Morgunblaðið - 26.04.1990, Side 9
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 26. APRIL 1990
9
UTANKJORSTAÐASKRIFSTOFA
SJÁLFSTÆÐISFLOKKSINS
VALHÖLL, Háaleitisbraut 1,3. hæð
Símar 679053 - 679054 - 679056
Upplýsingar um kjörskrár og aðstoð við kjör-
skrárkærur. Fyrst um sinn fer utankjörstaða-
kosning fram hjá borgarfógetanum í
Reykjavík, Skógarhlíð 6, kl. 10-15 alla daga.
Sjálfstæðisfólk! Hafið samband við
skrifstofuna ef þið verðið ekki heima á kjördag.
TOYOTA
NOTAÐIR BILAR
44144 - 44733
MMC COLT GLX '88
Hvítur. 5 gíra. 3ja dyra. Spoilerar.
TOYOTA CROWN 2,8 GLI ’80
Bensín. Brúnn. Sjálfskiptur. 4ra dyra.
Ekinn 145
Bensín. Grænn/drapp. 5 gíra. 5 dyra.
Ekinn 60 þús/km. Verð 1.350 þús.
TOYOTA LANDCRUISER '86
Diesel. Turbo. Dökkblár. 5 gíra. 3ja dyra.
TOYOTA CARINA II ’86
Blár. 5 gíra 5 dyra. Ekinn 49 þús/km.
Verð kr. 600 þús.
VW GOLF GL '87
Hvítur. 4 gira. 3ja dyra. Sóllúga. Ekinn
75 þús/km. Verð kr. 680 þús.
TOYOTA
NÝBÝLAVEGI 6-8, KÓPAVOGI, S.:91 44144
Yfírlýsing Ólafs Ragnars
Grímssonar mjög alvarleg
— segir Svavar Gestsson fyrrverandi formaður Alþýðubandalagsins
Þjóðviljinn gegn formanninum
Deilurnar innan Alþýðubandalagsins taka á sig ýmsar myndir og
eiga margir flokksmenn mjög erfitt með að gera upp hug sinn og
velja á milli formannsins, Ólafs Ragnars Grímssonar, og G-listans
í Reykjavík. Meðal þeirra sem hafa verið tvístígandi er ritstjórn
Þjóðviljans, málgagns Alþýðubandalagsins. í Morgunblaðinu á laug-
ardag segir Ólafur H. Torfason, annar ritstjóra Þjóðviljans, að ekki
sé enn hægt að segja hvaða afstöðu blaðið tæki til framboða í
Reykjavík. í forystugrein í gær tekur þessi sami ritstjóri afstöðu
með G-listanum í lagaþrætu vegna framboðsins í Reykjavík.
ÓlafiRagnari
svarað
Ein höfuðrökscmd Ólafs
Ragnars Grímssonar, form-
anns Alþýðubandalagsins,
fyrir því að hann sfyðji
ekki framboð G-listans í
Itoykjavík er sú, að stjóra
Alþýðubandalagsfélags
Reykjavíkur og félagið í
heOd sé ekki réttur aðili tíl
að standa að framboði fyrir
flokkinn; það hafí ekki vcr-
ið komið tíl mófs við óskir
um að stofna kjördæmisráð
í höfuðborginni, sem tæki
ákvörðun um framboð. Um
þetta segir í forystugrein
Þjóðviljans í gær:
„Samkvæmt lögum Al-
þýðubandalagsins skal
stofna kjördæmisráð í þeim
kjördæmum landsins þar
sem fleira en eitt flokksfé-
lag starfar, komi fram
beiðni um slikt. í Reykjavík
ber að afgreiða slíka tillögu
á aðalfundi ABR Fyrir
síðasta aðalfúnd hafði eng-
in beiðni borist Kjördæ-
misráð hefúr því ekki verið
stofiiað á þessu starfstíma-
bili. Næsta formlega tæki-
fáeri tU að afgreiða málið
verður á aðalfúndi ABR nú
í vor. A hvorugum þeirra
felagsfúnda ABR, 6. febrú-
ar og 10. apríl, sem fram-
boðsmál hafa verið ákveð-
in, voru fram bornar at-
hugasemdir af þessu til-
efiii. Ekki er um timamörk
að ræða í flokkslögum og
sú skoðun hefúr heyrst, að
ABR hefði því gctað leitað
frávika frá eigin lögum um
stofiiun kjördæmisniðs tíl
að annast undirbúning
borgarstjómarkosninga.
Örðugt er hins vegar að
sjá, að stjóra ABR hafi
formlega brugðist hlut-
verki sínu á nokkum hátt,
hvað þá að fúndir og fram-
boð G-listans í Reykjavik
séu athugaverð af þessum
sökum."
Með þessu svarar Þjóð-
viljinn viðtali við Ölaf
Ragnar Grimsson sem birt-
ist í blaðinu [Nýju helgar-
blaðij sl. laugardag, þar
sem formaðurinn sagði
meðal annars: „Reyndar
var ég þeirrar skoðunar
seiimihluta vetrar að ABR
ættí að verða við ósk Æsku-
lýðsfylkingarinnar og Birt-
ingar um að stofiiað yrði
kjördæmisráð í borginni.
