Morgunblaðið - 22.03.1990, Blaðsíða 15
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 22. MARZ 1990
15
HlutdrægTii í Rás tvö
eftir dr. Hannes H.
Gissurarson
Efnisval í einkastöðvum er einka-
mál þeirra. Líki mönnum það ekki,
hætta þeir að hlusta á þær. En efn-
isval í Rás tvö er mál okkar allra,
því að við þurfum öll að greiða til
hennar, enda hefur hún þá skýlausu
skyldu að lögum að gæta fyllstu
óhlutdrægni. Forstöðumaður Rásar-
innar, Stefán Jón Hafstein, rak mig
sem kunnugt er nýlega úr reglu-
bundnum flutningi morgunpistla,
þar eð ég kæmi einnig fram í öðrum
fjölmiðlum. Hafði ég gaman af, en
þar sem öllu gamni fylgir nokkur
alvara, hef ég aflað mér upplýsinga
um, hveijir hafa flutt morgunpistla
í Rás tvö frá áramótunum til 1.
mars 1990.
Þetta fólk hefur flest ekki leynt
stjórnmálaskoðunum sínum, svo að
ég ljóstra ekki neinu upp með því
að flokka það í hægra fólk, vinstri
sinna og miðjumenn. Helst má deila
um, hversu nákvæm hugtökin hægri
og vinstri séu. Þetta fólk skiptist í
tvo hópa, fréttaritara Ríkisútvarps-
ins erlendis og pistlahöfunda innan-
lands. Fréttaritararnir, Friðrik Páll
Jónsson (sá sem bar ábyrgð á Tang-
en-hneykslinu), Jón Olafsson, Hildur
Helga Sigurðardóttir, Stefán Jóhann
Stefánsson og Agúst Þór Árnason,
hafa flutt 9 pjstla hver. Ég kann
engin skil á Ágúst Þór Árnasyni,
en hinir fjórir eru vinstri sinnaðir,
nema þeir hafi nýlega skipt um skoð-
un.
Lítum þá á innlendu pistlahöf-
unda. Fjóra þeirra þekki ég sem
stæka vinstri sinna, Birnu Þórðar-
dóttur (hefur talað þrisvar sinnum),
Ingibjörgu Sólrúnu Gísladóttur
(tvisvar), Smára Geirsson (tvisvar)
„Niðurstaðan er sú, að af
70 pistlum eru 3 fluttir
af hægri manni, 23 af
miðjufólki og 44 af vinstri
sinnum. Ef þetta er óhlut-
drægni, þá heiti ég Stefán
Jón Hafstein ög þið eruð
að lesa Þjóðviljann!“
og Magneu Matthíasdóttur (einu
sinni). Fjóra má telja einhvers konar
miðjumenn, Gunnar Berg (tvisvar),
Sigurð Valgeirsson (fimm sinnum),
Halldór Hermannsson (tvisvar) og
Steinunni Sigurðardóttur (fímm
sinnum). Væntanlega telst ég sjálfur
hægri maður (þrisvar sinnum). Nið-
urstaðan er sú, að af 70 pistlum eru
3 fluttir af hægri manni, 23 af miðju-
fólki og 44 af vinstri .sinnum. Ef
Um íslensku óperuna
eftir Þorstein
Hannesson
Ég var innan við fermingu er
ég eitt sinn kom heim í hádegis-
matinn og er ég kom í stofudyrnar
heyrði ég úr útvarpstækinu slíka
tóna, að ég stóð stjarfur þar til
laginu lauk. Ég heyrði svo þulinn
segja að þetta hefði verið aría úr
óperunni I Pagliacci eftir Leon-
cavallo sungin af Enrico Caruso.
Mér er þetta eins minnisstætt eins
og nokkuð annað sem komið hefur
fyrir mig um dagana. Svona músík
langaði mig til að syngja.
Seinna á ævinni söng ég í nokk-
ur ár við frægt óperuhús. Ég söng
mörg hlutverk og stór með frægum
söngvurum, undir stjórn frægra
hljómsveitarstjóra og undir hand-
leiðslu mjög færra leikstjóra, en
Canio í I Pagliacci fékk ég aldrei
tækifæri til að syngja.
Svo, allt í einu, vorið 1954 fékk
ég boð frá Þjóðleikhúsinu um að
koma heim og syngja þetta
draumahlutverk mitt. Eg þurfti
ekki einu sinni að hugsa mig um,
ég þáði með þökkum.
