Morgunblaðið - 15.03.1990, Blaðsíða 43

Morgunblaðið - 15.03.1990, Blaðsíða 43
MORGUNBLAÐÍÐ FIMMTUDAGUR 1B. MARZ 1990 43 Mcignea Símonar dóttir - Minning Fædd 16. nóveniber 1905 Dáin 8. mars 1990 Hún Magga amma er dáin. í huga mér birtast minningar liðinna ára. Til hennar var gott að koma og þar átti ég ætíð skjól. Að ömmu hændust öll börn enda var hún mjög barngóð. Ég var ekki meira en 6 ára þegar afi og amma voru í Hraunprýði og ég fór- alein með vagninum uppeftir til þeirra og þar var oft gist yfir nótt. Um tíma bjuggu afi og amma í kjallaranum heima hjá mér og þá fór sú stutta niður á hveijum morgni og borðaði hafragrautinn hennar ömmu. Á unglingsárunum átti ég ófáar stundir á heimili ömmu og afa sem í huga mér eru ómetanlegar. Þar lærði ég að vinna hin almennu heim- ilisstörf og hún amma kenndi þau á þann veg að manni fannst gaman að. Þegar ég var farin að búa leitaði ég oft til ömmu, sérstaklega til að hjálpa mér við sláturgerð á haustin og einnig við kleinugerð og taldi hún það ekki eftir sér. Nú er amma komin yfir móðuna miklu og afi orðinn einn og bið ég algóðan Guð að styrkja hann og styðja í sorg sinni. í huga mér er einlægt þakklæti til ömmu fyrir allar þær stundir sem við áttum saman. Birna E. Óskarsdóttir Að eilífðar ljósi bjarma ber sem brautina þungu greiðir. Vort líf sem svo stutt og stopult er, það stefnir á æðri leiðir og upphiminn fegri en augað sér mót öllum oss faðminn breiðir. (E.B.) Að engu getur mannfólkið geng- ið að jafn vísu og því að ættingjar og vinir kveðji þessa jarðartilveru og stefni „á æðri Ieiðir og upphim- inn fegri en augað sér“ eins og skáldið kemst að orði. En þó eftirlif- endum komi sú breyting oftast á óvart, þá heldur-lífið áfram sinn gang, en minningarnar um látinn vin verða oft því dýrmætari sem lengra líður og eru geymdar í hug- um fólks sem helgir dómar. Á skilnaðarstundum streyma fram í hugann ýmsar minningar frá liðnum dögum, gamanyrði frá gleði- stundum og huggunarorð og hlýja í erfiðleikum. Magneu minnast margir fyrir slíkt og einnig sem einstakrar húsmóður, sem tók á móti gestum sínum með þeirri með- fæddu hlýju og hinu sérstaka at- læti sem einkennt hefur hvað mest hina rómuðu íslensku gestrisni. Magnea Símonardóttir var fædd á Kirkjubóli í Mosdal við Arnarfjörð þann 16. nóv. 1905 hún var þvi áttatíu og fjögurra ára þegar hún lést á Landspítalanum nú 8. mars sl. Magnea fluttist til Dýrafjarðar um tvítugt og starfaði þar við ýmis störf þar til hún giftist Ottó Þor- valdssyni bónda og vitaverði í Sval- vogum við Dýrafjörð 11. apríl 1931. Þau hjón bjuggu í Svalvogum í tuttugu og fimm ár og eignuðust 11 börn auk þess sem þau ólu upp fósturson, það hefur því mikið mætt á húsmóðurinni á svo stóru heimili. Fólk nú á dögum gerir sér eðli- lega ekki grein fyrir hvílíkt afreks- verk það hefur verið hjá húsmæðr- um á þessum tímum með mann- mörg heimili að sjá um fatnað og annað atlæti sem til þurfti, oft við lítil efni. Ekki var til að dreifa þeim tækj- um sem nú þykja sjálfsögð á hveiju heimili, jafnvel var ekki rafmagn eða rennandi vatn á fyrstu búskap- arárum þeirra hjóna í Svalvogum. Oft hefur svefntimi húsfreyjunn- ar verið skorinn við nögl og hún verið að vinna þó aðrir svæfu. Dóttir hennar minnist þess t.d. að á haustin í sláturtíð, þegar tekin vóru 60 slátur, þá var vinnutíminn hjá mömmu hennar langur og hún var að vinna þegar aðrir fóru að sofa, en var þó komin á fætur fyrst allra. Það vekur furðu að húsmóðir með jafn stórt heimili skyldi hafa tíma til að sinna hannyrðum í slíkum mæli sem Magnea gerði, en hún var mikilvirk í þeim efnum sem öðrum og