Morgunblaðið - 29.07.1990, Blaðsíða 8
8 C
MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 29. JÚLÍ
dómari vildi ekkert um þetta mál
segja þegar ég sló á þráðinn til
hans. Hann kvaðst þó harma að
þessi ágæti maður skuli hafa lent
í þessu, þar sem hann væri annars
þekktur fyrir prúðmannlega og
drengilega framkomu jafnt itinan
vallar sem utan.
Hvað ertu með?
Guðmundur var hins vegar reiðu-
búinn að rifja upp aðrar sögur í
léttari dúr af samskiptum sínum
við áhorfendur og leikmenn:
„Valur hefur alltaf haft á bak
við sig harðsnúið lið stuðnings-
manna og sérstaklega voru þeir
áberandi fyrir nokkrum árum þegar
Pétur Sveinbjarnarson var formað-
ur, „stuðaranna“ svokölluðu. Þetta
var litskrúðugt lið og eitt sinn var
ég að dæma Valsleik á Laugardals-
velli, sem þeir töpuðu og kom sér
illa fyrir þá því þeir voru í toppbar-
áttunni. Stuðaramir létu mig og
línuverðina heyra það óþvegið þeg-
ar við vorum að fara út af vellinum
og var greinilega heitt í hamsi.
Þegar við ætluðum svo að yfirgefa
völlinn kom einn af vallarstarfs-
mönnum á móti okkur og sagði að
við gætum ekki farið út um aðal-
dyrnar því stuðararnir biðu þar al-
veg brjálaðir. Við yrðum að fara
út um norðurdyrnar, sagði hann.
Ég trúði því nú ekki þótt mennirnir
væru reiðir að þeir færu að leggja
hendur á okkur, en vallarstarfs-
manninum varð ekki hnikað og við
urðum að fara út um norðurdyrnar
og klifra yfir grindverk til að kom-
ast að bílunum. Þegar þangað kom,
eftir talsverða fyrirhöfn, sá ég að
það var ekki kjaftur við aðaldyrn-
ar, þannig að þetta smygl á okkur
og pukur hafði þá verið til einskis,
því stuðararnir höfðu gefist upp á
biðinni.
Annars hef ég verið tiltölulega
heppinn í gegnum árin hvað þetta
varðar og blessunarlega sloppið að
mestu við aðsúg frá áhorfendum.
Þó gerðist það einu sinni, þegar ég
var línuvörður norður á Akureyri,
að ég tók mark af aðkomuliðinu
vegna rangstöðu. Skömmu síðar
kemur séniverspottur fljúgandi yfir
öxlina á mér, með smálögg í, og
nokkrum sekúndum seinna kemur
kókflaska svífandi sömu leið. Mér
brá auðvitað í fyrstu og skrifaði
þessa sendingu á stuðningsmenn
aðkomuliðsins, en eftir á að hyggja
datt mér í hug hvort heimamenn
hefðu ef til vill verið að verðlauna
mig fyrir rangstöðudóminn, með
því að gefa mér séniver í kók.
Þótt atvikið sé broslegt svona
eftir á, var þetta auðvitað grafal-
varlegt mál og það var hótað að
slíta leiknum ef þetta kæmi fyrir
aftur. En það vill stundum brenna
við að menn séu að staupa sig á
vellinum og af því geta hlotist vand-
ræði. Ég man þó eftir öðru spaugi-
legu atviki sem tengist brennivíni
en ég var þá að dæma leik á velli
FERÐASKRIFSTOFA
STÚDENTA
615656
NAMSMANNAFARGJOLD
ÓDÝR KOSTUR
Fyrir alla sem eru 25 ára og yngri
og námsmenn 31 árs og yngri.
Miklir möguleikar — ódýr fargjöld.
INTERRAILKORT - AGUSTTILBOÐ
30 daga lestarkort um Evrópu.
Fyrjr yngri en 26 ára: 17.790- kr.
Fyríreldri en 26 ára: 26.680.- kr.
Innifalið: Interrailkort, bæklingur
um ódýra gististaði, landakort með
lestaráætlunum og peningabelti.
ÆVINTYRAFERÐIR
OG HEIMSREISUR
Ævintýraferðir um Asíu, Afríku
og S.-Ameríku með Encounter Ovsrland.
95 skipulagðar hópferðir
í sérbyggðum trukkum.
Heimsreisurnar okkar eru ódýrar
og þekktar fyrir sveigjanleika
og langan gildistíma.
Ogleymanleg ævintýri - Ometanleg reynsla
FERÐASKRIFSTOFA
STLIDENTA
v/Hringbraut s: 615656.
þar sem áhorfendur voru alveg ofan
í hliðarlínunni. Þar var einn góð-
glaður, sem var alltaf að kalla til
mín um að fara nú að hætta þessu
og koma heldur til sín og fá mér í
glas. Hann virtist fá mikið út úr
þessu og eitt sinn þegar ég var al-
veg við hliðarlínuna kallaði hann:
„Komdu bara að djúsa og vertu
ekki að hlaupa svona eins og vit-
leysingur," og þar sem ég var orð-
inn dálítið þreyttur á þessu kallaði
ég til hans á móti: „Hvað ertu
með?“ og hann svaraði að bragði:
„Ég er með brennsa". - „Blessaður
vertu, ég kem ekki upp á svoleiðis
glundur,“ svaraði ég, og þar með
snarþagnaði vinurinn og heyrðist
hvorki hósti né stuna frá honum
eftir það.“
En öllu gamni fylgir alvara og
Guðmundur kvaðst harma að svo
virtist sem það hefði færst í vöxt
upp á síðkastið að veitast að dómur-
um, einkum á völlum þar sem þeir
eru nánast óvarðir á leið til og frá
búningsherbergjum og ef svo héldi
áfram þyrfti að setja strangari regl-
ur hvað varðaði öryggi þeirra. Hann
vildi ekki tjá sig um mál sem ný-
lega hafa komi upp, eins og til
dæmis á einum félagsvellinum í
Reykjavík ekki alls fyrir löngu, þar
sem hrækt var á dómara eftir tap
heimamanna. Og við þetta má svo
bæta áð það eru ekki bara áhorf-
endur, sem hafa orðið sér og félög-
um sínum til skammar í þessum
efnum. Leikmenn sjálfir virðast
einnig hafa fært sig upp á skaftið
með dólgshætti í garð dómara, eins
og annað dæmi frá sama félags-
velli sýnir, þar sem aðkomumenn
áttu í hlut. Er mál að linni og
skulu það vera lokaorð þessa pist-
ils. Við vitum hvort sem er að það
dugar ekki að deila við dómarann.
....
Maggi Pé. í hita einhvers leiksins hér í eina tíð,
Daglegt tengiflug
til Parísar
/M/JMS