Morgunblaðið - 24.02.1990, Qupperneq 34
STJÖRNUSPÁ
eftir Frances Drake
Hrútur
(21. mars - 19. apríl) (P*
Þú hefur þínar efasemdir um
tillögu sem vinur þinn leggur
fyrir þig. Það er ákjósanlegra
fyrir þig núna að eiga stund
með fjölskyldunni en fara á fund
vina.
Naut
(20. apnl - 20. maí)
Þú færð ráð sem vísa í gagn-
stæðar áttir. Það er heppilegt
fyrir þig að taka þátt í einhveiju
félagsstússi. Þú færð tækifæri
til að leggja land undir fót og
ættir að heimsækja vini þína.
TvíburarJ
(21. maí - 20. júní) 5»
Þó að þú eigir erfitt með að taka
ákvörðun í vissu máli hikar þú
ekki þegar þér býðst stöðuhækk-
un. Þér verður vel ágengt innan
skamms.
Krabbi
(21. júní - 22. júlí)
Þú ert að gera upp við þig hvað
þú eigir að gera í peningamálun-
um. Þú færð góðar fréttir úr
íjarlægð. Leitaðu ráða hjá ein-
hveijum sem þú treystir.
Ljón
(23. júlí - 22. ágúst)
Þú ert bara með hálfan hugann
við vinnuna í dag og ert ef til
vill of laus við. Þú færð góðar
fregnir af fjármálum. Fjölskyld-
an færir þér gleði.
Meyja
(23. ágúst - 22. september)
Farðu að finna vini þína í dag
og hafðu maka þinn með. Vertu
vakandi fyrir öllu sem varðar
mataræði og heilbrigði yfirleitt.
Vog
(23. sept.
22. október)
Minni háttar vandkvæði út af
börnum eða ættingjum geta gert
vart við sig núna. Þér vegnar
vel í starfinu. Gríptu þau tæki-
færi sem koma upp í hendurnar
á þér.
Sþoródreki
(23. okt. - 21. nóvember) 9l|j0
Einhveijir í flölskyldunni geta
farið í taugamar hver á öðrum
og happadrýgst að bregða sér
út í náttúruna til hvíldar og
hressingar. Láttu rómantíkina
og upplyftingu ganga fyrir.
Bogmaöur
(22. nóv. - 21. desember)
Dómgreind þín 'á' undir högg að
sækja í dag. Farðu með gát í
peningamálum. Þú færð góðar
fréttir. Láttu fjölskylduna ganga
fyrir í kvöld.
Steingeit
(22. des. - 19. janúar) &
Þú átt í erfiðleikum með að gera
ákveðið mál upp við þig. Maki
þinn færir þér heppni. I dag er
hagstætt að skrifa undir samn-
inga.
Vatnsberi
(20. janúar - 18. febrúar)
Þú hefur átt í innri baráttu út
af ákveðnu vandamáli undanfar-
ið og hugsanlega líður einhver
tími áður en þú finnur réttu svör-
in. Þér býðst gott tækifæri í
starfi eða fjármálum.
Fiskar
(19. febrúar - 20. mars) )£k
Þú telur ekki tímabært að gera
veður út af peningamálum við
vin þinn. Þér verður boðið á svo-
lítið sérstakan stað. Nú er heppi-
legt að sinna áhugamálunum.
AFMÆLISBARNIÐ á auðvelt
með að vinna í hópi og velst
oftlega til forystu á slíkum vett-
vangi. Þó að það sé áhugasamt
um að öðlast fjárhagslegt öryggi
standa hugsjónir þv! næst
hjarta. Það ef' andlega sinnað
og hagsýnt, auk þess sem það
er gætt ríku ímyndunarafli. Það
getur náð langt á sviði banka-
starfsemi, en laðast oftlega að
listum.
Stjörnuspána á aó lesa sem
dœgradvöl. Spár af þessu tagi
byggjast ekki á traustum grunni
vísindalegra staðreynda.
GRETTIR
TOMMI OG JENNI
LJÓSKA
U)AKE ME UJMEN TME
5CM00L BU5 C0ME5..
