Morgunblaðið - 13.05.1990, Page 2
2 C
MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 13. MAÍ 1990
KEIIJUSUUMORDIN
f ROSTR RÍKU
Ósnortinn regnskógur.
Úr þokuskóginum í Monteverde.
regnskógaijaðrinum.
árangur, einfaldlega vegna þess að,
þjóðgarðarnir verði arðbærari en
nautakjötið.
U mhverfísferðamennska
Kosta Ríka er í fararbroddi í því
sem nefna mætti umhverfísferða-
mennsku. Ferðamannaiðnaðurinn
er nú önnur eða þriðja helsta tekju-
lind landsins og margir spá því að
hann verði innan skamms arðbær-
ari en kaffi, sem er helsta útflutn-
ingsvaran. íbúar norðurhvels sem
hafa vaxandi áhuga á eyðingu regn-
skóganna koma til landsins til að
skoða þessi undur áður en það er
um seinan — og kannski að liggja
á strönd í leiðinni.
Manuel Antonio-þjóðgarðurinn
er gott dæmi um hvernig náttúru-
vernd og ferðamannaiðnaður geta
farið vel saman. Þar er hægt að
synda í ylvolgu Kyrrahafinu í skjóli
fyrir úthafsöldunni og liggja á hvít-
um sandi undir pálmatrjám. Allt í
kring eru skógivaxnar hæðir með
vel merktum göngustígum, ólíkt
geðslegra umhverfi en olíupálmarn-
ir allt í kring um þjóðgarðinn. Þeim
Regnskógar hitabeltisins
eru taldirvera heim-
ili yfir helmings allra
dýra- og jurtategunda
jarðarinnar. Þeír hafa
dafnað og þróast í
tugmilljónir óra ó meðan ísaldar-
jöklar hafa reglulega lagt dauða
hönd ó tempruðu löndin ó norð-
ur- og suðurhveli. Regnskógarnir
hafa verið líftrygging jarðarinnar
og helsta orkuver þróunarinnar,
þangað sem meðal annars maður-
inn ó ættir sínar að rekja.
Ef við eyðum þessum fóstur-
stöðvum okkar - sem tæki um
40 ór miðað við núverandi af-
köst - myndum við ekki einung-
is valda stórkostlegri röskun ó
gróðurfari, veðurfari og vatnabú-
skap jarðarinnar með ófyrirsjóan-
legum afleiðingum. Við hefðum
valdið aldauða milljóna lífsforma,
sem væri umfangsmeiri en þegar
risaeðlurnar dóu út og væri eitt
versta ófall sem lífið ó jörðinni
hefði nokkru sinni orðið fyrir í
þriggja milljarða óra sögu sinni.
Frá frumskógi til eyðimerkur .
Kosta Ríka var regnskógi vaxin
milli fjalls og fjöru þegar fyrstu
Evrópumennirnir komu þangað fyr-
ir nærri 500 árum. Þrátt fyrir að
hart hafi verið gengið á-hann býr
þetta litla land — sem er um helm-
ingur íslánds að stærð — yfir fjöl-
breyttara dýra- og jurtalífí en flest
önnur svæði á jörðinni. A nesi á
stærð við hálfan Reykjanesskagan'n
er að finna fleiri fuglategundir en
í Bandaríkjunum og Kanada sam-
anlagt.
Eyðingin er alis staðar sjáanleg
þegar ferðast er um fjöllótt landið.
Skógartætlur hanga í hæðum og
hlíðum, ekki ósvipað og í Þórsmörk,
þó að bæði landslagið og gróðurfar-
ið sé stærra í sniðum. í hæðar-
hryggjunum sést í moldarbrúna
kviku landsins, sem verður roföflun-
um auðveld bráð þegar hlíf tijánna
nýtur ekki lengur við. Beitilandið
rýrnar á örfáum árum og því verð-
ur sífellt að ganga á skóginn. Að
vísu er hægt að Iengja nýtingartíma
landsins í nokkur ár með sífellt
Bölvaldurinn. Beljur á beit í
stærri skammti af tilbúnum áburði,
en ofnotkun á honum hefur drepið
líf í mörgum ám og vötnum og
eyðilagt flest eða öll kóralrif undan
ströndum landsins.
Kosta Ríku-búar eru farnir að
gera sér grein fyrir að skógareyð-
ingin er orðin meira böl en blessun.
Um 11% landsins hafa nú verið
tekin frá sem þjóðgarðar og um
fjórðungur þess nýtur einhvers kon-
ar verndar. Þetta er nærri því að
vera einsdæmi í heiminum.
Eyðingin heldur áfram utan
verndarsvæðanna, en þess hefur
verið gætt að hvert eitt af hinum
fjölbreytilegu vistkerfum landsins
sé varðveitt. Ef í harðbakkann slær
ættu þjóðgarðarnir að minnsta
kosti að verða lifandi „söfn“ um
veröld sem var, eins og Bæjarstaða-
skógur er sýnishorn af óskemmdu
íslandi. Chris Wille, bandarískur
blaðamaður og umhverfísverndar-
sinni, sem nú býr á Kosta Ríku,
telur að nautgripaeigendur muni
þrýsta á að fá að félla verndaðan
skóg eftir fimm ár eða svo. Það
muni hins vegar líklega bera lítinn
McDonalds í miðborg San José.
Eru hamborgararnir ógnun við lífkeðju jarðarinnar?
I
sem leiðist hefðbundinn strandlifn-
aður til lengdar geta valsað þar um
og skoðað dýra- og jurtalíf staðar-
ins, sem er sannkallað undur.
