Morgunblaðið - 11.05.1990, Qupperneq 34
34
MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 11. MAÍ 1990
Minning:
Jón V. Bjamason
garðyrkjubóndi
Fæddur 23. mars 1927
Látinn 5. maí 1990
Enginn má sköpum renna, en það
gerðist óvænt og snögglega að
frændi minn og sambýlismaður á
Reykjum, Jón Vigfús Bjarnason,
varð bráðkvaddur á heimili sínu
laugardaginn 5. maí sl. Hér er
genginn góður og gegn maður
langt um aldur fram aðeins 63 ára
að aldri, alveg án viðvörunar og
hafði hann ekki þurft að koma á
sjúkrahús á ævinni.
Jovvi, eins og hann var jafnan
kallaður meðal vina sinna, fæddist
á Reykjum og var yngsta barn
þeirra hjónanna Ástu Jónsdóttur
og Bjarna Ásgeirssonar alþingis-
manns og seinna sendiherra í Ósló.
Þau hjón eignuðust fimm böm og
eru nú tvö á lífí, þau Jóhannes verk-
fræðingur og Guðný húsmóðir í
Reykjavík. Þau sem eru látin eru
Ragnheiður er lést af slysförum á
unga aldri og Ásgeir bóndi á Reykj-
um er lést 1982 og var hann elstur
þeirra systkina. Drengurinn yngsti
dafnaði vel og varð snemma bráð-
ger og lagtækur í leik og starfi og
byijaði eins og hin börnin að rétta
hjálparhönd við bústörfín. Jowi
varð snemma laginn við vélar og
tæki og fékkst gjarna við að gera
gamla bíla gangfæra og við þetta
var hann hin mesti galdramaður.
Seinna kon það svo að góðu haldi
í búskapnum að hann var nánast
fær um viðhald á búinu hvort held-
ur var tré eða járn, svo sem afi
hans Ásgeir Bjarnason frá Knarrar-
nesi.
Að loknu almennu námi í barna-
og framhaldsskólum hér og í
Reykjavík lagði hann leið sína til
Bandaríkjanna svo sem bræður
hans og frændur höfðu áður gert.
Hann hélt til Seattle í Washinton-
ríki og skoðaði nám á tæknisviðinu
en þá fann hann að gróðurmoldin
og ræktun átti ríkan þátt í áhuga-
sviði hans. Fór hann þá í ríkishá-
skólann í Colombus, Óhio og lauk
þar námi sínu í blómarækt, enda
kynnst þeim störfum heima í garð-
yrkjunni á Reykjum.
Hann tók svo við búi á helmingi
Garðyrkjunnar á Reykjum á móti
frænda sínum Sveini 1949 og
skömmu seinna festi hann kaup á
stöðinni af föður sínum og var
þetta hans ævistarf í yfír 30 ár.
Grundvöllur á rekstri garðyrkju í
Reykjahverfi varð erfiður um 1980
er yfirborðsvarminn hvarf við nýt-
ingu á djúpholum Hitaveitunnar en
þessi búskapur byggist að mjög
miklu leyti á góðum hita í yfírborði
landsins þar sem gróðurhúsin stóðu.
Jón Vigfús kvæntist frændkonu
sinni Hansínu Margréti Bjarnadótt-
ur frá Húsavík þann 23. mars 1949
og bjuggu þau allan sinn aldur á
Reykjum. Þau voru vinsæl og vel
látin en hlédræg. Þó sinnti Jón Vig-
fús nokkrum opinberum störfum
er til hans var leitað, t.d. var hann
um skeið formaður sóknarnefndar
og vann að miklum endurbótum á
kirkjunni. Þeim hjónum varð fjög-
urra barna auðið en það voru Ásta
hjúkrunarfræðingur fædd 1950,
Bjarni Ásgeir bóndi og athafnamað-
ur fæddur 1952, Kristján Ingi blóm-
askreytingamaður fæddur 1957 og
Baldur bústjóri fæddur 1963.
Jovvi var vinsæll maður og vellát-
inn og hafði til að bera sérstaka
prúmannlega framkomu, vel gefinn,
og greindur svo sem frændur hans
margir í föðurætt. Hann var mús-
íkalskur og lærði nokkuð á hljóð-
færi en stundaði síðan söng í kórum
héraðsins og var í mörg ár söng-
maður í Karlakór Reykjavíkur með
frændum sínum Reykjabræðrum.
