Morgunblaðið - 30.05.1990, Side 24

Morgunblaðið - 30.05.1990, Side 24
24 MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 30. MAÍ 1990 Stjórnmálabaráttan í Sovétríkjunum Upphefð Borís Jeltsíns eykur óvissu um stöðu Gorbatsjovs BORÍS Jeltsín, sem í gær var kjörinn forseti hins nýja fulltrúa- þings Sovétlýðveldisins Rúss- lands, er yfirlýsingaglaður mað- ur og um leið ákaflega óvenju- legur stjórnmálaleiðtogi á sov- éska vísu. Forsetaembættið ger- ir honum kleift að takast á við Míkhaíl S. Gorbatsjov, forseta Sovétríkjanna og leiðtoga sov- éska kommúnistaflokksins, sem vék Jeltsín úr stjórnmálaráði flokksins er hann tók að gagn- rýna slælega framkvæmd um- bótasteftiu Sovétleiðtogans. Risu þá úfar með þeim og lauk þeim viðskiptum með því að Jeltsín gerðist leiðtogi umbótasinna þar eystra. Ovíst er hvort Jeltsín lætur, þrátt íyrir yfirlýsingar sínar, sverfa til stáls; til þess kann hann að skorta stuðning á þingi. Sovétsérfræðingar sem Morgunblaðið ræddi við í gær voru á einu máli um að líta bæri á forsetakjörið sem markvisst skref Jeltsíns í átt til aukinna áhrifa. Hann stefndi að því að verða fyrsti forseti Rússlands með sambærilegt valdsvið og Gorbatsjov og þar með verða næstur honum að völdum og áhrifúm í Sovétríkjunum. Sem þingforseti hefúr Jeltsín lítil formleg völd þótt hann gegni æðsta embætti lýðveldisins. Yfirlýsingar Jeltsíns hafa löng- um þótt mótsagnakenndar og um- mæli hans í kosningabaráttunni voru sama marki brennd. Þó virðist ljóst að hann mun í krafti enjbætt- is síns geta beitt sér fyrir lagasetn- ingu í Rússlandi sem stangast á við efnahagsumbætur þær er Gorb- atsjov og undirsátar hans hafa boðað nú að undanförnu og getið hafa af sér örvæntingu í röðum almennings. Jeltsín hefur boðað að hann muni beijast gegn áætlunum þessum og jafnframt sagt að auka beri sjálfsstjórn Rússa jafnt á stjórnmála- sem efnahagssviðinu. Samsteypusfjórn með harðlínumönnum „Jeltsín sagði m.a. að hann hygð- ist beita sér fyrir því að efnahags- þvingunum gagnvart Litháum yrði hætt. Þetta er vitaskuld í andstöðu við stefnu Gorbatsjovs,“ sagði Fri- edhelm Schachtschneider, frétta- stjóri þýsku fréttastofunnar dpa í símaviðtali við Morgunblaðið frá Moskvu í gær. Hann bætti við að á það bæri að líta að stjómvöld í Kaupæði hefúr gripið um sig í Moskvu sem rekja má til þeirra aðgerða sem sovésk stjórnvöld hafa boðað í því skyni að færa efiiahagskerfið allt í átt til markaðsbúskapar. Borís Jeltsín hefur lýst sig andvígan áætlunum þessum en og boðað aukna sjálfsstjórn Rússa jafnt á stjórnmála- sem efnahagssviðinu. Rússlandi stjórnuðu t.a.m. ekki orkudreifmgu, það gerði miðstýr- ingarvaldið í Moskvu. Á hinn bóg- inn gæti Jeltsín veitt Litháum pólitískan stuðning en hann gæti tæpast komið þeim eða hinum Eystrasaltsþjóðunum til hjálpar. Að auki lægi fyrir að samtök þau sem stóðu að kjöri Jeltsíns og nefn- ast „Lýðræðislegt Rússland" hefðu einungis rúman þriðjung fulltrúa á þingi. „Jelstín mun því þurfa að leita eftir stuðningi harðlínumanna. „Raunar lýsti hann yfir því að skip- uð yrði sérstök nefnd með fulltrú- um allra þeirra flokka og hópa sem eiga menn á fulltrúaþingi Rúss- lands og þessi nefnd myndi ákveða samsetningu ríkisstjórnar lýðveld- isins,“ sagði Schachtschneider. Hann benti á að Jeltsín hefði einn- ig sagt að hann væri reiðubúinn til að eiga samstarf við Gorbatsjov og aðra ráðamenn í Kreml. Erfitt væri að fá botn í þessi ummæli forsetans nýja. En þrátt fyrir þess- ar djörfu og um margt óræðu yfir- lýsingar blasti við að Jeltsín hefði tæpast nægilegan styrk á þingi til að ganga í berhögg við stefnu Gorbatsjovs. Síversnandi lífskjör Schachtschneider kvað engan vafa leika á því að kjör Jeltsíns væri áfall fyrir Gorbatsjov þótt of snemmt væri að segja til um hvaða áhrif það kynni að hafa á stöðu hans. „Jelstín er mjög vinsæll í Rússlandi. Fólk ber gjarnan saman ástandið í Moskvu eins og það var er Jeltsín var flokksleiðtogi hér og afleiðingar efnahagsstefnu Gorb- atsjovs. I tíð Jeltsíns var matur auðfáanlegur en nú ríkir skortur og allt er í niðurníðslu. Fólkið kenn- ir Gorbatsjov og stefnu hans um versnandi lífskjör. Það treystir á Jeltsín, telur