Morgunblaðið - 20.06.1990, Blaðsíða 18

Morgunblaðið - 20.06.1990, Blaðsíða 18
18 MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 20. JUNI 1990 MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 20. JÚNÍ 1990 19 Útgefandi Framkvæmdastjóri Ritstjórar Aðstoðarritstjóri Fulltrúar ritstjóra Fréttastjórar Auglýsingastjóri Árvakur, Reykjavík Haraldur Sveinsson. Matthías Johannessen, Styrmir Gunnarsson. Björn Bjarnason. Þorbjörn Guðmundsson, BjörnJóhannsson, Árni Jörgensen. Freysteinn Jóhannsson, Magnús Finnsson, Sigtryggur Sigtryggsson, Ágúst Ingi Jónsson. Baldvin Jónsson. Ritstjórn og skrifstofur: Aðalstræti 6, sími 691100. Auglýsingar: Aðalstræti 6, sími 22480. Afgreiðsla: Kringlan 1, sími 83033. Áskrift- argjald 1000 kr. á mánuði innanlands. í lausasölu 90 kr. eintakið. Embættismaður gagnrýnir ráðherra Við eigum því alls ekki að venjast, að embættismenn, sem hafa áunnið sér traust og virðingu í störfum sínum, kveðji sér hljóðs á opinberum vett- vangi og finni að gjörðum yfir- manna sinna^ sem sitja i ráð- herrastólum. í Reykjavíkurbréfi Morgunblaðsins síðastliðinn sunnudag var vitnað í gamalt bréf frá Jóni Sigurðssyni for- seta, þar sem hann varaði ein- mitt við því fyrir tæpum 140 árum, að menn væntu of mikils af embættismönnum, þegar þeir vildu setja of sterku ríkisvaldi skorður; „því embættismenn flestir eru uppaldir til þess að gegna skipun stjórnarinnar í öllu, hugsunarlaust, og þjóðin ætti aldrei upp á þá að ætla, nema til þess að gegna embætt- um sínum,“ eins og Jón orðaði það. í hinu sama sunnudagsblaði Morgunblaðsins, þar sem til þessara orða er vitnað, er birt viðtal við Pétur Kr. Hafstein, sýslumann á ísafirði, sem brýt- ur gegn þeirri venju að virtir embættismenn láti til sín heyra opinberlega og gagnrýni með- ferð á ráðherravaldi. Er greini- legt af frásögn Péturs, að Óli Þ. Guðbjartsson dómsmálaráð- herra hefur farið fijálslegar með vald sitt en menn eiga að venjast í afskiptum ráðherra af ráðstöfun embætta til bráða- birgða. Er þar vísað til þess að Pétri var falið að sinna um stund embætti bæjarfógeta í Bolung- arvík. Tók hann þar rösklega til hendi við embættisfærslu og fór síðan að ósk dómsmálaráðu- neytis um að gegna störfum lengur en til 1. júní eins og upphaflega var ráðgert. Eftir að frá þeirri ráðstöfun hafði verið skýrt opinberlega greip dómsmálaráðherra fram fyrir hendur á ráðuneytisstjóra. Við svo búið ákvað Pétur strax að hætta að gegna hinum tíma- bundnu störfum í Bolungarvík. Þegar blaðamaður spyr hvort Pétur geti skýrt hvað fyrir ráð- herranum vakti, svarar hann: „Því verður hann að svara sjálfur. Hann gerði orð sinna manna ómerk, treysti sér ekki tii þess að standa við ákvörðun ráðuneytisins um að ég yrði settur áfram í tvo mánuði. Ég tel að kannski geti einhverjir leyft sér svona í pólitískum fim- leikum, en framganga af þessu tagi er að mínum dómi óhæfa í opinberri stjórnsýslu. Þess vegna baðst ég lausnar þegar í stað.“ Ríkisstjórn Steingríms Her- mannssonar hefur með marg- víslegum hætti stuðlað að því, að virðing manna fyrir ráðherr- um og embættisgjörðum þeirra fer þverrandi. Hér hefur Óli Þ. Guðbjartsson kallað á réttmæta gagnrýni. Meðal skyldna ráð- herra er að halda þannig á embættum sínum að festa ríki í stjórnarathöfnum og menn megi treysta því að gjörðir ráðu- neyta mótist ekki af geðþótta ráðherra. Gagnrýni Péturs Kr. Haf- steins lýtur ekki einvörðungu að afskiptum dómsmálaráð- herra af þessu sérgreinda máli heldur hinu, sem ekki er síður alvarlegt, að stjórnmálamenn virðast telja dómsmálaráðu- neytið léttvægt