Síðan þetta skeði hefur mikið
vatn runnið til sjávar. Mér fannst
þegar ég kom heim eins og nýir
dáindistímar óperunnar væru upp
runnir á íslandi og ekkert gæti
staðið framgangi hennar fyrir þrif-
um. Reyndin hefur því miður verið
önnur. Operan, eitt kostnaðarsam-
asta form leikhússins, átti áfram
og á enn erfitt uppdráttar, hefur
t.d. alltaf verið og er enn hálfgerð
hornreka hjá Þjóðleikhúsinu, þótt
margt hafi þar vissulega verið vel
gert.
Svo kom íslenska óperan. Hún
kom með nokkrum bægslagangi,
Þorsteinn Hannesson
„Á ég að trúa því að
þið ætlið að láta þann
listræna metnað og
þann eldmóð sem er á
bak við sýningar í
Gamla Bíói ómetinn
fram hjá ykkur fara.“
starfaði stundum að manni fannst
meira af kappi en forsjá, en um
slíkt má að sjálfsögðu deila til
eilífðar nóns án þess að komast
að nokkurri niðurstöðu. Sjálfur hef
ég gagnrýnt hana. en hefi þó allt-
af, á sama tíma borið til hennar
hiýhug og óskað hénni góðs geng-
is.
Og nú er íslenska óperan að
sýna I Pagliacci. Ég var utanbæjar
frumsýningarkvöldið, en ég komst
á aðra sýningu. Er þar skemmst
frá að segja, að mér fannst ég
ganga í endurnýjun lífdaganna.
Sýningin var eins góð og frek-
ast varð á kosið. Ekki spillti það
ánægjunni að sjá og heyra mjög
athyglisverða sviðsetningu á
Carmina Burana eftir Carl Orff,
en það verk er mér mjög kært og
þekki ég það mjög náið.
En því er ég að skrifa þennan
pistil í stað þess að sitja á friðar-
stóli í elli, þótt ekki mjög há sé?
Jú, ástæðan er sú, að mér skilst
að þeir sem fylltu Þjóðleikhúsið í
nær þijátíu skipti fyrir um 35 árum
kjósi nú heldur að sitja heima fyr-
ir framan sjónvarpið eða aðra iðju
frekar en að fara og sjá I Pagliac-
ci og Carmina Burana í Gamla
Bíói. Að frétta þetta er sárara en
tárum taki.
Óperuunnendur á íslandi hefi
ég alltaf talið mig vita að væru
legíó. Ég vil beina orðum mínum
til þeirra persónulega. Hvernig
getið þið sýnt áhugamáli ykkar
slíkt tómlæti? Hafið þið ekki gert
ykkur grein fyrir því, að íslenska
óperan er það eina sem á er að
treysta í náinni framtíð? Hafið þið
ekki gert ykkur grein fyrir því að
nú er svo mjög þrengt að Þjóðleik-
húsinu, að mjög er ólíklegt að það
geti sinnt óperuflutningi, jafnvel
næstu árin?
Á ég að trúa því að þið ætlið
að láta þann listræna metnað og
þann eldmóð sem er á bak við
sýningar í Gamla Bíói ómetinn
fram hjá ykkur fara. Nei. Ég ætla
ékki að trúa því fyrr en í fulla
hnefana.
Höfundur er söngvari.
Hannes Hólmsteinn Gissurarson
þetta er óhlutdrægni, þá heiti ég
Stefán Jón Hafstein og þið eruð að
lesa Þjóðviljann!
Höiundur er lektor í
stjórnm&lafrædi í
félagsvísindadeild Háskóla
íslands.
Norsku Stil ullarnærfötin *
Mátulega
heitur
í leik og
starfí.
i
Buxur einf. fóðr.* Bolir einf. fóðr.*
2052- 2150- 2122- 2298-
Stuttermabolir kr. 1785-
* fóðruð með mjuku Dacron efnl.
Grandagarði 2, Rvík., sími 28855
SACHS
HÖGGDEYFAR - KÚPLINGAR - DISKAR
Eigum fyrirliggjandi Sachs
höggdeyfa, kúplingar og
kúplingsdiska í allar helstu
tegundir evrópskra og
japanskra fólks- og vörubíla.
Útvegum alla fáanlegar
kúplingar og höggdeyfa
með hraði.
Það borgar sig að
nota það besta.
Þekking Reynsla Þjónusta
SUÐURLANDSBRAUT 8 SiMI 84670
SIEMENS
Þvottavélar
Uppþvottavélar
Eldavélar
Örbylgjuofnar
Gœðatœki fyrir
þig og þínal
SMUH&
NORLAND
Nóatúni 4 - Sími 28300
Fróöleikur og
skemmtun
fyrirháa sem lága!
JHijKgfiitMafetfe