Morgunblaðið - 31.01.1990, Side 22
22
MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 31. JANUAR 1990
Útgefandi Árvakur, Reykjavík
Framkvæmdastjóri Haraldur Sveinsson.
Ritstjórar Matthías Johannessen, Styrmir Gunnarsson.
Aðstoðarritstjóri Björn Bjarnason.
Fuiltrúar ritstjóra Þorbjörn Guðmundsson, Björn Jóhannsson, Árni Jörgensen.
Fréttastjórar Freysteinn Jóhannsson, Magnús Finnsson, Sigtryggur Sigtryggsson, Ágúst Ingi Jónsson.
Auglýsingastjóri Baldvin Jónsson.
Ritstjórn og skrifstofur: Aðalstræti 6, sími 691100. Auglýsingar:
Aðalstræti 6, sími 22480. Afgreiðsla: Kringlan 1, sími 83033. Áskrift-
argjald 1000 kr. á mánuði innanlands. í lausasölu 90 kr. eintakið.
Fílar
í postulínsverslun
Landspítalinn undirbýr kaup á segulómunartækl:
Nýtækni semgefur mu
möguleika í myndgre
Læknamir Ólafiir Kjartansson (t.v.) og Ásmundur Brekkan standa hér
segulómun.
Sjúklingur leggst á borðið sem siðan er rennt inn í segulinn.
Kosið verður til bæjar- og sveit-
arstjórna í vor. Þó að enn séu
fjórir mánuðir til kosninga og al-
menningur sjái ekki til sólar vegna
skattpíningar ríkisstjórnarinnar,
virðist vera hlaupinn vorgalsi í
stjómmálamenn. Eru flokkamir í
óða önn að undirbúa slaginn og
sums staðar er rimman þegar haf-
in. )
Undirbúningur kosninganna
tekur oft á sig furðulegar myndir;
er þar skemmst að minnast sam-
einingartilrauna á vinstrivængnum
í Reykjavík. Þar vilja sumir sam-
einast en aðrir ekki og ekki virðist
annað ætla að leiða af þessum
sameiningammleitunum, en að
menn sameinist um það að vera
áfram sundraðir. Að minnsta kosti
er það mun frekar ágreiningur og
innbyrðis tortryggni sem einkennir
starf vinstriflokkanna en sam-
heldni og samhugur.
Þó er þáttur ríkisstjórnarinnar
og þeirra flokka sem að henni
standa einna sérkennilegastur.
Hafa forystumenn ríkisstjórnar-
innar hagað þannig orðum sínum
og gerðum í samskiptum við sveit-
arfélögin í landinu, að með hinum
mestu ólíkindum er. Ríkisvaldið
hefur seilst ofan í sjóði sveitarfé-
laganna af ótrúlegri hugkvæmni
og skert þannig fjárhagslegt sjálf-
stæði þeirra veralega. Er engu
líkara en ráðherrarnir séu í stöð-
ugri hugmyndasamkeppni um nýj-
ungar í „tekjuöflun".
Það er og sérlega athyglisvert,
að forystumönnum ríkisstjórnar-
innar hefur tekist með árásum
sínum og dylgjum um Reykjavíkur-
borg og meirihluta sjálfstæðis-
manna þar, að gera Davíð Odds-
son, varaformann Sjálfstæðis-
flokksins að persónugervingi sveit-
arfélaganna í landinu í baráttunni
gegn óvinveittu ríkisvaldi. Gæti
Sjálfstæðisflokkurinn í Reykjavík
vart hugsað sér betri „bandamenn“
í sveitarstjómarkosningunum í vor
en ráðherralið ríkisstjórnarinnar.
Nýlega kom út skýrsla sem
nefnd á vegum félagsmálaráðherra
tók saman um stöðu sveitarfélag-
anna í landinu. Kemur þar fram
- að fjárhagsleg staða sveitarfélaga
hafi almennt versnað. Minnstu og
stærstu sveitarfélögin standa
|skást, en önnur eiga mörg hver í
miklum fjárhagsörðugleikum.
Slæm staða sveitarfélaganna hlýt-
i ur að bitna jafnt á verklegum fram-
kvæmdum sveitarfélaga sem upp-
byggingu þjónustustarfsemi.
Orsakir þessa era í skýrslunni
sagðar margvíslegar; of lágar tekj-
ur einstakra sveitarfélaga, aukin
verkefni og þjónusta, of miklar
Qárfestingar, mikill fjármagns-
kostnaður, áföll vegna erfíðleika í
atvinnurekstri, fyrirhyggjuleysi í
fjármálastjóm sumra sveitarfélaga
og skerðing á jöfnunarsjóði sveit-
arfélaga.
