Morgunblaðið - 31.01.1990, Síða 33
MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 31. JANUAR 1990
33
Morgunblaðið/Arnór
Frá keppni hjá Breiðfirðingum 1976. Bræðurnir Magnús og Benedikt
Björnssynir spila gegn Þorsteini Laufdal og Jóni Stefánssyni.
deildin aðeins fyrir Breiðf irðinga en það
Brids
AmórRagnarsson
Afmælismót Bridsfélags
Breiðfirðinga
Helgina 3.-4. febrúar fer fram stór-
mót í tvímenningi í tilefni 40 ára afmæl-
is Bridsfélags Breiðfirðinga. Spilað
verður í húsi BSI við Sigtún 9. Keppnis-
form verður barómeter, tölvugefinn, 2
spil milli para. Fjöldi para er takmark-
aður við 50 pör, og er mótið um það
bil að fyllast. Skráningu lýkur fimmtu-
dagskvöldið 1. febrúar. Spilað er um
silfurstig. Öll verðlaun verða peninga-
verðlaun.
Auk þess verða veitt verðlaun fyrir
bestu skor í einhverri setu báða dag-
ana. Spilatími verður sem hér segir:
Laugardagur — Spilamennska hefst kl.
10.00, spilað til 12.30 en þá verður
gert hlé til kl. 13.00 og verða veitingar
þá til sölu á vægu verði á staðnum.
Tekið verður aftur til við spilamennsku
kl. 13.00 til 15.30, en þá verður aftur-
hlé og mun félagið veita kaffi og með-
læti. Síðan verður spilað tii um kl.
19.00 og verður þá lokið um 30 umferð-
um af 49. Sunnudaginn 4. febrúarhefst
spilamennska aftur kl. 13.00 og stend-
ur til 15.30, en þá verður kaffihlé með
veitingum á vegum félagsins. Spila-
mennska hefst aftur kl. 16.00 og spilað
til um 18.30 er mótinu lýkur. Keppnis-
gjald er kr. 5.000 á parið og greiðist
í upphafi móts.
Bridsfélag Breiðfirðinga
40ára
Það var sunnudaginn 8. janúar 1950
kl. 18 að samankomnir voru nokkrir
félagar úr Breiðfirðingafélaginu í bað-
stofu félagsins, í þeim tilgangi að
stofna bridsdeild, ef nægar forsendur
væru fyrir hendi. Svo reyndist vera og
samþykkt var að stofna deild innan
Breiðfirðingaféiagsins til bridsiðkunar.
A fundinum gengu 22 spilarar í deild-
ina og ákveðið var að halda framhalds-
stofnfund þar sem lög og reglur yrðu
samþykktar fyrir Bridsdeild Breiðfirð-
inga.
Framhaldsfundur var haldinn þann
5. febrúar 1950. Þar voru lög félagsins
samþykkt, kosin stjórn o.fl. Þá bættust
fleiri félagar í deildina, þannig að stofn-
félagar voru orðnir 40.
Fyrsta stjórn deildarinnar var skipuð
eftirtöldum félögum: Guðrúnu Bjartm-
ars, Ásgeiri Ármannssyni og Hallgrími
Oddssyni. Varastjórn skipuðu þeir Þór-
arinn Alexandersson, Þórður Sigurðs-
son og Helgi Jóhannesson. í fyrstu var
áeuH tiÉóeúto fteiÉíto!
HIGH-DESERT
BLÓMAFRJÓKORN
HIGH-DESERT
f«ESH RRW GRANUtES
,Á,UET WEI.GHT V4 L8.-227G
THE C C P0LLEN CONIPAN*
C°TTSDALE, ARIZONA 852J
EGGERT KRISTJÁNSSON LPF SÍIMI 685300
þótti ekki gerlegt til lengdar og breytt-
ist fljótt.
Árið 1958 fór fram umræða á aðal-
fundi um möguleika á því að deildin
gengi í Bridssamband Islands. Var lögð
fram tillaga til stjórnar um að athuga
þann möguleika.
Árið 1960 var. málið aftur tekið upp
á aðalfundi og vísað til stjórnar. Skyldi
málið skoðað. Þann 26. nóvember 1960
var síðan ákveðið að sækja um aðild.
Sendi stjómin bréf þann 28. janúar
1961 til BSÍ og óskaði eftir aðild að
sambandinu. Svar kom þann 8. febrúar
1961. Þar voru Breiðfirðingar boðnir
velkomnir í Bridssamband íslands. Þar
með hófst nýr kafli í sögu félagsins.
Á árunum 1950-’75 var mikið spilað
við aðra klúbba. Sem dæmi var spilað
við Keflavík, Mjólkursamsöluna, Barð-
strendinga, Hafnarfjörð, Kópavog,
Akranes, Vestmannaeyjar, Tafl- og
bridsklúbbinn, Bridsfélag kvenna, Hún-
vetninga o.fl.
