Morgunblaðið - 17.01.1990, Qupperneq 41
MORGUNBLAÐÍÐ MIÐVIKU'ÐAGUR' 17. JA-NUAR 1990 • -
41
Enn um áratugi og aldamót
ÚTSALAN HEFST
Á MORGUN
30-50% afsláttur.
Gerið góð kaup á gæðavörum.
UTSALA - ÚTSALA - ÚTSALA - ÚTSALA -
<
(A
<
tt)
SOMÆE^g^
Heímsþekkt gæúevara
Gólfdúkur frá kr. 595,-
Teppi frá kr. 368,-
Grensásvegi 18.
25 ár í fararbroddi
ia
>
«A
>
«A
>
<
«A
•9 ÚTSALA - ÚTSALA - ÚTSALA - ÚTSALA -
Til Velvakanda.
Ég verð að játa furðu mína á
þeirri heimskulegu þráhyggju sem
gýs ávallt upp um hver áratuga-
skipti og á örugglega eftir að grass-
era um komandi aldamót.
Nú í kringum áramótin tilkynnti
fréttaþulur í sjónvarpi að það væri
tómur misskilningur að nú væri
áratugaskipti og vitnaði þar í ein-
hvem sprenglærðan stjörnufræðing
sem átti víst að vita allt sem vitað
varð_um málið. Fréttaþulurinn las
fréttma svipbrigðalaust eins og
hann væri að lesa um hækkun á
fiskverði, svo áheyrendur hafa
væntanlega tekið það gott og gilt
sem hann sagði enda fréttamenn
Ríkissjónvarpsins ekki vanir að fara
með neitt fleipur.
En hvað var það sem stjörnu-
fræðingurinn hafði til málanna að
leggja? Jú, að Jesús Kristur hefði
fæðst (og tímatal okkar þar með)
árið eitt, en ekki núll, og þar af
leiðandi enduðu allir áratugir og
árhundruð einu ári seinna en eðli-
legt væri samkvæmt því tugakerfi
sem við annars notum almennt við
okkar reikningskúnstir.
Nú man ég ekki betur en að fram
hafi komið fyrir nokkrum árum
kenningar um það að Jesús Kristur
hefði fæðst árið 4. Ef við nú sætt-
umst á þær kenningar, og notum
sömu rök og hin velupplýsti stjörnu-
fræðingur (eða var það stjömuspek-
ingur?), þá lægi beinast við að
halda aldamótin hátíðleg um ára-
mótin 2003-4.
En fleiri hafa látið ljós sitt skína.
Birgir Óskarsson nokkur fylgdi
málinu fast eftir á síðum Velvak-
anda þann 5. janúar. Nú skyldi
þessi villukenning um að nýr ára-
tugur byijaði um þessi áramót,
kveðin niður í eitt skipti fyrir öll.
Máli sínu til stuðnings vitnar Birgir
mikið í bókaútgáfu og telur það
sannað að í röð tíu binda ritsafna,
sé fyrsta ritsafni ekki lokið og það
annað hafið, fyrr en ellefta bindi
kemur út. Þetta er í sjálfu sér mjög
skarplega athugað. Ein spurning
kemur þó upp í hugann; hvað
kemur bókaútgáfa tímatali við?
Mun eðlilegra er að bera þetta
saman við aldur manns. Barn er á
fyrsta ári, þar til það verður eins
árs og annað árið hefst (einfalt ekki
satt).
Á sama hátt verður maður átt-
ræður þegar hann nær 80 ára
markinu, en ekki þegar hann verður
81 árs. Haldið er upp á aldaraf-
mæli um leið og maður nær 100
ára markinu. Ekki þegar maður
verður 101 árs eða 104 ára.
Aðalatriðið er, að það sem þessir
væntanlega ágætu menn eru að
halda fram, brýtur algerlega í bága
við tilfinningu okkar óbreyttra
borgara fyrir því talnakerfi sem
við notum og má þá einu gilda
hver uppruni tímatalsins er, því
hann er að sönnu bæði óljós og
umdeildur.
G.G.K.
Góðir sjónvarpsþættir
ni Velvakanda.
Ég vil þakka fyrir vandaða
fræðsluþætti sem sýndir hafa verið
hjá Ríkissjónvarpinu að undanf-
örnu og tel ég þar bera hæst Hin
rámu regindjúp. Eins vil ég nefna
þáttaröð Magnús Magnússonar,
Fuglar landsins. Mikil vinna mun
liggja að baki þáttum sem þessum
og væri því ekki úr vegir að þeir
væru endursýndir áður en langt
líður. Alltaf er hætt við að fólk
missi úr einn og einn þátt og því
er þeim mun meiri ástæða til að
endursýna efni sem þetta.
Ég vona að sjónvarpið fylgi
áfram þeirri stefnu að leggja
áherslu á fræðsluefni. Tel ég að
ráðstöfunarfé RÚV sé mun betur
varið í að standa straum af gerð
þess en t.d. að veija því til fram-
leiðslu afþreyingarefnis. Afþrey-
ingarefni má allt eins f lytja inn að
mínu áliti.
Guðmundur
Allt i eldhúsið frá BOSCH
® JÓHANN ÓLAFSS0N & CO. HF.
43 Sundaborg 13 -104 Reykjavík-Stau688588