Jovvi átti mjög létt með að læra lag
og texta og hafði fágætlega mildan
og djúpan bassa sem hann beitti
af mikilli smekkvísi.
Jón Vigfús var af Engeyjarætt
og skírður eftir móðurafa sínum
Jóni Þórðarsyni frá Gróttu sem var
skútuskipstjóri í Reykjavík. Einnig
af svokallaðri Grundarætt í Borgar-
firði út af Magnúsi Vigfússyni í
Miðseli í Reykjavík. í föðurætt var
hann af Mýramönnum kominn og
var faðir hans Bjarni Ásgeirsson,
alþingismaður, þjóðfrægur maður
fyrir opinber störf og sem alþýðu-
skáld. Jón Vigfús var einn þeirra
fjögurra bænda sem tóku við bús-
forráðum af feðrum sínum á Reykj-
um á árunum eftir stríðið. Þeir
Sveinn héldu hvor sínum helming
af garðyrkjunni en við eldri, undir-
rifaður og Ásgeir Bjarnason, tókum
við kúabúinu og jörðinni.
Þegar litið er til baka eru minn-
ingarnar bjartar um æskudaga og
unglingsár og þá samstarfið í dags-
ins önn búskaparins. Einkum voru
þeir frændurnir Þórður eða Daddi
og Jowi samrýndir enda yngstir
af hvorri fjölskyldu. Þeir urðu sam-
herjar í leik og ævintýrum unglings-
áranna og stóðu áratugum saman
í bassanum hlið við hlið og þá þótti
mönnum vel að staðið og röddin
góð svo af bar.
Að leiðarlokum skulu Jovva
færðar þakkir fyrir samveruna og
minningin lifír. Við heiðrum hana
er frændi okkar er nú allur. Ástvin-
um sendum við samúðarkveðjur og
þakklæti. Útförin fer fram frá Lág-
afellskirkju í dag, föstudag kl.
14.00.
J.M.G.
Það er með trega í hjarta sem
ég minnist tengdaföður míns, Jóns
Vigfúsar Bjarnasonar. Á stundum
sem þessum vitjar fortíðin okkar,
og minningarnar hópast að. Minn-
ingarnar um hann eru stór hluti
þess fjársjóðs sem mölur og ryð fá
ekki grandað, þess fjársjóðs sem
enginn getur frá okkur tekið.
Þegar ég, í janúar 1984, kom í
fyrsta skipti í heimsókn að Reykj-
um, fékk ég móttökur sem verða
mér ógleymanlegar. Feimni og
kvíði hurfu um leið og ég fann
hlýju og væntumþykju þessarra
yndislegu hjóna, Haddýjar og Jov-
va, streyma á móti mér. Það var
svo ekki síst í.erli hversdagsins sem
þessi hlýja og innileiki birtust í
óþreytandi hjálpsemi og greiðvikni.
Sonur minn, Atli, hafði reyndar að
orðtæki ef eitthvað fór úrskeiðis:
„Þetta reddast, við hringjum bara
í Jowa afa.“
Gaman var að segja Jovva sögur
af bamabörnunum og uppátækjum
þeirra. Hlýja brosið, ásamt stríðnis-
glampa í auga, sagði svo mikið um
hve stoltur og áhugasamur hann
var um þau. Einnig kemur fram í
hugann sú einlæga ánægja sem
geislaði af honum þegar ég bað
hann um að halda dóttur okkar
Bjarna Ásgeirs undir skírn, en hún
er alnafna systur Jowa sem lést á
unga aldri, Ragnheiður Bjamadótt-
ir.
Þrátt fyrir mikil umsvif og eril-
saman atvinnurekstur var Jowi
mikill fjölskyldumaður. Það voru
hans bestu stundir þegar fjölskyld-
an var saman komin að Reykjum.
Þar á öll fjölskyldan heima. Sú
mesta hamingja í mínu lífi, eftir
að ég fór úr föðurhúsum, hefur
verið að kynnast manninum mínum,
Bjarna Ásgeiri, Haddý og Jowa,
og yndislegu stjúpbörnunum mínum
þremur. Fyrirætlanir eru um að við
Bjarni Ásgeir reisum hús við hlið
tengdaforeldra minna. Eftirvænt-
ing Jowa var mikil vegna þessa.
