Morgunblaðið - 13.05.1990, Síða 21
lætingar og efasemda um ágæti
miðilsins en aðrir.
Fantasían er öllum mjög mikil-
væg að áliti Bettelheims og hefur
svo verið í aldanna rás. Ofbeldisfull-
ar fantasíur, sem í gegnum söguna
hafa verið eðlilegur hluti afþreying-
armenningar, voru af forn-gríska
heimspekingnum Aristoteles taldar
nauðsynlegar til þess að slaka á
tilfinningalegri spennu, — þær voru
hluti af kaþarsis eða hreinsuninni.
Bettelheim bendir réttilega á að
ofbeldi hafi fylgt bókmenntum
mannskyns allt frá örófi alda og
nefnir dæmi eins og Gamla testa-
menntið, grísku harmleikiiia og
Shakespeare. Bettelheim segir að
mörg börn njóti ekki einungis árás-
argjarnra fantasía heldur þarfnist
þau þeirra. Þau þurfa að fá útrás
fyrir óæskilega tilfinningu án þess
að skaða nokkurn og hana geta þau
fengið m.a. með því að horfa á of-
beldi í sjónvarpi.
Bettelheim leggur mikla áherslu
á leiðsagnarhlutverk foreldra og
aðstandenda barna. Hann telur það
mjög mikilvægt að foreldrar horfi
á sjónvarp með börnum sínum og
fordæmir þá iðju að nota sjónvarp
sem barnapíu. Hann telur að varla
sé til sá þáttur eða mynd sem börn
geti ekki lært eitthvað af með að-
stoð fullorðinna, nema þau séu í
ójafnvægi, hrædd eða reið, eins og
bent var á í upphafi. Bettelheim
telur það mjög mikilvægt að börn
þroski með sér rétta afstöðu til of-
beldis og, hann leyfir sér að efast
um að besta leiðin til þess sé að
loka augunum fyrir því.
Með hliðsjón af þessum hug-
myndum Bettelheims þá er ljóst að
umræðan hér á landi er á rangri
braut. Oft er litið á sjónvarp sem
einangrað fyrirbæri sem troði
óæskilegu efni inn á blessuð börnin
og því beri að vernda þau með boð-
um og bönnum. Félagssálfræðileg
gagnsemi ofbeldis í sjónvarpi hefur
tæpast borið á góma en ef marka
má Bettelheim þá 'er hún umtals-
verð. Það sem skiptir þó mestu er
að Bettelheim telur umræðuna um
skaðsemi ofbeldis í sjónvarpi ein-
kennast af því að fólk kennir sjón-
varpinu um hluti sem í raun má
rekja rætur til þess að hinir eldri
vanrækja þá sem yngri eru. Þegar
öllu er á botninn hvolft þá er engum
blöðum um það að fletta að per-
sónuleiki og lífsgildi aðstandenda
hafa margfalt meiri áhrif á líf og
lífsviðhorf en nokkru sinni sjónvarp.
Byggt á grein í Guardian Weekly, 25. mars
1990.
Vandað efni
er ekki
vinsælast
TÆPLEGA TVEIR þriðju
sjónvarpsáhorfenda í Bret-
landi mundu kæra sig kollótta
eða láta sig það litlu skipta,
ef ríkissjónvarpið BBC og
sjónvarpssamsteypan ITV
yrðu að hætta við að fram-
leiða virt framhaldsleikrit í
gæðaflokki eins og Spæjarann
söngvísa og Dýrasta djásnið.
Gæðaleikrit kosta um hálfa
milljón punda í framleiðslu
á klukkustund, en hver þáttur
af innfluttri sápuóperu eins og
Dallas kostar 40.000 pund.
Greinilegur meirihluti studdi
bann við sýningum á „bláum“
kvikmyndum í gervihnattasjón-
varpi (62%) og 47% vildu aukið
eftirlit með ofbeldi í sjónvarpi.
Kvikmyndir voru vinsælasta
sjónvarpsefnið (39%), en síðan
komu ferðalög og náttúrulíf
(26%), sápuóperur (24%),
grínþættir (23%), íþróttir (22%)
fréttir og fréttatengt efni (20%),
leikrit (18%) og leikirýmiss kon-
ar (15%).
