Morgunblaðið - 24.02.1990, Page 14
-M'oiIÓUNRLAÐIÐ LAUGARDAGUR 24, FEBRÚAR -l'gW
Brautryðjandastarf til að
stuðla að bættri heilsu
líkamsbeitingu og viðeigandi
vinnuaðstöðu. Farið verður yfir
hvaða þættir eru helstu orsaka-
valdar verkja í vöðvum og liðum,
uPPbyggingu og starfsemi líka-
mans með sérstöku tilliti til hryggj-
arins, rétta líkamsstöðu og líkams-
beitingu, viðeigandi og mikilvægi
hvíldar og æfinga fyrir líkamann.
-segja talsmenn Forvarna- og endurhæfíngarstöðvar-
innar Máttar, sem opnar í byrjun mars
SJÚKMJiWJN
V Í L J I • V E U 1 Ð A N
ÞÁTTTAKAND — r
—►MíráyáÉl,
(-------) SÍRfWCIEÁÐGJÓf
l J j----------
UfSHATTANAMSKEK)
J . ■■
SIÖKUN GEGN ;
■Jpii
ÍEYFINGOG : H
> OGUÁiMGAI
1 FRÁ.ÐSU
[ ) WÁlfUH
> VALGREINAR
N__________________
' UlCAMSBllTlNGOBi ;
mmmm
1 ÚKAMSÞiÁÍiUN K:: . ■ NUDD UÓSABEKKIR VÖRUSAIA SAIARLEIGA HEIISUFARSEFTIRUT OG FORVARNASTARF 1FYRIRDUUUM
\ FRAMHAIDSNÁMSKEK) \
FYRSTU helgina í mars er ráð-
gert að opna forvarna- og end-
urhæfingarmiðstöð í um 1.100
fermetra húsnæði að Faxafeni
14 í Reykjavík. Aðilar vinnu-
markaðarins — stéttarfélög og
fyrirtæki — stofnuðu hlutafélag-
ið Mátt hf. vegna fyrirhugaðrar
starfsemi, en Heilsugarðurinn
hf. sér um reksturinn. Stöðin
heitir Máttur og einkunnarorðin
eru vilji og vellíðan.
Að sögn Gríms Sæmundsens
læknis og stjórnarformanns
Heilsugarðsins verður leitast við
að höfða til almennings, sem er
annt um heilsu sína og vill fá leið-
sögn færustu sérfræðinga. „Þetta
verður starfsemi, sem ekki er til í
landinu — viðbót við aðra þjónustu
í heilbrigðisgeiranum. Menn vilja
íjárfesta í heilsu starfsmanna
sinna og öll okkar þjónusta byggir
á því að vera í nánum tengslum
við vinnumarkaðinn, sem í raun
stendur að þessu. Þjónustan á að
mótast sem þjónusta við stéttarfé-
lögin og vinnuaðila."
Hugmyndin að stofnun þessarar
forvama- og endurhæfingarmið-
stöðvar varð til vegna samstarfs
Heilsugarðsins í Garðabæ og
Verslunarmannafélags Reykjavík-
ur, sem hófst fyrir um einu og
hálfu ári. „Svona starfsemi féll vel
að þeim hugmyndum, sem sjúkra-
sjóðsstjóm VR hafði um forvama-
starfsemi," sagði Pétur A. Maack
stjómarmaður í VR og formaður
Máttar hf.
í miðstöðinni fer fram marg-
háttuð starfsemi undir yfirumsjón
læknis, en starfsfólk verður sér-
menntað til að sinna hveijum
starfsþætti. Meðal starfsmanna
stöðvarinnar verða læknar, sjúkra-
þjálfarar, sálfræðingar, næringar-
fræðingar og íþróttafræðingar. Að
sögn talsmanna stöðvarinnar er
hér um brautryðjandastarf að ræða
á þessu sviði í slíku heildarformi
og sögðu þeir að ýmsir erlendir
aðilar fylgdust spenntir með fram-
gangi mála.
Mat á heilbrigði og ráðgjöf
Þátttakandi fer fyrst í'mat á
heilbrigði og fær ráðgjöf sérfræð-
inga. Þar fer fram greining á
líkamsástandi í samræmi við svör
við spurningum um heilsufar og
lífsvenjur annars vegar og niður-
stöður mælinga hins vegar (blóð-
fitumæling, húðfitumæling og þol-
mæling). Rætt er við næringar-
fræðing, þátttakandi fer í viðtal
og skoðun hjá lækni og fær ráð-
gjöf hjá íþróttakennara eða sjúkra-
þjálfara eftir mati læknis. Lögð er
fram áætlun fyrir viðkomandi ein-
stakling um námskeið í breyttum
Iífsvenjum í samræmi við álit þess-
ara sérfræðinga. Eftirlitsviðtal við
íþróttakennara eða hjúkruna-
rfræðing fer fram tveimur vikum
eftir að námskeið hefst og að loknu
sex vikna námskeiði er endurmat-
sviðtal til að meta árangur og
leggja línur um framhaldið.
