Morgunblaðið - 27.07.1990, Qupperneq 27
MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 27. JÚLÍ 1990
27
Minning:
Kristinn J. Magnús-
son — Hafharfírði
Fæddur 28. júní 1940
Dáinn 20. júlí 1990
Góður vinur og félagi, Kristinn
J. Magnússon, hefur kvatt okkur.
Yið rekum okkur æ oftar á það,
hvað við fáum litlu ráðið um sam-
veru okkar í þessu lífi, því skulum
við sýna hvort öðru góðmennsku,
greiðasemi og jákvætt hugarfar,
því hver stund er svo dýrmæt. Þessa
þrjá eiginleika sýndi vinur minn
mér og minni fjölskyldu og viljum
við þakka það.
Kidda hafði ég kannast við frá
því ég var unglingur, það könnuð-
ust flestallir við Kidda þar sem
hann sá um rekstur öskubílsins í
Hafnarfirði. En er ég fyrir um tólf
árum vann við viðgerð á húsi mínu,
kom hann oft til mín er ég var í
vandræðum og aðstoðaði mig við
að losa mig við niðurrif úr húsi
mínu. Þetta gerði hann eins og
ekkert væri sjálfsagðara, en fyrir
mig var þetta ómetanlegt.
Að nokkrum árum liðnúm urðum
við nágrannar, er Kiddi og Magga
fluttu með Sólrúnu yngstu dóttur
sína í næstu götu. Urðu kynni okk-
ar þá nánari, og ekkert breyttist
háttarlag vinar míns þar sem
greiðasemi var annars vegar og
reyndi ég að koma til móts við hann
eins og mér var mögulegt.
Á þessum tíma var nýstofnaður
Kiwanisklúbburinn Hraunborg hér
í Hafnarfirði og var Kiddi einn af
stofnfélögum þar. Kom hann þá til
mín og kynnti mér starfsemi
klúbbsins og hvatti mig eindregið
til að koma á fund og hitta fyrir
góða menn. Svo fór að við fórum
saman á fund, og er það því fyrir
hans tilstilli að ég gekk í Kiwanis-
klúbbinn Hraunborgu.
Kiddi fór mikið austur á firði
með Möggu konu sinni til Þórðar
sonar þeirra er býr þar á Múla í
Álftafirði. Það þótti ekkert tiltöku-
mál að renna austur. Ég fór nokkr-
ar ferðir með Kidda sem verða mér
ógleymanlegar.
Kiddi átti elskulega og hjálpsama
konu sem Magga var. Hann kvænt-
ist Magréti Egilsdóttur 2. ágúst
1958. Eignuðust þau fimm börn:
Magnús, Viðar, Ástu, Þórð og Sól-
rúnu. Reyndist Kiddi börnum sínum
vel, þeirra velferð sat alltaf í fyrir-
rúmi.
Elsku Magga, ég og ijölskylda
mín vottum þér, börnum þínum,
tengdabörnum og barnabörnum
okkar innilegustu samúð.
Blessuð sé minning Kristins Jóels
Magnússonar.
Margur einn í aldurs blóma
undi sæll við glaðan hag,
brátt þá fregnin heyrðist hljóma:
Heill í gær en nár i dag.
Ó hve getur undraskjótt
yfirskyggt hin dimma nótt!
Fyrir dyrum dauðans voða
daglega þér ber að skoða.
(B. Halld.)
Friðbjörn Björnsson
í dag er til moldar borinn félagi
okkar, Kristinn J. Magnússon, verk-
taki í Hafnarfirði. Hann lést í
Landspítalanum föstudaginn 20.
júlí sl.
Kristinn var einn af stofnféleröum
FJALLAHJÓL 1990
JÚLÍ
KEPPNIN
28. júlí
Fjallahjólakeppni verður haldin í Öskjuhlíð við
Nauthólsvík laugardaginn 28. júlí og hefst kl.
14.00. Mæting kl. 12.30. Að þessu sinni verður
háð hindrunarkeppni ítveim flokkum: Byrjenda-
og framhaldsflokki.
Glæsileg verðlaun
Keppt verður um Muddy Fox bikarinn
og glæsilegt Muddy Fox fjallahjól.
Skráning fer fram fyrir keppni milli kl. 12.30 og
13.30 við bátaskýli íþrótta- og tómstundaráðs
Reykjavíkurborgar í Nauthólsvík.
Þátttökugjald kr. 500,'
FÉLAGSMIÐSTÖÐIN „
kRÖTTHEinflKj^
*VIÐ HOLTAVEG - SIMI 39640
ÖRNINN
Kiwanisklúbbsins Hraunborgar, og
hefur verið ein styrkasta stoð hans
frá upphafi, meðal annars átti hann
margar hugmyndir um mótun
klúbbstarfsins. Starfaði hann í
mörgum nefndum, og var meðal
annars formaður fjáröflunarnefnd-
ar. Undir forustu Kristins í nefnd-
inni var þeirri hugmynd hrundið í
framkvæmd að aðalfjáröflun
styrktarsjóðs klúbbsins yrði svokall-
aður Villibráðardagur. Hann er
haldinn árlega og hefur hlotið
fastan sess í félagslífi bæjarins.