Nú mun hann ekki vinna að þeirri
byggingu með okkur, en vissa mín
er að hann muni fylgjast grannt
með, og styrkur verður að finna
nærveru hans.
Sorg okkar allra er mikil. Þó er
mestur missir elsku Haddýjar
tengdamömmu. Samt er eins og í
sorginni hafí hún mest að gefa, og
ógleymanlegur verður sá styrkur
sem hún hefur miðlað öðrum á þess-
um erfiðu stundum. Bið ég henni
blessunar guðs nú og um ókomna
framtíð.
Guð blessi minningu Jóns Vigfús-
ar Bjamasonar. Drottinn sé á verði
'milli mín og hans uns við hittumst
aftur.
Margrét Atladóttir
í dag föstudaginn 11. maí er
kvaddur frá Lágafellskirkju hinstu
kveðju hjartkær frændi og mágur
Jón Vigfús Bjarnason fæddur 23.
mars 1927 sem lést að kveldi þess
5. maí síðastliðins.
Hann var sonur hjónanna Bjarna
Ásgeirssonar alþingismanns og
sendiherra Bjamasonar Benedikts-
sonar frá Knarrarnesi á Mýrum og
konu hans, Ástu Jónsdóttur Þórðar-
sonar skipstjóra í Gróttu og Vigdís-
ar Magnúsdóttur frá Miðseli sem
var alþekkt Vesturbæjar dugnaðar-
fólk.
Að loknu námi í Menntaskólan-
um í Reykjavík stundaði hann nám
í blómarækt í Bandaríkjunum. Þeg-
ar Jón kom heim frá námi hóf hann
störf við ylrækt á slóðum feðra
sinna á Suður-Reykjum og yfirtók
um leið rekstur á ylræktinni.
Þegar Hitaveitan hafði ofdælt
heitu vatni í Mosféllssveit og vatn
hvarf úr yfírborðsæðum fór Jón
ásamt fjölskyldu sinni út í kjúkling-
arækt.
Miklar framkvæmdir hafa orðið
hjá fjölskyldunni hin seinni ár og
hefur þar komið fram hinni mikli
dugnaður og útsjónarsemi hans og
Bjarna Ásgeirs sonar hans.
23. mars 1949 giftist Jón systur
minni Hansínu Margréti Bjarna-
dóttur Benediktssonar frá Húsavík
og konu hans Þórdísar Ásgeirsdótt-
ur.
Þeira börn eru: Ásta fædd 17.
apríl 1950, Bjarni Ásgeir fæddur
19. febrúar 1952, Kristján Ingi
fæddur 30. nóvember 1957, Baldur
fæddur 28. febrúar 1963.
Mér er minnisstætt þegar ég
Alþingishátíðarárið 1930 kom til
Reykjavíkur og heimsótti fyrsta
sinn þetta góða frændfólk mitt á
Reykjum í Mosfellssveit og mætti
þessum kæra frænda mínum, bros-
hýrum 3ja ára með hinn milda svip
beggja foreldra.
I skjóli Bjarna Ásgeirssonar og
frú Ástu voru þá afí minn og amma
Ásgeir Bjarnason frá Knarrarnesi
og Ragnheiður Helgadóttir þá blind
og bæði í hárri elli.
Ekki gátu þau hugsað sér að
fella verk úr hendi gömlu hjónin
og þar sem ég var að byija sjó-
mennsku þá skipuðu þau mér að
kaupa ullargarn í Framtíðinni í
Bankastræti og pijónaði afí minn
ullarnærföt á mig og amma mín
blind setti saman.
I hvert sinn sem ég kom að
Reykjum mætti ég þessum unga
og brosandi frænda mínum sem
hefur allt frá þeim tíma sýnt mér
þessa einstöku hlýju og vináttu.
Undanfarin ár hef ég notið þess
að koma á sunnudagseftirmiðdög-
um á heimili þeirra Jóns og Hansínu
og sitja þar og ræða málin.
Jón starfaði mikið að félagsmál-
um í sinni sveit og var söngmaður
góður og músíkalskur. Hann var
lengi félagi í Karlakór Reykjavíkur.
