Morgunblaðið - 27.07.1990, Page 2
2
MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 27. JÚLÍ 1990
Viðskiptaráðherra um ftjáls olíuviðskipti:
Aðgátar þörf vegna
íslenskra útflytjenda
- en allt stefhir í haftalaus viðskipti
„ÞAÐ er vissulega vel athugandi að gefa olíuviðskipti frjáls, en
meðan íslenskir útfiytjendur telja svo mikilvægt sem raun ber
vitni að jafhvægi haldist þarf að fara með gát,“ segir Jón Sigurðs-
son viðskiptaráðherra. Hann var spurður hvort eitthvað væri því
til fyrirstöðu að létta höftum af olíuviðskiptum, ekki síst í ljósi
þess að Sovétmenn hyggjast flytja hingað bensín frá Rotterdam.
samanburður sem nú tíðkast kann
að hverfa innan skamms. Ef mark-
aðsbúskapur og valddreifing þró-
ast áfram þar eystra kemur án
efa að því að þessi viðskipti verða
gefin alveg frjáls. Raunar eru
harla lítil höft lögð á olíufélögin
hér, þeim er frjálst að kaupa þar
sem verð eru hagstæðust. En
vandinn felst í að fiutt er inn frá
Sovétríkjunum og þangað út fyrir
nokkum veginn sömu íjárhæð ár-
lega. Það myndi raska mjög út-
flutningsstöðu íslenskra fyrir-
tækja sem hlut eiga að máli ef
þessa jafnvægis væri ekki gætt.
Það er ástæða til að minna á
að þær breytingar sem nú hafa
verið gerðar með skiptum á rúss-
neskri og Rotterdam olíu eru skref
til fijálslegri viðskiptahátta. Sov-
étmenn eru að selja okkur mark-
aðsvöru sem er gjaldgeng hvar
sem er, á heimsmarkaðsverði."
„Það stefnir allt í haftalaus við-
skipti. Forsendur breytast svo ört
í Sovétríkjunum að sá viðskipta-
Bílvelta við
Hestgerði
FÓLKSBÍLL fór í gær út af
þjóðveginum við Hestgerði í
Suðursveit, um 60 kílómetrum
vestan við Höfn í Hornafírði.
Bíllinn valt og skemmdist nokk-
uð, en enginn slasaðist, að sögn
lögreglunnar á Höfn.
Vegurinn var nýheflaður á þess-
um stað og er talið að bíllinn hafi
farið út af veginum, þegar honum
var ekið á nokkurri ferð í beygju.
Hér var um að ræða bflaleigubfl
og voru í honum erlendir ferða-
menn.
Varaforseti framkvæmdastjórnar EB:
Kominn til viðræðna
við íslenska ráðamenn
FRANS Andnessen, varaforseti framkvæmastjórnar Evrópubandalags-
ins, og Catherine Andriessen, eiginkona hans, komu til Islands í gær
og tóku Jón Baldvin Hannibalsson, utanríkisráðherra, og Bryndís
Schram, eiginkona hans, á móti þeim á Keflavíkurflugvelli.
Andriessen mun eiga viðræður við
Jón Baldvin Hannibalsson,
Steingrím Hermansson, forsætisráð-
herra, Jón Sigurðsson, viðskiptaráð-
herra, og Þorstein Pálsson, formann
Sjálfstæðisflokksins. Þá mun hann
einnig hitta sendiherra ríkja Evrópu-
bandalagsins hér á landi og sitja
morgunverðarfund Verslunarráðs í
dag.
Andriessen-hjónin dvelja hér fram
á sunnudag. Á laugardaginn ferðast
þau um suðurlandsundirlendið en
fara síðan í laxveiðar í Laxá í Kjós.
Á sunnudagsmorgun fara þau til
Þingvalla og skoða gufuaflsvirkjun-
ina í Svartsengi á leið sinni til
Keflavíkurflugvallar.
Sjá viðtal Morgunblaðsins við
Frans Andriessen á bls. 16.
Friðrik Sophusson alþingismaður:
"Morgunblaðið/PPJ
. HMI
Jack Nicklaus
við laxveiðar
á Islandi
ÞEKKTASTI golfleikari
heims, Jack Nicklaus, hefúr
dvalið hér undanfarna daga
ásamt fjölskyldu sinni við lax-
veiðar í Norðurá í Borgar-
firði. Þetta mun vera í fimmta
skipti sem Jack Nicklaus dvel-
ur hér við laxveiðar.
Aðspurður við brottför sína
frá Reykjavíkurflugvelli síðdegis
í gær sagði Nicklaus að lítið
hafi veiðst en marga físka hefði
hann séð. Hann kvað fjölskyld-
una alla hafi verið mjög ánægða
með dvölina hér þrátt fyrir físk-
leysi. Þau höfðu skemmt sér vel
og notið þess að vera hér. Einn
fisk fékk hann þó, sex punda
lax.
