Morgunblaðið - 29.07.1990, Side 17
MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 29. JULI
C 17
vísi en áður. Ellen og Flokkur
mannsins hennar tóku verkin allt
öðrum tökum en fyrr; umgjörðin
öll lausari og fengu einleikararnir
meira svigrúm til að spinna hug-
myndir sínar. Ellen söng m.a. Bill-
ie’s blús og Ellenar blús og undir
lokin sauð og vall á sviði og í sal.
Þannig á að upphefja djasshátíð!
Annar dagur og nótt
Laugardagskvöldið var helgað
utanbæjarsveitum og hófu Jazz-
þingeyingar leikinn. Haraldur Jó-
hannesson á barrýtónsaxafón, Sig-
urður Friðþjófsson á píanó, Leifur
V. Baldursson á rafbassa og Bragi
Ingólfsson á trommur. Þeir koma
frá Húsavík og hafa leikið saman
í nokkrar vikur, voru eiginlega
komnir í frí þegar Árni ísleifs
hringdi í þá og bauð þeim á há-
tíðina, „en slíku boði er ekki hægt
að neita,“ sagði Haraldur barrýtón-
saxafónleikari, sem er mjólkurfræð-
ingur á Húsavík. „Ég spilaði fyrst
opinberlega á sautján ára afmælis-
daginn minn,“ segir hann svo, „en
þennan Chon fékk ég í Bretlandi
fyrir tveimur árum. Hann var fram-
leiddur 1932 og ég held að hann
sé betri en ég. Annars er djasslíf á
Húsavík flörugt. Þar er léttsveit og
djassklúbburinn Jazzþing og fáum
við alltaf gesti að sunnan við og
við, m.a. hafa Jón Páll, Guðmundur
Ingólfsson og Tómas R. Einarsson
leikið hjá okkur.“
Rafbassistinn er tónlistarkennari
á Húsavík og kennir á klassískan
gítar. „Mér finnst djassinn yndislegt
músíkform," segir Leifur, „og fer
vel við klassíkina. Djassinn er svo
frjáls og þar getur maður sprungið
út. Ég plokka rafbassann eins og
gítarinn minn og hef flotið á því
að geta notað sömu tækni.“
Jazzþingeyingar báru það með
sér að vera áhugamannasveit en
mikið ósköp léku þeir New Orleans
ópusinn hans Charamichels vel.
Djasssmiðja Austurlands er ein
kraftmesta djassgrúppa utan
Reykjavíkursvæðisins. Árni ísleifs
er þar prímusmótor og sveitin lék
tvisvar á Djassdögum ríkisútvarps-
ins. Menn kom víða að. Árni frá
Egilsstöðum, Jón Guðmundsson
flautuleikari og Guðjón S. Þorláks-
son bassisti frá Hallormsstað,
Charles Ross gítarleikari frá Reyð-
arfirði og hinn gítarleikari sveitar-
innar, Ármann Einarsson frá
Hornafirði, Þorsteinn Eiríksson
trommari úr Reykjavík en Ragn-
hildur Rós söngkona úr Fellabæ
handan Lagarfljóts. „Þegar Árni
kallar þá hlýðir maður kallinu,"
segir Ármann gítarleikari. „Ég var
í tónlistarskóla hjá Árna og spilaði
á klarinett í dixíbandinu hans, síðan
fór ég að kaupa plötur og hlustaði
mikið á Dexter Gordon og fékk
delluna." Hinn gítaristinn í bandinu
er frá Prestwick. „Ég er Skoti og
stoltur af því. Áður en ég kom til
íslands hlustaði ég á djass en ég
fór ekki að spila djass fyrr en í
apríl sl.“ Charles Ross hefur búið
hérlendis í fjögur ár og kennir við
tónlistarskólana á Reyðarfirði og
Eskifirði.
