Alþýðublaðið - 08.01.1959, Qupperneq 1
WWMWVWMWVMWWMWWWIWWWMWWWVtWWMMMWWMWWWWWIWMMMI
EftMg)
40. árg. — Fimmtudagur 8. jan. 1959 — 5. tbí.
CHARLES DE GAULLE tekur
í dag við embætti Frakklands-
i'orseta. Hann vinnur embætt-
iseið og að því loknu flytur
hann í Elysée liöllina í París.
Hann verður nú valdamesti
maður Frakklands síðan á dög-
um Napóleons. Velur hann ráð
herra sína sjálfur og getur þing
ið ekki fellt ríkisstjórnina. For
setinn getur rofið þing á 12
mánaða fresti og sent það heim
ef liann álítur öryggi ríkisins
þá betur borgið. Enda þótt de
Gaulle þurfi ekki að kalla sam-
an þing að sinni er þá búizt við
að því verði stefnt saman upp
úr miðjum mánuði.
De Gaulle er kjörinn til sjö
ára og er hann raunverulega
einráður í flestum málum rík-
isins.
Margt bendir til að verka-
lýðssamtökunum sé að verða
lióst, að þau eiga undir högg
að sækja í viðskiptum við hina
nýju stjórn landsins. Hafa
verkalýðsfélög krafizt hærri
launa og kjarabóta vegna geng
islækkunarinnar.
Guy Mollet form. franskra
Jafnaðarmanna, hefur tilkynnt
de Gaulle, að þeir muni ekki
taka sæti í ríkisstjórn hans.
En de Gaulle hefur lagt mikla
áherzlu á að Jafnaðarmenn
ættu aðild að henni. Veikir
þetta aðstöðu de Gaulle að
mun.
VETRARVERTÍÐ er haf-
in, og væri nú að komast í
fullan gang, ef kommúnist-
ar væru ekki staðráðnir í að
fyrirbyggja hvers konar
skynsamlega lausn efnahags
málanna og koma í veg fyrir
stöðun dýrtíðarinnar. Þetta
er hin gamla og eiginlega
stefna þeirra, og taki sjó-
menn ekki sjálíir í taumaiia,
getur valdabrask kommún-
istaleiðtoganna valdið vinn-
andi mönnum á sjó og íandi
miklu tjóni,
Málið stendur nú í stórum
dráttum þannig:
1) Viðræður ríkisstjórnar-
innar og útvegsmanna hóf-
ust á annan jóladag. Nokkr-
um dögum seinna hófust við
ræður sjómanna og útvegs-
manna. Samningar milli
þessara aðila hafa tekizt og
þeir verið undirritaðir.
2) Samkvæmt samningun-
um fá bátasjómenn réttlátar
kjarabætur, 13—14%, sem
er meira en nokkur önnur
stétt hefur fengið síðan í
fyrravor.
3) Eftir að þessi kjarabót
er fengin, tclja forustumenn
Alþýðuflokksmanna í sjó-
mannastétt, að bátasjómenn
eigi eins og allar aðrar stétt
ir í landinu að lúta þeim
breytingumi, sem kunna aö
verða á vísitölu. Kommvin-
istar krefjast þess, að lækki
vísitalan, skuli sú lækkun
ganga yfir allar stéttir nema
sjómenn. Slík krafa hefur
aldrei komið fram hér á
landi fyrr.
Alþýðublaðið trúir því
ekki, að bátasjómenn geri
slíka kröfu um algerð sér-
réttindi fram yfir alla aðra
borgara landsins, ef þeir fá
tækifæri til að kynna sér
málið. Blaðið hefur þá trú,
að það muni ekki standa á
hinum vinnandi stéttum
þessa lands, ef nokkrar bvrð
ar verða lagðar á alla lands-
mlenn réttlátlega til að
stöðva hina geigvænlegu dýr
tíðarskrúfu.
Leiðtogar kommúnista
hugsa öðruvísi. Þeim er ekk-
ert áhugamál að hindra
hækkun vísitölunnar í 270
stig á þessu ári, eins og verð
ur, ef barátta ríkisstjórnar-
innar gegn verðbólgunni ber
ekki árangur. Þjóðin for-
dæmir þessa afstöðu þeirra.
Hún krefst þess, að tilraun
ríkisstjórnarinnar til skyn-
samlegrar lausnar efnahags-
málanna verði reynd til
þrautar.
Nú reynir á stéttarþroska og
skilning manna. Sjaldan eða
aldrei liefur verið meira í
liúfi í íslenzku efnahagslífi.
TOGARINN „Surprise“ seldi
afla sinn í Cuxhaven í fyrradag
145 lestir fyrir 86 245 mörk.
isfar buðu ka
omm
ef beir
fengiu að vera
ækkun og niðurgreiðsiu
r /
nu gegn
sem þeir fylgdu fyrir jólin
KOMMÚNISTAR berjast nú hatramlega gegn viðleitni ríkis-
stjóinarinnar til að stöðva dýrtíðina. Ráðast beir á stjórnina
f.yrir að lækka verð nauðsynja með niðurgreiðslum og fyrir
áform hennar um að allir landsm.enn gefi eftir nokkuf vísi-
tölustig sem fórn í baráttunni við verðbólguna.
