Morgunblaðið - 24.02.1990, Síða 32
32 MÖRGÚNBLAÐÍÐ LAÚGARÖÁGÚR 24. FÉBRÚÁR Í99Ö
Minning:
Sigríður Ágústs-
dóttirfrá Bíldudal
Fædd 23. maí 1914
Dáin 15. febrúar 1990
Við söfnumst saman í Bíldudals-
kirkju í clag ættingjar og vinir
Sigríðar Ágústsdóttur til þess að
minnast merkrar ævi og þakka
Guði fyrir þá blessun sem við þáðum
af lífi hennar. Með henni er gengin
mikilhæf kona og einkar umhyggju-
samur ástvinur.
Guðrún Sigríður hét hún fullu
nafni og fæddist á Bíldudal 23. maí
1914. Foreldrar hennar Jakobína
Pálsdóttir og Ágúst Sigurðsson.
Jakobína var dóttir sr. Páls prófasts
í Vatnsfirði Ólafssonar, dómkirkju-
prests og síðar prófasts á Melstað
í Miðfirði Pálssonar og Amdísar
Pétursdóttur verslunarstjóra á
Borðeyri Friðrikssonar í Akureyjum
Eggerz. Móðir sr. Páls var Guðrún
Stephensen úr Viðey og móðir
Amdísar Jakobína Pálsdóttir amt-
manns Melsteð. Ágúst var sonur
Sigurðar á Hólalandi í Borgarfirði
eystra Ámasonar bónda og ljósföður
á Stokkhólma í Skagafirði Sigurðs-
sonar og konu hans Guðrúnar Sig-
fúsdóttur frá Gilsárvallahjáleigu.
Móðir Sigurðar var Margrét Magn-
úsdóttir frá Syðra-Vallholti í Seylu-
hreppi.
Á Bíldudal bjuggu einnig systur
Jakobínu: Guðrún kona Þorbjargar
Þórðarsonar læknis og Sigriður
kona Hannesar B. Stephensen,
kaupmanns. Síðar flutti Böðvar
bróðir þeirra vestur og varð kaup-
félagsstjóri í Amarfirði og fékk Lilju
Ámadóttur frá Auðkúlu. Ágúst
hafði komið vestur frá Seyðisfirði,
þar sem hann var uppalinn, til versl-
unarþjónustu hjá Hannesi. Síðar tók
hann við rekstri Bíldudalseignanna
um skeið og eftir að þær komust í
eigu Gísla Jónssonar, alþingis-
manns, varð hann verslunarstjóri.
Ágúst og Jakobína bjuggu lengst
í Valhöll á Bíldudal. Höfðu þau jafn-
an buskap heimilinu til framfæris
og ráku auk þess bú í Dufansdal
seinustu ár sín. Var Jakobína ekki
síður í forstöðu fyrir búrekstrinum
en Ágúst, en hún var búkona mikil
að uppeldi og eðlisfari. Hún spilaði
á orgelharmóníum og hafði góða
söngrödd. Yfir henni var fáæt reisn.
Agúst hafði hafist af sjálfum sér
úr fátækt eystra. Hann hafði góðar
gáfur til lífs og sálar, var íþrótta-
maður og lipur hagyrðingur, gam-
ansamt góðmenni og mannasættir.
Margir vestra kunna sögur af við-
skiptum hans við bændur og við-
skiptavini og em þær allar á þá
lund að hann hafi glögglega greint
hvað hverjum kom og afgreitt mál
á einkar manneskjulegan hátt.
Þau Jakobína og Ágúst eignuðust
auk Sirríar sem var frumburður
þeirra sex böm sem öll hafa látið
sín að góðu getið. Þau eru: Unnur,
kaupsýslumaður í Reykjavík,
Amdís, húsmóðir á Bíldudal, Hjálm-
ar, verkstjóri á Bíldudal og síðar
eftirlitsmaður í Reykjavík, Páll heit-
inn, skólastjóri á Patreksfirði og
síðar á Fáskráðsfirði, Jakob, raf-
veitustjóri á Ólafsfirði, og Hrafn-
hildur, kaupkona á Patreksfirði.
Auk þeirra ólu þau upp Karólínu
sálugu Sigurðardóttur húsmóður í
Reykjavík og Ingibjörgu Ormsdótt-
ur verkakonu á Bíldudal.
Mikill samgangur var við frænd-
fólkið, systkinaböm Jakobínu ogvar
með bömunum og þessu fólki öllu
góður félagsskapur. Átti Sirrí, eins
og við kölluðum hana jafnan, því
góð og holl uppvaxtarár. Hún hafði
góðar erfðir og var vel gerð til sálar
og líkama. Hún prýddi sérhvem
stúlknahóp og var glöð og holl lags-
stúlka.
