Morgunblaðið - 31.01.1990, Side 4
4
tmt oaöuai i n mwAj imiviim (míaU&K'Jbwm
MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 31. JANÚAR 1990
Borgarráð:
470 miUjónir fóru til
ráðhússins árið 1989
LAGT hefur verið firam í borgarráði minnisblað borgarverklræð-
ings vegna framkvæmda við ráðhúsið í Reykjavík. Þar kemur
meðal annars fram að kostnaður vegna framkvæmdanna var um
470 milljónir fyrir árið 1989 eða 14,5% hærri en fjárhagsáætlun
gerði ráð fyrir ásamt aukafjárveitingu. Svarar það til mismunar
á meðalverðlagi ársins og verðlagi í ársbyrjun.
I minnisblaði borgarverkfræð-
ings segir: „Fram hefur komið
ákveðinn misskilningur á fjárveit-
ingu og útgjöldum til byggingar
ráðhúss á liðnu ári. Á upphaflegri
fjárhagsáætlun voru 365 milljónir
kr. miðað við verðlag í ársbytjun,
vísitala 125 stig, þ.e. sama viðmið-
un og í öðrum byggingarfram-
kvæmdum. í júlímánuði lagði verk-
efnisstjóm fyrir borgarráð áætlun
þess efnis að á árinu yrði varið
410 millj. kr. til verksins miðað
við verðlagsforsendur fjárhags-
áætlunar. Eins og fram hefur kom-
ið er útkomuspá ársins 1989 um
470 millj. kr., eða 14,5% hærri en
fjárhagsáætlunartalan með auka-
fjárveitingum en það svarar ein-
mitt til mismunar á rpeðalverðlagi
ársins og verðlagi í ársbyijun.
Þetta hefur áður komið fram í
borgarráði í svari borgarstjóra við
fyrirspurn um kostnað við ráðhús-
bygginguna þann 18. okt. s.l.“
Eitt ár er síðan áætlun um heild-
arkostnað var gerð en síðan hefur
komið til magnaukning og aðrir
liðir, sem valda um 30 milljón
króna kostnaðarauka eða 2% af
heildarkostnaði.
Fram kemur að uppsteypa ráð-
hússins hafi gengið vel og er mið-
að við að vinna við glugga geti
hafist í mars og vinna við þak
skrifstofubyggarinnar er í þann
mund að hefjast. Ákveðið hefur
verið að fresta því að fjarlægja
hluta fyllingar fyrir sunnan ráð-
húsið fram á haust 1991 og fjar-
lægja þá samtímis alla fyllingu um
leið og lokið er framkvæmdum við
hús og lóð sem snýr að Tjöminni.
VEÐUR
Heimild: Veðurstofa íslands
(Byggt á veðurspá kl. 16.15 i gaer)
ÍDAGkl. 12.00:
VEÐURHORFUR í DAG, 31. JANÚAR.
YFIRLIT i GÆR: Austan- og norðaustan átt á landinu, víða allhvasst eða
hvasst um vestanvert landið en kaldi eða stinningskaldi um landið aust-
anvert. Snjókoma eða slydda var víða á Vestfjörðum og á Norðurlandi
vestra en skúrir eða slydduél á víð og dreif í öðrum landshlutum. Hlýj-
ast var á Hjarðarnesi, 5 stiga hiti en kaldast 2ja stiga frost á Hveravöli-
um og á Galtar- og Hornbjargsvita.
SPÁ: Austan- og norðaustan átt, viða allhvasst eða hvasst og snjókoma
eða slydda um norövestan vert landið en kaldi eða stinningskaldi og
skúrir eða slydduél í öðrum landshlutum. f kvöld og nótt mun smám
saman draga úr veðurhæðinni norðvestan lands. Hiti víðast á bilinu 0 til
4 stig.
VEÐURHORFUR NÆSTU DAGA:
HORFUR Á FIMMTUDAG OG FÖSTUDAG: Norðaustan átt, strekk-
ingur á Vestfjörðum, en mun hægari annars staðar. Éljagangur
norðvestan lands, skúrir eða slydduél á Norður- og Austurlandi
en þurrt á Suður- og Vesturlandi. Vægt frost norðvestan lands,
allt að 4ra stiga hiti suðaustan lands.
TAKN:
Heiðskirt
Léttskýjað
Hálfskýjað
Skýjað
Alskýjað
A Norðan, 4 vindstig:
Vindörin sýnir vind-
stefnu og fjaðrirnar
vindstyrk, heil fjöður
er 2 vindstig.
/ / /
/ / / / Rigning
/ / /
10 Hitastig:
10 gráður á Celsíus
ý Skúrir
*
V
Él
— Þoka
= Þokumóða
* / *
/ * / * Slydda
/ * /
* * *
* * * * Snjókoma
* * *
’, ’ Súld
OO Mistur
—j- Skafrenningur
|~<^ Þrumuveður
lfEÐUR VÍÐA UM HEÍM
kl. 12:00 í gær að ísl. tíma
hiti vedur
Akureyri 2 slydduél
Reykjavík 3 úrk. i gr.