prýddi heimili hennar ýmiskonar handavinna. Magnea var eljukona alla sína tíð og til hins síðasta pijónaði hún og saumaði á börn sín, barnabörn og barnabarnabörn sér til ánægju og þeim til gleði og hlýinda. Eftir tuttugu og fimm ára búskap í Svalvogum, býli sem stendur við hið ysta haf, brugðu þau hjón búi og fluttu til Reykjavíkur, en tryggð- in til átthaganna sagði fljótt til sín °g byggðu þau hjón sér sumarbú- stað á nesinu sem þau höfðu lifað sín bestu ár. Þangað komu margir, og munu minnast þeirra heimsókna með ánægju um ókomin ár. Nú þegar tengdamóðir mín er komin til hinna fögru upphimna þar sem synir hennar þrír hafa tekið henni opnum örmum, vil ég og fjöl- skylda mín, þakka henni fyrir þær dýrmætu minningar sem við eigum um elskulega móður, tengdamóður og ömmu, minningar sem ekki munu fölna þó árin líði. Ég bið góðan Guð að styrkja tengdaföður minn, sem sér nú á eftir eiginkonu sinni, eftir nær sextíu ára hjúskap og vona að hann muni enn um langa tíð vera hinum mörgu afkomendum sínum samein- ingartákn fjölskyldunnar. Ing. M. Ingólfsson og fjölskylda Áttunda mars síðastliðinn lést á gjörgæslu Landspítalans Magnea Símonardóttir eftir skamma legu. Magnea var fædd á Kirkjubóli í Mosdal í Arnarfirði, foreldrar henn- ar voru, Kristín Guðmundsdóttir og Símon Jónsson. Hún sleit barnsskónum á Kirkju- bóli og dvaldi þar fram undir tvítugsaldur, þá flyst hún til Þing- eyrar og dvelst þar við ýmis störf, bæði sem vinnukona í sveit og kaupakona á Þingeyri. Sumarið 1930 á Alþingishátíð- inni sem haldin var á Framnesi við Dýrafjörð má segja að leiðir þeirra Magneu og Ottós Þorvaldssonar hafi fyrst legið saman, þar samdist þeim svo um að Magnea kæmi sem ráðskona út að Svalvogum þá um veturinn, og þegar þar að kom að hún þurfti að fara í vistina mátti sjá glöggt dæmi um óbrigðulleika hennar í garð annarra, og þegar á hana var kallað. Hún var nefnilega að undirbúa sína eigin 25 ára afmælisveislu þeg- ar kallið kom og án þess að hika tók hún saman föggur sínar, greip með sér afmæliskringluna og síðan var lagt af stað. Þetta litla dæmi sýnir okkur vel hvaða mann Magnea hafði að geýma, ávallt viðbúin og ekkert hik, þessi lágvaxna kona sýndi nefnilega þarna, sem og síðar á lífsleiðinni, að hún hafði óbugandi vilja og geysilegt þrek, sem hún sannaði allt sitt líf. Magnea kom eins og að framan er geti að Svalvogum á 25 ára af- mælisdegi sínum árið 1930 sem ráðskona en gekk að eiga Ottó Þoraldsson 11. apríl 1931, þau eign- uðust ellefu börn, auk eins fóstur- sonar sem öll eru á lífi. Fyrir átti Magnea þrjá syni sem allir eru látn- ir. _ Ég kynntist sjálfur Magneu um 1970, þá sem tilvonandi tengdason- ur hennar, og voru það ljúf kynni frá fyrstu tíð. Magnea var létt í lund og átti létt með að skilja og slá á létta strengi á sinn sérstæða hátt, alltaf var sama yndislega við- mótið, hvenær sem maður leit inn til hennar, og seinna meir þegar ég fór að kynnast henni betur og heyra hana segja frá sjálfri sér leyndist ekki að þessi kona hafði lifað tímana tvenna. Hún hafði alið upp öll sín börn við erfiðustu aðstæður úti við ystu nes þessa lands og stóð sterk sem klettur í ölduróti lífsins án þess að hnika frá trú sinni á allt sem er jákvætt í lífinu. Hún var alla tíð hinn ljúfi faðmur barna sinna sem veitti þeim alla þá ást og umhyggju sem móðir getur veitt barni sínu og hef ég þá trú að börn hennar muni búa að þeirri ást alla tíð. Fyrir nokkrum árum veittist mér sú ánægja að vera þeim hjónum samferða til Færeyja, þangað sem ég rek ættir mínar, og mér hitnar um hjartarætur er ég hugsa til baka og minnist þá innilega vináttu