Morgunblaðið - 27.07.1990, Page 1

Morgunblaðið - 27.07.1990, Page 1
i 56 SIÐUR B/C 168. tbl. 78. árg.____________________________________FÖSTUDAGUR 27. JÚLÍ 1990________________________________Prentsmiðja Morgunblaðsins Reuter Efnavopn á brottfrá V-Þýskalandi Bandaríski herinn hóf í gær að flytja á brott frá Vestur-Þýskalandi efnavopnabirgðir sínar, alls um 400 tonn. Um er að ræða 100.000 sprengjur með eitu'rhleðslum, m.a. taugagas, og voru birgðirnir geymdar í smáborginni Clausen, skammt frá Lúxem- borg. íbúarnir vissu ekki að vopnin væru á staðnum. Ronald Reagan, þáverandi Bandaríkjaforseti, og Helmut Kohl, kanslari V-Þýskalands, sömdu um brottflutning vopnanna fyrir íjórum árum og verður þeim eytt á kóraleyju í Kyrrahafinu. Umhverfis- sinnar gagnrýndu harðlega áætlun yfirvalda um flutninginn og töldu varúðarráðstafanir ekki nægar. Þá hafa íbúar Kyrrahafseyja mótmælt því að gasið verði eyðilagt í nágrenni við þá. Á myndinni sjást flutningabílar leggja af stað frá Clausen. Mynstrað í vetur Norski tískuhönnuðurinn Per Spook sýndi4>ennan ullarvetr- arklæðnað á tískusýningu í París fyrr í vikunni þar sem komandi haust- og vetrartíska var kynnt. Stúlkur sem klæðast fatnaði Spooks í vetur ættu örugglega ekki að fara framhjá neinum. Reuter Bretland: Ríkisstj óniin boðar niður- skurð á fé til vamarmála OPEC-fundurinn í Genf: London. Daily Telegraph. STJÓRN Margaret Thatcher í Bretlandi hefur kynnt tillögur um mikinn niðurskurð næstu árin á sviði hefðbundinna vopna vegna þróunar í alþjóðamálum og enda- loka kalda stríðsins. Alls er stefht Verð á olíufati fari í 20 Bandaríkjadali Genf. Reuter, dpa. SAMKOMULAG virtist í sjónmáli á fúndi samtaka olíuútilutnings- ríkja, OPEC, í gær. Olíuráðherrar aðildarríkjanna þrettán sögðu að þau vildu öll stefha að því að olíuverðið yrði 20 dalir á fatið í fyrsta sinn frá árinu 1986. írakar höfðu krafist þess að OPEC-ríkin drægju svo úr fram- leiðslu sinni á olíu að verðið hækk- aði úr 18 dölum á fatið í 25. Flest- ir ráðherranna á fundinum töldu hins vegar raunhæfara að stefna að því að verðið yrði rétt rúmlega 20 dalir. Talsmenn vestrænna olíu- fyrirtækja spáðu því að OPEC-ríkin myndu /skuldbinda sig til að virða þá framleiðslukvóta, sem þeim hafa verið úthlutaðir, til að draga úr offramleiðslunni og knýja fram verðhækkun. Gholanu-eza Aqazadeh, olíumála- ráðherra írans, sagði að ráðherr- arnir hefðu samþykkt að heildar- hráolíuframleiðsla OPEC-ríkjanna 13 yrði ekki meiri en 22,5 milljónir fata á dag til ársloka þótt Líbýu- menn hefðu viljað mun minni fram- leiðslu. Talið er að ráðherrar Kúv- æts og Sameinuðu arabísku fursta- dæmanna samþykki að virða kvót- ana og dragþ úr framleiðslu sinni um ijórðung. Irakar höfðu fordæmt ríkin tvö fyrir að hafa af ásettu ráði framleitt of mikið af olíu til að veikja efnahag Iraks. Óttast var um hríð að stríð brytist út á ný við Persaflóa vegna deilunnar en nú virðist sem allt sé að falla í ljúfa löð. Austur-Evrópa: Erfiðleikar vegna minni olíusölu Sovétmanna London. Daily Telegraph. VACLAV Klaus, flármálaráðherra Tékkóslóvakíu, hefur varað Sov- étmenn við því að minnka olíusölu til Austur-Evrópu. Ráðherrann segir að verðhækkanir sem yrðu því samfara kynnu að valda sams konar kreppu í Austur-Evrópu og olíuverðshækkun arabaríkja olli á Vesturlöndum á síðasta áratugi. Níkolaj Ryzhkov, forsætisráð- vöru sína á gjafverði meðan þeir herra, kynnti þá ákvörðun Sovét- manna að draga úr olíusölu á nýaf- stöðnu flokksþingi sovéska komm- únistaflokksins. Hann sagði að sovéskur landbúnaður