Morgunblaðið - 13.05.1990, Page 27
MORGUNBLAÐIÐ MENNINGARSTRAUMAR SUNNUDAGUR 13. MAÍ 1990
C 27
Flugstöð
rústuð
íjóla-
ösinni
„EF VIÐ erum heppnir
hrellum við flugfarþega
jafn mikið og „Jaws“
hrelldi sundfólk,“ segir
handritshöfundurinn
Steven de Souza um þá
framhaldsmynd sem
margir bíða með hvað
mestri óþreyju eftir í
sumar, „Die Hard 2“.
Hún segir frá frekari
ævintýrum Bruce Willis
í baráttunni við óþjóða-
lýð þessa heims en í þetta
sinn gerist myndin á al-
þjóðaflugvellinum í Los
Angelcs og þeir sem sáu
fyrri myndina geta auð-
veldlega imyndað sér
hvað verður um flug-
stöðvarbygginguna.
Leikstjóri er Renny Harl-
in, þekktur fyrir aðra
framhaldsmynd, Mar-
tröðin á Álmstræti 4.
ííT-'S.
Það eru aftur komin jól
og Willis hyggst taka
á móti konu sinni og barni
á flugvellinum þegar hann
sér í sjónvarpinu að von er
á S-Amerískum eiturlyfja-
barón til landsins í fylgd
lögreglunnar og um leið sér
hann fremsta liðsmann
glæpakóngsins á flugvell-
inum. Willis ákveður að
rannsaka málið og kemst
að því að heil sveit óþokka
er búin að koma sér fyrir
á flugvellinum til að fría
Bruce Willis I Die Hard 2:
„Bijálæði að gera ekki fram-
hald.“
dópgreifann úr höndum
lögreglunnar.
Það er ótrúleg líkamleg
áreynsla fyrir leikarana að
vera í myndinni því þeir
beijast til síðasta mynd-
ramma inní, oná, undir og
utaná flugstöðinni en það
er ékki síður gerð krafa til
framleiðendanna að standa
sig í stykkinu og gera
framhaldsmynd sem má
ekki vera síðri en frum-
myndin. „Þú verður að gefa
áhorfendum það sem þeir
eiga von á en þú vilt líka
gefa þeim meira,“ segir
hinn fínnskættaði Harlin.
Það var aldrei hugmynd-
in að gera seríu úr „Die
Hard“ en þegar myndin sló
í gegn tóku menn að hugsa
alvarlega um framhaldið.
„Um síðir kemstu að því
að það væri bijálæði að
gera ekki framhald," segir
einn framleiðandinn, Larry
Gordon. Framleiðendurnir,
Gordon, Joel Silver og
Charles Gordon, komust
yfir skáldsöguna „58
mínútur" eftir Walter Wa-
ger um árás skæruliða á
flugstöð en fátt eitt var
notað úr bókinni nema það.
„Þetta var dæmigert axar-
morð á bókmenntum hér í
Hollywood,“ segir hand-
ritshöfundurinn De Souza.
Bruce Willis fékk fimm
milljónir fyrir fyrri mynd-
ina en þær eru víst komnar
uppí sjö núna. Myndin á
að kosta 40. milljónir og
verður frumsýnd vestra í
júní. Bíóhöllin/Bíóborgin
tekur hana væntanlega til
sýninga fljótlega eftir það.
■ ÍSLENSKA kvikmynd-
in Magnús eftir Þráin Bert-
elsson hefur gert það mjög
gott í miðasölunni en hún var
frumsýnd 11. ágústsl. og
var enn til sýnis í apríl um
helgar í Stjörnubíói. Þráinn
vinnur nú að því að koma
myndinni í dreifingu erlendis.
■ JIM Sheridan, höfundur
Vinstri fótarins, vinnur nú
við gerð myndarinnar „The
Field" með Richard Harris,
John Hurt og Tom Ber-
enger í aðalhiutverkum.
Einnig leikur í henni Brenda
Fricker sem hreppti Oskar-
inn fyrir bestan leik í auka-
hlutverki í Vinstri fætinum.
■ STEVEN de Souza
vinnur að handriti Schwarz-
enegger-myndar sem á að
heita „Critic’s Choice" og
segir frá kvikmyndaleikara
sem hundelturer af lögregl-
unni um alla Evrópu í sam-
floti við kvikmyndagagnrýn-
anda sem þolir ekki myndirn-
ar hans. Tveir þumlar upp!