Þegar djasstónleikunum var lokið
var slegið upp balli til styrktar
djasshátíðinni og léku þar Hitaveit-
an, Ökklabandið og Bláa blúsbandið
og fylltist nú salurinn og margir
allaballar þar og fóru gömlu fylk-
ingarkempurnar á kostum á dans-
gólfinu. Birna Þórðardóttir sló fót-
um um háls manna og Ragnar Stef-
ánsson dansaði af slíkum krafti að
húsið skalf.
Lokadagur
Friðrik Theódórsson hafði komið
í pakkaferð á djasshátíð með bassa-
trompetinn í farangrinum og slóst
í Djasssmiðjuhópinn þar sem leikið
var undir berum himni við útimark-
aðinn á sunnudegi. Um kvöldið voru
svo lokatónleikar í Valaskjálfi og
lék þar kvintett Árna Schevings.
Hljómsveitarstjórinn á _ víbrafón,
Carl Möller á píanó og Árni Valur
Scheving á trommur eins og í Borg-
arbandinu. Svo blés Þorleifur Gísla-
son á altó og tenórsaxafón og á
rafbassann Birgir Bragason. Gam-
an að heyra í honum því hans var
sárt saknað á djassdögunum í höf-
uðborginni í maí.
„Hljómsveit á heimsmæli-
kvarða,“ sagði Höskuldur Egilsson
og hlustaði með öllum líkamanum.
Guðgeir Björnsson, blúsari á
Egilsstöðum, kom þá á sviðið með
gítarinn sinn og flutti nokkra blúsa.
„Ég er óskaplegur Héraðsmaður og
vinn í Mjólkursamlaginu á Egils-
stöðum," segir blúsarinn og bætir
svo við: „Ég kynntist blúsnum í
gegnum Jimi Hendrix og B.B. King
og fór svo að hlusta á Jimmy Reed
og John Lee Hooker. Ég vil helst
spila einn og sem þá stundum text-
ana.“
Djasshátíðinni lauk á miklum
djammsessjóni þar sem menn úr
flestum fjórðungum djömmuðu og
lauk þar góðri djassveislu.
Þá er bara að vona að Árni haldi
áfram að vinna djassinum fylgi í
Austfirðingaljórðungi og haldi
djasshátíð með enn meiri glæsibrag
að ári!
Metsölublaðá hverjum degi!
Paraöhurt eetur komið í veg fyrir
meltingartruilanir i ininu.
Einkaumboð á íslandi:
Pharmaco
HÖRGATÚNI 2.
GARÐABÆ
SÍMI 44811
Einn munnbiti getur hæglega eyðilagt gott sumar-
frí. Oft þarf ekki meira til að koma af stað
meltingartruflunum og niðurgangi.
Paraghurt hjálpar meltingarfærunum að
venjast framandi gerlum og getur
þannig komið í veg fyrir niðurgang.
2 töflur þrisvar á dag er nóg til að
halda maganum í jafnvægi.
Paraghurt fæst í lausasölu
í apótekum.
Taktu Paraghurt með í fríið.
Góða meltingu - Góða ferð!
ER1.ÁGÚST
INNI í MYNDINNI
HJÁÞÉR?
Gjalddagi húsnœðislána er 1. ágúst.
Gerðu ráð fyrir honum í tœka tíð.
16. ágúst leggjast dráttarvextir á lán með iánskjaravísitölu.
1. september leggjast dráttarvextir á lán með byggingarvísitölu.
Gjalddagar húsnœðislána eru:
1. febrúar - 1. maí - 7. ágúst - 1. nóvember.
Sum lán hafa fjóra gjalddaga á ári, önnur aðeins einn.
SPARAÐU ÞÉR ÓÞARFA ÚTGJÖLD AF DRÁTTARVÖXTUM
OG HAFÐU ALLTAF NÆSTU GJALDDAGA INNI í MYNDINNI.
Ún HÚSNÆÐISSTOFNUN RÍKISINS
LJ SUÐURLANDSBRAUT 24 • 108 REYKJAVÍK ■ SÍMI 696900
•t