Morgunblaðið - 24.02.1990, Síða 35
, MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR .24., FEBRÚAR 1990
,35
STYKKISHOLMUR
9. bekkur grunnskólans stundar
lærdóm í sólarhring
9bekkur grunnskól-
• ans í Stykkishólmi
hét því fyrir nokkru að
hafa kennslustund í skól-
anum í heilan sólarhring.
Þetta skyldi verða til
að afia fjártil ferðalags
um landið í sumar eins og
alltaf er gert. Tóku þau á
móti áheitum bæjarbúa
og gjöfum. Eins bökuðu
þau og framleiddu pizzur
og seldu bæjarbúum.
Þetta tókst mjög sæmi-
lega og um níuleytið fyrri
daginn þegar ljósmyndari
og fréttaritari komu upp
í skóla voru allir í önnum
við að baka og koma send-
ingum af stað. Síðan var
farið upp að læra og var
sérstök stundaskrá útbúin
af nemendum fyrir sólar-
hringinn. Voru nemendur
alveg vissir um að allt
gengi vel eftir henni.
— Árni
Hópur 9. bekkjar grunnskólanema
bakstri.
Stykkishólmi í pizzu-
GRINDAVIK
Sungið og dansað
í grunnskólanum
HJONABÖND
Vonarglæta hjá
Trunip-hj ónunum
Igrunnskólanum í Grindavík
hefur verið talað um að
kennarar og nemendur 7.-9.
bekkja væru orðnir værukær-
ir um gamla og góða siði eins
og að koma saman og syngja
og jafnvel dansa. Þess í stað
væru kvöldskemmtanir farnar
að ganga út á að hittast og
horfa á myndband þar sem
allir eru óvirkir og láta mata
sig.
Til þess að sporna við þess-
ari þróun tóku þessir aðilar
sig til og héldu kvöldvöku í
félagsheimilinu Festi fyrir
skömmu. Áður en kvöldvakan
var haldin hafði Sigurður
Guðmundsson, námstjóri í fé-
lagsmálum, sennilega betur
þekktur undir nafninu „Siggi
frá Leirá“ kom-
ið í heimsókn
og lagt línurn-
ar. Undirbúnir
voru söngvar
þar sem hver
árgangur leiddi
einn söng auk
nokkurra
söngva sem
Sigurður
kenndi hópn-
um. Hver bekk-
ur fékk það
hlutverk að
auki að und-
irbúa skemmt-
iatriði. Síðan en
ekki síst var
farið yfír nokk-
ur gömludansa-
spor sem flestir
nemendur
þekktu ekki
nema af orð-
át. Mikla athygli vakti þó
nýstárleg útfærsla kennara á
hinu kunna ævintýri um
Rauðhettu.
Dansamir voru síðastir á
dagskránni. Þeir byijuðu á
marseringu og eftir að hafa
marserað var talið í vals og
polka og farið var í „kokkinn".
Þeir sem hæst höfðu látið
um að láta ekki hafa sig út í
hvað sem er, dönsuðu eins og
þeir ættu • lífið að leysa og
endaði kvöldvakan síðan rétt
fyrir miðnætti. Sigurður Guð-
mundsson lét það fylgja loka-
orðum að þetta hefði aðeins
verið byijunin og framhaldið
væri í höndum heimamanna
og það er von allra sem stóðu
að þessu að framhald verði á.
FÓ
Skemmtiatriði
ágætum.
nemenda tókust með
spon.
Kvöldvakan
sjálf hófst síðan
eins og vera ber
á fjöldasöng
þar sem enginn
lét sitt eftir
liggja.
Skemmtiatriði
fylgdu siðan á
eftir. Þar voru
á ferðinni
söngvar um
kennara, leik-
þættir og skyr-
.... , . ... , , .. Morgunblaðið/Frímann Ólafsson
Alhr í salnum toku þatt í ijoldasongnum.
IllUliRS
FORSETADOTTIR
Kynningarkvöldverður
langardagskvöld
á aðeins kr. 750,-
Ekki virðist öll nótt úti enn í hjónabandi
Donalds Trumps, eins auðugasta manns
Bandaríkjanna, og eiginkonu hans Ivönu.
Donald eyddi helginni á sveitasetri þeirra
hjóna á Palm Beach en þangað hafði Ivana
flúið í síðustu viku nieð börnin þijú. Tals-
maður Donalds gaf út yfirlýsingu eftir helg-
ina þar sem sagði að þau hjónin hefðu átt
„ástúðlega samverustund“.
