Morgunblaðið - 24.02.1990, Page 44
LAUGARDAGUR 24. FEBRUAR 1990
VERÐ I LAUSASOLU 90 KR.
Námsflokkar Reykjavíkur:
150 atvinnulaus-
ir á námskeið
RUMLEGA 150 manns á atvinnuleysisskrá i Reykjavík hafa sótt um
sex vikna námskeið, sem Námsflokkar Reykjavíkur og Reykjavíkur-
borg standa að. Námskeiðið skiptist í kjarnanám og siðan geta nem-
endur valið úr ákveðnum verksviðum, verslunarsvið, umönnunarsvið
og iðnaðarsvið. Að sögn Guðrúnar Halldórsdóttur skólastjóra, er
þátttakan framar vonum en gert var ráð fyrir að um 80 til 100
manns hefðu áhuga á þvi námi sem í boði er.
„Við erum hissa en ánægð með
að svona margir sækja um nám-
skeiðin, þó það geri okkur í raun
erfitt fyrir, þar sem við sóttum um
fé til að kenna 80 til 100 manns
en nú hafa 150 látið skrá sig,“ sagði
Guðrún. „Við lítum svo á að fólkið
verði samkeppnishæfara á vinnu-
markaðinum að námi loknu. í kjarn-
anum er kenndur vinnuréttur,
tryggingar, lögmál vinnumarkaðar-
ins og viðskiptalífsins, samtals-
tækni og tjáskipti, sjálfsefli og
líkamsrækt. Ég trúi ekki öðru en
að þetta 90 stunda nám eigi eftir
að auðvelda fólki að fá vinnu, það
gefur augaleið.“
Guðrún sagði að nemendurnir
væru á öllum aldri og kæmu víða
að. Þeim verður skipt niður í hópa
og eru þegar komnir fjórir verslun-
arhópar, einn umönnunarhópur og
einn iðnaðarhópur. Vegna fjölda
þátttakenda þarf að leita á náðir
annarra skóla með kennslu og hefur
meðal annars verið óskað eftir að-
stoð frá Verslunarskólanum. Nám-
skeiðin heljast í næstu viku og er
kennt frá kl. 9 að morgni fram til
kl. 3 síðdegis.
*
Landsbanki Islands:
Aflamiðlun á loðnumiðunum
Morgunblaðið/Kr. Ben.
Nokkur loðnuskip voru í mikilli veiði fímm mílur út af Grindavík í gær og voru að fylla sig er leið á dag-
inn. Háberg GK frá Grindavík fyllti sig í fjórum köstum en átti um eitt hundrað tonn eftir og sést hér
hvar Guðmundur VE leggst að til að þiggja aflann enda nægði hann til að fylla þann bát einnig.
Steftit að lækkun skulda-
bréfavaxta frá 1. mars
LANDSBANKI íslands ste&iir að því að vaxtalækkun um næstu
mánaðamót nái til allra forma útlána, að sögn Brynjólfs Helgason-
ar, aðstoðarbankastjóra. Hann segir að vaxtalækkun um mánaðamót-
in verði í takt við það sem gert var ráð fyrir við gerð kjarasamning-
ana.
Mánaðarlejgur samráðsfundur
Seðlabanka Islands með viðskipta-
bönkunum og sparisjóðunum var
haldinn í gær. Þar var farið yfir
hækkun lánskjaravísitölunnar nú
og spár um hækkun hennar næstu
tvo mánuði, en samkvæmt bréfi
banka og sparisjóða til aðila vinnu-
markaðarins vegna kjarasamning-
ana á að nota þær forsendur við
vaxtaákvarðanir næstu fjóra mán-
Skýrsla Ríkisendurskoðunar um Atvinnutryggingarsjóð:
Um 15-20% útlána sjóðs-
ins gætu verið tapað fé
uði og lækka vexti 1. hvers mánað-
ar.
Lánskjaravísitalan hækkaði að-
eins meira í febrúar en ráð var fyr-
ir gert vegna' mikillar hækkunar
byggingarvísitölunnar og spáin fyr-
ir næstu tvo mánuði er heldur hærri
en reiknað var með við undirbúning
kjarasamningana. Þó ættu almenn-
ir skuldabréfavextir að geta lækkað
1. mars í 18,5% samkvæmt heimild-
um Morgunblaðsins, en við gerð
samningana var spáð að þeir myndu
lækkaí 18% ogí 14% hinn 1. apríl.
Brynjólfur sagði að Landsbank-
inn myndi tilkynna Seðlabanka um
vaxtalækkanir á mánudag. Engir
greiðsluseðlar hefðu verið sendir frá
Reiknistofu bankanna í gær, þar
sem kerfið hefði verið stopp.
Fyrirsjáanlegir greiðsluerfíðleikar strax árið 1993
Ríkisendurskoðun telur að um 15-20%, eða um 1.500 til 2.000
milljónir króna, af útlánum Atvinnutryggingasjóðs gætu tapast vegna
erfiðleika fyrirtækja sem sjóðurinn hefúr lánað til. Fari svo mun
sjóðurinn komast í greiðsluvandræði árið 1993, og staða hans verða
afar slæm næstu árin þar á eftir. Raunar sé hvort sem er fyrirsjáan-
legt, að sjóðurinn Iendi I greiðsluerfíðleikum, þótt engin útlán tap-
ist, og verði því að fá aukið ráðstöfúnarfé í formi lána eða framlaga
úr ríkissjóði.