Stórvaxnar ígúana-eðlur baka
sig í sólinni á ströndinni eða bíta
lauf uppi í tijánum. Þolinmóðir nátt-
úruskoðendur sitja hjá blómum í
von um að sjá kólibrífugla og fiðr-
ildi í návígi. Vinsælastir allra eru
samt aparnir, sem eru óhræddir við
frændur sína og þiggja jafnvel var-
færnislega ávexti úr höndum
þeirra. Strandgestir flykkjast að
tijánum þegar apahópar fara hjá
til að fylgjast með ótrúlegri. fími
þeirra þegar þeir sveifla sér milli
greina með fjórum höndum og gri-
prófu. Hvíthöfða-apar eru líka ein-
staklega greindarlegar skepnur, og
maður spyr sig ósjálfrátt hver sé
að fylgjast með hveijum þegar
maður horfist í augu við þá.
Sænsk börn kaupa regnskóg
Það er auðvelt að skilja hvers
vegna sólþyrstir norðurhvelsbúar
koma til Manuel Antonio, en frið-
landið í Monteverde, eða Græna-
fjalli, dregur að sér annars konar
.ferðamenn. í Monteverde er að
finna svokallaðan skýjaskóg, eða
þokuskóg, en aðeins eru fimm slík-
ir verndaðir í heiminum og er
Monteverde talinn best varðveitti
og aðgengilegasti af þeim öllum.
Skógurinn er í 1500-1800 metra
hæð, í fjallshryggjunum sem skilja
að vatnasvæði Antlants- og Kyrra-
hafsins. Atlantshafsmegin og áveð-
urs hangir eilíft ský sem vökvar
skóginn með fínum úða, en hinum
megin er þurrara og sólríkara.
Þokuskógurinn er undarleg ver-
öld, og það er auðvelt að ímynda
sér að hann hafi lítið breyst frá því
að risaeðlurnar réðu ríkjum. Allir
tijábolir eru þaktir grænum mosa
og sníkjuplöntum, og sumir eru
umluktir vafningsviði eins og kyrki-
fíkjunni, sem klifrar upp eftir stofn-
inum, breiðir úr sér þegar hún nær
upp í Ijósið og drepur stoðtréð að
lokum. Risaburknar og aðrar ljós-
fælnar plöntur una sér vel fyrir
neðan laufkrónur tijánna.
Það er erfiðara að sjá en heyra
dýralífið í þokunni, en það dregur
samt ekki úr áhuga hinna fjölmörgu
fuglaskoðara, sem þramma um með
kíki og reyna að bera kennsl á ein-
hveija af hinum 320 tegundum
staðarins. Draumurinn er að sjá
Quetzal-fuglinn, sem Aztekar töldu
heilagan, og margir telja fegursta
fugl Ameríku. Hann er skærgrænn
með eldrauða bringu og hálfs metra
langar stélfjaðrir til skrauts, og er
orðinn svo sjaldgæfur að aðeins eru
tveir stórir stofnar eftir; í Monte-
verde og á fjalli einu í Guatemala.
Monteverde var óþekktur sem
ferðamannastaður fyrir nokkrum
árum, en nú heimsækja 20.000
manns staðinn árlega og fer fjöldi
þeirra ört vaxandi. Friðlandið er
líka frábært dæmi um hvað sam-
vinna innfæddra og erlendra nátt-
úruverndarmanna, og alþjóðlegt
átak geta verið árangursrík. i
Stærstur hluti friðlandsins hefur i
verið keyptur af nautgripabændum
fyrir fé sem hefur verið aflað með
söfnunum í Bandaríkjunum og Evr-
ópu. Ekra lands kostar 60 dollara
— eða um 3.600 krónur — og fá
„eigendur" skjal í hendur til stað-
festingar kaupunum, en þeir fela
síðan náttúruverndarsamtökum að
sjá um vernd og rekstur svæðisins.
Hluti af Monteverde hefur verið
nefndur „regnskógur barnanna",
þar sem hann var keyptur fyrir fé
sem skólabörn í Svíþjóð söfnuðu og
sendu til Kosta Ríku.
Ávextir og eðluborgarar
Slík viðleitni er virðingarverð, en
hún leysir þó varla allan vanda
regnskóganna. íbúar þriðja heims
Ianda hitabeltisins verða að reyna
að finna leiðir til að nýta auðlindir
regnskóganna á hagkvæman hátt.
Rannsóknir hafa Ieitt í Ijós að vel
nýttur regnskógur getur gefið af
sér allt að tvöfalt meira verðmæti
en nautgripir af beitilandi, með því
að rækta þar ávexti og hnetur og
nýta harðviðar- og gúmmítré. Það
mun hins vegar væntanlega taka
einhvern tíma að hrinda ,slíkum
búskap í framkvæmd í stórum stíl
og á meðan mun skyndigróðasjón-
armið skyndibitaiðnaðarins verða
ofan á.
Nautgriparækt er fimmti arð-
bærasti atvinnuvegurinn í Kosta
Ríku, en hún er gífurlega landfrek.
Tæpar 3 milljónir nautgripa bíta
yfir þriðjung landsins. Frjósamasti
jarðvegurinn — sem fær reglulega
steinefna„vökvun“ frá átta virkum
eldfjöllum — hefur fyrir löngu verið
tekinn frá fyrir kaffi- og banana-
rækt, og því hafa nautabændur
fárra kosta völ en að ryðja nýjan
s