Morgunblaðið - 13.05.1990, Blaðsíða 12
12 C
MORGUNBLAÐIÐ MANNLIFSSTRAUMAR SUNNUDAGUR 13. MAÍ 1990
LÆKNISFRÆÐI / L/ sjávardrífan
köld?
Röntgen og nób
elsverölaunin
SÆNSKI uppfinningamaðurinn
og dínamít-auðkýfingurinn
Alfred Nobel mælti svo fyrir i
erfðaskrá sem hann lét gera
1895, þá 62 ára gamall, að með
eignum hans yrði stofnaður
sjóður. Arlega skyldi svo vöxt-
um af fénu skipt í fimm jafha
hluta og varið til að verðlauna
þá sem öðrum fremur hefðu
afirekað eitthvað gagnlegt í
þágu mannkynsins.
Nobel dó 1896 og á fimmtu
ártíð hans 10. desember
1901 var verðlaununum úthlutað
í fyrsta sinn. Wilhelm Röntgen
eðlisfræðingur í Miinchen hlaut
þau fyrir að
hafa ellefu árum
áður uppgötvað
geislana sem við
hann eru kennd-
ir. Aðrir verð-
launahafar voru
hollenski efna-
fræðingurinn
Jacobeus van’t
Hoff, þýski læknirinn Emil von
Behring og franska skáldið
Sully-Prudhomme. Norska Stór-
þingið úthlutar fimmta hluta sem
er verðlaun fyrir störf í þágu
friðar. Fyrsta árið fengu þau
tveir menn, Svisslendingurinn
Henri Dunant sem stofnaði
Rauða krossinn og Frédéric
Passy, franskur hagfræðingur
og friðarsinni.
Sá háttur var á hafður í fyrstu
að halda nöfnum verðlaunahafa
stranglega leyndum þar til á
sjálfan hátíðisdaginn. Röntgen
fékk bréf frá Vísindaakade-
míunni í Stokkhólmi dags. 17.
nóv. 1901 þar sem honum er
trúað fyrir því að hann hljóti
verðlaunin en um leið er hann
beðinn þess lengstra orða að
minnast ekki á það við nokkurn
mann. Þeir í Stokkhólmi vænta
þess a& hann geri þeim þann
heiður að taka sér ferð á hendur
til Svíþjóðar og veita verðlaunun-
um viðtöku. Ef hann skyldi ekki
eiga heimangengt yrðu þau send
honum hinn 11. des. í lok bréfs-
ins er minnt á að Nóbelsstofnun-
in ætlist til að verðlaunahafi
haldi fyrirlestur í Stokkhólmi.
Wilhelm Röntgen hraus hugur
við að þurfa að ferðast svona
langt norður á bóginn en vildi
þó ekki bregðast trausti Svíanna
eða sýna þeim minnsta vott
ókurteisi. Hann skrifaði því
þakkarbréf og kvaðst mundu
koma á tilsettum tíma en taldi
sér hentara að flytja fyrirlestur-
inn síðar, öðru hvoru megin við
áramótin eða jafnvel næsta vor.
Ferðin til Svíþjóðar var erfið,
einkum sjóleiðin frá Sassnitz til
Trelleborgar á Skáni. „Öldurnar
skvettust yfir skipið og ég hélst
ekki við ofan þilja nema stutta
stund,“ skrifaði hann síðar.
Verðlaunin voru afhent með mik-
illi viðhöfn, ræðuhöldum, kór-
söng og hljóðfæraslætti. Sá sem
talaði um uppgötvun Röntgens
spáði því að geislar hans yrðu
þegar fram liðu stundir til
margra hluta nytsamlegir. Hann
sagði meðal annars: „Ef byssu-
kúla eða nál fara á kaf í líkams-
vefina koma þæn fram sem
skuggi á ljósmyndaplötu. Það
liggur í augum uppi að slíkt hef-
ur þýðingu fyrir skurðlækna og
gerir þeim ýmsar aðgerðir mikl-
um mun auðveldari."