Pétur sagði að þátttakandi gæti
einnig komið í stöðina til endur-
hæfingar eftir t.d. slys og færi þá
beint til sjúkraþjálfara eftir tilvísun
læknis. Sjúkraþjálfarinn myndi
síðan geta beint honum í ákveðna
hreyfíngu samfara sjúkraþjálfun-
inni til að stuðla að því að hann
viðhaldi bata. í öðru tilviki gæti
rannsókn leitt í ljós að viðkomandi
þyrfti .að fara í ákveðna læknis-
meðferð áður en lengra er haldið
og er þá vísað til heimilislæknis
síns.
Lífsháttanámskeið
Að lokinni greiningu er þátttak-
anda beint inn á ákveðin lífshátta-
námskeið. Miðað er við að nám-
skeið fari ekki aðeins fram í mið-
stöðinni heldur verði einnig farið
út í fyrirtækin til námskeiðahalds
og fræðslu. Þá verður, að sögn
talsmanna stöðvarinnar, rekin.
öflug heilbrigðisfræðsla frá stöð-
inni með því markmiði að vekja
fólk til vitundar um ábyrgð þess á
eigin heilsu.
Á lífsháttanámskeiðunum er
boðið upp á ýmiss konar fræðslu.
Á námskeiði í hreyfíngu, hollustu
og heilbrigði verður farið yfir áhrif
reglubundinnar þjálfunar á heil-
brigði, helstu þjálfunaraðferðir og
skipulagningu sjálfsþjálfunar.
Námskeiðið er í fyrirlestrarformi,
einn fyrirlestur vikulega, auk sýni-
kennslu og þjálfunar.
Á námskeiði í slökun gegn
streitu verður þátttakendum kennt
að þekkja streitu og ofstreituein-
kenni, að meta eigið streitustig,
að þekkja hvernig unnt er að ná
tökum á streitu, að ráða við streitu
með einfaldri slökun og kennt að
öðlast hugarró með slökun.
Námskeið í breyttum matarvenj-
um með megrun í huga er í um-
sjón næringarfræðinga, sálfræð-
inga og lækna. Byggt er á fræðslu
um gott mataræði með það í huga
að ná fram skynsamlegri og um
leið varanlegri breytingu á matar-
æði og neysluvenjum. Lögð er
áhersla á aukinn skilning þátttak-
enda á eigin hegðun og viðhorfum
og áhrifum ýmissa þátta í um-
hverfinu.
Ég vil ekki reykja er um það
bil sex vikna námskeið í reyk-
bindindi. Lögð verður áhersia á
fjölbreytni í formi fyrirlestra,
myndbandasýninga, léttra æfinga
og hópumræðna auk mögulegrar
einstáklingsráðgjafar. Meginá-
hersla verður lögð á að kenna fólki
að gera sér tóbaksbindindið eins
auðvelt og unnt er, kenndar að-
ferðir til að takast á við tóbak-
slöngunina, sem fylgir í kjölfar
bindindisins auk annarra þátta.
Markmið skipulagningar í
líkamsbeitingu og vinnustaðaleik-
fimi er að draga úr álags- og slit-
sjúkdómum og koma í veg fyrir
vinnuslys með fræðslu um rétta
Einnig verður boðið upp á ýmsa
þjónustu á vinnustöðum. Þar má
nefna heilsufarsathuganir á starfs-
mannahópum, viðhorfskannanir á
aðbúnaði ásamt úrvinnslu gagna
og ráðgjöf í samræmi við niður-
stöður. Sjúkraþjálfarar stöðvarinn-
ar halda námskeið um rétta
líkamsbeitingu og viðeigandi
vinnuaðstöðu. Íþróttakennarar
skipuleggja og stjóma vinnustaða-
leikfimi. Boðið er upp á næringarr-
áðgjöf á vinnustað og vinnustaða-
nudd.
Líkamsþjálfun innanhúss sem
utan verður hluti af öllu nám-
skeiðahaldi. Samstarf hefur náðst
við Reykjavíkurborg um merkingu
skokkbrauta út frá stöðinni. Þá
Hluthafar í
Mætti hf
Hlutafélagið Máttur Hf. var
stofnað 26. september s.l.