Jack Nicklaus og kona hans,
Barbara, ásamt góðvini þeirra,
Kristmanni Magnússyni, t.v.,
við brottíor þeirra hjóna frá
Reykjavík.
Stöð 2 keypti í gær
meirihluta í Sýn hf.
STÖÐ 2 keypti í gær hlut Bíóhallarinnar, Odda hf. og Vífilfells hf.
í Sýn hf. á 70 milljónir króna. Stöð 2 hefúr þar með eignast 55% hlut
í Syn.
Jóhann J. Ólafsson stjórnarfor-
maður Stöðvar 2 sagði að með
þessu væri samkomulagið milli
Stöðvar 2, Sýnar og íslenska út-
varpsfélagsins raunverulega í höfn,
þótt sameining Stöðvar 2 og Sýnar
hafi ekki gengið eftir, og Stöð 2
standi sterkari á eftir.
Fyrirtækin þijú voru skráð fyrir
60 milljóna króna hlut í Sýn, og
höfðu greitt 20 milljónir af þeim,
en lagt fram bankaábyrgðir fyrir
afgangnum. Stöð 2 yfírtók hluta-
flárloforðin og keypti útborgaða
hlutaféð á 30 milljónir, og greiddi
20 milljónir út en 10 milljónir með
hlutabréfum í Stöð 2.
Jóhann sagðist gera ráð fyrir að
þetta styrkti stöðu Stöðvar 2, og
gerði það álitlegra fyrir nýja hlut-
hafa að koma inn í fyrirtækið, en
hlutaféð hefur verið aukið um 310
milljónir, Hann sagði að hluthafar
Stöðvar 2 myndu væntanlega sam-
þykkja sameiningu fyrirtækisins við
Islenska útvarpsfélagið á þriðjudag,
þannig að samkomulagið, sem gert
var 4. maí milli Stöðvar 2, Sýnar
og Útvarpsfélagsins, væri raun-
verulega komið í höfn.
Ámi Samúelsson eigandi Bíóhall-
arinnar og áður stjómarformaður
Sýnar, sagði að eftir að sameining-
in við Stöð 2 náði ekki fram að
ganga, hefði Sýn vantað méira
hlutafé. Það hfefði ekki fengist, og
þá hefði ekkert verið annað að gera
en selja hlutinn. Árni sagði aðspurð-
ur að þeir hefðu ekki gefíst upp,
heldur hefði þetta verið eðlilegast
úr því sem komið var. „Við eram
því hættir sjónvarpsrekstri í bili,“
sagði Árni.
Árni sagði að Stöð 2 myndi yfir-
taka þá samninga sem Sýn hefði
gert um kaup á tækjum, hugbúnaði
og sjónvarpsefni. Hins vegar hefðu
samningar um myndlykla fyrir Sýn
ekki verið frágengnir.
Jóhann J. Olafsson sagði að Sýn
yrði fyrst um sinn rekið sem sér-
stakt fyrirtæki, og fyrirhugað væri
að það myndi senda út á sérstakri
sjónvarpsráðs, en þær útsendingar
yrðu mun minni í sniðum og með
öðrum hætti, en áður var áætlað.
Hann sagði að ekki væri ákveðið
hveijir kæmu inn í stjóm Sýnar frá
Stöð 2, í samræmi við meirihluta-
eignina.
Fijáls fjölmiðlun á hlut í Sýn.
Jónas Kristjánsson ritstjóri DV
sagði við Morgunblaðið að svo virt-
ist sem Stöð 2 væri þama að losa
sig við keppinaut á markaðnum og
gera fyrirtækið Sýn óvirkt. Það
væri sorgleg niðurstaða, ef það yrði
niðurstaðan.
Vilji Alþingis var að jöfiiun-
argjaldið félli niður nm mitt ár
Lagði fram frumvarp um niðurfellingu gjaldsins
ÓLAF Ragnar Grímsson fjármálaráðherra misminnir að ekkert firum-
varp hafi verið lagt fram á síðasta þingi um niðurfellingu jöfiiunar-
gjalds á innfluttar iðnaðarvörur, að sögn Friðriks Sophussonar, þing-
manns Sjálfstæðisflokksins, sem lagði fram slíkt frumvarp, en í Morg-
unblaðinu I gær sagði fjármálaráðherra að hann myndi ekki til slíks.
Friðrik Sophusson segir að vilji Alþingis varðandi niðurfellingu vöru-
gjaldsins hafi verið skýr; síðasta viljayfirlýsing þingsins hafi komið
fram í afgreiðslu fjárlaga, þar sem gert sé ráð fyrir að jöfiiunargjald-
ið falli niður um mitt ár. Þar áður hafi allar yfirlýsingar þingsins
verið á þá leið, að gjaldið ætti að fella niður er virðisaukaskattur
yrði tekinn upp. Ólafiir Ragnar segir hins vegar að ekki hafi verið
þingvilji fyrir niðurfellingu.