raunar að hann einn geti bætt ástandið." Valdagrunnur Gorbatsjovs Míkhaíl Voslenskíj, einn virtasti Kremlarsérfræðingur Vesturlanda, sagði í viðtali við Morgunblaðið í gær að hann teldi líkur á því að Jeltsín yrði í náinni framtíð kjörinn forseti Rússlands. Líkt og frétta- stjóri dpa minnti hann á að strax eftir að Gorbatsjov var fengið auk- ið framkvæmdavald í krafti for- setaembættisins fyir á þessu ári hefðu þær raddir tekið að heyrast í Rússlandi að setja þyrfti á stofn sambærilegt embætti þar með stjórnarskrárbreytingu. Hreppti Jeltsín embættið yrði það bein ógn- un við Gorbatsjov og allan valda- grunn hans. „Jeltsín er mjög vinsæll og ég tel að hann sé lýðskrumari," sagði Voslenskíj og bætti við að vinsæld- ir og styrk Jeltsíns mætti rekja til neyðar almennings í Rússlandi. Hann væri á hinn bóginn vissulega óvenjulegur stjórnmálamaður. Hann væri framfarasinnaður, hugsaði um þarfir alþýðunnar en væri ekki, líkt og aðrir stjórnmála- leiðtogar í Sovétríkjunum, önnum kafinn við að gæta hagsmuna for- réttindastéttarinnar. í Ijósi þessa myndi Jeltsín vafalaust freista þess að takast á við Gorbatsjov og stefnu hans. „Sovétríkin eru ný- lenduveldi Rússa. Önnur lýðveldi geta sagt skilið við ríkjasambandið en án Rússlands geta Sovétríkin ekki þrifíst. Lúti Jeltsín ekki vilja ráðamanna í Kreml verður hann Borís Jeltsín Reuter um leið andstæðingur þeirra. Verði hann forseti Rússlands og leggist hann í krafti þess embættis gegn Gorbatsjov og stefnu hans, kippir Jeltsín um leið mikilvægustu stoð- inni undan völdum Sovétleiðtogans er sækir þau vitaskuld til Rússa. Hvert getur Gorbatsjov þá leitað eftir pólitískum styrk og stuðningi? Ekki til hinna Sovétlýðveldanna, þau vilja flest segja skilið við ríkja- sambandið. Ástandið qr að sönnu mjög áhugavert." Gorbatsjov í raðir umbótasinna? Voslenskíj sagði Ijóst að kjör Jeltsíns væri áfall fyrir Gorbatsjov. Erfitt væri að segja til um hversu alvarlegt það væri, Sovétleiðtoginn hefði orðið fyrir mörgum þungum höggum að undanförnu- eins og alkunna væri. Jeltsin gæti ógnað stöðu Gorbatsjovs innan kommúni- staflokksins. Sovétleiðtoginn væri nú orðinn miðjumaðui' í sovéskum stjórnmálum. Hann kynni að bregð- ast við þessari þróun með því að færa stefnu sína nær sjónarmiðum harðlínumanna. Einnig væri hugs- anlegt að hann freistaði þess að treysta stöðu sina með því að ving- ast við umbótasinna. Hann myndi vafalítið beita öllum brögðum til að grafa undan Jeltsín og vera kynni að hann reyndi sjálfur að gerast leiðtogi skoðanabræðra keppinautarins. Gorbatsjov væri mjög reyndur stjórnmálamaður og mun hæfari en Jeltsín. Engu að síður væri upphefð Jeltsíns áfall fyrir Gorbatsjov. „Það má fullyrða að kjör Jeltsíns eykur enn á óvissu um stöðu Sovétleiðtogans. Völd sín sem forseti Sovétríkjanna og leið- togi kommúnistaflokksins sækir Gorbatsjov til Rússlands og nú er kominn fram á sjónarsviðið and- stæðingur með sambærilegan val- dagrunn.“ Adalfundur Aðalfundur Stjórnunarfélags íslands verður haldinn miðvikudaginn 30. maí nk. kl. 12.00 á Hótel Loftleiðum, Víkingasal. Dagskrá: Venjuleg aðalfundarstörf. Að loknum aðalfundarstörfum mun Ólafur Davíðsson, framkvæmdastjóri Félags íslenskra iðnrekenda ræða um málefnið: „Standa íslenskir stjórnendur afsér samkeppni innan Evrópubandalagsins?" Lýöveldi Sovétríkj^ Hvlta- Rússlai Úkraína Moldavía Georgía Azerbajdzhan í 15 lýðveldum Sovétríkjanna búa alls um 290 milljónir manna, þar af eru nær 150 milljónir í Sovétlýðveldinu Rússlandi. Rússland er 'langstærsta lýðveldið, 17.045.000 ferkílómetrar að stærð, eða um tveir þriðju hlutar alls landrýmis Sovétríkjanna. Rússland sjálft skipt- ist í 16 sjálfstjórnarlýðveldi, fimm sjálfstjórnarhéruð, 10 svonefnd þjóðarsvæði, sex fylki og loks 49 umdæmi. Rússar eru langfjölmenn- asta þjóð lýðveldisins, þeir eru 82,6% íbúanna. 3,6% eru Tartarar, 2,7% Úkraínumenn, 1,2% Tjúvasar; aðrir skiptast milli nær 100 þjóða. Höfuðborgin Moskva hefur milli níu og tiu milljónir íbúa með útborgum, aðrar helstu borgir eru Leníngrad við Eystrasalt, Arkhang- elsk við Hvítahaf og Vladívostok á Kyrrahafsströndinni.

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.