt kreditkortatímabii hefst samdægurs.