Ríkisendurskoðun hefur samið
skýrslu um Atvinnutryggingarsjóð
útflutningsgreina, en í lögum um
sjóðinn er kveðið á um að stofnunin
fylgist með starfsemi sjóðsins og
gefi Alþingi reglulega skýrslu um
starfsemi hans.
Sjóðnum var heimilað með lög-
um, að hafa milligöngu um skuld-
breytingar fyrir allt að 5.000 millj-
ónum króna, með því að taka við
skuldabréfum frá fyrirtækjum og
gefa út önnur skuldabréf til lánar-
drottna þeirra. Einnig hefur sjóður-
inn heimild til að veita bein peninga-
lán fyrir allt að 2.900 milljónum
króna, árin 1989 og 1990. Þar af
er beint framlag í sjóðinn um 1.000
milljónir en 1.900 milljónir voru
teknar að láni erlendis. Ríkissjóður
ábyrgist skuldbindingar sjóðsins.
Þar sem endurgreiðslutími
skuldabréfa, sem sjóðurinn gefur
út, er styttri en þeirra sem sjóður-
inn tekur við, telur Ríkisendurskoð-
un að sjóðurinn muni fljótlega lenda
í greiðsluvandræðum. Að auki sé
líklegt að 15-20% þeirra fyrirtækja,
sem fengið hafa lán úr Atvinnu-
tryggingarsjóði, geti ekki staðið við
skuldbindingar sínar. Samkvæmt
reglugerð verður að vera grundvöll-
ur fyrir rekstri fyrirtækja til lengri
tíma litið, til þess að þau geti feng-
ið aðstoð frá sjóðnum.
Það er mat Ríkisendurskoðunar,
að sjóðurinn þoli að hlutfall tapaðra
skulda verði allt að fimmtungur,
og geti þá fjármagnað greiðslu-
vandann með erlendum lánum.
Verði hlutfall tapaðra útlána hærra,
telur Ríkisendurskoðun hins vegar
að sjóðurinn þurfi 1.220 milljónir í
viðbótarfjármagn sem útilokað sé
að brúa með erlendum lánum, því
sjóðstaðan yrði neikvæð árið 2002
þegar fyrirtækin eiga að hafa greitt
úpp lán sín úr sjóðnum.
I umsögn sinni um Atvinnutrygg-
ingarsjóð telur Ríkisendurskoðun,
að sjóðurinn hafí vafalítið komið í
veg fyrir að rekstur sumra útflutn-
ingsfyrirtækja stöðvaðist, og_ að því
leyti náð markmiði sínu. A hinn
bóginn skorti sjóðinn skýra og fast-
mótaða langtímastefnu og sérstök
ástæða sé til þess að ætla að mis-
ræmi geti komið upp á milli þess
skammtímamarkmiðs sjóðsins, að
bæta rekstrargrundvöll útflutnings-
greina, og þess langtímamarkmiðs
að auka hagkvæfnni í útflutnings-
greinum landsins.
Ríkisendurskoðun gagnrýnir
ýmis atriði í starfsemi sjóðsins. í
lögum og reglugerðum um sjóðinn
er gert ráð fyrir að Samstarfsnefnd
lánastofnana atvinnuveganna geri
tillögur um lánveitingar til sjóðs-
stjórnar. En Ríkisendurskoðun
bendir á, að samþykktar lánveiting-
ar sjóðsstjórnar hafí verið tvöfalt
hærri en tillögur samstarfsnefndar
gerðu ráð fyrir. Þá segir Ríkisend-
urskoðun að umsóknum margra
fyrirtækja, sem sjóðurinn sam-
þykkti lánveitingar til, hafi ekki
fylgt þau gögn sem reglugerðir um
sjóðinn gera ráð fyrir.
Húsavík:
Rauðmagi
á borðum
Húsavík.
ÞRÁTT fyrir leiðinlegt tíðar-
far og gæftaleysi eru Húsvík-
ingar farnir að veiða rauð-
maga en veiðin erfrekar treg.
Frá áramótum hefur verið
mjög óstillt tíðarfar og gæfta-
leysi og þess vegna stopulli
vinna en ella.
í bænum ræða menn helst
um erfiðleika bátaútgerðarinnar
og bæjarstjórn hefur skipað
nefnd í málið.
Leikfélagið hefur sett nýja
stóla í samkomuhúsið og æfir
leikritið Land og syni eftir Kjart-
an Ragnarsson undir stjóm Sig-
urðar Hallmarssonar.
Hvammur, heimili aldraðra,
hefur lokið 9. starfsárinu með
hagnaði í rekstri.
Kaupfélag Þingeyinga varð
108 ára hinn 20. þessa mánaðar
og hefur gefið út félagsblað í
um 100 ár. _ Fréttaritari