Sirrí gekk að eiga mikinn prýðis-
mann, Gísla Guðmundsson, stýri-
mann frá Tálknafirði, 27. október
1937. Foreldrar hans vom Guð-
mundur Hallsson og Margrét Ein-
arsdóttir í Steinhúsum á Sveinseyri
við Tálknafjörð. Þau voru valinkunn
sæmdarhjón í sinni sveit. Sirrí og
Gísli gerðu bú sitt í svokölluðu Jóns-
t
Ástkær eiginkona mín, móðir og fósturmóðir,
KATRÍIM SIGRÚN ÁGÚSTSDÓTTIR,
Smáratúni,
Vatnsleysuströnd,
lést á heimili sínu 22. febrúar.
Guðbergur Sigursteinsson,
Ágúst Þór Guðbergsson,
Steinar Smári Guðbergsson,
Magnús fvar Guðbergsson,
Guðfinna Guðmundsdóttir.
t
Elskulegur faðir okkar, sonur, bróðir og hjartkær vinur,
GUÐMUNDUR ÓMAR DAGBJARTSSON,
Langholtsvegi 35,
Reykjavík,
lést þriðjudaginn 21. febrúar.
Drífa Guðmundsdóttir,
Dagbjartur G. Guðmundsson,
Guðrún H. Guðmundsdóttir,
Dagbjartur Geir Guðmundsson,
Kristín Dagbjartsdóttir,
Inga Dagbjartsdóttir,
Lára Erlingsdóttir.
t
Útför móður minnar, tengdamóður, systur og ömmu,
STEINUNNAR MARÍU JÓNATANSDÓTTUR
verður gerð frá Súðavíkurkirkju laugardaginn 24. febrúar kl. 14.00.
Jónatan Ingi Ásgeirsson,
Lilja Ósk Þórisdóttir, Kristján Jón Jónatansson,
Sædís Maria Jónatansdóttir, Valgerður Jónatansdóttir,
Steinunn Björk Jónatansd., Magnea Jónatansd.,
Kristján Jón Jónatansson.
húsi á Bíldudal. Þau eignuðust tvo
syni, Öm og Ágúst. Gísli gekk upp
í starfi sínu og réðust þau í hús-
byggingu á fallegum stað í hlíðinni
upp yfir miðju þorpinu.
Um helgina er leið vom liðin 47
ár síðan reiðarslagið mikla féll á
Bíldudal. Strandferðaskipið Þor-
móður fórst og með því 22 Bílddæl-
ingar. Gísli var skipstjóri á því skipi
og meðal farþeganna vora Ágúst
og Jakobína. Sirrí missti því í þessu
hræðilega slysi bæði manninn sinn
og báða foreldra sína. Varla getur
nokkur gert sér í hugarlund hvemig
ástatt hefur verið fyrir Bílddæling-
um þá og varla þarf að spyija sig
að því hvort þessi reynsla hafi ekki
sett mót sitt á þá sem í hlut áttu.
Hjá systkinunum í Valhöll snerist
nú allt um að halda utanum Sirrí
og heimilið hennar. Valhöll var seld
og Amarhóll, húsið sem þau Gísli
og Sirrí höfðu hafið að byggja var
fullbyggt og þangað fluttust þau
systkinin sem ekki vom farin að
heiman. Mest munaði Sirrí um
stuðning Páls heitins, bróður síns,
sem var hjá henni að mestu næsta
áratuginn og studdi hana við upp-
eldi sona hennar.
Þegar létta tók yfir hjá Sirrí fór
hún að láta meira til sín taka og
hafði gjarnan kostgangara um
skemmri tíma og svo fór að hún rak
eins konar greiðasölu í borðstofunni
hjá sér. Var engum í kot vísað sem
kom að borðum hjá Sirrí. Mér finnst
þegar ég hugsa til baka sem Sirrí
hafi stöðugt verið að bera fram
mat, mikinn og góðan mat. Oft
horfði ég uppá það að óvænt komu
að dymm Sirríar flokkar manna og
skömmu síðar sátu allir yfir kræs-
ingum. Ýmis afrek hennar á þessu
sviði teldust til ólíkindasagna, ef þau
væm færð í sögur.
Það var því að vonum að Sirrí
yrði til þess valin að stýra fjölmennu
mötuneyti Phil og sön við byggingu
Mjólkárvirkjunar í Amarfirði. Það
vom annríkir dagar og margt þar
um manninn. Öm og Ágúst vom
þá á unglingsaldri og unnu við virkj-
unarframkvæmdimar.