yrði að hafa forgang. Kornuppskera hefði verið langt undir því sem eðlilegt gæti talist þar eð bændur hefðu ekki fengið nóg bensín á dráttarvélar og kornskurðai’vélar vegna of mik- illar áherslu á olíuútflutning. Sov- étmenn munu hafa lítinn áhuga á að aflienda fyrrum fylgiríkjum sínum verðmætustu útflutnings- geta fengið gjaldeyri fyrir hana annars staðar. í stað þess að grípa til eldsneyt- isskömmtunar brugðust yfirvöld í Tékkóslóvakíu, Ungveijalandi, Búlgaríu og Rúmeníu við ákvörðun Sovétmanna með því að stórhækka bensínverð til þess að draga úr eftirspurn. Er hækkunin á bilinu 20-70%. Efnahagslíf landanna mátti ekki við áfallinu og er óttast að hækkunin verki sem bensín á verðbólgubál þeirra. Ungverska stjórnin hyggst leysa bráðasta vandann með því að taka lán til olíukaupa á Vesturlöndum því hún telur sig ekki geta fengið lands- menn til að sætta sig við strangar aðhaldsaðgerðir í efnahagsmálum með öðrum hætti. í Rúmeníu er olíuverðið orðið illviðráðanlegt fyr- ir almenning sem óttast að geta ekki kynt híbýli sín í vetur. Minni olíusala Sovétmanna mun líklega koma minnst við Pólveija. Þeir segja að standi Sovétmenn ekki við gerða samninga um olíu- sölu fái þeir ekki umsamdar pól- skar framleiðsluvörur. Verði þær seldar á Vesturlöndum og gjald- eyririnn notaður til olíukaupa þar. Áhrifin verða lítil í A-Þýskalandi vegna fyrirhugaðrar sameiningar Þýskalands. að því að fækka í fastaliði land- hersins um 40.000 manns, í 120.000, auk þess sem flugher og floti draga saman seglin. Tom King varnarmálaráðherra sagði í skýrslu til þingmanna að tillög- urnar séu m.a. háðar árangri í CFE-viðræðunum í Vín um fækk- un í hefðbundnum herafla. „Markmiðið er minni her, betur búinn, vel þjálfaður og í góðum húsa- kynnum, baráttufús liðsafli. Herafl- inn þarf að vera sveigjanlegur og hreyfanlegur, fær um að sinna hlut- verki sínu í Atlantshafsbandalaginu og annars staðar," sagði King. Hrinda á breytingunum í fram- kvæmd fyrir 1995 og er talið að ráðstafanirnar geti lækkað árleg útgjöld til varnarmála um allt að 25% eða fimm milljarða punda (rúmlega 500 milljarða ISK). 48 freigátum og tundurspillum flotans verður fækkað í 40 og kafbátum úr 27 í 16; flestir þeirra eiga að vera kjarnorkuknúnir. Þrjár Tornado-flugsveitir verða lagðar niður og tveim flugstöðvum flughersins í V-Þýskalandi lokað. Ráðherrann sagði stjórn íhalds- flokksins ekki myndu hvika frá þeirri stefnu að halda uppi sjálfstæðum kjarnorkuherafla, m.a. með fjórum Trident-kjarnorkukafbátum. Lagt væri til að Bretar ættu áfram þijú flugvélamóðurskip. Einnig yrði hald- ið áfram þátttöku í smíði Euro- fighter-þotunnar með nokkrum öðr- um Evrópuríkjum. Enda þótt þróun mála í Evrópu gæfi vonir væru hættumerki annars staðar, „ekki síst hvað snertir útbreiðslu hátækni- vopna. Við munum því áfram þarfn- ast sterkra varna sem tryggja okkur gegn óvæntum viðburðum." A-Þýskaland: Stóri Mac bannaður? A-Berlín. Reuter. FORMAÐUR umhverfísniála- nefhdar austur-þýska þings- ins, Ernst Dörfler, hefur lagt til að bannað verði að selja „Stóra Mac,“ hamborgara bandarísku verslanakeðjunn- ar McDonald’s, og skyndibita af svipuðum toga í landinu. Dörfler segir að eina leiðin til að forðast verstu umhverfis- slys kapítalismans sé að banna skyndibitastaði' sem nota ein- nota umbúðir og hnífapör. McDonald’s hefur kynnt áætlun um að opna 10 útibú í A-Þýskalandi á næsta ári. Keppinautur fyrirtækisins, Bur- ger King, hefur þegar opnað veitingastað á hjólum í Dresden.

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.