★
Fyrif tveim vikum var annað hljóð í leiðtogum kommunista.
Skömmu áður en núverandi íikisstjórn var mynduð, Voru
þessir sömu menn tilbúnir að fallast á 5 prósent kauplækkun
og niðurgreiðslu vísitölunnar í 185 stig, — ef þeir aðeins fengu
að vera áfram í ríkisstjórn. Það var skilyrðið.
★
Að sjálfsögðu gat enginn ábyrgur maður anzað slíkum hríng-
snúningi í alvarlegustu vandamálum þjóðarinnar, þegar til-
gangur kommúnista var augljóslega sá einn, að komast aftur
til valda. Framkoma þeirra nú sýnir, hversu mikið var á þeim
að byggja.
400 vantar til vertiðarsfarfa
ÞEIR HATA
HULAHOPP
PEKING, 7. janúar.
(REUTER.) Kommúnista-
stjórnin í Kína er á móti
húlagjörðum og húla-
hoppi.
í fréttatilkynningu frá
Peking segir að húlahopp
isé viðbjóðslegt æði, sem
heimsauðvaldið breiði út
um heiminn til þess að
draga úr þrótti og ábyrgð
artilfinningu almennings,
ásamt með kynóraþrugli
og hryllingsbókmenntum.
Fréttastofan Nýja Kína
bendir í allri vinsemd á,
að Júgóslavar hafi verið
fljótir að tileinka sér húla
hoppið, og sé það í sam-
ræmi við aðra þjónkun
þeirra við kapítalismann-
MMUWMHMMMVMtMMMMM
HÓPUR FÆREYINGA KOMINN í „ÓLEYFI"
VETRARVERTÍÐIN er hafin.'
Að vísu er ekki fullgengið frá
samningum í öllum verstöðv-
um, en það sem þó hamlar enn
meira er manneklan, er víða
gætir í verstöðvum. I Vest-
mannaeyjum er þetta vanda-J
mál erfiðast. Þar mun vanta
um »200 manns á bátana og 100
—200 í fiskvinnslustöðvarnar. |
Kominn mun hópur ungra
Fsereyinga til Vestmannaeyja
°g hyggjast þeir ráða sig á ís-
’enzka fiskibáta upp á sömu
kjör og íslendingar. Eru þeir
hingað komnir í óleyfi fær-
eyska sjómannafélagsins.
SLITNAÐI UPP ÚR
SAMNINGUM.
Alþýðublaðið fékk þær upp-
lýsingar hjá LÍÚ í gær, að
skeyti hefði borizt frá fær-
eyska sjómannaféláginu : um
það, að enginn Færeyingur
fengi að fara til íslands. Er af
þessu skeyti ljóst, að slitnað
hefur upp úr samningaviðræð-
um milli Færeyinga og LÍÚ.
FÆREYSKAR STÚLKUR
FENGNAR TIL ÍSLANDS.
Ekki vantar aðeins fólk á
fiskiskipin hér, heldur einnig
til vertíðarstarfa í landi. Hef-
ur Alþýðublaðið fregnað, að
útvegsmenn í Eyjum ráðgeri
að fá færeyskár stúlkur hingað
til lands.
BÁTAR RÓA FRÁ
VESTMANNAEYJUM.
BLAÐIÐ hefur frétt, að ein-
hverjir Vestmannaeyjabátar
muni róa þangað til samningar
um fiskverð og kjör hafa verið
staðfestir.
Af þessu er augljóst, að dagana fyrir Þorláksmessu vorsi leið-
togar kommúnista reiðubúnir að gera það, sem þeir nú kalla
að svíkja sjómenn, ef þeir aðeins fengju að komast aftur f
í'áðherrastólana. Þá voru þeir reiðubúnir að taka af Dagsbrún-
armönnum það, sem þeir nú halda fram að sé 14 prósent kaup-
lækkun, ef þeir aðeins fengju að vera í stjórn. — Þannig er
barátta kommúnista.
miiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiHiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiniiiiiijiiir
| Báfðsjómenn fá meiri hækk-i
Sjá 12. síðu
-j 11111111111111111 m i ■ 11111111111111 n 11111111 n 111 ii 11111111111111111111111111111 ii 1111111111111111111111111111111111111111111111 n 11 ■ 111111111
Áki Jakobsson tek-
ur sæti í fjárveit-
inganefnd.
TILKÝNNT var í sameinuðu
þingi í gær, að Áki Jakobsson
hefði tekið sæti Friðjóns
Skarphéðinssonar í fjárveitinga
nefnd.
Talsverf tjón af
eldsvoða.
ELDUR kom upp í tvílyftu
íbúðarhúsi að Akurgerði 39 í
gærkvöldi. Var aðaleldurinn í
herbergi á efri hæðinni. Taís-
verðar skemmdir urðu af völd-
um elds og reyks. Ekki er vit-
að um eldsupptök. — Eigandi
hússins er Jónas Gunnarsson.