Röntgen hélt heimleiðis dag-
inn eftir. Hann var í sjöunda
himni yfir verðlaununum og
kunni vel að meta þann heiður
sem honum var sýndur. En fyrir-
lesturinn sem hann átti að halda
varð hálfgert vandræðamál. Ein-
hverra hluta vegna sló hann þeim
áætlunum á frest æ ofan í æ.
Loks á haustdögum 1902 virðist
hann hafa ákveðið að láta til
skarar skríða og ráðgerðu þau
hjónin að leggja af stað frá
Múnchen 10. október. En daginn
áður kom bréf frá Stokkhólmi
og í því stóð „vitaskuld haldið
þér því aðeins þennan fyrirlestur
hér að þér viljið það sjálfur, því
að samkvæmt reglugerðinni er
það æskilegt en ekki óhjákvæmi-
legt“. Þetta orðalag greip hann
fegins hendi og svaraði með
símskeyti þess efnis að hans
væri ekki von. Svo fór um sjó-
ferð þá.
eftir Þórarin
Guónason
SÁLARFRÆÐI///7Urí/t) stjómar
forlögunumf
Mýtur um manninn
MARGT ber við á mannsævinni. Hveijar eru orsakir þess sem fyrir
fólk kemur? Hvað veldur því að líf manna tekur eina stefnu en ekki
aðra? Hvernig stendur á því að sumir eiga velgengni að fagna alla
tíð, ævi þeirra er stráð sifelldum „höppum"? Oðrum aftur á móti
lánast fátt, sífelld mistök og ólán virðist einkenna líf þeirra. Líkleg-
ast verður flestum svars vant andspænis svo viðurhlutamiklum spurn-
ingum og sýnir það okkur betur en margt annað hversu fátt við vitum
í raun af því sem mestu máli skiptir um mannlífíð.
Itilraunum manna til svara sveifl-
ast þeir gjarnan frá tilviljanatrú
til örlagahyggju. Annars vegar er
litið svo á að rás lífsins sé ekkert
annað en röð tilviljana, sem menn
túlka svo eftir á,
hver eftir sínu
hugarfari. Hins
vegar er sú skoðun
að allt sé fyrirfram
ákvarðað, öllu
skipað niður og
engu verði breytt.
Það ræðst svo af
þeim trúarkerfum
sem menn aðhyllast hvernig menn
útfæra nánar eða skýra þessa ör-
laga- eða forlagahyggju. Allt eru
þetta þó vitaskuld einungis
meira og minna vanburða
hugsmíðar, eins konar skot
út í óvissuna.
En í þessu lítt numda
landi mannlegra svipti-
vinda eru þó þrátt fyrir
allt nokkrir gróðurblettir.
Sumt er hægt að skilja
eðlilegum skilningi án þess
að leita þurfi á náðir hins
„yfirnáttúrulega".
Raunin er sú að ekki
þarf nema tiltölulega fáa
atburði sömu eða skyldrar
tegundar til þess að fólk
fari að trúa því að um
ófrávíkjanlegt lögmál sé að
ræða. Nokkur óhöpp í röð
eða atvik sem fólk telur sér
andstæð geta dugað til
þess að fólk fari að halda
að það sé fætt undir ein-
hverri óheillastjörnu og hér eftir
muni flest ganga andhælis. Og
þetta er auðvelt. Því að þegar þessi
trú, hugboð eða grunur hefur á
annað borð fest rætur verður það
til þess að fólk tínir úr atvikum lífs
síns allt það sem miður fer til þess
að staðfesta trú sína, en gengur
fram hjá hinu sem horfir til hins
betra. Ekki er víst að þeir atburðir
séu færri þegar öll kurl koma til
grafar. Verra er þó að einatt eru
atburðir sem hvorki eru góðir né
slæmir í sjálfu sér túlkaðir sem
andstæðir. Smátt og smátt getur
þetta leitt til bölsýni og neikvæðrar
afstöðu, sem eitrar líf manna og
getur gert það næsta dapurlegt.