Ástæðan fyrir því að Ivana flúði með
börnin í burtu úr glysnum og glaumnum í
New York var sögð sú að nokkuð 'óvænt
hefði komið upp á þegar þau hjónin voru á
skíðum í Aspen í Colorado-fylki. Einhver
hvíslaði því að Ivönu að ljóskan Marla
Marples sem þar stundaði einnig vetrarí-
þróttir hefði átt vingott við Donald. Slúður-
blöðin höfðu það eftir Mörlu að sjaldan hefði
hún átt annan eins ástarfund eins og með
Donald. Sá hefur neitað staðfastlega en vin-
ir hans segja að Marla sé svo sannarlega
ekki sú fyrsta sem Donald tekur frillutaki.
Donald Trump hefur auðgast gífurlega
undanfarin ár á fasteignabraski og á nú
fleiri skýjakljúfa en tölu verður á komið.
Aðferð Donalds er sú að kaupa hús úr
þrotabúum og reisa glæsihallir á lóðinni.
Það var í þessum stíl sem hann keypti lysti-
snekkju af Adnan Kashoggi á 29 milljónir
dala og gaf henni nafnið Prinsessa Trumps
en skömmu síðar var vopnasalanum fræga
stungið inn. Nú hefur snekkjan verið gerð
upp, er metin á 100 milljónir dala og heitir
Drottning Trumps. Reyndar hyggst Donald
selja hana og fá sér aðra stærri fyrir 175
miíljónir dala og bíða menn í ofvæni eftir
því hvað hún muni heita.
Donald og Ivana kynntust á ólympíuleik-
unum í Montreal árið 1976 en hún var eitt
sinn í ólympíuliði Tékkóslóvakíu. Nú hafa
þau verið gift í tólf ár og Ivana víst orðið
að þola margt. Hún hefur að nafninu til
verið hótelstýra Plaza-hótelsins í New-York
en Iaunin voru óvenjuleg, einn dalur á ári
og ótakmarkað leyfi til fátakaupa. Þegar
skilnað ríka fólksins ber á góma fara menn
MiHjarðamæringurinn Donald Trump og
eiginkona hans Ivana sem var eitt sinn
í ólympíuliði Tékkóslóvakíu.
Á innfeldu myndinni er fyrirsætan og
leikkonan Marla Marples sem að sögn
átti vingott við Donald Trump.
að velta fyrir sér þeim fjárhæðum sem eru
í spilinu. Samkvæmt samningi sem Donald
hefur gert við Ivönu ber henni ekki meira
en 20 milljónir dala við skilnað auk húss í
Greenwich og forræðis yfir börnunum þrem-
ur. Þykir mönnum það heldur snautlegt í
ljósi þess að eigur Donalds eru metnar á
l'h — 2Vi milljarð dala. Einhver sagði að
sennilega kostaði baðherbergið í nýju
snekkjunni Donald meira en skilnaðurinn.
Lögfræðingur Ivönu fór í síðustu viku fram
á Plaza-hótelið og Boeing 727 einkaþotu
þeirra hjóna fyrir hennar hönd auk 130
milljóna dala í reiðufé til viðbótar við það
sem samningurinn kveður á um.
Pattí Davis
ber af sér
sögusagnir
Patti Davis, dóttir Ron-
alds Reagans, fyrrum
Bandaríkjaforseta og konu
hans Nancy, er nú að slá
botninn í þriðju skáldsögu
sína og þótt hún hafí ekki
enn slegið í gegn sem rithöf-
undur þykir hún efnileg.
Henni gengur hins vegar
erfiðlega að hrista af sér
sögusögn um að hún vinni
á bak við tjöldin með ævi-
sagnaritara að nafni Kitty
Kelly, sem er nú að taka
saman bók um Nancy Reag-
an og lofar að draga ekkert
undan. Sjálf sendi Nancy
nýlega frá sér bók um
lífshlaup sitt.
Patti Davis
PattiDavis erekki
ánægð með að vera bendluð
við bókina sem Kelly er að
semja. Ogtelur Patti að
Kelly ali á grunsemdum um
aðild sína að bókinni með
tvíræðum yfirlýsingum.
Matsedill:
Laxapaté m/kavíarsósu
☆ ☆ ☆
Innbakad lambalœri
m/madeirasósu
☆ ☆ ☆
Kaffi
Borðapantanir
ísíma 29670.
■.......
SH)
KLOBBNUM
Borgartúm 32