Vektu mig þegar skólabíllinn kem-
ur...
WERE IT C0ME5 NOU)...
IT‘5 ALM05T TO TME
MIDDLE OFTHE BLOCK..
Hann kemur núna ... hann er nærri
því íyrir miðri húsaröðinni...
YOU U)0KE METOO SOON..
I COULP HAVE 5LEPT
AN0THER TMIRTT FEET...
Þú vaktir mig of snemma... Ég
hefði getað sofið önnur þrjátíu
fet...
BRIDS
Umsjón: Guðm. Páll
Arnarson
Suður þarf að vera heppinn á
ljósunum til að komast í bank-
ann fyrir fjögur. En að vanda
gildir hið fomkveðna: flýttu þér
hægt, lagsmaður.
Vestur gefur; enginn á hættu.
Norður ♦ Á95 ¥ KD84 ♦ D75 ♦ Á52 Vestur Austur
♦ K1°83 ...... ♦ G742
▼762 ¥93
♦ AK102 ♦ 843
*K7 ♦ G986
Suður ♦ D6 ¥ ÁG105 ♦ G96 ♦ D1043 Vestur Norður Austur Suður
1 tígull Dobl Pass 2 hjörtu
Pass 3 hjörtu Pass 4 hjörtu
Pass Pass Pass Utspil: tígulás.
Vestur leggur á brattann með
því að spila tíglinum þrisvar og
það kemur sagnhafa þægilega á
óvart að fá þriðja slaginn á
drottningu blinds. Fyrstu gatna-
mótin áfallalaust að baki.
Það er beinn og breiður vegur
að taka þrisvar tromp, en því
er ekki fyrr lokið en krossgöt-
umar í lauflitnum blasa við.
Fyrsta hugsunin er að taka lauf-
ásinn og svína hvergi smeykur
fyrir gosadrusluna í austur. Sem
heppnast í sjálfu sér, en dugir
bara ekki til, því vestur hægir á
ferðinni með því að spila þrett-
ánda tíglinum. Slagirnir verða
þá aldrei nema níu.
Aðeins ein leið dugir til að
komast hjá dráttarvöxtunum:
stinga sér niður í undirgöngin,
taka laufás og spila litlu laufi
frá báðum höndum! Vestur verð-
ur hreinlega að eiga Kx í laufi
til að spilið vinnist.
SKÁK
Umsjón Margeir
Pétursson
Á nýafstöðnu Skákþingi Akur-
eyrar kom þessi staða upp í B-
flokki í viðureign þeirra Orvars
Arngrímssonar (1.565) og Þor-
leifs Karlssonar (1.665), sem
hafði svart og átti leik.
24. — Hxg2!, 25. De5 (Hvítur
verður mát í öðrum leik ef hann
þiggur hróksfórnina, en nú vonast
hann eftir 25. - Dxf3??, 26. Db8+
og hvítur mátar) 25. — Dxe5, 26.
dxe5 - Bxf3, 27. Rd4 - Bd5,
28. Hfl — Hg3+ og hvítur gafst
upp.
Rúnar Sigurpálsson, 17 ára,
varð Skákmeistari Akureyrar
1990, hlaut 6 'A v. af 9 möguleg-
um. Jafn honum að vinningum
varð Magnús Pálmi Örnólfsson frá
Bolungarvík, sem tefldi sem gest-
ur á mótinu. Þriðji varð Bogi Páls-
son með 6 v. og Gylfi Þórhallsson
fjórði með 5 'A v. Þeir Rúnar og
Bogi munu væntanlega báðir
verða með á hinu sterka opna
móti Búnaðarbankans í Reykjavík
í næsta mánuði.
í B-flokki sigraði Stefán Andr-
ésson frá Bolungarvík með 7 v.
af 9 mögulegum. Unglingameist-
ari varð Þorleifur Karlsson og
drengjameistari Páll Þórsson.
Skákþing Norðlendinga, hið 55.
i röðinni, stendur yfir um þessa
helgi á Sauðárkróki.