Morgunblaðið - 31.01.1990, Blaðsíða 15
MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 31. JANÚAR 1990
15
Guðmundur Bjarnason heilbrigðisráðherra;
Heimsókn til sér-
fræðings kostar að
meðaltali 2.450 kr.
GUÐMUNDUR Bjarnason heilbrigðisráðherra segir að hver samskipti
sjúklinga og sérfræðinga kosti til jafiiaðar um 2.450 krónur. Hann
kveðst ekki hafa upplýsingar um kostnaðinn við samskipti sjúklinga
og heilsugæslulækna, en unnið er að því að afla þeirra. Fundur var
með heilbrigðisráðherra og fulltrúum sérfræðinga síðastliðinn föstu-
dag, þar sem kynntar voru nýjar hugmyndir um reglugerð um sérfræð-
ileæknisþjónustuna. Hugmyndirnar byggjast þó á sömu grundvallar-
sjonarmiðum og fyrr, að öll
gæslulækni sem gefi út tilvísun til
fara til sérfræðings.
Guðmundur kvaðst ekki á þessu
stigi vilja tjá sig um þær hugmyndir
sem kynntar voru sérfræðingum á
föstudag. „í þeim vona ég að séu
tillögur sem menn geti náð saman
um, sérfræðingar geti verið sæmi-
Iega sáttir við og að haldið verði
þeim grundvallaratriðuin sem við
höfum verið að leggja áherslu á, að
samskipti ættu að hefjast hjá heimil-
is- eða heilsugæslulæknum."
Guðmundur var spurður um
kostnað við samskipti sjúklinga og
lækna og hvort hann teldi raun-
hæfar tölur, sem komu fram í grein
Árna Sigfússonar borgarfulltrúa hér
í biaðinu í síðustu viku. Samkvæmt
niðurstöðum Árna kostaði hver
heimsókn sjúklings til sérfræðings í
fyrra að jafnaði 1.530 krónur, en
árið 1988 kostaði hver koma sjúkl-
ings á heilsugæslustöð 1.960 krónur.
Guðmundur segir nokkuð ná-
kvæmar tölur vera til um kostnað
við heimsóknir til sérfræðinga og
sjálfstætt starfandi heimilislækna.
Heimsóknir til sérfræðinga séu að
vísu misdýrar, dýrastar séu rann-
sóknir. „Nýjustu tölur sem ég hef
um þetta eru að samskiptin kosti
núna að meðaltali um 2.450 krónur
hjá sérfræðingum, en að rannsókn-
unum undanskildum, sem eru dýr-
astar og kosta tæpar 5.000 krónur
hver samskipti, kosta samskipti við
aðra sérfræðinga rétt tæpar 2.000
í hefjist hja heimdis- eða heilsu-
sjúklingsins þegar hann þarf að
krónur." Guðmundur kvaðst ekki
hafa á takteinum tölur um kostnað
við komur til sjálfstætt starfandi
heimilislækna. Hann segir mun erf-
iðara að finna hvað hver samskipti
kosta á heilsugæslustöðvum, þar
sem starfsemi þar sé mun víðtæk-
ari, heilsugæslustöðvar sinni einnig
forvarnarhlutverki, heilsuverndar-
hlutverki og fleiru sem ekki falli
undir venjuleg samskipti sjúklings
við lækni í þessum samanburði.
Hann segir þó að unnið sé að því
að finna eins nákvæmlega og unnt
er hvað slík samskipti á heilsugæslu-
stöðvum kosta. „Áð sjálfsögðu er
nauðsynlegt fyrir heilbrigðisþjón-
ustuna að hafa þær upplýsingar til
þess að vita hvað þessi þjónusta
kostar, ekki endilega til að vera með
einhveija samanburðarfræði við
aðra aðila, heldur vegna upplýsinga-
gildisins."
Guðmundur kvaðst ekki vilja
leggja dóm á þær tölur sem Árni
Sigfússon nefndi. „Hann auðvitað
tekur, til þess að finna fjárfestingar-
kostnaðinn, dæmi um tvær nýjar
heilsugæslustöðvar sem á að fara
að taka í notkun og það er kannski
hvorki betri né verri samanburður
en annar, en þó hygg ég að ef tekið
sé meðaltal af fleiri stöðvum þá geti
tölurnar verið aðrar en þarna eru,
en á þessu stigi hef ég ekkert um
það að segja frekar.“
KYOLIC
Eini alveg lyktarlausi hvítlaukurinn.
2ja ára kælitæknivinnsla (20 mán.
+ 4 mán.) sem á engan sinn líka í
veröldinni.
Hefur meiri áhrif en hrár hvítlaukur.
Er gæðaprófaöur 250 sinnum á
framleiðslutímanum.
Á að baki 30 ára stööugar rann-
sóknir japanskra vísindamanna.
Lífrænt ræktaður í ómenguðum
jarðvegi án tilbúins áburðar eða
skordýraeiturs.
Öll önnur hvítlauksframleiðsla notar
hltameðferð.
Hiti eyöileggur hvata og virk efna-
sambönd í hvitlauk og ónýtir heilsu-
bætandiáhrif hans.
- KYOLIC DAGLEGA -
Það gerir gæfumuninn
KYOLIC fæst í heilsuvöru- og lyfja-
verslunum og víðar.
Heildsölubirgðir
LOGALAND,
heildverslun. Símar 1-28-04.
@3 Ármula 29 símar 38640 - 686100
Þ. PORGRIMSSON & C0
Armstrong LDFTAPLCÍTUR
KDRK O PUAKT GÓLFFLÍSAR
^ARMAJPLAST EINANGRUN
|p) VINKLARÁTRÉ
Gmtólk
Nýmjólk ínýjum ham...
/
nms"
Fæst einnig í 1 lítra fernum.
G-mjólkin geymist mánuðum saman, utan
kælis, sem kemur sér vel þegar langt er í
næstu búð. Vel kæld bragðast hún sem besta
nýmjólk og þegar Cappuccino-kaffi er annars
vegar hentar engin mjólk betur.
Leggðu nýja útlitið á minnið.
AUK/SlA k3d74-766