Áhugi og eldmóður Kristins í öflun
hráefnis fyrir þennan dag okkar var
aðdáunarverður, og svo hafði hann
búið um hnútana, að klúbburinn
mun njóta um ókomin ár. Hvort sem
hann var í starfi sínu við hreir.sun
bæjarins, eða rúmliggjandi vegna
veikinda, þá lét hann ekkert aftra
sér í því að sinna þeim störfum sem
honum voru falin, eða til hans var
leitað með. Aldrei þurfti að biðja
hann nema einu sinni.
Kristinn fæddist í Hafnarfirði 28.
júní 1940. Hann kvæntist Margréti
Sjöfn Egilsdóttur 2. ágúst 1958,
og hefur hún starfað mjög ötullega
við hlið Kristins ínnan félagsstarfs-
ins. Margrét er félagi í Sinawik-
klúbbnum Hörpu. Börn þeirra hjóna
eru fimm: Magnús Sigursteinn sölu-
stjóri, fæddúr 1958; Viðar sölumað-
ur, fæddur 1960; Ásta María skrif-
stofumaður, fædd 1961; Þórður
Marteinn bóndi, fæddur 1965 og
Sólrún Ósk, fædd 1978.
Við viljum færa Margréti, börn-
um Kristins og öllum aðstandendum
okkar innilegustu samúðarkveðjur,
og biðjum Guð að blessa ykkur öll.
Minningin um góðan Kiwanisfé-
laga mun lifa í hjörtum okkar allra.
Kiwanisklúbburinn
Hraunborg
„Guð gefi mér æðruleysi
til að sætta mig við
það, sem ég fæ ekki breytt,
kjark til að breyta því,
sem ég get breytt... og vit
til að greina þar á milli."
Hann afi Kiddi er dáinn, svo
snögglega að það er erfitt að trúa
því, aðeins viku eftir að hann kom
frá Þýskalandi ásamt Margréti og
Sólrúnu Ósk, þar sem þau hjónin
héldu upp á 50 ára afmælin sín.
Þar áttu þau ógleymanlegar stund-
ir sem munu sennilega líða Möggu
seint úr minni. En enginn átti von
á að það yrðu þeirra síðustu ham-
ingjustundir saman. Og elsku Sól-
rún Ósk, hennar sorg er mikil, sem
missir ekki aðeins föður sinn heldur
sinn besta vin.
Oftast var hann til í tuskið með
Sólrúnu og barnabörnunum þar sem
þau kútveltust yfir hann, skellihlæj-
andi og má segja að hann hafi haft
mest gaman af sjálfur. Sérstök
upplifun var að fá að sitja í
öskubflnum hjá afa Kidda, eða þeg-
ar öskubíllinn var væntanlegur var
ekkert sem gat stöðvað þau að kom-
ast upp í glugga til að vinka afa.
Kristinn var alltaf svolítið dulur
með eigin tilfinningar en lagði á sig
ómælda vinnu og tíma ef einhverju
þurfti að redda í snatri, hvort sem
var fyrir fjölskylduna, vini eða
kunningja og kom þessi eiginleiki
hans m.a. fram í starfi hans með
Kiwanisklúbbnum Hraunborg, þar
sem hann var meðal stofnfélaga.
Starfsárið 1988-1989 var hann for-
maðut' styrktarnefndar og lagði
hann sig allan fram við að afla fjár
til styrktar góðum málefnum, en
ánægjulegustu stundirnar fyrir
Minning:
Jón Þorkelsson
Fæddur 14. nóvember 1908
Dáinn 17. júlí 1990
Jón Þorkelsson samstarfsmaður
okkar og vinur er látinn eftir stutta
en erfiða sjúkraiegu. Hann átti að
baki langa og góða ævidaga, enda
að eigin sögn mikill gæfumaður í
lífi og starfi. J.ón fæddist og ólst
upp í vesturbænum, og bjó þar
reyndar og starfaði lengst af. Hann
eignaðist góða konu, Guðríði Ein-
arsdóttur, sem hann virti mikils,
WIKA
Allar stæröir og gerölr
Sfitiiril®i!ii®uir JiéœsooTi 4 <S® M.
Vesturgðtu t6 - Simar 14680-13210
og barnahópurinn var stór. Eftir
að Guðríður lést árið 1985 hélt
hann heimili með dóttur sinni
Kristínu, sem ávallt reyndist föður
sínum vel.
Starfsævi sína helgaði Jón Shell
hf. á íslandi og síðar Skeljungi hf.
Hann hóf störf hjá félaginu árið
1935, en saga hans nær þó lengra
aftur í tímann, því hann var einn
af þeim mönnum sem unnu að
byggingu olíustöðvarinnar í Skeija-
firði árið 1927. Fyrstu árin hjá fé-
laginu starfaði hann við uppsetn-
ingu á geymum og dælum, auk
þess sem hann hafði með höndum
eftirlit með olíustöðvum Shell um
land allt.
