Morgunblaðið - 24.02.1990, Blaðsíða 1
64 SIÐUR B/LESBOK
STOFNAÐ 1913
46. tbl. 78. árg.
LAUGARDAGUR 24. FEBRUAR 1990
Prentsmiðja Morgunblaðsins
Sameining þýsku ríkjanna:
Hafa ber samráð
við EB og NATO
- segir Margaret Thatcher
Lundúnum, Dhaka, Leipzig. Reuter, dpa.
MARGARET Thatcher, forsætisráðherra Bretlands, sagði í gær að
þegar í stað bæri að hefja alþjóðlegar viðræður um sameiningu þýsku
ríkjanna tveggja. Kvaðst hún telja að móta þyrfti afstöðu til sameining-
ar á vettvangi Evrópubandalagsins (EB), Atlantshafsbandalagsins
(NATO) og á grundvelli Helsinki-sáttmálans.
Þegar hefur verið ákveðið að fram
fari viðræður Fjórveldanna; Bret-
lands, Frakklands, Sovétríkjanna og
Bandaríkjanna og fulltrúa þýsku
ríkjanna um sameiningarmálin en
Thatcher sagðist telja að hafa bæri
samráð við fleiri ríki. Bresk stjórn-
völd lýstu yfir því í gær að leitað
yrði eftir nánara samstarfi við
Frakka við stefnumótun á þessum
vettvangi.
Svíþjóð;
Ný stjórn
á þriðjudag
Stokkliólmi. Frá Erik Liden, frcttaritara
Morgunblaðsins.
INGVAR Carlsson fær á mánudag
traustsyfirlýsingu sænska þings-
ins sem forsætisráðherra nýrrar
ríkisstjórnar og á þriðjudag mun
hann leggja fram ráðherralistann.
Skýrt var frá þessu í gær en
ákveðið hefur verið að fresta stefnu-
yfirlýsingu stjórnarinnar um viku
vegna þings Norðurlandaráðs í
Reykjavík. Carlsson lagði fram í gær
nýjar tillögur í efnahagsmálunum og
aflaði sér stuðnings kommúnista með
því að falla frá banni við verkföllum
og launahækkunum.
Ingvar Carlsson fer ekki á þing
Norðurlandaráðs í Reykjavík í næstu
viku en vegna þess verður stefnuyfir-
lýsing stjórnarinnar ekki flutt fyrr
en á miðvikudegi í annarri viku.
Mitterrand Frakklandsforseti, sem
staddur var í gær í Dhaka í Bangla-
desh, sagði á fundi með fréttamönn-
um að sameining Þýskalands mætti
ekki verða til þess að landamærum
yrði breytt í Evrópu. Pólska ríkis-
stjórnin er uggandi um að stjórnvöld
í hinu nýja og sameinaða Þýskalandi
geri tilkall til landsvæða sem Pólveij-
um voru fengin í lok síðari heims-
styijaldarinnar. Eru það ekki síst
óljósar yfirlýsingar Helmuts Kohls
kanslara V-Þýskalands sem skotið
hafa Pólveijum skelk í bringu en
stjórn kanslarans hefur vísað á bug
beiðni pólsku ríkisstjórnarinnar um
þátttöku í fyrirhugðum viðræðum um
sameiningu ríkjanna tveggja. Shev-
ardnadze, utanríkisráðherra Sov-
étríkjanna, kvaðst í gærkvöldi telja
kröfu Pólveija réttmæta.
Sjá einnig: „Biðja A-Þjóð-
veija . . .“ á bls. 20.
Frjálsar kosningar í Litháen
Reuter
Fyrstu fijálsu þingkosningarnar í sögu Sovétríkjanna
fara fram í dag, laugardag. Kosið verður í a.m.k.
fimm lýðveldum þ. á m. Litháen. Samkvæmt skoð-
anakönnun sem Gallup- fyrirtækið gerði fyrir breska
dagblaðið The Daily Telegraph hyggjast um 54 pró-
sent kjósenda styðja frambjóðendur Sajudis, hreyf-
ingar þjóðemissinna, sem berst fyrir úrsögn landsins
úr sovéska ríkjasambandinu. Flokki kommúnista,
sem nýverið sagði sig úr lögum við stjórnvöld í
Moskvu, er einungis spáð um 24 prósenta fylgi.
Könnunin leiðir og í ljós að sjálfstæðiskrafa Litháa
er helsta kosningamálið og kváðust tveir af hveijum
þremur hlynntir því að stofnað yrði sjálfstætt ríki.
Myndin sýnir stuðningsmenn Sajudis kynna einn
fulltrúa hreyfingarinnar, sem býður sig fram í höfuð-
borginni, Vilnius.
Umbótasinnar boða til mótmæla víða í Sovétríkjunum;
Stjómvöld óttast uppþot og
mínna á hlutverk hersins
Moskvu. Reuter, The Daily Telegraph, dpa.