Bergen 6 rigning
Helsinki 0 alskýjað
Kaupmannah. 5 skýjað
Narssarssuaq +10 léttskýjað
Nuuk +6 skýjað
Osló 4 þokumóða
Stokkhólmur 4 rigning
Þórahöfn 7 aiskýjað
Algarve 16 léttskýjað
Amsterdam 9 skúr
Barcelona 14 heiðskírt
Berlín 6 skýjað
Chicago 2 alskýjað
Feneyjar 9 þoka
Frankfurt 7 rign. á síð. klst.
Glasgow 7 skúr á sið. klst.
Hamborg 6 súid
Las Palmas 17 skýjað
London 11 skýjað
Los Angeles 11 þokumóða
Lúxemborg 6 skýjað
Madríd vantar
Malaga vantar
Mallorca 15 léttskýjað
Montreai +2 snjókoma
New York 5 skýjað
Orlando 19 þokumóða
París 10 skýjað
Róm 13 rigning
Vín 7 þokumóða
Washington 5 léttskýjað
Winnipeg +30 skafrenningur
Morgunblaðið/Sigurgeir Jónasson
Brot úr Berlínarmúrnum sem Wolfgang Zeller færði Byggðasafh-
inu í Eyjum að gjöf.
Brot úr Berlínar-
múmum til Eyja
Vestmannaeyjum.
BYGGÐASAFNINU í Eyjum voru fyrir skömmu færðir að gjöf
molar úr Berlinarmúrnum. Gefandi þessara mola var Wolfgang
Zeller, þýskukennari við Framhaldsskólann í Vestmannaeyjum.
Foreldrar Wolfgangs eru bú- að því er múrinn smáféll og mol-
settir í Vestur-Berlín, örskammt aði sjálfur úr múrnum brotin sem
frá múrnum. Wolfgang heimsótti hann færði byggðasafninu í Eyj-
þau í jólafríinu og dvaldi hjá þeim um.
fram yfir áramót. Hann varð vitni Grímur
Jakob Þorsteinsson:
Fylgdarbíll nauðsyn-
legur á Hnífsdalsvegi
JAKOB Þorsteinsson, sem lenti í snjóflóði á Hnifsdalsvegi á laugar-
dag, segist ætla að beijast fyrir því að fylgdarbíll sé með snjóruðn-
ingsbílum á veginum.
„Ef fylgdarmaður er ekki með
við svona aðstæður á ekki að reyna
að halda veginum opnum," sagði
Jakob vegna ummæla Gísla Eiríks-
sonar, umdæmisverkfræðings
Vegagerðarinnar á ísafirði, sem
telur ekki vera ástæðu til að hafa
fylgdarbíl með snjóruðningsbílum,
en fjarskiptasamband komi til
greina.
Jakob sagði að fjarskiptasam-
band kæmi að litlu gagni, þegar
menn væru komnir út í sjó, en mik-
ið öryggisatriði væri fyrir bflstjóra
snjóruðningsbíls að vita af bíl í vari,
sem fylgdist með — annað væri
afturför.
„Martröðin var aðeins hálfnuð,
þegar ég var kominn upp á veg.
Þessi vegur er slysagildra og ég
ætla að fylgja þessu eftir, þó það
kosti mig kannski starfið. Eg geri
það ekki aðeins fyrir sjálfan mig
heldur alla mokstursmenn og fer
alla leið í ráðherra ef með þarf,“
sagði Jakob.
Sex ára fangelsi fyrir
tilraun til manndráps
22 ÁRA gömul kona, Rósa Dröfti
Sigurðardóttir, hefiir í sakadómi
Reykjavíkur verið dæmd til 6 ára
óskilorðsbundinnar fangelsisvist-
ar fyrir tilraun til manndráps,
rán, þjófhaði og skjalafals.
Konan stakk mann með hnífi í
veitingahúsinu Gullinu við Austur-
stræti, á liðnu sumri, þegar hann
vildi ganga á milli hennar og manns
sem hún átti í útistöðum við.
Stungan kom vinstra megin í síðu
mannsins og hlutust af miklar blæð-
ingar. Þurfti maðurinn að gangast
undir skurðaðgerð þar sem milta
lians var fjarlægt. Fyrir þetta var
konan sakfelld fyrir tilraun til
manndráps.
Hún var einnig sakfelld fyrir að
hafa ásamt öðrum rænt tveimur
áfengisflöskum af manni í húsi við
Laugaveg; tvo þjófnaði og margví-
slegt skjalafals, svo sem tékkafals
og misnotkun greiðslukorta.
Til frádráttar refsingunni kemur
158 daga gæsluvarðhald. Pétur
Guðgeirsson sakadómari kvað upp
dóminn.
Borgarráð:
Félag eldri
borgara fær
lóð í Arbænum
Borgarráð hefiir samþykkt að
úthluta Félagi eldri borgara og
Bygginarfélagi Gylfa og Gunnars
sf. lóð undir 46 íbúðir fyrir aldr-
aða í fjölbýlishúsi við Hraunbæ
103.
Lóðin er í nýskipulögðu hverfi á
milli Bæjarháls og Hraunbæjar, en
skipulagið gerir er ráð fyrir að þar
rísi íbúðir fyrir aldraða.