Árið 1942 gerðist Jón yfirverk-
stjóri í Skeijafirði. Þessir _ tímar
voru miklir umbrotatímar á Islandi
og starfsemin óx hratt. Meðal verk-
efna hans var umsjón með móttöku
olíuskipa, en það var mikið vanda-
verk á þessum árum. Þá voru notað-
ar flotleiðslur og ef veður var slæmt
vildu leiðslurnar gliðna og jafnvel
slitna, og þurfti þá snör handtök
til að bjarga málunum. Þessu starfi
fylgdi mikil ábyrgð og ekkert mátti
fara úrskeiðis, því þá gat gífurlegt
tjón hlotist af. Starf verkstjórans
var ábyrgðarmikið, en Jón skilaði
því með miklum sóma.
Eftir 44 ára starf í Skeijafirði
kom Jón til starfa á aðalskrifstofu
Skeljungs, þar sem hann sá um að
allar nauðsynlegar pappírs- og
rekstrai'vörur væru til taks er á
þurfti að halda. Allt var í röð og
reglu, og vandvirknin og _ snyrti-
mennskan alveg einstök. Á skrif-
stofunni starfaði Jón í alls 10 ár
eða frá árinu 1979 til ársins 1989.
Ti'úmennska og samviskusemi voru
hann voru að koma afrakstrinum
til skila. Að gleðja éinhvern sem
átti bágt.
Hans líf og yndi síðustu árin var
sveitin hans Þórðar, sonar hans,
sem býr á Múla í Álftafirði. Hvort
sem þurfti að senda smátt eða stórt
austur, ekkert var of mikið mál,
því var kippt í liðinn. Að fara niður
í fjöru að vitja um netin eða inn í
dal að athuga með hrossin. Allt
þetta gaf honum eitthvað ómetan-
legt og er ég viss um að þarna
hafi verið að rætast draumur hans,
það að vera í sveitinni og starfa.
Kristinn fæddist á Urðarstíg 3 í
Hafnarfirði og bjó alla tíð í Hafnar-
firði. Foreldrar hans eru Marta Ein-
arsdóttir frá Bolungai-vík og Magn-
ús Sig. Kristinsson, málarameistari
frá Hafnarfirði. Systkini Kristins
eru Marta, gift Erlingi Sigurðssyni
og eiga þau 3 syni; og Sigurður,
kvæntur Ásdísi Gunnarsdóttur og
eiga þau 3 börn. Kristinn kvæntist
Margréti Egilsdóttur frá Reykjavík
þann 2. ágúst 1958. Foreldrar
Margrétar eru Ásta María Stefáns-
dóttir og Egill Ástbjörnsson, versl-
unarstjóri, búsett í Reykjavík.
Kristinn og Margrét eiga saman 5
börn. Elstur er Magnús og á hann
eina dóttur, Jórunni Björk; Viðar
kvæntur Sigríði Baldursdóttur og
eiga þau tvö börn, Kristin Orn og
Hjördísi Sif; Ásta María gift Guð-
bergi Þór Garðarssyni og eiga þau
tvö börn, Björn Ingvar og Birnu
Dögg; Þórður kvæntur Magnhildi
Pétursdóttur og eiga þau eina dótt-
ur, Guðný Sjöfn; og yngst er Sólrún
Ósk, sem býr enn í heimahúsum.
Kristinn byrjaði ungur að vinna'
ýmis störf en var lengst af at-
vinnubílstjóri og var einn af stofn-
endum Bílastöðvar Hafnarfjarðar
árið 1966 og starfaði þar allt fram
til ársins 1975 er hann gerðist verk-
taki hjá Hafnarfjarðarbæ og sá um
sorphreinsun bæjarins. Starf sem
hann gegndi ti! dánardægurs.
Við biðjum algóðan Guð að
geyma hann Kidda afa og styrkja
elsku ömmu Möggu og Sólrúnu
Ósk. Guð blessi okkur öll.
Fyrir hönd barna, tengdabarna
og barnabarna,
Sigríður Baldursdóttir
honum í blóð borin, eins og rúmlega
hálfrar aldar giftudrjúgur starfsfer-
ill ber vott um.
Jón var félagslyndur maður og
hafði gaman af að starfa með fólki.
Hann lagði starfsmannafélagi
Skeljungs mikið lið í gegnum árin
og vann_þtullega að byggingu or-
lofshúsa félagsins í Skorradal.
Hann var gerður að fyrsta heiðurs-
félaga starfsmannafélagsins á 75
ára afmæli sínu árið 1983. Þann
heiður hlaut hann fyrir störf sín í
þágu félagsins allt frá stofnun þess
árið 1970.
Margs er að minnast þegar
traustur samferðamaður fellur frá.
Við samstarfsmenn Jóns um lengri
eða skemmri tíma þökkum honum
samfylgdina í gegnum árin. Minn-
ing hans mun lifa áfram nátengd
sögu Skeljungs. Fjölskyldu hans
vottum við okkar innilegustu sam-
úð.
Blessuð sé minning Jóns Þorkels-
sonar.
F.h. samstarfsmanna,
Rebekka Ingvarsdóttir.