Morgunblaðið - 11.05.1990, Qupperneq 46
/46
MORGUNBLAÐIÐ IÞROTTIR FÖSTUDAGUR 11. MAÍ 1990
BLAK
Tap fyrir
^ >
Kýpur
Islenska landsliðið tapaði fyrir Kýp-
ur, 0:3, fyrsta leik sínum á smá-
þjóðaleikunum í blaki sem fram fara
á Möltu. Níu þjóðir taka þátt í leikun-
um og eru Islendingar í riðli með
Kýpur, Liechtenstein, Andorra og
Mónakó.
Kýpverjar byijuðu vel og unnu tvær
fyrstu hrinurnar 15:5. íslendingar
komust svo í 11:9 í þriðju hrinunni
^►on Kýpveijar gerðu síðustu sex stigin.
íslendingar voru seinir í gang og réðu
illa við uppgjafir Kýpveija, auk þess
sem hávaxinn miðjumaður þeirra kom
íslensku vörninni í vandræði.
Einar Þór Ásgeirsson var bestur í
liði Islands en aðrir voru nokkuð frá
sínu besta.
í dag mætir ísland San Marínó, á
morgun er svo leikið gegn Andorra
og Mónakó, en um sæti á sunnudag.
KNATTSPYRNA / LANDSLIÐIÐ
Sigurður Grétarsson
ekki með gegn Albaníu
Óvíst með Sigurð Jónsson og Guðmund Torfason
dag með félagi sínu í svissnesku
úrslitakeppninni. Hann segist
sjálfur vera tilbúinn til að koma
í leikinn en félagið vill ekki gefa
hann lausan þar sem Luzern á
möguleika á svissneska meistara-
titlinum annað árið í röð.
Þá er nokkuð Ijóst að Sigurður
Jónsson, sem leikur með Arse-
nal, verður ekki með en hann er
enn meiddur. Einnig er óvíst
hvort Guðmundur Torfason geti
leikið, en hann meiddist á æfingu
með liði sínu St. Mirren í síðustu
viku.
SIGURÐUR Grétarsson,
landsliðsmaður í knatt-
spyrnu sem leikur með Luz-
ern í Sviss, getur ekki leikið
með íslenska landsliðinu
sem mætir Albaníu í fyrsta
leik íslands í undankeppni
Evrópumótsins, sem fram
fer á laugardalsvelli 30.
maí.
Sigurður.sem hefur skrifað
undir samning við Grass-
hoppers Zúrich, á að leika sama
Sigurður Grétarsson.
KNATTSPYRNA / REYKJAVÍKURMÓTIÐ
KR-ingar meistar-
*ar þriðja árid í röð
Sjálfsmark á 116. mínútu réði úrslitum
KR-ingar urðu í gærkvöldi
Reykjavíkurmeistarar, þriðja
árið í röð, er þeir sigruðu Framara
í úrslitaleik, 2:1, eftir framlengdan
leik. Það er engu
SkúliUnnar líkara en að KR hafi
**Sveinsson gott tak á Fram í
skrifar úrslitaleikjum
Reykjavíkurmóts-
ins, því þetta er þriðja árið í röð
sem liðin leika til úrslita og hafa
KR-ingar ávallt borið hærri hlut.
Sigurmark KR-inga kom þegar
fjórar mínútur voru eftir af síðari
hálfleik framlengingarinnar. Björn
Rafnsson geystist þá upp vinstri
kantinn og þegar hann var kominn
vel inní vítateiginn sendi hann bolt-
ann fyrir markið, þar sem Pétur
Pétursson beið í ofvæni. Viðar Þor-
kelsson hugðist bjarga málunum en
ekki vildi betur til en svo að boltinn
fór af honum og öfugu megin við
^^stöngina, fyrir Framara. Viðar get-
^ur þó huggað sig við það að hefði
hann ekki tekið boltann, hefði Pétur
örugglega skorað. KR-ingar voru
svo nær því að bæta við marki á
síðustu mínútunum en Framarar
að jafna.