Af þessu er ljóst að margt af
því sem hefur orsakað erfiðleika
er nokkuð sem sveitarfélögin ráða
ekki við; þar er um verk og ábyrgð
ríkisvaldsins að ræða. Hvernig
bregst ríkisstjórnin við? Ábyrg
ríkisstjóm hefði tekið á vandanum
af festu með því að fara að ráðum
skýrsluhöfunda og auka fjárhags-
Iegt svigrúm sveitarfélaganna og
sjálfstæði. Ríkisstjórn sem forða
vildi sjálfri sér frá skakkaföllum í
bæjar- og sveitarstjórnarkosning-
um hefði reynt að snúa þróuninni
við, og að minnsta kosti reynt að
gera ekki vont verra. Hvernig hef-
ur núverandi ríkisstjórn síðan
brugðist við? Ríkisstjórnin hefur
ekki bragðist við vandanum; hún
hefur algerlega brugðist og gott
betur, hún hefur aukið vandann
með því að seilast í sjóði sveitarfé-
laga og leggja á þau auknar álög-
ur.
Rétt fyrir jólaleyfi vora sett lög
um virðisaukaskatt. Með þessum
lögum er sveitarfélögunum í
landinu gert að greiða sem nemur
allt að milljarði í virðisaukaskatt.
Hér er um hreina viðbót að ræða
í útgjöldum sveitarfélaga.
Ríkisvaldið virðist ekki geta
unað því að fyrirtæki í eigu sveitar-
félaganna skili einhveijum arði.
Hefur þess vegna verið lagt fram
stjórnarframvarp á Alþingi um
skattskyldu orkufyrirtækja. Að
mati forsvarsmanna orkufyrir-
tækjanna mun þetta þýða meira
en tveggja milljarða tekjur fyrir
ríkissjóð, en á móti minnka annars
vegar tekjur sveitarfélaganna og
hins vegar hækka gjöld orkunot-
enda. Einnig er skattlagning á
fyrirtæki eins og Landsvirkjun
hreinasta siðblinda, fyrir utan allar
óæskilegar afleiðingar, eins og
46% hækkun á raforkuverði til al-
menningsveitna og samningsörð-
ugleika við Alþjóðabankann. Fyrir-
tækið er sameign ríkisins,
Reykjavíkur og Akureyrar. Ríkis-
valdið notfærir sér hins vegar
skattavald sitt til þess að hirða
meiri ágóða af fyrirtækinu en
samningur aðilanna gerir ráð fyrir.
Almennur samskiptavandi virð-
ist einnig hijá ríkisstjórnina. Má
þar nefna tilraunir ríkisstjórnar-
innar til að yfírtaka rekstur heil-
brigðisstofnana sveitarfélaga að
þeim forspurðum og í beinni and-
stöðu við þau. Einhliða riftun
samninga ríkisvaldins og ýmissa
sveitarfélaga eins og Stykkishólms
um verklegar framkvæmdir er
annað dæmi.
Málefnastaða vinstriflokkanna í
bæjar- og sveitarstjórnum er víðast
hvar slæm. Aðgerðir ríkisstjómar-
innar hafa aðeins orðið til að bæta
þar gráu ofar. á svart. Líkja má
ráðherrum ríkisstjómarinnar við
fíla í postulínsverslun, þar sem
postulínið er viðkvæm staða
vinstriflokkanna í bæjar- og sveit-
arstjómum.
Röntgendeildir spítala eru fyrir
löngu orðnar annað og meira en
röntgentæki með tilheyrandi
starfsfólki sem annast töku á
svart-hvítum myndum af sjúkl-
ingum. Þróun myndgreiningar-
tækni, sem svo er nefnd, hefúr
verið ör síðustu áratugi og því
hafa möguleikar á myndatöku
og myndgreiningu hinna ýmsu
líkamshluta stóraukist. Tölvu-
sneiðmyndatæki eru starírækt á
röntgendeild Landspítalans og
næsta skref í þessari þróun er
svokölluð segulómun sem verður
lýst nánar hér á eftir. Um leið
og möguleikarnir hafa aukist má
nú einnig fá miklu skýrari mynd-
ir og ekki aðeins svart-hvítar
heldur í lit og jafhframt er
myndatakan óþægindalaus fyrir
sjúklinginn.