Árið 1963 voru ný lög samþykkt
fyrir deildina, þar sem henni var endan-
lega lýst sem sjálfstæðri bridsdeild og
hún opnuð fyrir öllum. Þann 21. sept-
ember 1986 var nafni deildarinnar
breytt í Bridsfélag Breiðfirðinga (BFB).
Þátttaka í Bridsfélagi Breiðfirðinga
hefur aukist jafnt og þétt og má segja
að megintilgangur félagsins, sem var
að gleðjast á góðra vina fundi og stunda
drengilega keppni í skemmtilegri íþrótt
liafi ávallt haldið sér hjá Breiðfirðing-
um. Fáir eru þeir orðnir í dag, raun-
verulegir Breiðfirðingar við spilaborðin,
því miður, en segja má að maður komi
í manns stað, því þrátt fyrir allt fjölgar
í félaginu. Bridsfélag Breiðfirðinga
hefur löngum þótt góður félagsskapur
að vera í til að stunda brids, þótt ekki
hafi farið mikið fyrir allra stærstu nöfn-
unum í bridsíþróttinni. í dag er félagið
öllum opið og tengsl við Breiðfirðinga-
félagið engin nema að nafninu til. Engu
að síður á Breiðfirðingafélagið í
Reykjavík þakkir skilið fyrir að hafa
frumkvæðið að stofnun Bridsfélags
Breiðfirðinga, sem vonandi heldur
áfram að dafna þrátt fyrir 40 ára aldur.
Stjórn Bridsfélags Breiðfirðinga
skipa í dag eftirtaldir aðilar: Guðlaugur
K. Karlsson formaður, Óskar Þ. Þráins-
son varaformaður, Kristján Sigurgeirs-
son gjaldkeri, Sveinn R. Eiríksspn með-
stjórnandi, stigaskrásetjandi, ísak Ö.
Sigurðsson meðstjórnandi.
Breiðfirðingar spila á fimmtudögum
í húsi BSÍ við Sigtún. Keppnisstjóri
félagsins er ísak Ö. Sigurðsson.
(Fréttatilkynning frá BFB.)
HASKOLIÍSLAIMDS
ENDURMENNTUN ARNEFND OG HEIMSPEKIDEILD
Námskeið í ítölsku - tramhaldsnámskeið
5. febrúar - 2. mars 1990
Heimspekideild Háskóla íslands og Endurmenntunarnefnd HÍ
munu á tímabilinu 5. febrúar - 2. mars bjóða upp á námskeið
í ítölsku. Kennari verður sendikennarinn prófessor Marco
D’Ottavi frá ítölsku menningarmálastofnuninni Mondo Italiano.
Námskeiðið (framhald I) er ætlað þeim, sem grunnþekkingu
hafa á ítölsku. Nánari upplýsingar um kröfur til forkunnáttu
fást á skrifstofu endurmenntunarnefndar. Námskeiðið tekur
54 klukkustundir, 3 tíma á dag, fjóra daga vikunnar, kl. 19.30-
22.30 og á laugardögum í 3 tíma kl. 13.00-16.00.
Hámarksfjöldi þátttakenda er 20 manns.
Hægt er að taka próf að loknum námskeiðunum og sækja til
heimspekideildar um að fá þau metin inn í nám í rómönskum
málum.
Þátttökugjald verður kr. 14.000,-.
Skráning í símum 694923, 694924 og 694925.
KOPAVOGSBUAR
Veljum traustan mann
til traustra verka
Reynslunni má ekki
varpa fyrir róða
Við undirrituð viljum vinna að endurkjöri
RICHARDS BJÖRGVINSSONAR í FYRSTA SÆTI
á framboðslista Sjálfstæðisfloklcsins í prófkjöri flolcksins
3. febrúar nk. frá kl. 10-22.
RICHARD hefur um árabil verið oddviti Sjálfstæðisfloklcsins
í Bæjarstjórn Kópavogs og við teljum að hans sé nú
meiri þörf þar en nokkru sinni fyrr.
VELJUM RICHARD I FYRSTA SÆTI
Arnþór Ingólfsson
aðstoðaryfirlögregluþjónn
Ásgeir Guðmundsson
framkvæmdastjóri
Bjarni Bragi Jónsson
hagfræðingur
Erlingur Hansson
framkvæmdastjóri
Guðrún Gísladóttir
húsmóðir
Hilmar Björgvinsson
deildarstjóri
Jóhannes Viggósson
lögregluþjónn
Skúli Sigurðsson
vélfræðingur
Steinar Steinsson
skólastjóri
Árni Örnólfsson
bankamaður
Ásgeir Pétursson
bæjarfógeti
Elí Jóhannesson
byggingameistari
Grímur Guðmundsson
forstjóri
Hafdís Karlsdóttir
viðskipta- og tölvunarfr.
Hörður V. Jóhannsson
skiþstjóri
Jón Auðunsson
pípulagningameistari
Stefnir Helgason
framkvæmdastjóri
Þórarinn Þórarinsson
kennari
KÓPAVOGSBÚAR: Takið þátt í prófkjöri
Sjálfstæðisflokksins laugardaginn 3. febrúar nk.