Leikurinn sjálfur var annars hinn
skemmtilegasti og lofar góðu fyrir
komandi íslandsmót. Framarar
voru óheppnir að skora ekki strax
í upphafi er KR-ingar björguðu á
línu frá Guðmundi Steinssyni, sem
náði boltanum eftir slæm mistök
markvarðar KR.
KR-ingar sóttu heldur meira í
fyrri hálfleik en Framarar gerðu
þó eina markið fyrir hlé. Guðmundi
Steinssyni var hrint innan vítateigs
og Pétur Ormslev skoraði örugg-
lega úr vítaspyrnu, sem fylgdi í
kjölfarið.
Dæmið snerist svo við í síðari
hálfleik, Framarar fengu færin en
KR-ingar skoruðu. Eftir að Jóni
Erlingi Ragnarssyni hafði mistekist
tvívegis fyrir opnu marki, skoraði
Björn Rafnsson jöfnunarmark KR
af stuttu færi, eftir góða sendingu
frá Pétri Péturssyni, fimm mínútum
fyrir leikslok. -Pétur var svo nálægt
því að gera annað mark KR en
Birkir Kristinsson varði skot hans
glæsilega.
Framlengingin var heldur rólegri
og menn farnir að gera ráð fyrir
vítaspyrnukeppni þegar sigurmark
KR kom.
Morgunblaðið/Einar Falur
Kristján Finnbogason, markvörður KR, grípur vel inní í leiknum i gær.
KR-ingurinn Arnar Arnarson reynir að láta lítið fara fyrir sér en Ríkharður
Daðason fylgist með.
ÍÞRÖmR
FOLX
■ IJÉÐINN Gilsson var á meðal
áhorfenda er Dusseldorf tapaði
fyrir Dormagen, 18:15, í keppni
um tvö sæti í úrvalsdeildinni
vestur-þýsku á mið-
FráJóni vikudagskvöld. Það
Halldóri er því ljóst að Héð-
Garðarssyni jnn iei^ur \ 2. deild
iÞyskalandi , ,, e
með Dusseldorí
næsta vetur. Úr 1. deild falla
Weiche-Handewitt og lið Bjarna
Guðmundssonar, Wanne-Eickel.
Schutterwald og Fredenbeck
leika í 1. deild næsta vetur.
■ MILBERTSHOFEN og Gross-
wallstadt leika til úrslita um
vestur-þýska meistaratitilinn í
handknattleik. Milbertshofen sigr-
aði Gummersbach, 19:13 og
Grosswallstadt sigraði Lemgo,
22:17 í undanúrslitum.
■ MICHAL Barda, markvörður
tékkneska landsliðsins í handknatt-
leik og Diisseldorf, hefur ákveðið
að hætta eftir þetta tímabil. Hann
verður framkvæmdastjóri Diissel-
dorf.
■ RÚDIGER Neitzel, fyrrum fé-
lagi Kristjáns Arasonar hjá Gum-
mersbach sem lék með Milberts-
hofen í vetur, er á leiðinni frá félag-
inu. Hann ætlar að slaka á og leika
með Niirnberg í 3. deild næsta
vetur.
■ MARTIN Schwalb, sem lék
með Alfireð Gíslasyni hjá Essen,
mun leika með Massenheim næsta
vetur.
■ GRAEME Souness, fram-
kvæmdastjóri Glasgow Rangers,
fær ekki að vera við hliðarlínuna
hjá liði sínu fyrr en haustið 1992.
Hann var upphaflega dæmdui' í eins
ár bann árið 1989 fyrir dólgslæti á
varamannabekknum og í fyrra var
bannið framlengt eftir að hann
hafði sést á bekknum. Það sama
gerðist í haust er sjónvarpsvélar
sýndu Souness við varamanna-
bekkinn þar sem hann kallaði til
leikmanna sinna. Bannið var því
framlengt um eitt ár, til vorsins
1992. Að auki fékk stjórinn hæstu
fjársekt sem einstaklingur hefur
verið dæmdur til að greiða, um
hálfa milljón króna.
