Morgunblaðið - 13.05.1990, Blaðsíða 11
MORGUNBLAÐIÐ MINNINGAR SUNNUDAGUR 13. MAÍ 1990
C 11
Sigursveinn D. Kristinsson
og frænku í Reykjavík og dvaldi um
tíma. Tónskólinn var þá á þriðja
ári. Þar kynntist ég samstarfsmönn-
um frænda og samheijum, m.a.
Gunnari H. Jónssyni, Þorsteini
Valdimarssyni og Hallgrími Jakobs-
syni, sem komu oft í heimsókn.
Þegar ég lít til baka er þessi tími
í hugskoti mér sem ijarlægur og
litríkur hljómur, eitthvað sem maður
upplifir og býr að alla ævi.
Hvað er að segja um samband
okkar frænda? Því er vandsvarað.
Sigursveinn var kennari minn, jafn-
framt sem faðir og var afar kröfu-
harður. Þó gerði hann mestar kröfur
til sjálfs sín. Hann var félagi minn
eins og allra annarra nemenda sinna
og um leið hinn besti samstarfsmað-
ur.
Sigursveinn og Ólöf voru okkur
Sigrúnu og dætrum okkar sem bestu
foreldrar.
Það skarð sem rofið er verður
ekki fyllt en verkinu, sem hafið er,
skal haldið áfram.
Þorsteinn Valdimarsson ritar
formála íslandsljóða. Þar er að finna
inntak í lífsspeki frænda míns.
„Sönglíf er skuggsjá þjóðlífs. Rati
þjóðin í ánauð, hljóðnar harpan;
bijóti hún af sér ok, þá syngur hún
sigurljóð; lifi hún fijáls í landi, þá
hvelfist hvert þak af söng.“
„Sönglíf er aflvaki þjóðlífs. Af
strengjum hörpunnar stökkva
gneistar frelsisins. Fyrir mætti sig-
ursöngvanna brestur okið. Ráði
söngurinn ríkjum mun þjóðin ráða
landi.“
Sigursveinn Kristinn Magnússon
Nú er vinur minn, eldhuginn Sig-
ursveinn D. Kristinsson, látinn.
Hann var ekki venjulegur maður.
Hann var maður mikilla hugsjóna
og hafði atorku, ákveðni og vilja-,
festu til að koma þeim í fram-
kvæmd. Við Sigursveinn voru lengi
nágrannar og við börnin í hverfinu
dógumst að manninum sem ók á
sérkennilega „hjólabílnum". Það var
ekki bara vegna þess að „hjólabíll-
inn“, eins og við kölluðum hann,
vakti athygli okkar, heldur ekki síður
vegna þess að Sigursveinn hafði
gaman af börnum og bar virðingu
fyrir þeim sem einstaklingum.
Hann átti sér marga drauma,
m.a. um betra og réttlátara þjóðfé-
lag, um aukin réttindi fatlaðra og
að allir sem vildu gætu kynnst tón-
listinni. En Sigursveinn lét sér ekki
nægja að dreyma. Hann fram-
kvæmdi. Hann tók þátt í pólitíkinni
af lífi og sál, hann stofnaði fyrsta
félag fatlaðra, Sjálfsbjörgu á Siglu-
firði, sem óx síðar í fjöldahreyfingu
um allt land. Hann stofnaði Tón-
skóla Sigursveins D. Kristinssonar
sem í dag er fjölmennasti tónlistar-
skóli landsins. Já, Sigursveinn var
enginn venjulegur maður.
Um daginn, er ég var stödd í hin-
um nýju og fallegu húsakynnum
Tónskólans, þá varð mér hugsað til
upphafsára skólans og hve gífurleg-
ar breytingar væru á aðstæðum nú
og þegar ég hóf störf við skólann
fyrir rúmum 20 árum. Þá leigði skól-
inn eitt herbergi úti í bæ sem var
notað til kennslu. Annars fór kennsl-
an fram heima hjá okkur kennurun-
um. Nú á skólinn tvö hús, eitt í
miðborginni og annað i barnahverf-
inu Breiðholti. Já, breytingin er
gífurleg. Leiðin var oft grýtt og erf-
ið yfirferðar. En Sigursveinn var
ekki maður uppgjafar. Hann beitti
sínum mikla viljastyrk og að manni
fannst oft, óþijótandi lífsorku til að
yfirstíga allar hindranir. Nu er
kraftaverkamaðurinn horfinn sjón-
um okkar en verk hans munu lifa.