Hlutafé er um 42 milljónir,
en heimild er fyrir 65 millj.
kr. hlutafé og er að því stefnt.
Stéttarfélögin eiga um 2/3
hluta hlutaljárins, en atvinnu-
rekendur um 173. Verið er að
kynna verkefnið fyrir stéttar-
félögum og samtökum og fyr-
irtækjum með því markmiði
að auka fjölda hluthafa, en
eftirtaldir eru nú hluthafar:
Sjúkrasjóður Verslunarmannafélags
Reykjavíkur
Lífeyrissjóður verslunarmanna
Sjúkrasjóður Iðju, félags verksmiðju-
fólks I Reykjavík
Sjúkrasjóður Verkamannafélagsins
Dagsbrúnar
Lögreglufélag Reykjavíkur
Trésmiðafélag Reykjávíkur
Heilsugarðurinn hf
Vifilfell hf
Hampiðjan hf
Sjóvá/Almennar hf
Mjólkursamsalan
Sjóklæðagerð íslands hf
B.M. Vallá hf
Securitas hf
Prentsmiðjan Oddi hf
Flugleiðir hf
Þýsk-islenska hf
Áburðarverksmiðja ríkisins
ÁRBÆJARPRESTAKALL: Barna-
samkoma kl. 11 árdegis. Guðs-
þjónusta kl. 14. Organleikari Jón
Mýrdal. Inga Bachmann syngur
einsöng í messunni. Foreldrum
væntanlegra fermingarbarna sér-
staklega boðið til guðsþjón-
ustunnar. Foreldarafundur í safn-
aðarheimilinu eftir messu og kaffi-
veitingar í boði kvenfélags og
safnaðar. Miðvikudag. Fyrirbæna-
stund í Árbæjarkirkju kl. 16.30.
Sr. Guðmundur Þorsteinsson.
ÁSKIRKJA: Barnaguðsþjónusta kl.
11. Guðsþjónusta kl. 14. Kaffi eft-
ir messu. Föstumessa miðvikudag
kl. 20.30. Árni Bergur Sigurbjörns-
son.
BREIÐHOLTSKIRKJA: Barna-
guðsþjónusta kl. 11. Guðsþjón-
usta kl. 14. Organisti Daníel Jónas-
son. Kaffisala kirkjukórsins verður
að lokinni guðsþjónustunni.
Þriðjudag kl. 18.30, bænaguðs-
þjónusta og altarisganga. Sr. Gísli
Jónasson.
BÚSTAÐAKIRKJA: Barnaguðs-
þjónusta kl. 11, Guðrún Ebba Ól-
afsdóttir, sr. Pálmi Matthíasson.
Guðsþjónusta kl. 14. Organisti
Guðni Þ. Guðmundsson. Öldruð-
um sérstaklega boðið til guðs-
þjónustunnar. Góukaffi Bræðrafé-
lagsins eftir messu. Sr. Pálmi
Matthíasson.
DIGRANESPRESTAKALL: Barna-
samkoma í safnaðarheimilinu við
Bjarnhólastíg kl. 11. Guðsþjón-
usta í Kópavogskirkju kl. 11. Sr.
Þorbergur Kristjánsson.
DÓMKIRKJAN: í dag barnasam-
koma kl. 10.30. Munið kirkjubílinn.
Haukur Ingi Jónasson. Hámessa
sunnudag kl. 11. Sr. Lárus Hall-
dórsson. Kl. 14. Messa. Sr. Hjalti
Guðmundsson. Dómkórinn syng-
ur við báðar messurnar. Organisti
og stjórnandi Marteinn Hunger
GUÐSPJALL DAGSINS:
Matt. 3.:
Skírn Krists
Friðriksson. Miðvikudag 28. febrú-
ar. Bænaguðsþjónusta kl. 17.30.
Sr. Hjalti Guðmundsson.
LANDAKOTSSPÍTALI: Messa kl.
13. Organisti Birgir Ás Guð-
mundsson. Sr. Hjalti Guðmunds-
son.
ELLIHEIMILIÐ GRUND: Guðs-
þjónusta kl. 10. Altarisganga. Sr.
Magnús Björnsson. Organisti
Kjartan Ólafsson. Föstumessa
miðvikudaginn 28. febrúar kl. 18.
Pétur Þorsteinsson.
FELLA- OG HÓLAKIRKJA: Barna-
guðsþjónusta kl. 11. Umsjón
Ragnheiður Sverrisdóttir. Guðs-
þjónusta kl. 14. Prestur sr. Guð-
mundur Karl Ágústsson. Organisti
Guðný M. Magnúsdóttir. Miðviku-
dag, guðsþjónusta með altaris-
göngu kl. 20.30. Prestur sr. Guð-
mundur Karl Ágústsson, organisti
Guðný M. Magnúsdóttir. Sóknar-
prestar.