„Það hefur legið fyrir allt frá því
að byijað var að innheimta jöfnun-
argjald að það ætti að leggja það
niður þegar virðisaukaskattur
kæmist á,“ sagði Friðrik í samtali
við Morgunblaðið í gær. Hann sagði
að þann 30. apríl 1989 hefði
Steingrímur Hermannsson forsæt-
isráðherra skrifað Vinnuveitenda-
sambandinu og Vinnumálasam-
bandi samvinnufélaganna bréf um
ráðstafanir ríkisstjómarinnar
vegna kjarasamninga. Þar segir:
„Jöfnunargjald af innfluttum vörum
verður hækkað tímabundið úr 3% í
5% og fellur niður þegar virðisauka-
skattur kemur til framkvæmda."
Friðrik Sophusson segir enn-
fremur að þegar hlutfall virðisauka-
skatts hafi verið ákveðið, hafí verið
gert ráð fyrir tekjutapi ríkissjóðs
vegna niðurfellingar jöfnunar-
gjaldsins. Þegar Alþingi hafi sam-
þykkt fjárlög á síðasta þingi hafí
komið skýrt fram í umræðum að
jöfnunargjaldið yrði aðeins inn-
heimt í hálft ár. Þetta hefði Jón
Sigurðsson iðnaðarráðherra stað-
fest í þingræðu með þeim orðum að
í áætlun fjárlaga fælist að jöfn-
unargjaldið stæði til miðs árs.
Frumvarp Friðriks um niðurfell-
ingu jöfnunargjaldsins var ekki tek-
ið til umræðu á Alþingi. Friðrik
segist því hafa flutt breytingartil-
Iögur við frumvarp til fjáraukalaga
fyrir árið 1990, sem falið hafi það
sama í sér. Þessar breytingartillög-
ur hafí verið ræddar, og iðnaðarráð-
herra hafi beðið sig að draga þær
til baka. Hann hafi orðið við því,
og lýst yfir að hann gerði það í
trausti þess að iðnaðarráðherra
fengi efnisatriði tillögu sinnar af-
greidd í ríkisstjóm.
„Ólafur Ragnar hefur aftur og
aftur sagt að jöfnunargjaldið snúist
ekki síður um samkeppnisstöðu
íslenzks iðnaðar. Ef hann meinar
eitthvað með þeim ummælum
sínum, vil ég benda á að þetta
gjald, sem lögum samkvæmt á að
fara til iðnþróunar, fer allt í ríkis-
sjóð. Samkvæmt nýjum upplýsing-
um frá iðnaðarráðuneytinu, sem ég
hef aflað mér, skuldar ríkissjóður
nú iðnfyrirtækjum í landinu 192
milljónir króna vegna uppsafnaðs
söluskatts frá síðastliðnu ári,“ sagði
Friðrik. „Ég vil einnig benda á
vegna orða Jóns Baldvins Hanni-
balssonai’, um að nú sé kominn tími
til að lækka jöfnunargjaldið um
helming sem lið í samskiptum ríkis-
stjórnarinnar og aðila vinnumark-
aðarins, að það er ekki hægt að
nota jöfnunargjaldið sem skipti-
mynt vegna kjarasamninga tvisvar
sinnum. Ríkisstjómin lofaði í aprfl
á síðasta ári að fella gjaldið niður
þegar virðisaukaskattur yrði tekinn
upp,“ sagði Friðrik Sophusson.
Morðið í Stóragerði:
Málið sent
til ríkissak-
sóknara
Rikissaksóknara hafe. verið
sendar niðurstöður rannsóknar
RLR á morðinu á manninum sem
ráðinn var bani á bensínstöðinni
i Stóragerði í apríl. Ríkissaksókn-
ari mun taka ákvörðun um hvort
fengist hafi með rannsókninni við-
hlítandi grundvöllur fyrir útgáfú
ákæru eða hvort framhaldsrann-
sóknar sé þörf.
Hvorugur mannanna tveggja, sem
í haldi eru vegna verknaðarins, hafa
enn játað á sig ódæðið en viður-
kenna hins vegar að hafa verið við-
staddir þegar það var framið. Gæslu-
varðhald þeirra rennur út 23. sept-
ember. Niðurstöður geðrannsóknar
á mönnunum þykja benda til að þeir
séu báðir sakhæfir. Enn hafa ekki
borist niðurstöður rannsókna á blóði,
sem gerðar vora erlendis, að sögn
Þóris Oddssonar, vararannsóknar-
Iögreglustjóra. i,