Jón Tryggvason leikstjóri; hyggst kvikmynda úti á rúmsjó.
SPEIMIUUSAGA
AF SJÓIMUM
Sveinbjörn I. Baldvinsson rithöfundur vinnur nú að því
vestur í Los Angeles að skrifa handrit eftir hugmynd
Jóns Tryggvasonar leikstjóra að bíómynd sem Jón hyggst
kvikmynda næsta sumar og heitir Júpíter.
Þetta er sterk saga sem
manni finnst að þurfi
nauðsynlega fyrir íslenska
sögu og menningu að gera
mynd úr. Hún gerist um borð
í íslensku fískiskipi en slíkt
hefur ekki verið notað áður
liér á landi, sem er mjög
skrítið í raun og veru því sjó-
sóknin er aðalatvinnuvegur-
Havarí í Havana
Hvernig lýst ykkur á
„Casablanca" með Ro-
bert Redford? Nei, ekki það.
Þið getið þá kannski sæst á
„Havana“, nýjasta sam-
starfsverkefni Redfords og
uppáhaldsleikstjóra hans,
Sidney Pollacks (Jörð í
Afríku).
í „Havana“ leikur stór-
stjarnan rótlausan mann sem
ástfanginn verður af Lenu
Olin, sem gift er uppreisnar-
manninum Raul Julia. Ha-
vana er að falla í hendurnar
á stóra vindlinum og upp-
lausnin er alger í gamla spill-
ingarbæli Batista.
Handrit myndarinnar var
gert 1978 og í fyrstu var
talað um Jane Fonda og Jack
Nicholson í aðalhlutverkin.
Síðan hefur margt breyst og
allir elst um 12 ár nema
Redford.
KVIKMYNDIR
Hvemig hefur
Lynch-þáttunum veriö tekiö?
Af„Twin
Peaks“-æði
BANDARÍSKU vikuritin Time og Newsweek fara yfir-
leitt gætilegar í upphrópanir en mörg önnur blöð vestra,
en hið fyrrnefnda lét frá sér fara að fyrstu sjónvarpsþætt-
ir David Lynch, „Twin Peaks", sem hann gerir m.a. í
samvinnu við Siguijón Sighvatsson í Los Angeles, séu
„einskonar kraftaverk" og „frumlegustu þættir sem gerð-
ir hafa verið fyrir bandarískt sjónvarp". Newsweek seg-
ir: „Twin Peaks“-æði þýtur nú um landið og lýsir því
svo hvernig varla rætt er um annað en þættina manna
á meðal og hvernig enginn þyki maður með mönnum
nema hann liafi séð þá og liafi á rciðuin hönduin lieilu
setningarnar úr þeim.
Það hlaut að koma eitt-
hvað alveg sérstakt út
úr því þegar einn frumleg-
asti leikstjóri Bandaríkjanna,
höfundúr „Eraserhead" og
„Blátt flau-
el“, snéri
sér að sjón-
varpi, sem
í Banda-
ríkjunum
er langt í
frá þekkt
fyrir frum-
leika held-
eftir Arnald
Indriðoson
ur þvert á móti lifir á formúl-
um. Lynch hefur næmt auga
fyrir hinu súrrealíska í lævi
blöndnu andrúmslofti úr-
kynjunar og ofbeldis í afar
sérstæðum, hálfkómískum
stíl sem fyrirfram var talið
að bandarískt sjónvarp ætti
erfitt með að sætta sig við.
Annað hefur komið á daginn.
Svipuð en mun víðtækari
hreyfing aðdáenda hefur
myndast um þættina og
Lynch hefur áður tekist að
skapa í kringum myndir
Leikstjórinn,
David Lynch.
sínar.
„Twin Peaks“ er talsvert
öðruvísi en áhorfendur hins
hefðbundna sjónvarpsefnis
eins og Staupasteins eða
Dallas eða Morðgátu eiga að
venjast. Það eru sakamála-
þættir um morð sem framin
eru í litlum bæ úti á landi
og það er t.d. ekki greint frá
hver morðinginn er í þeim
sjö þáttum sem gerðir hafa
verið (hann er tilgreindur í
tveggja tíma myndbandaútg-
áfu sem dreift hefur verið
„Twin Peaks"; slá í gegn
í formúlusjónvarpinu vestra.
um Evrópu og fæst á leigun-
um hér) svo ef ABC-sjón-
varpsstöðin gerir ekki nýjan
samning við Lynch um fleiri
þætti fá áhorfendur aldrei
að vita hver morðinginn er.