þegar teknar eru stórpólitískar ákvarðanir. Pétur segir meðal annars: „Því miður hefur vegur dómsmála- ráðuneytisins farið nokkuð minnkandi í seinni tíð. Það hef- ur gerst að undanförnu, að ráðuneytið hefur orðið einhvers konar afgangsstærð eða upp- boðsvara við stjórnarmyndanir. Það er kannski vegna þess að stjórnmálamenn hafa ekki talið sig hafa pólitískan hag af því, að fá þetta ráðuneyti til um- ráða. Það er af sem áður var, þegar af hálfu stjórnmálaflokk- anna var lögð mikil áhersla á að stýra dómsmálaráðuneytinu og helstu foringjar þeirra, sér- staklega Sjálfstæðis- og Fram- sóknarflokks, fóru gjarnan með þetta ráðuneyti.“ Ef ekki er lögð nægileg rækt við verkefni á sviði dómsmála- ráðuneytis af kjörnum fulltrúum þjóðarinnar setur það fljótt svip sinn á alla þá starfsemi sem undir ráðuneytið fellur. Víða sjást þess merki að mikilvægum málaflokkum er ekki sinnt sem skyldi. Á liðnum vetri var mikið rætt um ónóga löggæslu í Reykjavík. LandhelgisgæSlunni hefur ekki verið mörkuð ný stefna við breyttar aðstæður. Fangelsismál eru í ólestri vegna húsnæðiseklu. Þannig mætti áfram telja. Á meðan núverandi dómsmálaráðherra einbeitir sér að því, hveijir gegna einstökum embættum til bráðabirgða, er borin von að vænta þess að hann gefi sér nokkurn tíma til að sinna hinum stærri málum eða móta stefnu til framtíðar. ' friir Margar konur nýttu sér boð kvenna á þingi um að skoða Alþingishúsið. Hátíðarhöld í tilefiii þess að 75 ár eru liðin frá því konur fengu kosningarétt til Alþingis hófust í porti Miðbæjarskólans og var þaðan gengið miðbæinn að Alþingishúsinu. m 75 ár frá því konur fcngn kosningarétt: Hátt í fimm þúsund kon- ur skoðuðu Alþingishúsið MIKIL þátttaka var í hátíðarhöld- um í Reykjavík í gær í tilefni af því að 75 ár voru liðin frá því konur fengu kosningarétt og kjör- gengi til Alþingis. Samkvæmt upplýsingum frá lögreglunni tóku á milli átta og tíu þúsund konur þátt í hátíðarhöldunum, sem fram fóru í blíðskaparveðri. íslenskar konur fengu kosninga- rétt og kjörgengi til Alþingis 19. júní 1915. Afþví tilefni efndu Kven- réttindafélag Islands og konur í þeim þingflokkum, sem hafa konur í röð- um sínum, til hátíðarhalda í Reykjavík í gær. „Við erum afskaplega ánægðar með daginn," sagði Guðrún Arnar- dóttir, formaður Kvenréttindafélags íslands, í samtali við Morgunblaðið í gær. „Hátíðarhöldin tókust betur en nokkur þorði að vona. Við vorum hálfsmeykar við þetta í upphafi en þetta hefur gengið mjög vel; þátttak- an var mjög góð og veðrið dásam- legt,“ sagði Guðrún. Hátíðarhöldin hófust með fundi í porti Miðbæjarskólans og var þaðan gengið fylktu liði í gegnum miðbæ- inn að Alþingishúsinu, sömu leið og reykvískar konur gengu til að fagna nýfengnum réttindum sínum fyrir 75 arum. Á Austurvelli voru atburðir 19. júní 1915 rifjaðir upp með þátttöku leikara og að því loknu tóku Guðrún Helgadóttir, forseti sameinaðs þings, og aðrar konur á Alþingi á móti konum í Alþingishúsinu og sýndu þeim bygginguna. Er talið að fjögur til fimm þúsund konur hafi skoðað húsið, en að sögn lögreglu munu átta til tíu þúsund manns, aðallega konur, hafa tekið þátt í hátíðarhöld- unum. í gærkvöldi var efnt til hátíðar- samkomu í íslensku óperunni og varð húsfyllir. Bandaríska kvenrétt- indakonan Betty Friedan hélt ávarp og leikarar fluttu dagskrá, þar sem saga kvenréttindabaráttunnar var rakin allt frá frönsku stjórnarbylt- ingunni til okkar daga. Á Austurvelli var flutt dagskrá þar sem rifjaðir voru upp atburðir 19. júní 1915. Meðal annars flutti Bríet Héðinsdóttir, leikkona, ræðu eftir