Ég votta öllum aðstandendum
þessa mæta manns samúð mína.
Brynja Guttormsdóttir
Það var sólbjartur sumardagur
9. júní 1958, þegar nokkrir áhuga-
menn komu saman í Gránugötu 14
í þeim tilgangi að stofna með sér
félag, fyrsta Sjálfsbjargarfélagið á
íslandi. Frumkvöðull að mótun fé-
lagsins var Sigursveinn D. Kristins-
son, sem á þessum tíma var skóla-
stjóri Tónskóla Sigluíjarðav.
Við, sem þarna vorum mætt þenn-
an undurfagra júnídag, ætluðum þó
ekki að flytja tónverk í hefðbundnum
skilningi heldur að skapa óð til
lífsins, láta hörpuhljóma heyrast
víðsvegar sem boðbera þess tíma,
þegar fatlað fólk vaknaði af al-
dagömlum svefni, og gera það með-
vitað um tilveru sína og réttarstöðu
í mannlegu samfélagi.
Allt þetta hafði Sigursveinn skynj-
að öðrum betur og bauð nú fram
þekkingu sína og reynslu öðrum til
velfarnaðar.
Sigursveinn var mikill eldhugi að
hveiju sem hann gekk. Aðstöðuleysi
fatlaðra hafði lengi brunnið á honum
sjálfum, enda fann hann best hvar
skórinn kreppti.
Fyrir tilstilli þessa hugsjóna-
manns, var grunnurinn lagður að
víðtækri starfsemi fatlaðra um allt
land. Samtök þessi hafa frá önd-
verðu leitast við að bæta möguleika
fatlaðra til að lifa lífínu lifandi,
skapa þeim jafnrétti til menntunar,
atvinnu og félagsmálastarfsemi.
Við sem tókum þátt í þessari sköp-
un og hlýddum á hvatningarorð Sig-
ursveins, munum aldrei gleyma þeim
hughrifum, sem þau ollu.
Fyrir þessar stundir og ótalmarg-
ar aðrar gegnum árin, ber okkur að
þakka nú, þegar Sigursveinn er all-
ur.
Við minnumst hans best, með því
að vera trú þeirri hugsjón sem held-
ur merki hans í framfara- og félags-
málum hæst á lofti, svo harpan
megi hljóma með „hreinum tón“ um
alla framtíð.
Blessuð sé minning Sigursveins
D. Kristinssonar.
F.h. Sjálfsbjargarfélaganna á
Siglufírði,
Hulda Steinsdóttir
Þegar Sigursveinn er nú borinn
til moldar, þyrlast upp margar minn-
ingar frá áratuga samfylgd — raun-
ar samfylgd frá blautu barnsbeini í
eiginlegustu merkingu.
Ef til vill er ekki einungis verið
að kveðja Sigursvein í dag, heldur
mjög merkilegt tímabil í íslandssög-
unni. Tímabil þar sem sveit hug-
sjónamanna setti svip sinn á þjóðlíf-
ið allt.
Sigursveinn var einn þessara hug-
sjónamanna. í köldu stríði lagði hann
á borð með sér borgaralegan frama.
Þegar kollegar hans komu sér upp
konungsríki og litu ætíð til beggja
átta í kontrapúnkti lífsins og auð-
guðu umhverfið raunar á margan
hátt og fengu svo konunglega blys-
för að lokum,- þá fór Sigursveinn
aðra leið. Sigursveinn leit aldrei til
baka og sjaldan til hliðar. Hann var
brautryðjandi frá upphafi til enda.
Frá blautu barnsbeini sagði ég. í
Flókadalnum voru engin barnaheim-
ili. Þar voru börnin sett út á hlapvar-
pann. Og síðan sungu fuglarnir fyr-
ir þau. I óljósri minningu voru tveir
skríðandi á hlaðvarpanum á Kraka-
völlum. Krumminn á höndum og
fótum. Sigursveinn á höndunum ein-
um.
Svo undarlegt sem það er, að
nokkrum áratugum síðar, þegar ég
lenti í því að fatlast og fara að vinna
í samtökum fatlaðra og kynnast
mörgum minum bestu vinum í Sjálfs-
björg, þá rann fyrst upp fyrir mér
sú staðreynd að Sigursveinn væri
fatlaður. Þetta er víst kallað intergr-
ering eða blöndun núna.