■ RAGNAR Margeirsson og
Gunnar Oddsson léku ekki með
KR-ingum í gær í úrslitaleik
Reykjavíkurmótsins en segjast
verða tilbúnir í slaginn þegar ís-
landsmótið hefst. Fjarvera þeirra
virtist þó ekki há KR-ingum í gær.
Framarar eru ekki heldur á flæði-
skeri staddir hvað varðar leikmenn
en liðið notaði 15 leikmenn í leikn-
um í gær.
Morgunblaðiö/Einar Falur
Neeiii! Framarinn Viðar Þorkelsson ekki beint sáttur við tilveruna, eftir að
hafa gert sigurmark KR.
JUDO / EVROPUMEISTARAMOTIÐ
Sigurður Bergmann og Bjarni Friðriksson:
Töpuðu í undanúrslitum
Bjarni Friðriksson og Sigurður
Bergmann töpuðu glímum
sínum í undanúrslitum á Evrópu-
meistaramótinu í Frankfurt í gær.
Bjarni, sem keppir í -95 kg flokki,
tapaði fyrir Marc Meiling frá V-
Þýskalandi á yuko og Sigut'ður
Bergmann beið lægri hlut fyrir
Belganum Harry van Barneveld í
+95 kg flokki á ippon. Halldór
Ilafsteinsson keppti í -86 kg flokki
en tapaði í fyrstu umferð.
Hákon Örn Hafsteinsson, form-
aður Júdósambands Islands, sagði
árangur Bjarna og Sigurðar var
mjög góður enda allir sterkustu
júdómenn Evrópu mættir til leiks.
Þeir eiga enn möguleika á brons-
verðlaunum, gangi þeim vel í upp-
reisnarglímum sínum.
í dag keppir Bjarni í opnum
flokki en á morgun fara fram upp-
reisnarglímur í þyngdarflokkunum.
KORFUKNATTLEIKUR
KK-ingar i cvropukeppm
ÚRSUT
Knattspyrna
Reykjavíkurmótið, úrslitaleikur
KR-Fram.....................2:1
Björn Rafnsson 85. Viðar Þorkelsson
(sjálfsm.) 116. — Pétur Ormslev (vsp) 43.
Áhorfendur: 1.145.
Körfuknattleikur
Úrslitakeppni NBA-deildarinnar
Austurileild, 2. umferð:
Chicago Bulls—Philadelphia.101: 96
-^eChicago er yfir, 2:0, en fjóra sigra þarf til
að komast áfram.
Islandsmeistarar KR í hafa
ákveðið að taka þátt í Evrópu-
keppni meistaraliða í körfuknatt-
leik næsta vetur. Njarðvík á rétt
til að keppa í Evrópukeppni bikar-
hafa og ÍBK í keppni félagsliða
en félögin hafa ekki tekið ákvörð-
un um þátttöku.
KR-ingar náðu mjög góðum
árangri í Evrópukeppninni í fyrra.
Liðið sló út enska liðið Hemel
Hempstead í 1. umferð en tapaði
fyrir franska liðinu Orthez í ann-
arri umferð.
Páll Kolbeinsson, nýráðinn
þjálfari KR, sagði það mjög mikil-
vægt fyrir liðið að taka þátt í
Evrópukeppni. Reynslan væri
mikilvæg og sjálfsagt að fylgja
eftir góðum árangri síðasta vetr-
ar.
GOLF
LEK-mót í
Grindavík
Opið öldungamót í golfi fer fram
á sunnudaginn í Grindavík.
Tímapantanir eru í golfskála frá
kl. 15-17 á morgun en ræst verður
út frá kl. 9 á sunnudag.