sem varð til á milli tveggja kvenna, móður minnar, Hönnu Davidsen, og tengdamóður. Það var svo ánægjulegt að sjá þær saman, ganga um götur og niður í fjöru að tína skeljar. Það var eins og þær væru að rifja upp gamlar minning- ar. Tungumálin voru ekkert vanda- mál, þær skildu hvor aðra fullkom- lega og þar þurfti ekkert að túlka. Þessi vinátta hélst síðan alla tíð og þrátt fyrir mikla vegalengd bárust alltaf hlýjar kveðjur þeirra á milli og veit ég að móðir mín mun eiga um sárt að binda við fráfall þessar- ar ljúfu og einstöku manneskju. Magnea kvaddi þennan heim, vit- andi hvert stefndi, án þess að sýna neinn bilbug. Hún var alltaf jafn rólynd og sátt við sjálfa sig og aðra. Lífsvilja hennar þraut aldrei, allt þar til að yfir lauk. Hún sofnaði inn í eilífðina sátt við Guð og menn. Megi Guð almátt- ugur vaka yfir sálu hennar og vernda eftirlifandi eigimann og börn. Megi minning þessarar hugljúfu konu lifa áfram í hugum okkar allra. Við þökkum fyrir allt sem hún hefur okkur gefið á sinni lífsleið. Við kveðjum móður, ömmu, langömmu og tengdamömmu. Kári, Estíva, börn og barnabörn. t Eiginmaður minn, faðir okkar, tengdafaðir, afi og langafi, JAFET EGILL OTTÓSSON, Álftamýri 22, andaðist aðfaranótt þriðjudagsins 13. mars. Fjóla Gísladóttir, Margrét Jafetsdóttir, Hálfdan Guðmundsson, Hilmar Bergsteinsson, Þorbjörg Ingólfsdóttir, Elín J. Proppé, Karl H. Proppé, Hendrik Jafetsson, Sigríður Stefánsdóttir, Gísli Jafetsson, Anna Antonsdóttir, barnabörn og barnabarnabörn. t Eiginmaður minn og faðir okkar, BENEDIKT RÚNAR HJÁLMARSSON, Sandabraut 16, Akranesi, verðurjarðsunginnfráAkraneskirkjuföstudaginn 16. marskl. 14.00. Þeim, sem vilja minnast hans, er bent á minningarsjóð Guðmund- ar Sveinbjörnssonar, Hjartavernd eða aðrar líknarstofnanir. Friðgerður Bjarnadóttir, Kolbrún Benediktsdóttir, Ásta Benediktsdóttir, ívarörn Benediktsson. t Faðir okkar, tengdafaðir, afi og langafi, LEÓ ÓLAFSSON, sem lést þann 6. mars sl., verður jarðsunginn frá Laugarnes- kirkju föstudaginn 16. mars kl. 13.30. Fyrir hönd aðstandenda, Kolbrún Leósdóttir, Örn Leósson. Jóhann Smári Jóhannesson, barnabörn og barnabarnabörn. + Móðir mín, tengdamóðir og amma, GUÐRÍÐUR MAGNÚSDÓTTIR kennari, Hjarðarhaga 29, verður jarðsungin frá Dómkirkjunni föstudaginn 16. marzkl. 13.30. Grétar Ottó Róbertsson, Elín Þ. Ólafsdóttir, Ásdís Louise Grétarsdóttir, Guðríður Anna Grétarsdóttir, Heiður Grétarsdóttir. + Bróðir okkar, EGGERTTÓMASSON bóndi, Miðhóli, Sléttuhlíð, sem lést 4. mars sl., verður jarðsunginn frá Háteigskirkju föstu- daginn 16. mars kl. 15.00. Sigurður Tómasson, Hallfríður Tómasdóttir, Ólöf Tómasdóttir, Jónasína Tómasdóttir, Þórný T ómasdóttir, Margrét Tómasdóttir. + Innilegar þakkir fyrir auðsýnda samúð og vinarhug við andlát og útför eiginmanns míns og föður, NÚMA BJÖRGVINS EINARSSONAR, Brunnum 3, Patreksfirði, sem andaðist 3. mars sl. Valgerður Haraldsdóttir, Hafsteinn Númason. + Þökkum innilega auðsýnda samúð við andlát og útför systur okk- ar og mágkonu, SVANHVÍTAR MAGNÚSDÓTTUR, ' Stigahlíð 30, Reykjavík. Hulda Magnúsdóttir, Svala Magnúsdóttir, Ingólfur Sæmundsson. + Þökkum af alhug auðsýnda samúð og vinarhug við andlát og útför föður okkar, tengdaföður, afa og langafa, FRIÐRIKS Ó. PÁLSSONAR, Dvalarheimilinu Felli, Skipholti 21, Reykjavík. Guð blessi ykkur öll. Susie Bachmann, Concordia Konráðsdóttir, Páll Friðriksson, Kristján Friðriksson, Einar Friðriksson, Ólafur Þór Friðriksson, Bjargdís Friðriksdóttir, Karl Kristinsson, Jón Friðriksson, Randy Friðriksson, barnabörn og barnabarnabörn.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.