GRAFARVOGSPRESTAKALL:
Messuheimilið Félagsmiðstöðinni
Fjörgyn við Foldaskóla. Barna-
messa kl. 11. Sunnudagspóstur —
söngvar. Aðstoðarfólk Guðrún,
Valgerður og Hjörtur. Skólabíll fer
frá Hamrahverfi kl. 10.45. Messa
kl. 14. Kirkjukór Grafarvogssóknar
syngur, organisti Sigríður Jóns-
dóttir. Eftir messu verður fundur
með fermingarbörnum og foreldr-
um þeirra. Kaffiveitingar. Sr. Vig-
fús Þór Árnason.
GRENSÁSKIRKJA: Barnasam-
koma kl. 11, eldri börnin uppi í
kirkjunni, yngri börnin niðri. Guðs-
þjónusta kl. 14. Fyrirbænir eftir
guðsþjónustuna. Órganisti Árni
Arinbjarnarson. Kirkjukaffi í
Grensási alla þriðjudaga frá kl. 14.
Allir velkomnir. Biblíulestur og
bænastund laugardag kl. 10.
Prestarnir.
HALLGRÍMSKIRKJA: í dag sam-
vera fermingarbarna kl. 10. Messa
og barnasamkoma kl. 11 sunnu-
dag. Sr. Ragnar Fjalar Lárusson.
Kvöldmessa með altarisgöngu kl.
17. Sr. Sigurður Pálsson. Þeir sem
vilja bílfar hringi í Hallgrímskirkju
ísíma 10745 eða 621475. Tónleik-
ar Listvinafélagsins kl. 20. Þriðju-
dag: Fyrirbænaguðsþjónusta kl.
10.30. Beðið fyrir sjúkum. Mið-
vikudag: Föstumessa kl. 20.30.
Sr. Jakob Hjálmarsson prédikar.
Dómkórinn syngur. Organisti Mar-
teinn Hunger Friðriksson.
Fimmtudag og föstudag kl. 18:
Kvöldbænir með lestri Passíu-
sálma. Alþjóðabænadagur
kvenna. Samkoma í kapellu föstu-
dag kl. 20.30.
LANDSPÍTALINN: Messa kl. 10.
Sr. Bragi Skúlason.
BORGARSPÍTALINN: Guðsþjón-
usta kl. 10. Sr. BirgirÁsgeirsson.
HÁTEIGSKIRKJA: Morgunmessa
kl. 10. Sr. Tómas Sveinsson.
Barnaguðsþjónusta kl. 11. Kirkju-
bílinn fer um Hlíðarnar fyrir og
eftir barnaguðsþjónustuna. Há-
messa kl. 14. Sr. Amgrímur Jóns-
son. Kvöldbænir og fyrirbænir eru
í kirkjunni á miðvikudögum kl. 18-
Prestarnir.
HJALLAPRESTAKALL: Messu-
salur Hjallasóknar í Digranes-
skóla. Barnamessa kl. 11. Almenn
guðsþjónusta kl. 14. Samvera fyr-
ir fermingarbörn úr Digranes- og
Snælandsskólum kl. 20-22, á
Lyngheiði 21. Sr. Kristján Einar
Þorvarðarson.
KÁRSNESPRESTAKALL: Barna-
samkoma í safnaðarheimilinu
Borgum sunnudag kl. 11. Umsjón
hafa María og Vilborg. Messa í
Kópavogskirkju kl. 14. Sr. Árni
Pálsson.
LANGHOLTSKIRKJA: Kirkja Guð-
brands biskups. Óskastund barn-
anna kl. 11. Guðsþjónusta kl. 14-
Sr. Þórhallur Heimisson.
LAUGARNESKIRKJA: í dag guðs-
þjónusta í Hátúni 10b, 9. hæð, kl.
11. Messa kl. 11 sunnudag, altar-
isganga. Barnastarf er á sama
tíma. Eftir messu verður kaffisala.
Kyrrðarstund í hádeginu fimmtu-
dag. Orgelleikari, fyrirbænir, altar-
isganga. Sóknarprestur.
NESKIRKJA: Barnasamkoma kl.
11. Umsjón Sigríður Óladóttir.
Guðsþjónusta kl. 14. Sr. Frank
M. Halldórsson. Munið kirkju-
bílinn. Orgel- og kórstjórn Reynir
Jónasson. Eftir guðsþjónustuna
flytur dr. Gunnlaugur A. Jónsson