Morgunblaðið - 13.05.1990, Page 16

Morgunblaðið - 13.05.1990, Page 16
16 C MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 13. MAÍ 1990 BARÁTTUANDI í HÁSKÓLANUM Á AKUREYRI sem á Uka Grein og myndir/Árni Johnsen HÁSKÓLINN Á AKUREYRI er ung menntastofn- un og maður þarf ekki að dvelja þar lengi innan dyra án þess að skynja að andi brautryðjendanna svífur yfir vötnum. Háskólinn á Akureyri er að finna sér farveg og það fylgir því kraftur og tök því hátt er stefnt inn í framtíð íslands og áhersluat- riðin í upphafi stofnunar Háskólans á Akureyri sem Sverrir Hermannsson þáverandi menntamála- ráðherra hleypti af stokkunum voru náin tenging við atvinnulifið í landinu. Það er sóknarhugur í Haraldi Bessasyni rektor og hans mönnum. Þörfin er augljós og hvatningin mikil því nútíma þjóðlíf 1 krefst þess að náin tengsl séu á milli atvinnulífs- ins og menntastofnana. Það gengur ekki í íslensku þjóðfélagi að atvinnuvegirnir sem allt byggist á einangrist frá menntuninni á æðri sem lægri stig- um. Það er mikið hættumerki að það skuli heyr- ast sagt við ungt fólk að það muni lenda í fisk- vinnslu ef það nenni ekki að læra. Okkur vantar fólk sem nennir að læra og vill fara í fiskvinnslu, því með því móti skapast betri möguleikar á hærra verði fyrir hvert kíló af hráeftii og um leið hærra kaup fyrir fiskvinnslufólk, fólkið sem meðhöndlar ijöregg þjóðarinnar. Háskólinn á Akureyri hefur farið knálega af stað við kröpp kjör, en þeir eru margir sem vilja búa honum gott nesti og nýja skó um leið og þeir krefjast þess að þar verði sá titringur sem þarf til þess að ná árangri en aldr- ei kyrrt vatn. Stofhun sjávarútvegsdeildar er nýj- asta brumið í hinum unga Háskóla á Akureyri og þótti mörgum kominn tími til á háskólastigi í landi fiskveiðanna. En þótt vistarverur lánastofnana og ýmissa annarra opinberra stofiiana séu listaverk- um prýddar, bjartar og rúmgóðar og svo glæsileg- ar að venjulegu fólki hættir við ofbirtu í augun, þá er sjávarútvegsdeildin í Háskólanum á Akur- eyri að beijast fyrir lífi sínu með skotsilfur af skornum skammti. Nemendur og lærimeistarar vinna hörðum höndum í múrbroti og steypuvinnu, burði og hjólböruakstri til þess að skapa aðstöðu í húsi sem KE A hefúr lánað af góðvild sinni til þess að auka möguleika á betri framtíð Islands. Nemendur í Sjávarút- vegsdeild eru hvaðanæva af landinu, úr Keflavík, Reykjavík og að austan svo eitthvað sé nefnt,“ sagði Iiaraldur Bessason háskólarektor í samtali við Morgunblaðið. „Sömu sögu er að segja um heilbrigðis- deild, en rekstrardeildin er nokkuð bundin við Eyjafjarðarsvæðið sem er ekki undarlegt. Það sem mestu máli skiptir nú fyrir Háskólann á Akureýri er að styrkja mjög þær deildir sem við höfum verið að byggja upp, því héðan verða ekki aðeins skráðir stúdentar með BA- eða BS-gráðu, heldur verðum við að komast alla leið í meistaragráðu og jafnvel lengra. Sérhver háskóli hlýtur ævinlega að stefna að slíku. Þá verðum við að fá hingað fasta kennara sem dósenta og prófessora til þess að stunda rannsóknir á sviði kennslu og vísinda. Ráðuneytið Þessi föngulegi hópur kvenna stundar hjúkrunarbraut í Háskólanum á Ak- ureyri. virðist vera á móti þessu, en ég veit ekki af hveiju. Það virðist eðli- legast að prófessorar með mikla reynslu komi fyrst. Við höfum ekki fengið að fara fram yfir lektorsstig- ið eitt sér og það er veikleiki í stofn- uninni. Þetta er ekki bara snobberí með dósenta og prófessora því bæði heima og erlendis þurfum við að vera með allt á hreinu í þessum efnum þegar skólinn er kynntur og metinn. Við höfum ekki beitt okkur í þessu, en það er komið að því og reyndar höfum við ráðið fólk hér sem myndi standa fyllilega fyrir prófessorsstöðu. Það er komið að endurskoðun laganna um Háskól- ann á Akureyri og það er Ijóst að hnykkja þarf á ýmsum atriðum. Reyndar er gert ráð fyrir dósentum og prófessorum í lögunum, en það þarf að hnýta málið upp. Við verð- um að stíga háskólaskrefið til fulls, því hér er mikill vaxtarbroddur. Það er ýmislegt annað sem má nefna. Við þurfum að fjölga stúdentum, Morgunblaðið/Árni Johnsen Haraldur Bessason rektor. Miklll vaYtarbroddur og - margt ógert, segir Haraldur Bessason rektor Ólafur Búi Gunnlaugsson Jón Þórðarson forstöðu- skrifstofustjóri. maður sjávarútvegs- deildar. því sjávarútvegsdeildin dregur aldr- ei að sér marga stúdenta þó ekki væri nema fyrir það að farið er fram á talsverða starfsreynslu, sjósókn, netagerð og fleira. Það hefur verið stungið upp á því af vinum Háskólans erlendis að byggja hér upp alþjóðlegan fisk- vinnslu- og sjávarútvegsskóla. Bandaríkjamenn og Svissbúar hafa bent okkur á þetta og eru tilbúnir til þess að koma sem ráðgjáfar. Það má vera að byrjunin verði sú að Háskólinn skipuleggi til dæmis námskeið fyrir kennara og nám- skeið í tengslum við deildir sem við

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.