MORGUNBLAÐIÐ FJOLMIÐLAR SUNNUDAGUR 13. MAÍ 1990
C 21
Breytinga að vænta á Rás 1 með haustinu:
4 „ritstjórnir“ taka völdin
Töluverðra breytinga er að vænta á Rás 1 með haustinu. Vinnuhópur
dagskrárgerðarfólks hefur verið starfandi undanfarna mánuði og var
honum falið að gera tillögur um áferðarbreytingu á Rás 1. Að sögn
Ævars Kjartanssonar dagskrárgerðarmanns eru aðalbreytingarnar
fólgnar í skipulagsbreytingum þar sem lögð verður sérstök rækt við
virka daga. „Við erum eiginlega að leita að nútímalegri Rásar 1-áferð.
Ætlunin er að efnið á Rás 1 verði unnið af nokkurs konar ritstjórnum
sem taka munu að sér ákveðna tíma dagsins þannig að skapist meiri
heildarsvipur en verið hefur. Þessar breytingar myndu kalla á aukna
festu og meiri atvinnumennsku hvað vinnubrögð snertir," segir Ævai'
Kjartansson dagskrárgerðarmaður. Litlar breytingar eru áætlaðar á
síðkvöldum og uin helgar, en virkum dögum verður að líkinduin skipt
upp á milli fjögurra svokallaðra ritstjórna. Ætlunin er að breytingar
þessar taki gildi 1. október nk.
Sumardagskrá Rásar 1 hefst um
næstu mánaðamót og er þáttur
í umsjá Ævars Kjartanssonar „Á
aftni“ helsta nýjungin. Hann verður
á dagskrá daglega kl. 18.00. Á þeim
tíma munu dagskrárgerðarmenn
Rásar 1 bregða sér úr húsi. Farið
verður með þráðlausan sendibúnað í
heimahús, á samkomur, æfingar eða
út í náttúruna í leit að hugmyndum
um lífið og tilver-
una.
Stuttir þættir
um fugla landsins
ásamt fróðleiks- Ævar Kjartansson
molum um náttúruna verða fluttir
virka daga kl. 11.53. Á kvöldin verð-
ur sumarsagan á dágskrá kl. 21.30
og er það nýjung. Áður var Utvarps-
sagan aðeins þtjú kvöld í viku. í jún-
íbytjun verður endurfluttur lestur
Halldórs Laxness á Birtingi og í kjöl-
farið koma kunnar klassískar bók-
menntir. „Sjónaukinn" kemur í stað
Nátthrafnaþings á miðvikudags-
kvöldum. Umsjón hefur Bjarni Sig-
tryggsson og mun hann fjalla um
erlend málefni. „Stjórnmál að sumri“
er þáttur þar sem rætt verður við
þingmenn á heimavelli og reynt verð-
ur að hefja umræðuna yfir dægur-
pólitík liðins vetrar.
Töluverðra breytinga gætir á laug-
ardögum í dagskránni, en þá er
lengdur barnaþáttur kl. 9.03 og
garðyrkjuþáttur kl. 10.30. í þeim
þætti verður m.a. farið í heimsóknir
í sumarbústaði og rótað í mold-
inni.„Vikulokin“ breyta um svip í
höndum Bergljótar Baldursdóttut' í
sumar. Menningarþátturinn Sinna
verður endurvakinn kl. 14.00 á laug-
ardögum, en hann hefur verið á dag-
skrá Rásar 1 með hléum síðan 1986.
Þá er ætlunin að endurvekja„laugar-
dagsstemnminguna" í útvarpinu í
suntar. Strax að loknutn kvöldfrétt-
utn verður leikin létt tónlist í þættin-
um Ábæti og síðan hefst Sumarvak-
an kl. 20.00. Hún er arftaki Kvöldvö-
kunnar að því leyti að einkum verður
flutt innlent efni. Þá er í ráði að blása "
lífi í frásagnarhefðina og fá fólk til
að segja sögur. Að Sumarvökunni
lokinni verður boðið upp á dansleik
og mæðinni kastað yfir leiklesnum
sakamálasögum.
I iö erttm etns nrs;
í suniiirskapi oo til þjvnustu reiðubúin
\mtmannsstig I ■ Bernhoj'tstorfunni stmi 1SJ03
Veitingastiidur tnt'd ótuvntu ívuji.
mánuð.-Uiugaril. kl. 11.30-23.30 oy' sunnuJ. kl. tS.00-.