Morgunblaðið - 11.05.1990, Qupperneq 38
38
MORGUNBLAÐID FÖSTUDAGUR 11. MAÍ 1990
GLUGGINN AUGLÝSIR
Vorum að taka upp í morgun peysur, blússur
og pils.
GLUGGINN,
Laugavegi 40, sími 12854.
fclk í
fréttum
K~
Dags. 11.5.1990
VAKORT
Númer eftirlýstra korta
4507 4300
4507 4500
4507 4500
4548 9000
4548 9000
4581 0960
0003 4784
0008 4274
0015 7880
0023 8743
0028 6346
3412 1589
Afgreiðslufólk vinsamlegast takið ofangreind kort
úr umferð og sendið VISA Islandi sundurklippt.
VERÐLAUN kr. 5000,-
fyrir að klófesta kort og vísa á vágest.
VISA ISLAND
K
Nú kemur
Mímisbar
skemmtilega
á óvart
^ I úerMímisbarinn líkakominn
Pfe | í nýju fötin. Misstu ekki af Mímisbar
I í hátíðarskapi. Láttu sjá þig á nýja staðnum
- og láttu þér ekki bregða!
Stefán og Hildur skemmta.
ODAUÐLEIKI
JR kominn
á striga
Breska listakonan Noni fékk á
dögnnum ósk inn á borð til sín
um að mála „frábæra" mynd af
Dallas-stjörnunni Larry Hagman,
öðru nafni JR Ewing. Það var Hag-
man sjálfur sem bað Noni um við-
vikið, hann hafði séð verk eftir
hana og greindi frá því að hann
hefði lengi gengið með þann draum
að verða ódauðlegur á striganum.
Noni og Hagman hittust fyrst í
matarboði í Lundúnum og tóku þau
tal saman. Varð Hagman forvitinn
er hann veiddi upp úr Noni að hún
gerði einstaklingsmyndir eftir pönt-
un og er hann hafði litið á nokkur
verka Noni var leitinni að lista-
manni þar með lokið. Noni segist
hafa orðið forviða er stjarnan bar
fram bón sína og það hefði tekið
sig nokkrar mínútur að átta sig á
því að Hagman væri alvara. En það
fór ekkert á milli mála og Hagman
skrapp nokkrum sinnum til Lund-
úna næstu vikur og sat fyrir í ljós-
myndastúdíói listamannsins. Mynd-
aði hún hann í bak og fyrir í ýmsum
bolum og skyrtum og var í svo
miklum vafa í hvernig klæðnaði
Dallas-kóngurinn ætti að vera á
myndinni að hún afréð að mála
tvær myndir og leyfa Hagman að
velja.
Á annarri var Hagman í hvítri
skyrtu með bindi og dæmigert JR-
glott, en á hinni heimilislegri í
Nehru-skyrtu líkt og hann klæðist
yfirleitt heima fyrir. Var hann svo
hrifínn að hann festi kaup á báðum
myndunum. Önnur hangir heima
fyrir í Malibu, en hin, sú með JR-
glottinu, hefur verið rituð inn í
Dallas-þættina og er þar sögð af-
sprengi hinnar nýju eiginkonu JR,
Önnur myndanna, JR Ewing
mættur til leiks.
Callie, sem leikin er af Cathy
Podewell. Noni var viðstödd upptök-
ur á Dallas er myndin var afhjúpuð
og sögð eftir listakonuna Callie
Ewing og sagðist hafa liðið undar-
lega. Og Cathy Podewell sagði að
hún hefði farið hjá sér að tala um
verkið sem sitt eigið, vitandi af list-
amanninum úti í sal.
Noni hefur síðar málað Maj, eig-
inkonu Hagmans, og er nú að af-
greiða Kenneth Kaunda forseta
Zambíu.
Larry Hagman og listakonan -
Noni, sem heitir annars fullu
nafni Oenone Acheson.
Morgunblaðið/Svavar B. Magnússon
Á „verðlaunapallinum með gullið", f.v.: Birgir Gunnarsson bátsmaður á Sigurbjörgu, Páll
Pétursson framkvæmdastjóri gæðaeftirlits Coldwater, Villyálmur Sigurðsson skipstjóri með skjöld-
inn og Friðþjófúr Jónsson stýrimaður.
GÆÐAFRAMLEIÐSLA
Sigurbjörg fékk g'ullið frá Coldwater
Frystitogarinn Sigurbjörg ÓF 1
fékk gæðaskjöld Coldwater
Seafood fyrir mikil gæði fram-
leiðsiunnar á síðasta ári. Páll Pét-
ursson, framkvæmdastjóri gæða-
eftirlits Coldwater í Bandaríkjun-
um, afhenti Vil hjálmi Sigurðssyni
skipstjóra skjöldinn við athöfn á
Ólafsfirði síðastliðinn mánudag.
Gæðaskjöldurinn er æðsta við-
urkenning sem Coldwater veitir
framleiðendum. Magnús Gamal-
íelsson hf. á Ólafsfírði gerir Sigur-
björgu út. Sigurgeir Magnússon.
framkæmdastjóri sagði ánægju-
legt að fá þessa viðurkenningu,
tilfínningin sé eins og að fá gull
í íþróttakeppni. Hann sagði að
stór hluti af framleiðslu Sigur-
bjargar í fyrra hefði farið á
Bandaríkjamarkað og því þætti
þeim viðurkenningin góð.