Morgunblaðið - 16.02.1990, Blaðsíða 4
4
MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 16. FEBRÚAR, 199.0
Morgunblaðið/Einar Falur
Fræðst um myndlist
Hópar skólabama sækja Listasafn íslands heim til
að fræðast um myndlist. Þá er rýnt í verkin og svo
er sessunum komið fyrir, sest á gólfið og hlustað
af athygli. Þessi hópur barna, sem Ijósmyndari
Morgunblaðsins rakst á í Listasafninu í gær, var
að kynna sér „íslandslag“ eftir Svavar Guðnason.
VEÐUR
*
* * *
* * * *
í DAG kl. 12.00:
Heimild: Veöurstofa islands
(Byggt é veöurspá kl. 16.15 i gær)
VEÐURHORFUR í DAG, 16. FEBRÚAR
YFIRLIT i GÆR: Austanátt á landinu, stinningskal^li eða allhvass
með éljum á annesjum vestan- og norðaustanlands, en heldur
hægari norðaustanlands og slydduél austanlands. Sunnantil á
landinu var hægviðri og víða léttskýjað.
SPÁ: Vaxandi suðaustanátt um sunnan- og vestanvert landið, víða
6-8 vindstig með skafrenningi en síðar einnig snjókomu þegar líður
á daginn en norðanlands verða 4-6 vindstig og skýjað en úrkomu-
lítið. Hiti um eða rétt yfir frostmarki.
VEÐURHORFUR NÆSTU DAGA:
HORFUR Á LAUGARDAG: Suðaustanstrekkingur með slyddu eða
rigningu um sunnan- og síðan norðanvert landið, en hægari sunnan-
átt með éljum fylgir í kjölfarið. Hiti um eða yfir frostmarki.
HORFUR Á SUNNUDAG: Austan- og norðaustanátt með slyddu
við norðurströndina en mun hægari austlæg eða breytileg átt og
él um sunnanvert landið. Hiti um frostmark austanlands en vægt
frost annars staðar.
10° Hitastig:
10 gráður á Celsius
Skúrír
*
V El
E= Þoka
= Þokumóða
’ , ’ Súld
OO Mistur
—[- Skafrenningur
Þrumuveður
TAKN:
"i i» Heiðskírt
Léttskýjað
Hálfskýjað
Skýjað
Alskýjað
y. Norðan, 4 vindstig:
' Vindörin sýnir vind-
stefnu og fjaðrirnar
vindstyrk, heil fjöður
er 2 vindstig.
/ / /
/ / / / Rigning
/ / /
* / *
/ * / * Slydda
/ * /
* * *
* * * * Snjókoma
VEÐUR VÍÐA UM HEIM kl. 12:00 í gær að ísl. tíma hiti vcður Akureyri 1 slydda Reykjavik +1 léttskýjað
Bergen 3 skýjað
Helsinki 0 snjókoma
Kaupmannah. 1 þokuruðningur
Narssarssuaq +3 skafrenningur
Nuuk +11 snjókoma
Osló 2 þoka í gr.
Stokkhólmur 0 snjókoma
Þórshöfn 2 skýjað
I Algarve 17 heiðskírt
Amsterdam 4 þrumuveður
Barcelona 20 hálfskýjað
Berlín 1 slydda
Chicago 2 frostúði
Feneyjar 10 þokumóða
Frankfurt 4 rigning
Glasgow 5 úrkoma
Hamborg 2 þokumóða
Las Palmas 19 skýjað
London 7 léttskýjað
Los Angeles 6 heiðskirt
Lúxemborg 4 skýjað
Madríd 10 mistur
Malaga 18 heiðskirt
Mallorca 21 léttskýjað
Montreal +10 alskýjað
New York 3 alskýjað
Orlando 18 heiðskírt
París 9 hálfskýjað
Róm 15 þokumóða
Vin 1 rigning
Washington 6 þokumóða
Winnipeg +22 léttskýjað
Húsnæðisstofnun:
Farið fram á 10 ný
stöðugildi auk fast-
ráðningar lausamanna
HÚSNÆÐISSTOFNUN ríkisins hefur farið fram á leyfi fyrir 10
nýjum stöðugildum við stofnunina og í bígerð er að óska eftir því
ellefta til að bæta símaþjónustu stofnunarinnar. 16 starfsmenn eru
lausráðnir, þar á meðal forstöðumaður húsbréfadeildar, og hefur
stofnunin einnig farið fram á fastráðningu þessara starfsmanna. 56
manns starfa nú hjá stofhuninni, fastráðnir og lausráðnir. Leyfi fyr-
ir nýráðningum og nýjum stöðugildum hefúr ekki fengist enn og
hefúr umsókn stoftiunarinnar verið hjá ráðningarnefnd rikisstofnana
síðan í nóvember síðastliðnum, að sögn Sigurðar E. Guðmundssonar
framkvæmdastjóra Húsnæðisstolhunar.
„Húsnæðisstofnun hefur ná-
kvæmlega 39,24 stöðugildi,“ segir
Sigurður, „sem hún hefur haft
heimild fyrir í háa herrans tíð og
hefur harla lítið eða ekkert breyst
nú seinni árin. Þrátt fyrir það hafa
verkefnin hlaðist á stofnunina.“
Til að vinna hin auknu verkefni
segir Sigurður að hafi orðið að
ráða lausráðið fólk. „Og það hefur
bjargað okkur,“ segir hann.