ömmu sína, Bríeti Bjarnhéðinsdóttur. Morgunblaðið/KGA Talið er að milli fjögur og fimm þúsund konur hafi skoðað Alþingishús- ið í gær og hefúr hér ein úr hópi þeirra yngri brugðið sér í sæti for- seta Sameinaðs Alþingis. Bandaríska kvenrétt- indakonan Betty Friedan hélt ávarp á hátíðarsam- komu í íslensku óperunni í gærkvöldi. Húsfyllir varð og var góður rómur gerður að máli Frieden. Jafnframt var flutt dag- skrá um sögu kvenrétt- indabaráttunnar við góð- ar undirtektir áhorfenda. Sálnaveiðar og eyðilegg- ingarstarfsemi kristniboða Kristniboð eyðileggjandi? því, hverju kristindómurinn hefur komið til leiðar í sögunni, þrátt fyrir allt hið neikvæða, eins og trúarbragðastríð og krossferðir. Það heyrist sjaldan, að kristni- boðar hafi í gegnum tíðina verið upphafsmenn og grundvallendur mannfræði og málvísinda, að ekki sé talað um menntunarmál og heilbrigðisþjónustu. Er mönnum það ljóst, að víða í hinum 3. heimi búa kristniboðar í einangrun í k afskekktum héröðum til þess að skapa ritmál þjóðflokka, sem enn hafa ekkert? Án þessa starfs myndi fjöldi tungumála og mörg menningararfleifðin hverfa í gleymsku og verða undir í sam- keppninni við mál og menningu stærri þjóðflokka og ríkismála. Þeir stuðla að varðveislu menn- ingar þjóðflokka og samfélaga, sem mega sín lítils gagnvart til- litslausum umheimi. Hið Islenska biblíufélag hefur stutt slíkt starf bæði á meðal Pókotmanna í Kenýa og Konsómanna í Eþíópíu með árlegu fjárframlagi. Væri ekki ástæða til að sýna heimildar- þátt um slíkt starf? Ég ætla að ljúka orðum mínum með því að vitna í fréttabréf Hjálparstofnunar kirkjunnar, sem kom nýlega inn um bréfalúguna hjá mér, en þar er meðal efnis þáttur úr dagbók Sigurðar Grímssonar, kvikmyndatöku- manns, sem heimsótti Éþíópíu og íslenska kristniboða þar í febrúar sl. Hann segir m.a.: „í bland við óskiljanlegt mál innfæddra hljóma orðin Gulli og Elsa, en hún ber að þessu sinni veg og vanda af t , sjúkramóttökunni. Ég get ekki annað en dáðst að þessu fólki, sem hér starfar. Ekki bara fyrir köllun Ég varð hissa að heyra í kynn- ingu þularins á þættinum, „að vestrænir menningarkvillar fylgdu oftar en ekki í kjölfarið" á kristniboði. Spurningin, sem brennur í huga mér, er: Hvers vegna var þessi þáttur sýndur? Hver ber ábyrgð á því að svona lélegt efni og meiðandi fyrir hóp manna er sýnt á þeirri sjónvarps- stöð, sem er eign allra lands- manna? Það hefði verið annað mál, ef um einkastöð hefði verið að ræða. Ef mönnum finnst ástæða til að sýna heimildarmyndir um lé- legt kristniboðsstarf væri heilla- drýgra að sýna vel gerðan þátt, sem er bæði málefnalegur og óhlutdrægur. Það er auðvelt fyrir fólk, sem ekki þekkir til kristni- boðsstarfs, að setja allt starf með því nafni undir einn hatt, bæði það sem vel er unnið og það, sem illa er unnið. Mér finnst ekki að íslenskir kristniboðsvinir, sem hafa lagt hart að sér um áratuga skeið við að hjálpa fólki á af- skekktum stöðum í Afríku sam- kvæmt beiðni frá innfæddum, eigi það skilið að starf þeirra sé kennt við eyðileggingarstarfsemi, en það gaf þulurinn til kynna í kynn- ingu þáttarins. Störf íslenskra kristniboða í Eþíópíu og Kenýa eru landsmönnum löngu kunn orð- in. Það er furðulegt á þessum upp- lýsingar- og menntatímum hve menn eru oft fávísir, þegar kristniboð er annars vegar. Klisjan um að kristniboð eyðileggi menningu þjóða er vægast sagt orðin slitin. Eru það virkilega eng- ir aðrir, sem ferðast um þróunarl- öndin en kristniboðar? Vissu menn ekki að kaupmenn fara þangað sem peningalykt er? Er það tilvilj- un að gosdrykkjaframleiðendur