Morgunblaðið - 26.04.1990, Blaðsíða 5

Morgunblaðið - 26.04.1990, Blaðsíða 5
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 26. APRÍL 1990 5 Morgunblaðið/Sigurgeir V estmannae>jar: Lundinn sestur upp Vestmannaeyjum. VORBOÐARNIR koma nú hver af öðrum. Einn af örugg- um vorboðum í Eyjum er lund- inn. Þegar hann er sestur upp þá geta Eyjamenn verið nokk- uð vissir um að vorið er á næsta leiti. Síðasta vetrardag sást lundinn sitja uppi í Stór- höfða og einnig yfir Kapla- gjótu. Óskar Sigurðsson, vitavörður í Stórhöfða, sagðist hafa séð lundann sitja fyrst uppi í JStór- höfða síðasta vetrardag. Óskar sagði að lundinn settist upp nú á svipuðum tírria og ávallt áður. Hann sagði lundann mjög stundvísan með komuna hingað, hann kæmi yfirleitt alltaf á sama tíma til landsins og skeikaði þar ekki nema nokkrum dögum á milli ára. Árvökulir sjómenn höfðu fyrir nokkru séð lunda sitjandi á sjón- um við Eyjar og 13. apríl sl. sást hann á flugi við Ystaklett. Um leið og lundinn sest upp hefur hann vorverk sín og ástar- leikir og rómantík ríkja í í lunda- byggðinni í Eyjum næstu dag- ana. Grímur Bretadrottning kemur í lok júní ELÍSABET II. Englandsdrottning og Philip prins, hertogi af Edin- borg, hafa þegið boð forseta ís- lands um að koma í opinbera heim- sókn til íslands dagana 25.-27. júní nk. Meðan á dvölinni hér á landi stend- ur heimsækja drottning og hertogi m.a. Stofnun Árna Magnússonar og Listasafn íslands og fara einnig til Þingvalla og Krýsuvíkur, segir í frétt frá skrifstofu forseta íslands. Þorlákshöfn; Pétur Olgeirsson til Meitilsins PÉTUR Olgeirsson hefur verið ráðinn framkvæmdastjóri Meitils- ins í Þorlákshöfii. Pétur tekur við starfinu af Finnboga Alfreðssyni fyrsta júní næstkomandi. Pétur Olgeirsson hefur um árabil verið framkvæmdastjóri Tanga hf á Vopnafirði, en hefur nú látið af því starfi. Finnbogi Alfreðsson hefur verið framkvæmdastjóri Meitilsins í eitt ár, en var áður framkvæmda- stjóri Framleiðni hf. Finnbogi tekur að öllum líkindum við rekstri loðnu- verksmiðjunnar á Vopnafirði í sum- ar, en fyrirtækið Fiskimjöl og lýsi í Grindavík hefur nýlega fest kaup á þeirri verksmiðju. GERA MORGUNMUNINN! Kúfaður diskur af stökkum Cheerios hafrahringjum með svellkaldri mjólk. Ferskur og lystilegur morgunverður, þar sem hollustan er ótvíræð. Uppistaðan í Cheerios eru hafrar, bætiefnarík korntegund og einn besti trefjagjafi sem völ er á. Cheerios er því fyrirtaksfæða, fyrir alla fjölskylduna. Hafðu hollt hendi næst!

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.