Einnig hefur hann sungið með
Karlakórnum í Mosfellssveit. Kirkju
sinn veitti hann lið sem sjálfboðaliði
og söng gjarnan í kirkjukórnum.
Við frændsystkini öll munum
sakna mikið góðs vinar og góðs
drengs svo og munu margir sveit-
ungar og kunningjar Jóns gera.
Að endingu vil ég senda elsku-
legri systir minni Hansínu Margréti
hjartanlegar samúðarkveðjur og bið
guð um að gefa henni styrk og
kjark í hennar mótlæti.
Vernharður Bjarnason
Þú fijóa tíð, er frækom smá
svo fóstrar vel, að þroska ná
á dýrum sumardegi.
Oss minn þú á, að einnig vér
þann ávöxt skulum bera hér,
er Guði gleðjast megi.
(V. Briem)
Tengdafaðir minn, Jón Vigfús
Bjarnason, lést laugardaginn 5. maí
á heimili sínu, Suður-Reykjum,
Mósfellsbæ, aðeins 63ja ára að
aldri. Hann hafði aldrei kennt sér
meins. Hann var eins og sólrík tíð,
bjartur og svipgóður.
Ég vár svo lánsamur að kynnast
dóttur Jowa, eins og hann var kall-
aður, og verða einn af fjölskyldunni.
Jovvi og Haddý voru ákaflega
samhent. Þau höfðu sameiginleg
áhugamál, sem ' voru fyrst og
fremst fjölskyldan og ferðalög. Þau
fóru vítt og breitt um landið, sem
þeim þótti svo vænt um. Heimili
áttu þau fallegt, og er það mið-
punktur fjölskyldunnar, því þar
koma allir saman.
Barnabörnin voru mjög hænd að
afa sínum, og þykir mér miður að
yngsta syni mínum skyldi ekki lán-
ast að kynnast honum betur og eiga
minningar um hann í framtíðinni.
Ég kveð ekki tengdaföður minn,
því ég veit að hann lifir meðal okk-
ar.
Ragnar Björnsson
Haustvindur hásura rómi
hvíslaði í eyra mér:
Bliknaður sumarblómi
biður að heilsa þér.
Hvíslaði ’ann hásum rómi:
Ég er einnig á íörum
að elta visið blað.
Kyssti svo köldum vörum
kinn mér og þaut af stað.
Alltaf er einhver á förum.
Dagsljós dvínar á skari,
dimmir um vog og nes.
Hljóður stend eg og stari,
stjamanna rúnir Ies.
Dvínar á dagsins skari.
Þetta ljóð Bjarna Ásgeirssonar
frá Reykjum, föður Jowa, lýsir vel
hvernig haustaði í hugum okkar
þrátt fyrir vorið, þegar við fregnuð-
um skyndilegt fráfall hans. Það
hvarflaði ekki að nokkrum manni,
að þegar laugardagurinn 5. maí
væri að kveldi, yrðu ævidagar Jowa
föðurbróður míns á enda.
Hann, sem var alltaf svo hress,
kátur og heilbrigður, og hafði aldr-
ei legið á sjúkrahúsi um ævina.
Jón Vigfús Bjarnason, eins og
hann hét fullu nafni, fæddist á
Reykjum í Mosfellssveit 23. mars
1927, og var því aðeins 63 ára þeg-
ar hann lést.
Hann átti hamingjuríka ævi.
Hann var yngsta barn afa og
ömmu, þeirra Bjarna Ásgeirssonar
bónda og alþingismanns á Reykjum
í Mosfellssveit og Ástu Jónsdóttur,
sem stofnaði og rak verslunina
Blóm og ávexti í Reykjavík. Elstur
systkinanna var Ásgeir, bóndi á
Reykjum, d. 1982, næstur var Jó-
hannes verkfráeðingur, þá Guðný
húsmóðir í Reykjavík, svo Ragn-
heiður, sem lést barn að aldri af
slysförum, og Jón Vigfús yngstur.
Á heimilinu ólust einnig upp frænka
þeirra, Ragnheiður Ásgeirs, og
Hrafnhildur Harðardóttir, fóstur-
dóttir ömmu og afa.