Sigursveinn leit aldrei til baka og
sjaldan til hliðar. Mér er nær að
halda að á áðurnefndum hlaðvarpa
á Krakavöllum hafí kviknað á hinum
rauða loga. Líklega áttu húslestrar
Sæmundar gamla Dúasonar þar hlut
að máli en um áratuga skeið var
lesið fyrir heimilisfólk úr veraldar-
sögu H.G. Wells og öðrum slíkum
bókmenntum. Kommúnistaávarpið
kom hins vegar ekki inn á þetta
heimili fyrr en í miðri síðari heims-
styijöld.
Kannski er það tímanna tákn að
nú eru hugsjónamennirnir að deyja
einn af öðrum. Þessir menn lögðu
allt í sölurnar. En sagan er skrítin
skepna. Kannski tekur hún upp á
því einn dag að opinbera þann sann-
leika að við erum þrátt fyrir allt að
jarða konung í dag.
Hrafii Sæmundsson
„Byijun sólmánaðar. Skollasálin
var ennþá alhvít og Skútudalurinn,
en klettapeysan hægra megin á hóls-
hyrnunni var svört með hvítum rönd-
um. Suðrið andaði þýðvindum og
þegar sólin skein á klettana roðnuðu
þeir strax á vangann. Tveir menn
hittust í góðviðrinu á tröppunum við
Gránugötu 14, annar handarvana,
hinn með bilaða fætur. Þeir ræddu
um það, hvort ekki væri hægt að
koma á fót samtökum til þess að
beijast fyrir réttindum fatlaðs
fólks.“ Þannig reit eldhuginn og
baráttumaðurinn Sigursveinn D.
Kristinsson í fyrsta tölublaði ársrits
Sjálfsbjargar, landssambands fatl-
aðra árið 1959.
Sigursveinn var einn af frum-
kvöðlum að stofnun Sjálfsbjargarfé-
laganna hérlendis og gekkst fyrir
stofnun fjögurra þeirra fyrstu. Með
Sigursveini er genginn einn skelegg-
asti baráttumaður fyrir réttindum
fatlaðra hérlendis. Sigursveinn hvik-
aði aldrei né sofnaði á verðinum.
Hann stefndi ótrauður að settu
marki og þegar réttindamál fatlaðra
bar á góma þá neistaði af eldhugan-
um. Það var ekki einasta í ræðu og
riti sem Sigursveinn barðist fyrir
málefnum Sjálfsbjargar heldur einn-
ig með list sinni. Eins og alkunna
er var Sigursveinn tónskáld gott og
mikill hljómlistarmaður. Sigursveinn
samdi fyrir Sjálfsbjörgu söng Sjálfs-
bjargar sem á táknrænan hátt lýsir
í tali og tónum þýðingu baráttu
Sjálfsbjargarfélaganna fyrir fatlaða.
Við Sjálfsbjargarfélagar minnumst
Sigursveins m.a.-frá þingum okkar
sem hann sat langflest og stýrði
gjarnan. Þar tókst hor.um á undra-
verðan hátt, með lipurð sinni og
krafti að ná þeim árangri sem þurfti
að vekja baráttuglóð og anda í hug-
um félaga sinna. Sigursveinn vann
geysimikið og óeigingjarnt starf í
þágu Sjálfsbjargar og hefur það
reynst Sjálfsbjörg ómetanlegur
styrkur að eiga slíkan félaga til að
plægja akurinn. Við Sjálfsbjargarfé-
lagar munum halda áfram að sá í
þennan akur sem hann og aðrir
frumkvöðlar Sjálfsbjargar hafa
plægt. Á þann hátt heiðrum við best
minningu þeirra.
Sjálfsbjörg, landssamband fatl-
aðra, vottar syni Sigursveins og öðr-
um aðstandendum dýpstu samúð.
Jóhann Pétur Sveinsson,
formaður Sjálfebjargar,
landssambands fatlaðra.
Kveðja frá Samtökum Tón-
listar skólastj óra
Mánudaginn 14. maí verður til
moldar borinn einn af stofnendum
Samtaka Tónlistarskólastjóra, Sig-
ursveinn D. Kristinsson. Hans verð-
ur minnst sem eins ötulasta áhuga-
manns um uppbyggingu tónlistar-
menntunar á Islandi. Um áratuga
skeið starfaði hann að tónlistar-
kennslu og rak einnig tónlistarskóla,
fyrst á Siglufirði en síðan í
Reykjavík.