Segulómun er nafn á nýlegri
myndgerðartækni sem ratt hefur
sér til rúms á þessum áratug. Á
ensku er þessi tækni. nefnd: Magn-
etic resonance imaging. Segulóm-
um byggist á samspili útvarps-
bylgna og seguls og er hægt að
taka sneiðmyndir af hinum ýmsu
líkamshlutum. Á vegum röntgen-
deildar Landspítalans hefur að
undanfömu farið fram athugun á
kaupum á segulómunartæki. Ás-
mundur Brekkan prófessor og for-
stöðulæknir, Ólafur Kjartansson
röntgenlæknir og Þorgeir Pálsson
verkfræðingur á eðlilsfræði- og
tæknideild kynntu þessa tækni
fyrir blaðamanni Morgunblaðsins á
dögunum. Þeir sátu ráðstefnu í
Bandaríkjunum fyrir nokkram vik-
um þar sem greint var frá nýjung-
um á þessu sviði.
Sagan
-Uppruni segulómunar er í efna-
fræðinni þar sem hún hefur verið
notuð til efnagreiningar í hartnær
hálfa öld, segir Þorgeir Pálsson
sem skýrir út þessa tækni og sögu-
legan bakgrann hennar. -Það er
hins vegar ekki nema rúmur ára-
tugur síðan farið var að riota seg-
ulómun til myndatöku. Á þessum
stutta tíma hefur tækninni fleygt
ótrúlega hratt fram og er hún nú
viðurkennd sem ein af grandvallar-
aðferðunum ásamt tölvusneiðmynd,
ómun og röntgenmyndatöku, til að
mynda “innviði" líkamans. Hins
vegar er nú þegar farið að nota þá
eiginleika segulómunar að geta
greint sundur mismunandi líkam-
svefi í æ ríkari mæli á stærstu
myndatækjunum. Þar liggja meðal
annars framtíðaráhrif segulómunar
á læknavísindin, þ.e. fyrir utan
sjálfa myndatökuna er nánast hægt
að efnagreina sjálfan mannslíka-
mann. En sá hluti tækninnar á
eftir að þróast meira og er því ekki
nærtækur fyrir okkur.
Tæknin
-Segulómun er aðferð til að
mynda “innviði" líkamans. Það er
gert með því að segulmagna hann
með stóru segulstáli, nota síðan
útvarpsbylgjur til að hafa áhrif á
eða örva ákveðið frumefni í manns-
líkamanum. FVumefnið svarar þess-
ari örvun með því að senda frá sér
útvarpsbylgju sem er einkennandi
fyrir ástand þess. Svarið ómar frá
iíkamanum og því er tæknin nefnd
segulómun.
efniðvetni notað til að fá fram
segulómunarmyndir.
-Segulómunartækið er byggt upp
af fimm hlutum:
1) Megin segull til að segul-
magna allan líkamann.
2) Litlir staðsetningarseglar til
að velja sneiðar í líkamanum, þver-
sneiðar, langsneiðar og skásneiðar.
3) Móttakari og sendir fyrir út-
varpsbylgjur.
4) Tölvubúnaður til að stjórna
tækinu og safna upplýsingum frá
því til sjálfrar myndgerðarinnar.
5) Skjár og tölva til myndgrein-
ingar, þ.e. skoðunar og greiningar
á myndunum.
Tækjabúnaðurinn er mjög mis-
munandi en mestu máli skiptir val
á sjálfum seglinum. Þeir geta verið
þrenns konar.
Ofurleiðnisegull. Hann getur
flutt mikinn rafstraum án nokkurs
viðnáms og myndar því sterkt og
jafnt segulsvið (mikið segulmagn).
Segullinn er kældur með fljótandi
helíum og stundum einnig fljótandi
köfnunarefni til að ná lágu hitastigi
sem er nauðsynlegt fyrir ofurleiðn-
Þorgeir Pálsson verkfræðingur séi
fer verð á helíum lækkandi. Aðrar
segulgerðir eru venjulegur rafse-
gull, kældur með vatni eða lofti,
Líkaminn er nær því þrir fjórðu
hlutar vatn. Vatn er samsett úr
frumefnunum vetni og súrefni og
kemur vetni einnig fýrir í mörgum
lífrænum efnasamböndum. Vetni er
því algengt frumefni í líkamanum
og einnig mjög næmt fyrir áhrifum
segulómunar. Þess vegna er frum-
ina. Þessir seglar eru tiltölulega
léttir en flóknir í byggingu. Þeim
hefur fylgt mikill rekstrarkostnaður
vegna kælingarinnar og helíum
verður að endurnýja reglulega. Það
er óðum að breytast, aðallega vegna
minni helíumnotkunar en einnig
sem hefur þá takmarkaðan segul-
styrk og er mjög aflfrekur og loks
fastur segull sem er venjulegt seg-
ulstál og gefur jafnt og sterkt
segulsvið. Slíkur segull getur hins
vegar vegið allt að 100 tonnum og
hefur einnig takmarkaðan segul-