Morgunblaðið - 24.02.1990, Page 7
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDÁGUR 24. FEBRÚAR 1990
íslensk for-
ritaþróun hf.
og Þekking
hf. sameinuð
ÁKVEÐIÐ hefur verið að sameina
fyrirtækin Þekkingu hf. og ís-
lenska forritaþróun hf. frá og með
næstu mánaðamótum. Nýja fyrir-
tækið, sem verður rekið undir
nafiii þess síðarnefnda, verður
eitt af stærri hugbúnaðarfyrir-
tækjum landsins og mun þjóna
yfír eitt þúsund notendum. Þar
af nota um 700 fyrirtæki Ópus
viðskiptahugbúnað frá íslenskri
forritaþróun og um 400 fyrirtæki
nota Allt hugbúnað frá Þekkingu.
Fyrirtækið mun þjóna notendum
beggja kerfanna en smátt og
smátt verður unnið að því að sam-
ræma þau með því að nýta kosti
þeirra beggja.
Með sameiningunni er stefnt að
því að ná fram hagræðingu þar sem
ekki þarf lengur að tvítaka breyting-
ar á Allt og Opus hugbúnaði þegar
breytingar verða á aðstæðum t.d.
vegna virðisaukaskatts, að því er
segir í frétt frá fyrirtækjunum. Jafn-
framt er gert ráð fyrir að spara fjár-
muni í yfirbyggingu og rekstri.
Fyrirhugað er að hið nýja fyrir-
tæki muni geta einbeitt sér að nýjum
sviðum upplýsingatækninnar t.d.
skjalaskiptum milli tölva (EDI) þar
sem bein tölvusamskipti gera pappír
óþarfan í viðskiptum milli fyrir-
tækja. Ennfremur er fyrirhugað að
kanna möguleika á útflutningi hug-
búnaðar.
ísberg:
Fimm skipverj-
ar játa smygl
á bjór og skinku
TOLLVERÐIR fúndu 199 kassa
af bjór og um 440 kíló af skinku
þegar þeir leituðu að smyglvarn-
ingi um borð í flutningaskipinu
ísbergi i Hafharfjarðarhöfn á
fímmtudag. Leit var haldið áfram
í gær, en þá fannst óverulegt
magn til viðbótar. Verðmæti bjór-
kassanna, sem verða seldir í útsöl-
um ÁTVR, er yfir hálf milljón
króna. Fimm skipverjar hafa ját-
að að eiga smyglið.
ísberg kom til Hafnarfjarðar sl.
fimmtudagsmorgun og að lokinni
venjulegri tollafgreiðslu var ákveðið
að leita áfram í skipinu. Tollverðir
fundu smyglvarninginn í gámi, sem
var sagður innihalda tóma fiski-
kassa. Isberg var að koma frá Berg-
en í Noregi, en hafði áður verið í
höfnum í Englandi, Hollandi og
Danrnörku. Skinkan mun hafa verið
keypt í Danmörku, en bjórinn í hin-
um löndunum. Mest var af Tuborg
bjór, en aðrar tegundir var einnig
að finna, svo sem Carlsberg. Fimm
skipverjar gáfu sig fram við tollgæsl-
una og játuðu að eiga smyglið.
Tollverðir leituðu í skipinu til
klukkan 21 á fimmtudagskvöld og
héldu leit áfram í gær, en þá fannst
aðeins óverulegt magn til viðbótar.
Tollgæslan hefur heimild til að sekta
menn fyrir smygl og nemur sektin
t.d. 700 krónum á hvert kíló af
skinku. Heimildin nær til sekta sem
nema allt að 50 þúsund krónum á
mann. Yrði sama reglan notuð vegna
smygluðu skinkunnar í ísbergi
þyrftu skipveijarnir að greiða sam-
tals yfir 300 þúsund krónur. Málið
verður hins vegar sent ríkissaksókn-
ara, sem tekur ákvörðun um fram-
hald þess.
Grænt framboð
í undirbúningi
Samtök Græningja halda fund
í menningarmiðstöðinni Gerðu-
bergi í Reykjavík, laugardaginn
3. mars nk. í tilefni væntanlegra
borgarstjórnarkosninga.
Á fundinum verður rætt og undir-
búið grænt framboð til borgarstjórn-
ar og settur niður málefnagrundvöll-
ur fyrir slíkt framboð.
Peytirjóminn skiptir um ham, og heitir nú...
G-rjóminn geymist mánuöum saman utan kælis
en með því að kæla hann vel fyrir þeytingu nærðu
fram þeytihæfni og bragðgæðum ferska rjómans.
G-rjóminn er sannkallaður veislufélagi á
ferðalögum - auðvelt að kæl’ann, auðvelt að
þeyt’ann - hvar sem er.
Leggðu nýja útlitið á minnið.
nms-
G-riomi
H litri
m
k
Viltbú
m
k
losna viö virðisaukaskatt ?
Samkvœmt reglugerö um viröisaukaskatt er heimilt aö
draga skattinn frá viö kaup á nýrri sendibifreiö, sé hún
eingöngu notuö vegna skattskyldrar starísemi.
Héi ei tœkiíœrí tíl aukinnca hagkvœmni í lekstrí.
HJF
Laugavegi 170-174 Simi 695500
V.W. Polo heíur sérstaklega lá
bilanatíóni og er þessvegna
aíar ódýr í rekstri.
AUK/SlA k3d74-768