Tónskóli Sigursveins er í dag einn
stærsti tónlistarskóli landsins og
mun halda á lofti minningunni um
stofnanda sinn. Sigursveinn var
mjög virkur í félagsstörfum og fyrir
u.þ.b. tuttugu árum stofnaði hann
Samtök Tónlistarskólastjóra ásamt
nokkrum öðrum skólastjórum og sat
í stjórn samtakanna í mörg ár. Sam-
tökin eiga Sigursveini mikið að
þakka því að án þeirra væri hið
öfluga starf sem í dag fer fram i
tónlistarskólum landsins ekki svipur
hjá sjón. Hinn mikli áhugi hans á
eflingu tónlistarlífs í landinu er okk-
ur öllum, sem að tónlistariðkun og
kennslu stöndum, til eftirbreytni.
Fyrir hönd Samtaka tónlistar-
skólastjóra sendi ég aðstandendum
öllum samúðarkveðjur. Blessuð sé
minning Sigursveins D. Kristinsson-
ar.
F.h. stjórnar STS,
Lárus Sveinsson,
Einn elsti félagi okkar, Sigur-
sveinn D.' Kristinsson, er látinn.
Hann tók mjög virkan þátt í félags-
starfi í Tónskáldafélaginu á sjötta
og sjöunda áratugnum og er þess
minnst með þakklæti. Sigursveinn
var baráttumaður af guðs náð, bar-
áttumaður fyrir betra lífi öllum til
handa og hann trúði að tónlistin
væri öflugt vopn í því stríði. Þess
vegna stofnaði hann Alþýðukórinn
og Lúðrasveit verkalýðsins á sínum
tíma og þess vegna byggði hann upp
Tónskólann eftir sósíalískri fyrir-
mynd. Sá sem þessar fátæklegu
línur ritar minnist Sigursveins frá
þeim árum þegar baslið var mest
og bjartsýnin og vongleði í hjörtum.
Það var þegar Sinfóníuhljómsveitin
var í burðarliðnum og menn
dreymdu stóra drauma um Tónlist-
arhöll, Óperu og tónlistarmenntun
öllum til handa. Þá vorum við í Tón-
listarskólanum báðir, ég um ferm-
ingu, Sigursveinn talsvert á fertugs-
aldri. Meistari okkar var Björn ðl-
afsson fíðluleikarinn ógleymanlegi,
sem var óþreytandi að kenna okkur
Bach og Beethoven, að ógleymdum
Handel og Corelli í nemendahljóm-
sveitinni. Sigursveinn þurfti að ferð-
ast í hjólastól og hann var háður
annarra hjálp í tröppum og stigum.
En hann lét sig aldrei vanta á æfing-
ar og það leiftraði af honum þegar
hann handlék fíðluna í fallegustu
köflunum.
Frá þessum árum eru fyrstu
tónsmíðar Sigursveins. Ég minnist
helst Duo fyrir fiðlu og víólu, sem
við lékum saman, og ýmissa til-
brigða fyrir fíðlu og píanó, sem voru
skemmtileg. En merkilegustu smíðar
hans á þessum árum voru þó líklega
frumsamin lög fyrir Alþýðukórinn
og ótal vandaðar útsetningar, ekki
síst á íslenskum þjóðlögum og bar-
áttusöngvum. Löngu seinna, þegar
Sigursveinn hafði lokið námi í
austur-þýska alþýðulýðveldinu,
komu Draumur vetrarijúpunnar og
Greniskógurinn og margt annað fyr-
ir hljómsveit og kóra, og eiga þau
verk eflaust eftir að halda nafni
hans á lofti um langa hríð.
Við í Tónskáldafélagi Íslands
munum ætíð minnast Sigursveins
sem góðs félaga og þó stundum
slægi í snarpar brýnur um stefnur
og strauma, bæði í list og lífi, þá
var það aðeins til að efla samstöð-
una um það sem máli skiptir.
F.h. stjórnar Tónskáldafélags
íslands
Leifúr Þórarinsson ritari.
Sá maður 'sem fyrst og fremst
stóð fyrir stofnun Sjálfsbjargarfé-
laganna var Sigursveinn D. Kristins-
son. Sjálfur var hann mikið fatlað-
ur. Hann fékk mænuveikina aðeins
13 ára gamall og lamaðist í báðum
fótum og var síðan bundinn hjóla-
stól og hafði því kynnst því af eigin
raun að vera mikið fatlaður.