Leikarar, persónur og samtöl
í þáttunum eru mjög tengd
gömlum bíómyndum og sjón-
varpsþáttum, t.d. leika í þeim
Richard Beymer og Russ
Tamblyn sem ekki hafa sést
síðaní „West Side Story“ og
áhorfendur taka upp undar-
legar setningar eins og „Það
er fiskur í kaffisíunni" og
staglast á þeim eins og við
á „okkar fjallabíl", kleinu-
hringir eru„draumur lög-
reglumannsins" og kirsu-
beijabökur eru í miklu uppá-
haldi, helmingur persónanna
sér sýnir og söguþráðurinn
er jafn flókinn og í rússnesk-
um heimsbókmenntum og
persónurnar næstum jafn
margar. Spurningin er víst
ekki hver gerði hvað hvenær
heldur miklu frekar: Um
hvað í fjáranum var eiginlega
síðasti þáttur?
Siguijón Sighvatsson hef-
ur skýrt frá því áður hér á
kvikmyndasíðu hvernig fyrir-
tæki hans, Propaganda Films
í Los Angeles, gerðist sam-
starfsaðili við gerð þáttanna
og hann /íefndi það einnig
að hópur íslendinga ætti eft-
ir að koma fram í þeim.
Manni sýnist það einkar vel
við hæfi. Stöð 2 hefur keypt
þættina til sýninga.
inn,“ sagði Jón Tryggvason
í stuttu símaspjalli.
Hann kvaðst hafa fengið
hugmyndina fyrir um fimm
árum en bað Sveinbjörn að
skrifa handritið fyrir um ári.
Þeir hafa áður unnið saman
við gerð spennupiyndarlnnar
Foxtrot. Jón og Sveinbjörn
hafa þegar fengið 2,4 millj-
ónir í undirbúningsstyrk úr
Kvikmyndasjóði en Jón seg-
ist vonast til að fá fram-
leiðslustyrk næsta vetur.
Júpíter gerist um borð í
fiskiskipi með sama nafni
(engin tengsl við hinn raun-
verulega Júpíter) á siglingu
milli Islands og Danmerkur
en um borð gerast ýmsir
skemmtilegir og miður
skemmtilegir hlutir, eins og
Jón orðaði það. Myndin ger-
ist að langmestu leyti um 'r
borð í þröngum, dimmum
vistaverum skipsins einangr-
uðu í vondum veðrum úti á
ballarhafi.
Hann hyggst kvikmynda
úti á rúmsjó en sjálfur hefur
Jón reynslu af sjómennsku,
bytjaði á sjó sextán ára og
stundaði sjómennsku í þijú
ár þar til hann hóf kvik-
myndanám í New York.
IBIO
Islenskir kvikmynda-
gerðarmenn eru
hundóánægðir með hið
nýja frumvarp mennta-
málaráðherra um Kvik-
myndastofnun I stað kvik-
myndasjóðs eins og mátt
hefur lesa i Morgunblað-
inu að undanförnu. Telja
kvikmyndagerðannenn að
með frumvarpinu sé enn
verið að skera niður fram-
lög til kvikmyndagerðar i
landinu i stað þess að auka
þau svo ekki sé grundvöll-
ur nema undir eina ís-
lenska bíómynd á ári i
framtíðinni.
Á sama tima blasir við
ótrúlegur yfirhellingur af
erlendu sjónvarpsefni með
sameiningu Stöðvar 2 og
Sýnar, fjöldi erlendra bió
mynda í kvikmyndahúsun
um í Reykjavik er kominn
uppi næstum 50 um helg-
ar, myndbandaleigur
bjóða uppá þúsundir er-
lendra mynda á hveiju
götuhorni og gervihnatta-
sjónvarp ryður sér æ
meira til rúms með enda-
lausu flæði af erlendu efni.
Gegn þessu stendur ein
íslensk btómynd á ári. Er
það ekki draumur?
—