16 starfsmenn eru nú lausráðnir
hjá Húsnæðisstofnun og hafa verið
allt að fjögur ár í starfí. Ekki hef-
Ekkí er til-
efiii til að
auka loðnu-
kvótann
- segirJakob
Jakobsson
NIÐURSTÖÐUR úr loðnuleið-
angri rannsóknaskipsins Bjarna
Sæmundssonar á loðnumiðunum
við Suðausturland gefa ekki til-
efni til að auka loðnukvótann, að
sögn Jakobs Jakobssonar for-
stjóra Hairannsóknastofnunar.
Jakob Jakobsson sagði í samtali
við Morgunblaðið að vart hefði orð-
ið við loðnu í Víkurálnum út af
Vestfjörðum en ekki væri búið að
ákveða hvort rannsóknaskip yrði
sent þangað í Ioðnuleiðangur.
Heildarloðnukvótinn á haust- og
vetrarvertíðinni er _ 900 þúsund
tonn. Þar af er kvóti íslendinga 662
þúsund tonn, Norðmanna 139 þús-
und tonn og Grænlendinga 99 þús-
und tonn.
ur fengist heimild til að fastráða
þessa starfsmenn. Um síðustu ára-
mót gengu í gildi nýjar starfs-
skráningarreglur, sem útheimta að
sérhver starfsmaður þarf að vera
skráður og með sérstakt númer.
„Við brugðum auðvitað hart við í
byrjun nóvember ogjskrifuðum fé-
lagsmálaráðuneytinu og fjármála-
ráðuneytinu og óskuðum eftir því
að þetta fólk yrði fastráðið. Allt
þetta mál hefur verið í biðstöðu
síðan í ráðningamefndinni,“ segir
Sigurður.
Samtals eru 56 starfsmenn hjá
Húsnæðisstofnun núna í 51,67
stöðugildum. Á meðal lausráðinna
er forstöðumaður húsbréfadeildar,
sem jafnframt er eini starfsmaður
þeirrar deildar, þar sem ekki hefur
fengist leyfi til að ráða fleiri.
„I samræmi við endurskipulagn-
ingu starfseminnar höfum við farið
fram á samtals 10 ný stöðugildi,“
segir Sigurður. Þau eru meðal
annars fyrir þijá lögfræðinga og
einn ritara í innláns- og innheimtu-
deild, þar sem Landsbanki íslands
„hefur krafist þess að Húsnæðis-
stofnun taki nú loksins við öllum
þeim mikla þunga af innheimtuað-
gerðum sem lögfræðideild bankans
hefur verið með áratugum saman.
Þetta er ekki lengur eðlilegur hluti
, af lögfræðideild Landsbankans,
vegna þess að við höfum yfirtekið
alla aðra starfsemi sem áður var
á vegum veðdeildarinnar og þar
af leiðandi er eðlilegt að þessi lög-
fræðistörf flytjist hingað. Hús-
næðismálastjórn hefur fýrir löngu
samþykkt það fyrir sitt leyti. Bank-
inn hefur starfað í samræmi við
það og nú hefur bankastjórnin sett
okkur þá kosti að taka við þessu
fyrir marslok," segir Sigurður.
Aðrir sem ætlunin er að ráða
eru m.a. forstöðumaður ráðgjafar-
stöðvar, tveir menn í húsbréfa-
deild, einn fulltrúi í almenna lána-
deild og annan í tækniþjónustu.
Bilun í prentsmiðju Blaðaprents:
Viðg’erð væntanlega
lokið á mánudaginn
SKAMMHLAUP varð í aðaldrif-
mótor pressunnar í prentsmiðju
Blaðaprents hf. í fyrrinótt. Lokið
var við að prenta Tímann og
Þjóðviljann þegar bilunin varð,
en prentun Pressunar var ekki
hafín, og kom hún því ekki út í
gær.
Til stóð að prenta Pressuna í
prentsmiðju DV í gær, og dreifa
henni í dag. Að sögn Hrafnkels
Ársælssonar, framkvæmdastjóra
Blaðaprents, verða Tíminn, Þjóðvilj-
inn og Alþýðublaðið prentuð í prent-
smiðjunni Odda þar til viðgerð á
mótornum lýkur. „Blöðin verða
færri síður og ekki í fjórlit á meðan
þau verða prentuð í Odda, en vænt-
anlega geta þau komið út í eðlilegu
formi á þriðjudaginn, þar sem við
reiknum með að viðgerð verði lokið
á mánudaginn."
Hrafnkell sagði að áætlaður
kostnaður við viðgerðina væri á
bilinu 200-300 þúsund krónur.
Kópavogur:
Afgreiðslu
Qárhagsáætl-
unar frestað
BÆJARSTJÓRN Kópavogs hef-
ur ákveðið að fresta til 9. mars,
síðari umræðu um fjárhagsáætl-
un bæjarins.
Að sögn Kristjáns Guðmundsson-
ar bæjarstjóra, er það gert vegna
nýgerðra kjarasamninga, sem hafa
áhrif á fyrri áætlun.