Það var fyrir tæpum 32 árum sem
ég kynntist Sigursveini. Hann var
þá búinn að hafa samband vestur á
Isafjörð og nokkrir fatlaðir einstakl-
ingar höfðu undirbúið komu hans
og stofnun félags fatlaðra.
Það var kalsa veður daginn sem
hann kom. Gekk á rneð éljum og
vafasamt með flug til ísafjarðar og
líka vafasamt hvort Sigursveinn,
svona mikið fatlaður maður, legði í
að koma vestur. Þá voru að sjálf-
sögðu allt aðrar aðstæður fyrir flug-
ið, en eru í dag. Þegar „Katalínan"
gamla lenti á Pollinum á ísafirði
vorum við nokkur mætt á Bæjar-
bryggjuijni tii að taka á móti Sigur-
sveini. Allir farþegarnir, að undan-
skildum einum, flýttu sér úr
„snurpubátnum“ upp á bryggjuna.
Þessi eini sem sat eftir hlaut að
vera okkar maður og það reyndist
svo. Sigursveinn var kominn vestur.
Hann var svo borinn upp á bryggju
og í bíl og beint heim til Ingu Magn-
úsdóttur. Það var svo gengið frá
lokaundirbúningi að stofnun félags-
ins, og stofnfundur haldinn kvöldið
29. september 1958, í einni kennslu-
stofu Barnaskólans.
Þessi stutta frásaga var eitt lítið
dæmi um dugnað og áræði Sigur-
sveins. Hann var eldhugi og mikill
baráttumaður fyrir bættum kjörum
fatlaðra, sem þá voru allt önnur en
eru í dag, og fatiaðir lifðu við mjög
slæm kjör og lítil félagsleg réttindi.
Hann var talsmaður þeirra sem höll-
um fæti stóðu í lífsbaráttunni. Því
fengum við að kynnast, sem störfuð-
um með honum að málefnum Sjálfs-
bjargar frá upphafi og allt til ársins
1986. Hann stjórnaði öllum þingum
samtakanna frá stofnþinginu 1959
til þingsins 1986.
Áf sama dugnaði stofnaði hann
Tónskóla Sigursveins, en hann var
vel menntaður tónlistarmaður og
naut virðingar á þeim vettvangi sem
ég fer ekki nánar útí hér. Það gerir
ábyggilega einhver sem þekkir enn
betur til.
Sigursveinn var varaformaður
landssambandsins 1959-1982. Hann
átti sæti í stjórn Öryrkjabandalags-
ins og gegndi margháttuðum trún-
aðarstörfum fyrir Sjálfsbjörg.
• Eiginkona Sigursveins var Ólöf
Grímea Þorláksdóttir, en hún lést
1988.
Störf Sigursveins fyrir Sjálfsbjörg
eru ómetanleg. Hann stofnaði sam-
tökin og sá þau verða að því afli,
sem haft hefur veruleg áhrif á bætt
lífskjör fatlaðra i landinu.
Við Sjálfsbjargarfélagar kveðjum
einn af forystumönnum okkar.
Minningin um góðan félaga, eldhuga
og baráttumann lifir.
Ég votta syni og stjúpsyni Sigur-
sveins og öðrum ættingjum hans
dýpstu samúð.
Trausti Sigurlaugsson
+
Móðir okkar, tengdamóðir, amma og langamma,
SIGURBJÖRG ÞORLÁKSDÓTTIR,
áður til heimilis f Lönguhlfð 3,
sem lést á hjúkrunarheimilinu Skjóli laugardaginn 5. maí sl., verð-
ur jarðsungin frá Fossvogskapellu miðvikudaginn 16. maíkl. 13.30.
Sigríður Kristinsdóttir, Sigurður E. Sigurðsson,
Helga Kristinsdóttir, Jón Sigurvin Sigmundsson,
barnabörn og barnabarnabörn.
Lokað
Vegna jarðarfarar SIGURSVEINS D. KRISTINS-
SONAR verður dagvist Sjálfsbjargar, Hátúni 12,
lokuð mánudaginn 14. maí.
Sjálfsbjörg,
landssamband fatlaðra.
Lokað
Vegna jarðarfarar SIGURSVEINS D. KRISTINS-
SONAR verða skrifstofur, endurhæfingardeild,
sundlaug og baðstofa Sjálfsbjargar í Hátúni 12
lokaðar mánudaginn 14. maí frá kl. 12.00.
Sjálfsbjörg,
landssamband fatlaðra,
Sjálfsbjörg, félag fatlaðra
í Reykjavík og nágrenni.