Þá hefðu öll flokksfélögin
í Reykjavík orðið formlegir
aðilar að ákvörðunmni um
framboð. Ég er sannfærður
um að ef ABR hefði orðið
við þessari kröfú, sem
reyndar er skylda sam-
kvæmt flokkslögum að
verða við þó ekki sé getið
þar um tímasetningar,
hefðu málin þróast á annan
veg... Ef kjördæmisráð
hefði verið stofhað í janúar,
febrúar og jafiivel þó það
hefði dregist fram í mars,
hcfði framvindan orðið
önnur og Alþýðubanda-
lagsmenn í Reykjavík
hefðu gengið einhuga tíl
kosninga vegna þess að þá
hefðu öll flokksfélögin að
forminu til haft jafúan
rétt.“
Nú þarf engimi að fara
í grafgötur um að Þjóð-
vifjinn telur framboð G-list-
ans í Reykjavik lögmætt
og sfyður G-listann gegn
formanninum i þrætunni
uin þetta úrslitaatriði.
Hvað segir
þing-flokkur-
inn?
Á þriðjudag var vakin
athygli á því hér i Stak-
steinum, að meirihluti
sveitarstjómarmanna
sem Þjóðviljinn spurði
álits á deilu Ólafs Ragn-
ars Grímssonar og for-
ráðamanna G-listans í
Reykjavík voru andvígir
Ólafi Ragnari. í Morgun-
blaðinu á laugardag
sagði Margrét Frimamis-
dóttir, formaður þing-
flokks Alþýðubandalags-
ins, að þessar deilur
hefðu ekki verið ræddar
þar, en það yrði gert ef
ósk kæmi fram um það.
Sjálf hefði hún ekki tekið
afctöðu, en teldi að hver
þingmaður hefði uiuiið í
sinu kjördæmi með þeim
framboðum sem Alþýðu-
bandalagið stæði að.
Þingflokkuriim ræður
miklu um það, hveijh’
skipa ráðherrasæti fyrir
Alþýðubandalagið. Ráð-
herraembættið er mikil-
vægara fyrir Ólaf Ragn-
ar Grímsson en aðra
vegna þess að haim
kemst inn í þingsali sem
ráðherra; það gleymist
oft að hann náði ekki
kjöri sem þingmaður í
Reykjaneskjörda'ini í
síðustu kosningum, þótt
hann talaði n\jög digur-
barkalega um sigurlíkur
sínar og ræki kosninga-
baráttuna á allt öðrum
nótum en Alþýðubanda-
lagið annars staðar á
landinu.
Kunna hin hörðu átök
í Alþýðubandalaginu nú
að leiða til þess, að þing-
flokkurinn snúist svo
harkalega gegn flokks-
formaiminum, að
Steingrími Hermanns-
syni forsætisráðherra
verði skýrt frá þvi að
Ólafúr Ragnar njóti ekki
lengur trausts meirihluta
þmgmanna Alþýðu-
bandalagsins? Hvemig
brygðist forsætisráð-
lierra við slikum tílmæl-
um? Sætti hann sig við
slika breytingu eða svar-
aði hami á þaim veg, að
stjórain þyldi hana ekki
og hann Uti á vantraust
á Ólaf Ragnar sem van-
traust á ríkisstjómina?
Sundurlyndið innan
rikisstjórnarinnar er orð-
ið það mikið, að líklegt
er að Steingrímur veldi
siðari kostiim; teldi sig
fá prýðilegt tækifseri til
að slíta stjóraarsamstíirf-
inu áður en upplausnin
yrði eim rneiri. Ef Svavar
Gestsson metur stöðuna
þannig, að ríkissfjómin
sé í hættu við slíka aðflir
að Ólafi Ragnari til að
koma honum bæði úr
ríkisstjóm og út af þingi,
beitir hann sér ekki í
málinu. Það er gmnnt á
ráðherrasósíalismanum
l\já Svavari, en eins og
kunnugt er felst hann
meðal annars i þvi að
alþýðubandalagsmenn
sifja í ráðherrastólum
eins lengi og frekast er
kostur.
Upplýsingar um og
aðstoð við flármál
Hjá Kaupþingi eru starfandi ráðgjafar, sem hafa þann starfa einan að veita
fólki alhliða upplýsingar og aðstoð við fjármál. Þar má m.a. nefna aðstoð við:
VAL Á MISMUNANDI
SPARNAÐARLEIÐUM
Þar þarf að taka tillit til hversu
lengi þú ætlar að fjárfesta, hvort
þú þurfir að geta gengið að fénu
snögglega o.s.frv. Valið stendur
m.a. á milli Einingabréfa,
Skammtímabréfa og Spariskír-
teina ríkissjóðs, en þessi verð-
bréf eru öll seld hjá KAUPÞINGI.
UMÖNNUN FJÁR ÞÍNS í
FJÁRVÖRSLU OG VERÐ-
BRÉFASÖLU þar sem við sjáum
um kaup á verðbréfum í þínu
nafni, innheimtum þau og endurfj-
árfestum fyrir innkomið fé. Yfirlit
yfir heildareign er sent fjórum
sinnum á ári.
GERÐ GREIÐSLUYFIRLITA
Auðveldar þér að gera þér grein
fyrir útgjöldum og afborgunum
næsta/næstu ára.
SÖLU Á ÖLLUM GERÐUM
VERÐBRÉFA, s.s. veðskulda-
bréfum, spariskírteinum og
bankabréfum.
Sölugengí verðbréfa 26. apríl ’90:
EININGABRÉF 1...........4.832
EININGABRÉF 2...........2.644
EININGABRÉF 3...........3.179
SKAMMTÍMABRÉF...........1.641
Allar frekari upplýsingar
gefa ráðgjafar KAUPÞINGS HF.
KAUPÞING HF
Löggilt verdbréfafyrirtœki,
Knnglunm 5, 103 Reykjavík,
sími 91-689080