eru stundum fyrstir á staðinn með sína vöru? Vita menn ekki að fjöl- miðlar, s.s. útvarp, ná inn í hvern krók og kima jarðkringlunnar? Maður frá Voito. Hvað um framleiðendur vopna, útvarpstækja, armbandsúra, bíla o.s.frv.? Það eru ekki mörg samfé- lög eftir í veröldinni, sem enn hafa ekki komist í snertingu við umheiminn. Umheimurinn kemur hvort sem okkur líkar það betur eða verr með menningarkvilla sína, hvort sem kristniboðar fara til annarra landa eða ekki. Kristniboðar varðveita menningu Kristniboðar hafa alltaf verið börn síns tíma. Fyrr á tímum höfðu þeir ekki aðgang að mann- fræði og öðrum hjálpargreinum, sem við höfum nú á dögum. Eftir á að hyggja hefði mátt gera ýmis- legt betur, og því miður eru til ýmis dæmi um sorglega illa rekið kristniboð, en þannig er með alla mannlega hluti. Menn læra af sögunni. Velferðarríki N-Evrópu væru ekki til, ef kristninnar hefði ekki notið við. Þess vegna getum við kristnir menn verið stoltir af eftirKjartan Jónsson w Höfundur er kristniboði. Miðvikudaginn 6. júní sl. var sýndur þáttur í ríkissjónvarpinu, sem bar yfirskriftina „Sálnaveið- ar“. Hann var kynntur í blöðum sem bresk heimildarmynd um áhrif kristinna trúboða á indíána í Suður-Ameríku. Markmiðið var að sýna hve mikil voðaverk kristniboðar fremja á frumbyggj- um frumskóga Paraguay. Sjálfur sá ég ekki þáttinn fyrr en eftir að fjöldi manns hafði haft samband við mig og sam- starfsmenn mína í Kristniboðs- sambandinu og tjáð hryggð sína yfir því, hve kristniboðsmálefnið hefði verið niðrað í þessum þætti. Léleg heimildarmynd Sjaldan hef ég séð jafn lélegan heimildarþátt. Með þessu er ég ekki að bera í bætifláka fyrir kristniboðsfélagið, sem gagnrýnt var í þættinum. Ég er ekki heldur að segja, að kristniboð almennt sé hafið yfir gagnrýni. Þvert á móti. Sérhvert kristniboðsfélag og sérhver kristniboði verður að vinna þannig að hann þoli ná- kvæma skoðun. Jákvæð umfjöllun og uppbyggileg gagnrýni eru af hinu góða. En þeir, sem fram- leiddu ofangreindan þátt, voru neikvæðir í nálgun sinni á efninu. Þetta átti að vera heimildarþátt- ur, en í rauninni skein hin nei- kvæða afstaða framleiðendanna alls staðar í gegn. Þeir tíndu t.d. til fólk, sem talaði illa um störf kristniboðsfélagsins. Þeir höfðu ekki fyrir því að finna einn ein- asta, sem talaði vel um það til að fram kæmu fleiri hliðar á málinu, en það er grundvallarat- riði þegar fjallað er um mál þar sem fleiri sjónarmið takast á. Kjartan Jónsson „Mér fínnst ekki að íslenskir kristniboðs- vinir, sem hafa lagt hart að sér um áratuga skeið við að hjálpa fólki á afskekktum stöðum í Afiríku samkvæmt beiðni frá innfæddum, eigi það skilið að starf þeirra sé kennt við eyðileggingarstarf- semi, en það gaf þulur- inn til kynna í kynningu þáttarins. “ Ljósmynd/Kjartan Jónsson þeirra að breiða út fagnaðarerind- ið, heldur fyrir afstöðu þeirra til umhverfisins og fólksins sem hér býr. Þeim liggur ekkert á. Þau ryðjast ekki inn í menningarheim innfæddra með hallelújahrópum og bumbuslætti, heldur gera sér far um að skilja þá og kynnast siðum þeirra og venjum, án for- dóma. Það er greinilegt að þau eru á réttri leið.“ Gott sjónvarpsefni Að lokum vil ég þakka ríkis- sjónvarpinu fyrir allt gott sjón- varpsefni, t.d. þættina um íslensku kristniboðana í Voitod- alnum, sem sýndir voru um dag- inn. Væri nokkuð úr vegi að sýna meira af slíku efni og aðra góða kristilega þætti, bæði fyrir börn og fullorðna? Ætli það skaðaði okkur meira en ýmislegt, sem framleitt er í Hollywood?

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.