Sirrí fór að leyfa sér að hugsa
svolítið um sjálfa sig og tók ástum
Ólafs Gunnars Þórðarsonar, hins
vænsta drengs. Þau gengu í hjóna-
band 18. janúar 1960. Gunnar var
fæddur og uppalinn á Borg í Amar-
fírði, sonur þeirra traustu hjóna
Þórðar Ólafssonar bónda þar og
síðar verkamanns á Bíldudal og
Bjamveigar Dagbjartsdóttur konu
hans.
Gunnar var ekkjumaður, hafði átt
Kristjönu Kristmundsdóttur og
höfðu þau búið á Bíldudal og eign-
ast þijú böm, Petrínu, sem látin er,
Sigurð Guðna og Bjarnþór. Sigurður
kom til þeirra Sirríar um fermingu
en hin börnin höfðu fengið heimili
hjá fjölskyldu Kristjönu.
Gunnar hafði lengst af verið sjó-
maður en var og smiður góður og
vann við ýmis störf næstu árin.
Hann átti og gerði út vélbátinn
Frigg um nokkurra ára bil, var verk-
stjóri við verklegar framkvæmdir
m.a. við hafnargerð í nokkur ár og
síðar var hann verkstjóri við Rækju-
ver á Bíldudal.
Á þessum ámm er ég smásveinn
á Bíldudal og átti gott atlæti af
föðursystmm mínum, Dídí í Valhöll
og Sirrí. Sirrí hafði tíma þrátt fyrir
annríki til að lesa fyrir mig sögur.
Og ef ég var svo aðframkominn af
svengd að ég kæmist ekki þessa
fimmtíu metra sem lágu heim til
mín þá var ömggt að lífi mínu yrði
borgið við eldhúsborðið hjá Sirrí
minni. Þá létu synir hennar ekki
undan bregðast að veita mér ýmis
illa þegin (aldursmunur okkar var
einmitt hæfilegur til slíks!) heilræði
til lífsgöngunnar. Þeir höfðu þó af
miklu að miðla enda fyrirtektar-
+
Þökkum innilega auðsýnda samúð og vinarhug við andlát og út-
för móður okkar, tengdamóður, ömmu og langömmu,
FRIÐRIKKU BJÖRNSDÓTTUR,
Hlíðarvegi 16,
Siglufirði.
Kristín Ólafsdóttir,
Birna Ólafsdóttir,
Sigríður Ólafsdóttir,
Ásta Ólafsdóttir,
EiríkurÓlafsson,
Eygló Ólafsdóttir,
Anna Ólafsdóttir,
Ólafur Ólafsson,
Valmundur Valmundarson,
Baldur Kristinsson,
Magnús Sigurðsson,
Sveinn Sigurðsson,
Sigurlaug Straumland,
Bergmann Júlíusson,
Bjarney Emilsdóttir,
Björg Baldvinsdóttir,
barnabörn og barnabarnabörn.
+
Innilegar þakkir til allra þeirra fjölmörgu vina og ættmenna er
sýndu okkur samúð og vináttu og heiðruðu minningu ástkærs
eiginmanns míns, föður okkar, tengdaföður og afa,
ÞORSTEINS KR. HALLDÓRSSONAR,
Borg f Garði.
Anna Margrét Sumarliðadóttir,
Gylfi Þorsteinsson,
Haildór Þ. Þorsteinsson, Hulda Axelsdóttir,
Jón Steinar Guðbjörnsson,
Tómas Sumraliði Þorsteinsson, Sólbjörg Karlsdóttir,
Kristjana Oddný Þorsteinsdóttir, Ingólfur Björgvin Ingólfsson
og barnabörn.
+
Þökkum innilega samúð og vinarhug við fráfall,
VALDIMARS EINARSSONAR,
Grindavík.
Sigríður Sigurðardóttir,
Margrét Valdimarsdóttir, Jóhann Sigurðsson,
Halldór Kristjánsson, Guðný Guðjónsdóttir
og barnabörn.
samir piltar sem Sirrí hafði skiljan-
lega oft áhyggjur af, eins og foreldr-
um er títt.
Það var Sirrí mikill gleðidagur
þegar þeir synir hennar vom vígðir
í hjónaband í Bíldudalskirkju. Órn
fékk Valgerðar Jónasdóttur og eiga
þau nú þijár dætur: Bríet, Sigríði
og Örnu Margréti og dóttursoninn
Órn. Þau búa á Bíldudal og Örn er
þar bifvélavirkjameistari. Ágúst
fékk Kolbránar Matthíasdóttur. Þau
eiga bömin, Pál, Matthías, Guðránu
Sigríði og Gísla Ægi. Ágúst er verk-
smiðjustjóri fiskimjölsverksmiðj-
unnar á Bíldudal. Þetta fólk hefur
allt látið um sig muna í atvinnuífi
og menningu á Bíldudal. M.a. hafa
þeir bræður báðir átt sinn dijúga
þátt í merkilegu leiklistarlífi þessa
smáþorps.
