Morgunblaðið - 20.02.1990, Qupperneq 26

Morgunblaðið - 20.02.1990, Qupperneq 26
Þriðji stóri eldsvoðinn frá áramótum: Ibúðarhús við Lundar- g’ötu skemmdist mikið í eldi og innbú eyðilagðist ELDUR kom upp í íbúðarhúsi við Lundargötu 10 á Akureyri i ?ærmorgun og er það nær ónýtt. Enginn var í húsinu er eldurinn iom upp, en eigendur þess höfðu unnið að endurbyggingu þess um skeið. Húsið var byggt árið 1894 og var kallað Gunnarshólmi, en þar höfðu skátar á Akureyri haft aðstöðu þar til fyrir nokkrum árum að húsið var selt fjölskyldunni sem nú á húsið. Tómas Búi Böðvarsson slökkvi- iðsstjóri sagði að mikill eldur hefði /erið í húsinu er að var komið, en slökkvilið var kallað út um kl. 5 í jærmorgun. Húsið er timburhús á tveimur hæðum, auk þess sem á því er ris og kjallari. Reykur var á öllum hæðum hússins. Er hurð á húsinu var brotin upp gaus mikill eldur á móti slökkviliðsmönnum og náði hann að breiðast út um allt hús. Það tók slökkviliðið um tvo klukkutíma að komast fyrir eldinn og sagði Tómas að einangrun í húsinu hefði verið afar íjölbreytileg og ekki hjálpað til við að ná tökum á eldinum. Þakið var einangrað með reiðingi, þá var notuð svarðar- mold til einangrunar, danskur hálmur, gras og spænir. „Þetta eru allt mjög eldfim efni og þau gerðu að verkum að erfitt var að hefta útbreiðslu eldsins," sagði Tómas. Um 20 manns unnu við slökkvi- starfið. Töluvert frost var er slökkviliðið barðist við eldinn og fraus vatn á stigum samstundis, sem einnig gerði slökkviliðinu starfið erfíðara, því var að mestu unnið úr stigum. Húsið er mjög illa farið, ef ekki ónýtt. Hluti af búslóð fjölskyldunn- ar var í húsinu og skemmdist hún mikið. Þetta er þriðji stóri bruninn á Akureyri frá áramótum, en sem kunnugt er varð Krossanesverk- smiðjan eldi að bráð á gamlársdag og í lok janúar kom upp eldur í tíu íbúða fjölbýlishúsi við Smárahlíð. Morgunblaðið/Rúnar Þór Slökkviliðsmenn að störfiim við Lundargötu 10, ðskudagsbúningar Hórkollur, andlitslitir Legókobbar, 25% aísláttm. Lególand, Tækni- og Fabuland. Bómullarpeysur. Sendum myndalista. Angóranærföt. Barnasokkar úr ANGÖRAULL. Póstsendum. Sími 96-27744. Leikfangamarkaóurinn PARIS hf.# Hafnarstræti 96, Akureyri. # Morgunblaðið/Rúnar Þór Ásdís Birgisdóttir frá Hrafnagili í Eyjafirði var kjörin Fegurðardrottning Norðurlands 1990 í Sjallanum á föstudagskvöld. Hún situr fyrir miðri mynd en að fyrir aftan hana standa keppinautar hennar frá vinstri: Linda Rós Matthíasdóttir, Hrafnhildur Björg Erlendsdóttir, Hulda B. Grímsdóttir, Guðrún Tinna Thorlacius, Baldvina Guðrún Jónsdóttir og Sólrún Smáradóttir. Skemmtilegnr og góður tími A _ - segir Asdís Birgisdóttir Fegurðardrottning Norðurlands „ÞETIA hefúr verið mjög skemmtilegur og góður tími, en það liggur mjög mikil vinna að baki,“ sagði Ásdís Birgisdóttir, sem kjörin var Fegurðardrottn- ing Norðurlands 1990 í Sjallan- um á föstudagskvöld. Ásdís var jafiiframt kjörin besta Ijósmynd- afyrirsætan í hópnum. Stúlkurn- ar sem þátt tóku í keppninni völdu Lenu Rós Matthíasdóttur frá Ólafsfirði vinsælustu stúlkuna í hópnum. Ásdís Birgisdóttir er frá Hrafna- gili í Eyjafirði, hún er í fjórða bekk Menntaskólans á Akureyri og lýkur stúdentsprófi af málabraut í vor. Um tildrög þess að hún tók þátt í keppninni, sagði Ásdís að bent hefði verið á sig og Helga Alice Jóhanns, sem sá um þjálfun stúlkn- anna, hefði síðan hringt og beðið sig um að vera með. „Eg ákvað að slá til og sé ekki eftir því. Andinn í hópnum var mjög góður og undir- búningstíminn var skemmtilegur. Þetta er að vísu mikil vinna, en maður hefur bara gott af því,“ sagði Ásdís. „Úrslitin komu mér á óvart, ég var búin að fá augastað á líklegum sigurvegara fyrir löngu, ég var sannfærð um að önnur stúlka yrði fyrir valinu og þegar ég var kjörjn ljósmyndafyrirsæta þá varð ég al- veg viss. Mér brá því mjög þegar nafnið mitt var lesið upp.