Morgunblaðið - 01.02.1990, Blaðsíða 24
24
:la’j:I:í3'í| .i íVY,.\K- lUVi/.MW aíGA.lH/'.inílOM
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 1. FEBRUAR 1990
Kemur í hlut jafiiað-
armanna að sam-
eina Þýskaland?
Bonn. Daily Telegraph.
LÍKUR vaxa nú á því að jafnaðarmenn verði við stjórnvölinn í
báðum þýsku ríkjunum að loknum kosningum í austri 18. mars og
í vestri í desember. Fari svo á það eftir að flýta sameiningu
ríkjanna því flokkar jafnaðarmanna beggja vegna landamæranna
eru smám saman að renna saman í eitt.
Jafnaðarmannaflokkurinn, eða
SPD eins og hann kallast í báðum
ríkjum, var bannaður í Þýskalandi
í Þriðja ríkinu. Eftir stríð tók hann
aftur til starfa vestanmegin en var
neyddur til að renna saman við
kommúnista austanmegin. Um það
leyti sem múrinn féll í nóvember
sl. var flokkurinn endurreistur í
Austur-Þýskalandi og fljótlega var
farið að rækta tengslin millijafnað-
armanna í báðum ríkjunum. Á
meðan hafa Kristilegir demókratar
í Vestur-Þýskalandi leitað logandi
ljósi að samstarfsaðila í austri en
án árangurs.
Nú er svo komið að vestur-
þýskir jafnaðarmenn eru á stöðug-
um þönum yfir landamærin. Willy
Brandt fyrrum kanslara Vestur-
Þýskalands var fagnað ákaft á
flokksþingi austur-þýskra jafnað-
armanna um síðustu helgi í bænum
Gotha-þar sem flokkurinn var upp-
haflega stofnaður árið 1875. Líkur
er á að Brandt verði kosinn heiðurs-
forseti austur-þýska flokksins eins
og hins vestur-þýska. Einnig má
nefna sem dæmi um hina ótrúlega
hröðu þróun að Egon Bahr, sér-
fræðingur vestur-þýskra jafnaðar-
manna í afvopnunarmálum, húg-
leiðir nú að bjóða sig fram fyrir
systurflokkinn 18. mars.
Austur-þýski jafnaðarmanna-
flokkurinn, SPD, er eini þarlendi
stjómarandstöðuflokkurinn sem
tekist hefur að koma skipulagi á
starfsemi sína. Vinni austur-þýskir
jafnaðarmenn kosningarnar 18.
mars eins og flest bendir til er eins
víst að það hafi veruleg áhrif á
úrslitin í þingkosningunum í Vest-
ur-Þýskalandi í desember. Vestur-
þýskir jafnaðarmenn gætu þá vísað
til þess að þeir væru best til þess
fallnir að koma sameiningunni í
kring. Úrslitin í fylkiskosningunum
í Saarlandi þykja benda í þessa
átt. Oskar Lafontaine vann þar
meiri sigur en nokkur bjóst við, jók
fylgi flokks síns úr 49% í 54%. Nær
öruggt er nú talið að hann verði
næsta kanslaraefni flokks síns.
Skorað hefur verið á Brandt, sem
er 74 ára gamall, að gefa aftur
kost á sér vegna þess trausts sem
hann nýtur hjá þjóðinni. Hann hef-
ur hafnað því en jafnframt gefíð í
skyn að það væri honum ekki á
móti skapi að leiða nokkurs konar
sameiginlegt framkvæmdaráð
þýsku ríkjanna sem kann að vera
myndað einhvern tíma á leiðinni
til fullrar sameiningar.
Býður Gorbatsjov
Solzhenítsyn heim?
ÞESS er e.t.v. ekki langt að bíða að Míkhaíl Gorbatsjov bjóði hinum
kunna rithöfundi, Alexander Solzhenítsyn, heim og veiti honum upp-
reisn æru, að sögn bandaríska tímaritsins U.S. News & World Report.
Tímaritið hefur það eftir vinum
Solzhenítsyns að hann eigi nú í samn-
ingaviðræðum við fulltrúa Moskvu-
stjórnarinnar um að fara aftur til
Sovétríkjanna. Er hann sagður setja
það skilyrði fyrir að snúa aftur heim,
að útgáfa allra bóka hans verði leyfð
og hann formlega beðinn afsökunar
á því að hafa verið rekinn frá Sov-
étríkjunum 1974 vegna ritverka
sinna.
Hermt er að Solzhenítsyn sé ákaf-
ur í að snúa heim aftur en mun þó
þykja miður að þurfa að fara frá
þeim gögnum sem hann hafi haft
aðgang að í Bandaríkjunum, og ein-
ingis sé þar að finna, um stjóm-
málahreyfingu bolsévika. Vinnur
hann að miklu ritverki um hana.
Aukinheldur eru synir hans sagðir
leggjast gegn því að foreldrar þeirra
hverfi frá Bandaríkjunum.
SIEMENS
Með SIEMENS heimilistœkjum verður lífið léttara!
Traustir umboðsmenn okkar
• Akranes: Rafþjónusta Sigurdórs, Skagabraut 6.
• Borgarnes: Glitnir, Fálkakletti 13.
• Borgarfjörður: Rafstofan Hvítárskála.
• Grundarfjöröur: Guðni Hallgrímsson, Grundargötu 42.
• Hellissandur: Verslunin Blómsturvellir, Munaðarhóli 25.
• Búðardalur: Versl. Einars Stefánssonar, Brekkuhvammi 12.
• ísafjörður: Póllinn hf., Aðalstræti 9.
• Sauðárkrókur: Rafsjá hf„ Sæmundargötu 1.
• Siglufjörður: Rafbær sf„ Aðalgötu 34.
• Akureyri: Sír hf„ Reynishúsinu Furuvöllum 1.
eru viðs vegar um landið!
• Húsavík: Öryggi sf„ Garðarsbraut 18a.
• Neskaupstaöur: Rafalda hf„ Hafnarbraut 24.
• Egilsstaðir: Raftækjav. Sveins Guðmunds., Kaupvangi 1.
• Breiðdalsvík: Rafvöruv. Stefáns N. Stefánss., Ásvegi 13.
• Höfn í Hornafiröi: Kristall, Hafnarbraut 43.
• Vestmannaeyjar: Tréverk hf„ Flötum 18.
• Hvolsvöllur: Kaupfélag Rangæinga, Austurvegi 4.
• Selfoss: Árvirkinn hf„ Eyrarvegi 29.
• Garöur: Raftækjav. Sigurðar Ingvarssonar, Heiðabraut 2a.
• Keflavík: Ljósboginn, Hafnargötu 25.
c cn
o|
o* o*
3 <Q
Í8
29
3 2:
o2
Q Q'
3
02
Q<°
3
Q.