MIÐSTJÓRN sovéska kommún- |
istaflokksins hefur hvatt alþýðu
manna til að hundsa með öllu
mótmæli sem umbótasinnar og |
Hitabylgja í V-Evrópu
Reuter
Suðlægir vindar hafa leikið um Vestur-Evrópu að undanförnu og minn-
ast elstu menn þess ekki að veðráttan hafi verið svo mild í febrú-
armánuði. Parísarbúar þyrptust í gær út í góða veðrið og sóluðu sig
á bökkum Signu en á Atlantshafsströnd Frakklands mældist hitinn 25
stig, sem er 14 gráðum hærra en í meðalári. í Suður-Frakklandi flykkt-
ust menn á baðstrandir, líkt og myndin sýnir, en á Suður-Spáni komst
hitinn yfír 30 stig. í gæt' var 16 stiga hiti í Stokkhólmi og í Noregi
þurfti að flytja snjó til skíðasvæða. Veðurfræðingar telja að kólna muni
á ný um miðja næstu viku.
hreyfíngar þjóðernissinna hafa
boðað til víða í Sovétríkjunum á
morgun, sunnudag. í gær var birt
á forsíðu Prövdu, málgagns sov-
éska kommúnistaflokksins, ávarp
Dímítrí Jazovs varnarmálaráð-
herra og hershöfðingjar og yfír-
menn lögreglu gáfú í skyn að þeir
væru reiðubúnir til að beita valdi
snerust mótmælin upp í ógnun við
sósíalismann.
Búist er við því að hundruð þús-
unda manna taki þátt í aðgerðunum.
Skipuleggjendur þeirra segja að
hæst muni bera kröfur um að hafnar
verði hringborðsumræður stjórn-
valda og stjórnarandstöðu líkt og
gert hefur verið í öðrum rikjum A-
Evrópu. TASS-fréttastofan sagði í
gærkvöldi að í Moskvu óttuðust
menn að átök brytust út. Mótmælin
eru skipulögð í tilefni kosninga, sem
fram fara nú um helgina í nokkrum
lýðveldum Sovétríkjanna þ. á m. í
Litháen.
Viðvörun miðstjórnarinnar var birt
í dagblöðum í gær auk þess sem
skýrt var frá henni í útvarpi og sjón-
varpi. í henni sagði að öfgamenn
stæðu að baki mótmælunum og ein-
kenndi and-sovéskur áróður og villi-
mennska málflutning þeirra. Pravda
birti ávarp Jazovs varnarmálaráð-
herra þar sem hann lýsir m.a. yfir
því að sovéskir hermenn muni beij-
ast gegn sérhverri tilraun til að grafa
undan hugmyndafræðilegum grund-
velli kommúnismans. Hershöfðingi
einn, Grígorí Krísvoshejev, sagði í
viðtali við Moskvu-útvarpið að stöð-
ugleiki í Sovétríkjunum væri undir
hernum kominn; „Herinn hefur ætíð
varið landið og tryggt stöðugleika."
Mike Keller, blaðamaður The New
York Times, sem staddur er í Bakú
í Sovétlýðveldinu Azerbajdzhan segir
ýmislegt benda til þess að stjórnvöld
hafi skipulagt óeirðirnar í borginni í
síðasta mánuði. Þar með hafi verið
fengin tylliástæða til að senda her-
afla inn í lýðveldið til að bijóta á bak
aftur hreyfingu þjóðernissinnaðra
múslima. Keller tekur fram að óyggj-
andi sannanir séu ekki fyrir þessu
en hann kveðst hafa heimildir fyrir
því að embættismenn kommúnista
hafi m.a. staðið fyrir stofnun vopn-
aðra sveita Azera. Stjórnvöld í
Moskvu réttlættu þá ákvörðun að
senda herinn á vettvang með tilvísun
til þess að vopnaðir öfgamenn hygð-
ust steypa stjórn lýðveldisins.
Lettland:
Flokkur kommún-
ista lagður niður?
Moskvu. Reuter
KOMMÚNISTAR í Sovétlýðveldinu Lettlandi koma saman til fundar
í dag, laugardag, þar sem framtíð flokks þeirra verður til umræðu.
Viðmælendur iZeuters-fréttastoíúnnar boðuðu í gær að hann yrði
lagður niður og nýr og óháður flokkur jafnaðarmanna stofnaður.
Talsmaður umbótasinna í röðum
lettneskra kommúnista skýrði frá
því að rætt yrði um stofnun nýs
flokks, sem yrði með öllu óháður
stjórnvöldum í Moskvu. Kvað hann
og hugsanlegt að nafni flokksins
yrði breytt. „Hugmyndin er sú að
stofna flokk í líkingu við flokka
jafnaðarmanna í Vestur-Evrópu,"
sagði hann. Um eittþúsund fulltrú-
ar sitja fundinn. Blaðamenn í Ríga,
höfuðborg Lettlands, sögðu að
umbótasinnar væru í minnihluta
og kváðu því hugsanlegt að kom-
múnistaflokkurinn myndi klofna.
Kommúnistar í nágrannaríkinu
Litháen hafa þegar sagt sig úr lög-
um við ráðamenn í Moskvu og hef-
ur sú ákvörðun aukið vinsældir
þeirra meðal alþýðu manna í lýð-
veldinu.