En sem betur fer er einnig önnur
hlið á þessu máli. Alveg á sama
hátt og tiltölulega fáir andstæðir
Það ræðst af þeim trúarkerfum
sem menn aðhyllast hvernig
menn útfæra nánar eða skýra
örlaga- eða forlagahyggju.
eftir Sigurjón
Bjömsson
I I.WVSIII
HÁRFÍN LÍNA
Shampoo • næringar • froða • gel • spray • gloss
Amaró, Akureyri
Andorra, Strandgötu 32, Hafnarfirði
Apótek Ólafsvíkur
Ársól, Efstalandi 26, Reykjavík
Apótek Blönduóss
Apótek Vestmannaeyja
Cossa, Kaupgarði, Kópavogi
Dalvíkur apótek
Gloría, Samkaupum, Njarðvík
Hafnar apótek, Höfn, Hornafirði
ísadóra, Austurstræti 8, Reykjavík
ísold, Aðalgötu 3, Sauðárkróki
Lyfsalan, Hólmavík
Kaupfélag Borgfirðinga, Borgarnesi
K.Á., Selfossi
Krisma, Skeiði, ísafirði
Miðbær, Vestmannaeyjum
Mirra, Hafnarstræti 17, Reykjavík
Mirra, Laugavegi 61-63, Reykjavík
Nana, Hólagarði, Reykjavík
Nana, Völvufelli 19, Reykjavík
Nes apótek, Neskaupstað
Rangár apótek, Hellu
Rangár apótek, Hvolsvelli
Regnhlífabúðin, Laugavegi 11, Rvík.
Róma, Glæsibæ
Snyrtivörubúðin, Laugavegi 76, Rvík
Sara, Bankastræti 8, Reykjavík
Sápuhúsið hf., Laugavegi 7, Rvík
Smart, Hólmgarði 2, Keflavík
Snyrtihöllin, Garðabæ
Snyrtistofa Sigríðar Guðjóns,
Eiðistorgi, Seltjarnarnesi
Soffía sf., Hlemmi, Reykjavík
Stykkishólms apótek
Spes, Kleifarseli 18, Reykjavík
Serína, Kringlunni, Reykjavík
Tarý, Rofabæ 39, Reykjavík
Vesturbæjar apótek, Reykjavík
Forval hf., Skútuvogi 10 D, 125 Reykjavík, sími 91-68 73 70 og 68 65 70
atburðir geta ýtt ..undir bölsýnt
lífsviðhorf eins geta nokkur „góð“
atvik stuðlað að því að menn fari
að trúa því að þeir séu fæddir und-
ir heiilastjörnu eða njóti einhverrar
dulinnar verndar og að þeim muni
allt ávallt ganga í haginn og Tara
vel. Þetta bjartsýnisviðhorf er alls
ekki sjaldgæft. Fólk trúir því þá
að hvað sem fyrir kemur, jafnvel
óhöpp og mótlæti, muni verða því
til góðs, a.m.k. muni það leiða til
aukins þroska. Fólk sem þetta við-
horf hefur á jafnan góða ævi, enda
þótt reynslan sýni að það hefur alls
ekki alltaf mátt þola minna en aðrir.
Nú er það reyndar alltof einfeldn-
isleg skýring að halda því fram að
það sé einungis röð skyldra atburða
sem valdi þessum ólíku lífsviðhorf-
um. Sjálfsagt er það ekki nema
ytra byrðið. Þegar betur er skoðað
er líklegt að grunnur þessara við-
horfa sé lagður snemma í bernsku
með því trausti á sjálft sig og til-
veru sína — eða hinu gagnstæða —
sem barnið fær. Sennilega er full
ástæða til að leggja áherslu á þá
skýringu. Þá er einnig hugsanlegt
að bjartsýnis- eða svartsýnisvið-
horf, trú á velgengni og gæfu eða
hið gagnstæða geti verið fylgifiskur
sumra fjölskyldna, jafnvel mann
fram af manni.
Mikilvægast af öllu er þó að gera
sér ljóst, að með gaumgæfilegri
skoðun á sjálfum sér og viðhorfum
sínum er mögulegt að rétta stefn-
una af til mikilla bóta.