Sirrí lét sér einkar annt um allt
sitt fólk og áttu barnabörnin sérlegu
atlæti að fagna hjá þeim Gunnari.
Þau voru heimagangar hjá þeim
enda stuttar bæjarleiðir á milli heim-
ilanna. Sirrí vakti yfír velferð þeirra
og vildi vita af þeim hveija stund.
Þetta skapaði henni iðulega óþarfa
áhyggjur sem og umhugsunin um
Gunnar á sjónum og okkur fólkið
hennar á ferðum. Hún var oft hrædd
um okkur, enda hefur henni sjálf-
sagt fundist hún hafa misst nóg.
Sirrí lét sín nokkuð getið að fé-
lagsmálum. Hún söng jafnan í
kirkjukómum og hafði ung ágæta
söngrödd. Hún starfaði ötullega að
slysavamarmálum og var um skeið
formaður kvennadeildar SVFÍ á
Bíldudal og lét ekki sitt eftir liggja
ef eitthvað stóð til í félagsmálum.
Eftir að ég varð fullorðinn og kom
heim í leyfum þá lærði ég að meta
nýja hlið á Sirrí. Hún var minnug
og sögufróð og sagði svo vel frá.
Hún gaf sér þó sjálfsagt of sjaldan
stund til þess að tylla sér á sagna-
stólinn, en þegar svo bar undir, stigu
liðnir tímar ljóslifandi fram í frásögn
hennar og margt sem aðrir mundu
ekki kom fram. Hún hélt góðum
reiðum á farnaði okkar sem og ann-
arra sér skyldra og tók Auði minni
og sonum okkar þegar sem sínu
fólki. Hún var hollur vinur.
Eftir að frá Mjólká kom gerði
Sirrí sér það að atvinnu um skeið
að reka matsölu og gistingu. Síðar
fór hún að vinna við rækju meðfram
heimili og var við það mörg ár. Og
það má með sanni segja að aldrei
varð nokkur maður þess var að Sirrí
vorkenndi sér að vinna. Hún var
sífellt að.
Fyrir þremur árum tók Gunnar
við starfí eftirlitsmanns á Vestfjörð-
um fyrir Ríkismat sjávarafurða og
fluttust þau þá til ísaijarðar. Þá fór
að Sirrí svonefndur Alzheimer-
sjúkdómur og breytti þessari orku-
miklu forstandskonu í sjúkling sem
lifði í heimi kvíða og óvissu. Okkur
sem unnum henni þykir nú sem Sirrí
hafi fengið lausn frá lífi sem orðið
var henni mikil byrði. Ekki þurfum
við að óttast að hún eigi ekki góða
heimvon svo góð sem hún vildi öllum
vera og trá Frelsara sínum.
Ég dáðist oft og mikið að þolin-
mæði og umhyggju Gunnars fyrir
Sirrí þessi síðustu ár. Ábyrgðin á
heimilisstörfunum hafði ekki snert
verkahring hans fram að því og var
til vitnisburðar um góðan vilja, hve
vel honum tókst til. Hann sagði
sjálfur ef á hann var gengið að það
og meira ætti Sirrí inni hjá sér og
víst er það satt að vel hugsaði Sirrí
um Gunnar sinn. Þetta með öðru
leiðir hugann að því hversu vel fór
á með þeim jafnan og gott var að
vera nálægt þeim. Þá var þeim Sirrí
afar mikils virði að hafa hjálp af
Bjarnþóri, syni Gunnars, og Hönnu
Sigurjónsdóttur konu hans sem
sýndi Sirrí einstaka umhyggjusemi.
Já, í dag þökkum við og kveðjum.
Við þökkum fyrir líf Sirríar og allt
það er guð veitti okkur fyrir hana.
Við þökkum að hún skuli nú risin
upp til þeirrar frægðar sem mesta
hún hafði og skírð er í ljósi dýrðar
Guðs hins hæsta sem umlykur end-
urfundina sem hún nú nýtur og við
bíðum. Gunnari og frændum mínum
og fjölskyldum þeirra óskum við
Auður og synir okkar og fjölskyldan
úr Ásgarði öll allrar blessunar Guðs
í bráð og lengd.
Guð blessi okkur öllum minning-
una um Sigríði Ágústsdóttur. Hún
hvíli í friði.
Jakob Agúst Hjálmarsson