“ Ásdís sagði óráðið hvað hún ætlaði að gera í framtíðinni, en að loknu stúdentsprófi sagðist hún jafnvel hafa hug á að vinna um skeið og halda síðan í framhalds- nám. „Mig langar að fara til Þýska- lands og læra þýsku, en ég hef líka áhuga á ferðamálum og langar að starfa á því sviði,“ sagði Ásdís Birgisdóttir, nýkjörin Fegurðar- drottning Norðurlands. Akureyrarbær, húsnæðisstofíiun og stjórn verkamannabústaða: Samið um stofimn húsnæð- isskrifstofu á Akureyri FULLTRÚAR frá Akureyrarbæ, Húsnæðisstofnun ríksisins og stjórn verkamannabústaða á Akureyri skrifiiðu í gær undir samning um að stofiia, eiga og starfrækja sameignarstofnun er nefnist Húsnæðisskrifstofan á GÍSLI Bragi Hjartarson bæjar- fulltrúi fékk flest atkvæði í skoð- Háskólinn á Akureyri: Starfsfólk mótmælir niðurskurði FUNDUR starfsfólks við Háskól- ann á Akureyri 15. febrúar 1990 mótmælir fyrirhuguðum niður- skurði á framlagi ríkissjóðs til stofiikostnaðar vegna sjávarút- vegsdeildar. Fundurinn varar við því ábyrgð- arleysi sem stjórnvöld sýni með aðgerð þessari og áréttar mikilvægi Háskólans á Akureyri fyrir byggða- stefnu _og .atvinnuþróun. Akureyri. Samningurinn er til tveggja ára og verður hann endurskoðaður að þeim tíma liðnum. Hver aðili hefur tilnefiit einn fulltrúa í rekstrarnefhd skrifstofimnar, en í henni sitja Dan Brynjarsson fyrir Akur- anakönnun sem Alþýðuflokkur- inn efiidi til á laugardag. Alls tóku 255 manns þátt í könnun- inni. Gísli Bragi Hjartarson múrara- meistari fékk flest atkvæði í könn- uninni, í öðru sæti varð Hulda Eggertsdóttir húsmóðir og skrif- stofumaður og í því þriðja varð Bjarni Kristjánsson forstöðumaður Svæðisstjómar um málefni fatlaðra á Norðurlandi eystra. Alþýðuflokkurinn á nú þijá full- trúa í bæjarstjórn Akureyrar. Freyr Ófeigsson, sem setið hefur í bæjar- stjórn í 16 ár, gaf ekki kost á sér til áframhaldandi setu, né heldur Áslaug Einarsdóttir, en hún hefur setið í bæjarstjóm fyrir flokkinn síðasta kjörtímabil. Gísli Bragi Hjartarsson hefur einnig setið í bæjarstjórn Akureyrar síðasta kjörtímabil. eyrarbæ, Hákon Hákonarson fyrir stjórn verkamannabústaða og Sigurður E. Guðmundsson fyrir Húsnæðisstofiiun. í samningnum er gert ráð fyrir að aðilarnir þrír geri hver um sig þjónustusamning við skrifstofuna um þau verkefni á svið húsnæðis- mála er þeir fela henni að annast. Fyrir hönd Húsnæðisstofnunar skal skrifstofan annast ráðgjafarþjón- ustu við húsbyggjendur og kaup- endur húsnæðis, hafa umsjón með húsbréfum, afgreiðslu og upplýs- ingum varðandi lánsumsóknir. Á vegum stjórnar verkamanna- bústaða skal skrifstofan sjá um kaup, byggingu, sölu og endursölu íbúða í verkamannabústöðum. Verkefni á vegum Akureyrarbæj- ar eru m.a. uppgjör og viðskipta- mannabókhald vegna bygginga, kaupa og sölu félagslegra íbúða. Þá mun hún einnig annast alla þætti varðandi almennar og félags- legar kaupleiguíbúðir og útleigu og umsjón með leiguíbúðum í umboði öldrunarráðs, féiagsmálaráðs, skól- anefndar og annarra stofnana eða nefnda á vegum bæjarins, auk bygginga íbúða fyrir aldraða. Ráðinn verður framkvæmdastjóri að Húsnæðisskrifstofunni og verður starfíð auglýst innan skamms, en framkvæmdastjóri ber ábyrgð á fjármálum, starfsmannahaldi og öðrum þáttum í rekstri skrifstof- unnar gagnvart rekstrarnefnd. Skoðanakönnun Alþýðuflokksins: Gísli Brag’i efstur

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.