Jowi gekk í Menntaskólanp í
Reykjavík og seinna fór hann til
garðyrkjunáms í Bandaríkjunum.
Skólasystur hans úr MR hafa sagt
mér að hann hafi verið skemmtileg-
ur skólafélagi og mikið kvennagull.
Hann kvæntist frænku sinni,
Hansínu Margréti Bjarnadóttur frá
Húsavík, dóttur Bjarna Benedikts-
sonar, póstafgreiðslumanns á
Húsavík, og Þórdísar Ásgeirsdótt-
ur, systur Bjarna afa míns. Það var
gæfuspor. Þau Jowi og Haddý voru
ákaflega samrýnd og samstíga í
öllu sem þau tóku sér fyrir hendur.
Þegar Jowi tók við rekstri gróðr-
arstöðvarinnar á Reykjum, þar sem
Bjarni faðir hans hafði reist fyrsta
gróðurhús á Islandi 1923, unnu þau
hjónin saman sem einn maður, og
einnig seinna á kjúklingabúinu
Reykjagarði, sem þau ráku ásamt
fjölskyldu sinni.
Jowi og Haddý áttu barnaláni
að fagna,. Þau eignuðust fjögur
mannvænleg börn, þau Ástu hjúkr-
unarfræðing, Bjarna Ásgeir kjúkl-
ingabónda, Kristján Inga blóma-
skreytingamann og Baldur. Barna-
börnin voru Jovva mikil gleði, en
þau eru nú orðin tíu.
Það er óhætt að segja, að Jowi
hafí verið þeirrar hamingju aðnjót-
andi að fá að lifa og starfa með
sínum nánustu alla ævi, bæði í garð-
yrkjunni og búskapnum á Reykjum.
Hann var sá klettur, sem fjölskylda
hans gat alltaf reitt sig á. Annað
ljóð Bjarna afa míns, Söngur sáð-
mannsins, lýsir vel hugarfari og
afstöðu Jowa til landsins og sveit-
arinnar:
Ef ég mætti yrkja,
yrkja vildi eg jörð.
Sveit er sáðmanns kirkja,
sáning bænagjörð.
Vorsins söngvaseiður
sálmalögin hans.
Blómgar akurbreiður
blessun skaparans.
(Bjami Ásgeirsson.)
Reyndar á þetta ljóð vel við þá
föðurbræður mína báða, sem
bjuggu á Reykjum, þá Ásgeir og
Jowa, sem nú eru látnir um aldur
fram.
Jovvi var ákaflega vinnusamur
maður og man ég varla eftir honum
öðru vísi en vinnandi, þegar ég kom
að Reykjum. Hann var líka mjög
músíkalskur og söngmaður góður
og var söngurinn helsta áhugamál
hans. Ég man að ég heyrði í fyrsta
sinn djass spilaðan hjá þeim Jovva
og Haddý. Þau gáfu sér líka tíma
til ferðalaga og í einni af ferðum
sínum komu þau til Portúgals, þeg-
ar við Einar vorum þar við störf,
og var einstaklega skemmtilegt að
vera þar með þeim.
Undanfarið eitt og hálft ár hefur
samgangur fjölskyldna okkar verið
meiri en áður, því að Jowi sýndi
föður mínum einstaka umhyggju
og ræktarsemi í veikindum þeim
sem hann hefur átt í. Hana fáum
við seint þakkað.
Það er erfitt fyrir föður minn að
sjá á bak yngsta bróður sínum,
þessum Ijúfa og elskulega manni,
en með þeim var mjög kært. Við
kveðjum Jovva með söknuði og
trega og biðjum ástvinum hans
guðs blessunar á sorgarstundu.
Ásta R. Jóhannesdóttir
t
Eiginmaður minn, faöir, sonur og bróðir,
ÚLFAR ÞÓR AÐALSTEINSSOIM,
Suðurhólum 18,
Reykjavik,
varð bráðkvaddur 3. maí sl.
Útför hans ferfram frá Hafnarfjarðarkirkju ídag, 11.maí, kl. 13.30.
Sigríður Helga Sveri isdóttir,
Kristján Ari Ulfarsson,
Aðalsteinn Þórðarson,
Maria Aðalsteinsdóttir,
Þórstína Aðalsteinsdóttir,
Svanhvit Aðalsteinsdóttir.